Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Qupperneq 23
Toppurinn
21. júní 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Fyrir sjálfstæða og stílmeðvitaða
einstaklinga sem elska falleg reiðhjól
Reiðhjólaverzlunin Berlin hefur skapaði sér nafn sem reiðhjólaverslun
með meiru. Berlin sérhæfir sig
í klassískum hjólum, vönduðum
fylgihlutum og er með ýms-
ar aðrar fallegar vörur sem
henta til daglegra nota. Einnig
er verkstæði á staðnum og
er tekið á móti öllum gerðum
reiðhjóla til viðgerða, viðhalds,
umfelgunar og samsetningar
á hjólum
„Við erum mikið í þessum
klassísku vintage-hjólum,
sem eru falleg útlits og höfða
til fólks sem vill ekki hjóla í
sérstökum hjólafötum heldur
bara í venjulegum hversdags-
klæðnaði,“ segir Jón Óli
Ólafsson, eigandi fyrirtækisins
og eini starfsmaðurinn. Meðal
vinsælustu reiðhjóla hjá Berlín
eru REID Ladies Classics og
svo hjól undir merkinu Berlin.
„Við viljum bjóða upp á ein-
föld, einstök og skemmtileg hjól
fyrir sjálfstæða og stílmeðvit-
aða einstaklinga,“ segir Jón Óli.
Berlin býður einnig reiðhjól
frá Pure Cycles, Achille og
Pashley. Nýjasta hjólamerkið
er ítalska merkið Cinelli. Cinelli
býður upp á alls konar útgáfur
af samsetningum við stellið.
Reiðhjólaverzlunin Berlin
skipuleggur og heldur utan
um Tweed Ride. „Hér kemur
fólk saman og hjólar í klass-
ískum fötum og dragtir í anda
breskra hefðarmanna og
-kvenna. Hjólað er um á klass-
ískum og virðulegum borg-
arhjólum,“ segir Jón Óli um
þennan skemmtilega viðburð.
Gömul reiðhjól fá nýtt líf
Óhætt er að segja að Jón Óli
veiti góða og persónulega
þjónustu en hann hefur meðal
annars hjálpað viðskiptavinum
að láta gömul reiðhjól öðlast
nýtt líf. „Við höfum bjargað
hérna hjólum frá allt aftur til
1950, og svo hjólum frá sjötta,
sjöunda og áttunda áratugn-
um. Ef fólk kaupir aukahlutina
hér set ég hjólin saman við-
komandi að kostnaðarlausu,
en svo eru aðrir sem kjósa að
gera þetta sjálfir en fá efni og
þá aðstoð og ráð sem þeir vilja
hjá mér,“ segir Jón Óli.
Opið lengur með hækkandi sól
Reiðhjólaverzlunin Berlin er til
húsa að Ármúla 4. Núna 2. maí
lengdist afgreiðslutíminn og
er opið þriðjudaga–föstudaga
frá 11 til 19 og laugardaga frá
11 til 17. Lokað er sunnudaga og
mánudaga.
Að sögn Jóns Óla fer
áhuginn og aðsóknin að aukast
upp úr miðjum mars en það
fer þó eftir veðri. „Maður finnur
fyrst fyrir auknum áhuga á
vefsíðunni en fólk byrjar að
skoða þar áður en það kemur
á staðinn,“ segir Jón Óli en
ágæt vefsíða verslunarinnar er
á slóðinni reidhjolaverzlunin.is.
„Það er mjög mikið að gera
inn í júní, en síðan kemur dálítil
sumarleyfalægð í júlí. Í ágúst,
september og október er síðan
mikil traffík,“ segir hann, en
Jón Óli finnur vel fyrir vaxandi
áhuga á hjólreiðum allt árið.
„Það er hægt að setja negld
dekk undir flest hjól sem hér
eru til sölu og það er algengt
að fólk fari að spyrjast fyrir um
slíkt með haustinu. Ég finn líka
þá breytingu seinni árin að
viðskiptavinir nefna þennan
möguleika við mig að fyrra
bragði.“ n
REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN: