Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 23
Toppurinn 21. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Fyrir sjálfstæða og stílmeðvitaða einstaklinga sem elska falleg reiðhjól Reiðhjólaverzlunin Berlin hefur skapaði sér nafn sem reiðhjólaverslun með meiru. Berlin sérhæfir sig í klassískum hjólum, vönduðum fylgihlutum og er með ýms- ar aðrar fallegar vörur sem henta til daglegra nota. Einnig er verkstæði á staðnum og er tekið á móti öllum gerðum reiðhjóla til viðgerða, viðhalds, umfelgunar og samsetningar á hjólum „Við erum mikið í þessum klassísku vintage-hjólum, sem eru falleg útlits og höfða til fólks sem vill ekki hjóla í sérstökum hjólafötum heldur bara í venjulegum hversdags- klæðnaði,“ segir Jón Óli Ólafsson, eigandi fyrirtækisins og eini starfsmaðurinn. Meðal vinsælustu reiðhjóla hjá Berlín eru REID Ladies Classics og svo hjól undir merkinu Berlin. „Við viljum bjóða upp á ein- föld, einstök og skemmtileg hjól fyrir sjálfstæða og stílmeðvit- aða einstaklinga,“ segir Jón Óli. Berlin býður einnig reiðhjól frá Pure Cycles, Achille og Pashley. Nýjasta hjólamerkið er ítalska merkið Cinelli. Cinelli býður upp á alls konar útgáfur af samsetningum við stellið. Reiðhjólaverzlunin Berlin skipuleggur og heldur utan um Tweed Ride. „Hér kemur fólk saman og hjólar í klass- ískum fötum og dragtir í anda breskra hefðarmanna og -kvenna. Hjólað er um á klass- ískum og virðulegum borg- arhjólum,“ segir Jón Óli um þennan skemmtilega viðburð. Gömul reiðhjól fá nýtt líf Óhætt er að segja að Jón Óli veiti góða og persónulega þjónustu en hann hefur meðal annars hjálpað viðskiptavinum að láta gömul reiðhjól öðlast nýtt líf. „Við höfum bjargað hérna hjólum frá allt aftur til 1950, og svo hjólum frá sjötta, sjöunda og áttunda áratugn- um. Ef fólk kaupir aukahlutina hér set ég hjólin saman við- komandi að kostnaðarlausu, en svo eru aðrir sem kjósa að gera þetta sjálfir en fá efni og þá aðstoð og ráð sem þeir vilja hjá mér,“ segir Jón Óli. Opið lengur með hækkandi sól Reiðhjólaverzlunin Berlin er til húsa að Ármúla 4. Núna 2. maí lengdist afgreiðslutíminn og er opið þriðjudaga–föstudaga frá 11 til 19 og laugardaga frá 11 til 17. Lokað er sunnudaga og mánudaga. Að sögn Jóns Óla fer áhuginn og aðsóknin að aukast upp úr miðjum mars en það fer þó eftir veðri. „Maður finnur fyrst fyrir auknum áhuga á vefsíðunni en fólk byrjar að skoða þar áður en það kemur á staðinn,“ segir Jón Óli en ágæt vefsíða verslunarinnar er á slóðinni reidhjolaverzlunin.is. „Það er mjög mikið að gera inn í júní, en síðan kemur dálítil sumarleyfalægð í júlí. Í ágúst, september og október er síðan mikil traffík,“ segir hann, en Jón Óli finnur vel fyrir vaxandi áhuga á hjólreiðum allt árið. „Það er hægt að setja negld dekk undir flest hjól sem hér eru til sölu og það er algengt að fólk fari að spyrjast fyrir um slíkt með haustinu. Ég finn líka þá breytingu seinni árin að viðskiptavinir nefna þennan möguleika við mig að fyrra bragði.“ n REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.