Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Síða 34
34 PRESSAN 21. júní 2019
D
auðinn kom í sprautu og
aðferðin var alltaf sú sama.
Sprautunál var notuð til að
gera gat á poka sem not-
aður var til að gefa sjúklingum
vökva í æð. Sprautan var síðan not-
uð til þess að sprauta deyfilyfi eða
kalium í pokann, með þeim af-
leiðingum að upp komu alvarleg
vandmál með hjarta sjúklingins
á meðan á aðgerðinni stóð, eða
jafnvel hjartastopp. Níu sjúklingar
létust á þennan hátt í aðgerð á
heilsugæslustöð í Besancon í suð-
austurhluta Frakklands á árunum
2008 til 2017. Fimmtán þeirra sem
eitrað var fyrir lifðu af.
Það óttast það sennilega allir
að þeir muni ekki vakna aftur eft-
ir svæfingu. Í Frakklandi er lækn-
ir ákærður fyrir að hafa eitrað fyrir
sjúklingum sínum 24 sinnum. Lög-
reglan grunar svæfingarlækninn
Frédéric Péchier um að hafa eitrað
fyrir alls 24 sjúklingum og að hafa
reynt að myrða vinnufélaga sinn
á sama hátt. Hann neitar sök og
gengur laus þar til mál hans verð-
ur tekið fyrir.
Málið hefur vakið óhug með-
al margra Frakka, enda óttast
margir að lenda á skurðarborðinu
og vakna aldrei aftur. Málið vek-
ur einnig upp spurningar um það
hvort maður geti treyst læknum og
hjúkrunarfólki í blindni. Hneyksl-
ismál sem þetta eru sjaldgæf en
koma þó reglulega upp.
Sem dæmi má nefna að lands-
rétturinn í Oldenburg í Þýska-
landi dæmdi fyrir nokkru hinn 42
ára gamla hjúkrunarfræðing, Niels
Högel, í lífstíðarfangelsi fyrir að
hafa myrt 85 sjúklinga á árunum
2000 til 2005. Það mál líkist máli
hins franska Frédéric Péchier. Hög-
el sprautaði sjúklingana með ban-
vænu efni með þeim afleiðingum
að þeir fóru í hjartastopp, að sögn
til þess að geta endurlífgað þá.
Endurlífgunin tókst þó ekki alltaf.
Í Ohio er læknirinn William
Husel sakaður um morð á 25 sjúk-
lingum á sjúkrahúsi í Columbus.
Samkvæmt ákærunni drap lækn-
irinn oft alvarlega veika sjúklinga
með því að gefa þeim of stóra
skammta af verkjarlyfinu fentanýl.
Ekki tilviljun
Breska dagblaðið The Times seg-
ir að það sé ekki tilviljun að lækn-
ar eða hjúkrunarfræðingar beri
ábyrgð á þremur af sex stærstu
fjöldamorðum síðari tíma, þar sem
einn einstaklingur hefur verið að
verki.
Líkt og læknirinn Harold Shipman
frá Manchester, sem drap á ár-
unum 1974 til 1998 218 sjúklinga
með því að gefa þeim banvæna
skammta heróíns, án þess að upp
um hann kæmist, líður oft langur
tími áður en grunsemdir vakna.
Læknar hafa í starfi sínu aðgang
að lyfjum og eiga auðveldara en
aðrir með að fela sönnunargögn,
einnig eru vinnufélagar oft ekki
viljugir til þess að setja fram ásak-
anir af ótta við að vera hundsaðir
eða útilokaðir.
Saksóknarinn í Besancon í
Frakklandi heldur því fram að hinn
47 ára gamli Frédériv Péchier hafi í
níu ár haft frjálsar hendur til þess
að sinna þessum myrkraverkum.
Grunur beindist að honum
í janúar 2017 eftir að óútskýrð
hjartavandamál komu upp hjá
sjúklingum sem gengust undir að-
gerð á einkaheilsugæslunni Saint-
-Vincent.
Stjórn sjúkrahússinns ákvað
að fara af stað með rannsókn og
grunurinn beindist fljótlega að Fré-
dériv Péchier, sem var ein af stór-
stjörnum heilsugæslunnar. Hann
fór fyrir liði 10 svæfingarlækna og
framkvæmdi sjálfur um 2.000 svæf-
ingar á ári.
Í skýrslu sem gefin var út af heil-
brigðisyfirvöldum á svæðinu var
niðurstaðan sú að um viljaverk
hefði verið að ræða. Í skýrslunni
kom einnig fram að tvö svipuð at-
vik hefðu komið upp árið 2008.
Þetta kom skriði á rannsóknina og
læknirinn var í mars 2017, hand-
tekinn í fyrsta sinn og sakaður um
að hafa eitrað fyrir sjö sjúklingum.
Þetta voru fjórar konur og þrír karl-
ar á aldrinum 37 til 53 ára og létu-
st tvö þeirra í einföldum aðgerðum.
Stóð til að myrða vinnufélaga?
Eftir þetta hefur fjöldi annarra
mála bæst við, eitt þeirra er mál
hins fjögurra ára gamla Teddy,
sem var lagður inn í febrúar 2016 í
kirtlatöku. Hann fór í hjartastopp á
meðan á aðgerðinni stóð, hann var
endurlífgaður en á í dag við sálræn
vandamál að stríða.
Á þessu ári bættust við ákær-
ur um 17 eitranir til viðbótar, þar
af létust sjö. Péchier neitar sök og
heldur því fram að þetta sé sam-
særi vinnufélaganna gegn honum.
Að frátöldu einu tilfelli var aldrei
um sjúklinga Pélchier sjálfs að
ræða. Læknirinn er aftur á móti
grunaður um að hafa sprautað
banvænum lyfjum í lyfjapoka sjúk-
linga vinnufélaga sinna. Þegar upp
komu hjartavandamál hjá sjúk-
lingunum hljóp hann til og sýndi
hæfileika sína við endurlífgun sjúk-
linganna.
Samkvæmt saksóknaranum
eitraði Pélchier fyrir einum sjúk-
linga sinna, 72 ára gömlum karl-
manni, til þess að beina gruninum
frá sér. Á þann hátt gat hann haldið
því fram að hann væri líka fórnar-
lamb.
En í öllum 24 tilvikunum var
svæfingarlæknirinn sá eini sem var
viðstaddur og þegar honum var, í
tenglsum við rannsóknina, bannað
að nálgast sjúkrahúsið hættu eitr-
anirnar.
Meðal vitnanna í máli læknis-
ins er fyrrverandi vinnufélagi hans,
hin 64 ára gamla Catherine Nam-
bot. Hún kallaði Péchier einu sinni
Zorro, sem elskaði hlutverk sitt
sem bjargvættur. En árið 2008 lést
einn af sjúklingum Nambot, hann
fór í hjartastopp í einfaldri aðgerð.
Krufning og blóðprufur leiddu í ljós
að sjúklingurinn hafði fengið deyfi-
lyf sem hún notaði aldrei sjálf.
Átta árum síðar var Nambot
sjálf í hættu á að verða næsta fórn-
arlamb. Þegar hún var lögð inn til
að fara í einfalda aðgerð á öxl, bað
Péchier um að fá að deyfa hana.
Vegna mistaka lenti vökvapokinn
með eitrinu í vitlausri skurðstofu,
þar sem annar sjúklingur, Laurence
Nicod, lést af völdum hjartaáfalls
sama dag. Samkvæmt þeim sem
rannsaka málið leikur enginn vafi á
því að vinnufélaginn átti að fá lyfið.
Rannsókn á andlegri heilsu læknis-
ins leiddi í ljós að hann er með flók-
inn persónuleika með perverskar
og sjálfselskar tilhneigingar.
Kona læknisins, Nathalie
Péchier, segir við Le Monde að
þetta sé algjört bull: „Ég hef þekkt
hann í 20 ár og ég veit að hann get-
ur ekki gert neinum mein. Ég vann
á geðdeild í sex mánuði áður en ég
varð hjartalæknir, ég hef hitt marga
sem eru veikir á geði, fólk með geð-
klofa og aðra geðsjúkdóma. Ég get
fullvissað ykkur um að maðurinn
minn er alheilbrigður.“ n
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
H
ra
ðþjónusta
Allir út að hjóla
Eitt mesta úrval
landsins í allar gerðir faratækja
TUDORmeð
Bíldshöfði 12 - skorri.is - 5771515
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is „Það óttast það
sennilega allir að
þeir muni ekki vakna aftur
eftir svæfingu.
SVÆFINGALÆKNIRINN „ZORRO“
Ákærður fyrir að myrða sjúklinga í þeim tilgangi að endurlífga þá
Frederic Pechier Svæfingalæknir í Besancon.