Fréttablaðið - 04.09.2019, Page 2
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Veður
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s
og víða léttskýjað, en skýjað með
köflum NA-til. Skúrir á Vestfjörðum
síðdegis og í kvöld.Hæg vestlæg
átt og lítilsháttar væta í flestum
landshlutum á morgun. SJÁ SÍÐU 14
Mótmælt við Ráðhúsið
LÖGREGLUMÁL Í sumar varaði lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu við
því að reiðhjólaþjófnaður á höfuð-
borgarsvæðinu hefði færst í vöxt.
Hafa þjófarnir gerst sífellt bíræfnari
og láta hvorki lása né rammgerðar
keðjur stöðva sig. Leikur grunur á
að í mörgum tilvikum sé um skipu-
lagða glæpastarfsemi að ræða.
Einn af þeim sem hafa látið sig
málið varða er Reykvíkingurinn
Bjartmar Leósson. Á nokkrum mán-
uðum hefur hann fundið fjölmörg
hjól fyrir fórnarlömb fingralanga í
miðbæ höfuðborgarinnar.
„Þetta byrjaði í raun fyrir til-
viljun. Ég er búsettur í miðbænum
og fyrir nokkrum mánuðum rak
ég augun í þrjú hjól sem voru læst í
anddyri Háspennu við Hlemm. Það
sem vakti athygli mína var að lásinn
var bara ódýrt skran og það vakti
grunsemdir mínar,“ segir Bjartmar.
Hann tók mynd af hjólunum og
hafði samband við lögreglu og hug-
boð hans reyndist rétt. Hjólunum
hafði verið stolið og árvekni Bjart-
mars varð til þess að þau komust til
réttra eigenda.
Segja má að þetta hafi komið
Bjartmari á bragðið og í kjölfarið
fór hann að leggja sig fram við að
hafa upp á hjólum. „Það er greini-
lega faraldur í gangi og ég ákvað
bara að gera eitthvað í málunum.
Þetta snýst ekki um annað en að
hafa augun opin og koma upplýs-
ingunum áfram.“
Hafa meðlimir Facebook-hópsins
Hjóladót Tapað, fundið eða stolið
notið góðs af vinnu Bjartmars og
áætlar hann að hann hafi á þessum
stutta tíma fundið um 15 hjól eða
aðstoðað eigendur þeirra við að
hafa upp á þeim. Í þeim hópi var
einmitt blaðamaður Fréttablaðsins
sem naut liðsinnis Bjartmars við að
hafa upp á stolnu hjóli sonar síns.
Hefur Bjartmar síðan gengið undir
nafninu „Hjólhestahvíslarinn“ á rit-
stjórn blaðsins.
Bjartmar segir að upplifun sín
sé sú að í einfaldri mynd skiptist
þjófnaðirnir í tvo flokka. „Flestum
hjólunum sem ég hef fundið hafa
einstaklingar í neyslu stolið og
freistað þess að selja þau fyrir lágt
verð til þess að fjármagna neyslu
sína. En ég hef einnig frétt af erlend-
um hópum sem eru skipulagðari
og koma stolnum hjólum beint úr
landi,“ segir Bjartmar. Hann tekur
undir varnaðarorð lögreglunnar
um að lásar stöðvi ekki þjófnað. „Þú
getur allt eins notað lakkrísreimar
eins og þessa hefðbundnu krullu-
lása sem fólk er að nota,“ segir hann.
Að hans sögn eru nokkrir staðir
líklegri en aðrir þegar kemur að því
að hafa upp á stolnum hjólum. „Ég
er með nokkra staði sem eru líklegri
en aðrir og geri mér reglulega ferð
þar fram hjá. Oftar en ekki sé ég ein-
hver hjól í reiðileysi sem ég reyni þá
að finna eigendurna að. Samfélags-
miðlarnir gera manni auðvelt fyrir,“
segir Bjartmar, sem er hvergi nærri
hættur í þessari samfélagsþjónustu
sinni. bjornth@frettabladid.is
Leitar uppi stolin hjól
Það er greinilega
faraldur í gangi og
ég ákvað bara að gera
eitthvað í málunum.
Bjartmar Leósson,
hjólahvíslari
í Reykjavík
Á nokkrum mánuðum
hefur Bjartmar Leós-
son fundið á annan tug
stolinna hjóla og stuðl-
að að því að koma þeim
í réttar hendur. Hann
segist telja að faraldur
sé í gangi og að allir geti
lagt hönd á plóg til að
uppræta glæpina með
því að hafa augun opin.
Andri Már Sigurðsson endurheimti hjólið sitt í gær með aðstoð Bjartmars
sem má með sanni segja að sé hjólahvíslari Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KJARAMÁL Charlotta Oddsdóttir,
formaður Dýralæknafélags Íslands,
segir að núverandi starfsumhverfi
þeirra sem sinna dreif býlum svæð-
um sé óviðunandi og samningar
úreltir.
Eru þetta svæði á borð við Ísa-
fjörð, Dalabyggð, Húsavík og Egils-
staði.
Charlotta segir að dýralækna-
skortur sé í landinu og samningar
séu ekki nægilega háir til að halda
fólki á þessum svæðum. „Þetta eru
verktakagreiðslur og dýralæknar
eru að fá rúmlega 400 þúsund
krónur í laun. Samt eru þeir á
vakt allan sólarhringinn, allt árið
um kring og þurfa sjálfir að finna
af leysingar.“
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur skipað hóp til þess að leggja
til breytingar á kerfinu en Char-
lotta óttast að það takist ekki áður
en samningar renna út í lok októ-
ber. Þegar er búið að bjóða dýra-
læknum óbreytta samninga en
óvíst hvort þeir taki þeim. Þá gæti
orðið dýralæknalaust á þessum
svæðum.
„Það er skelfileg tilhugsun,“ segir
Charlotta. „Þá verður mjög langt
fyrir bændur að sækja þjónustu,
eða ekki hægt. Tilkostnaður verður
meiri og samgöngur eru oft óviss-
ar.“ – khg
Gæti orðið
dýralæknalaust
í dreifbýli
Þetta eru verktaka-
greiðslur og dýra-
læknar eru að fá rúmlega
400 þúsund krónur í laun.
Charlotta Odds-
dóttir, formaður
Dýralæknafélags
Íslands
SLYS Kafari lést í slysi við hvera-
strýturnar í Eyjafirði í gær. Kom
þetta fram í tilkynningu lögreglu.
Landhelgisgæslan var kölluð út
klukkan 14 eftir að tilkynning um
slysið barst. Varðskipið Týr var
skammt frá slysstað og léttbátur
sendur á staðinn. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var einnig kölluð út en
síðar afturkölluð.
Kafarinn var í kjölfarið f luttur á
sjúkrahúsið á Akureyri og þar var
hann úrskurðaður látinn. – ilk
Kafari lést í slysi
í Eyjafirði í gær
Varðskipið Týr var nálægt slysstað.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Húsnæðisvanda heimilislausra var mótmælt við Ráðhús Reykjavíkur í gær. Mótmælin, sem fram fóru klukkan 15 og voru þögul, voru á vegum
minningarsjóðsins Öruggs skjóls. Að sögn stofnanda sjóðsins sofa yfir 200 manns á götum borgarinnar hverja nótt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-5
1
F
C
2
3
B
4
-5
0
C
0
2
3
B
4
-4
F
8
4
2
3
B
4
-4
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K