Fréttablaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.09.2019, Blaðsíða 24
Þessi skattlagning er fordæmalaus í evrópsku samhengi og ljóst er að arðsemi íslensku bankanna myndi batna umtalsvert ef skattaum- hverfi þeirra væri fært í sambærilegt horf og þekkist á meginlandinu. Eitt af meginmarkmiðum lífskjarasamninganna var að leita leiða til þess að lækka vaxta­stig í landinu. Fjölmörg tækifæri er að finna í rekstrarumhverfi fjármálafyrir­ tækja til að ná fram því markmiði og mikilvægt að allir leggist á eitt í því verkefni. Í þessu samhengi má benda á að Bankasýsla ríkisins hefur bent á skilvirkar leiðir til þess að ná fram minni vaxtamun. Í minnisblaði Bankasýslunnar sem fylgdi hvítbók stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið er bent á að hófleg Áhrif skatta á vaxtakjör Í minnisblaði Bankasýslu ríkisins sem fylgdi hvítbók stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið var bent á skilvirkar leiðir til að minnka vaxtamun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI lækkun á eftirlitsgjaldi fjármála­ fyrirtækja ásamt helmingslækkun á fjársýsluskatti á laun annars vegar og hagnað umfram milljarð hins vegar geta minnkað vaxtamun vaxtaberandi eigna og skulda úr 2,6 prósent niður í 2,3 prósent. Þessi útreikningur miðast við að stjórn­ völd standi við áform ríkisfjármála­ áætlunar um að lækka gjaldhlutfall bankaskattsins úr 0,376 prósent í 0,145 prósent í jöfnum skrefum á árunum 2020 til 2023. Því miður ákváðu stjórnvöld að fresta þeirri lækkun fyrr á þessu ári. Til við­ bótar telur Bankasýslan að lækkun eiginfjárkrafna og hagræðing sem skilar sér í lægri rekstrarkostnaði í tengslum við samstarf um rekstur sameiginlegra fjármálainnviða gæti leitt til þess að vaxtamunurinn færi niður í 2,1 prósent. Ná þarf tökum á kostnaði Í nýjustu útgáfu Fjármála, tíma­ rits Fjármálaeftirlitsins, fjalla þeir Finn ur Svein björns son, fram­ kvæmda stjóri banka sviðs, Elm­ ar Ásbjörns son, for stöðumaður áhættu grein ing ar á banka sviði, og Skúli Magnús son, sér fræðing­ ur í fjár hags legu eft ir liti, um þær áskoranir sem íslenska bankakerfið stendur frammi fyrir um þessar mundir. Sérfræðingar FME draga fram sterka stöðu íslensku bankanna en benda á sama tíma á að þeir standi frammi fyrir krefjandi aðstæðum. Styrkurinn felst meðal annars í háum eiginf járhlutföllum og sterkum efnahagsreikningi. Helstu áskoranirnar í rekstri bankanna snúa hins vegar að því að auka arð­ semi og ná tökum á rekstrarkostn­ aði og annars vegar að gera þá betur í stakk búna til þess að takast á við breyttar aðstæður í efnahagslífinu. Í greininni er bent á að arðsemi íslensku bankanna sé ekki full­ nægjandi. Þannig var arðsemi Arion banka, Landsbankans og Íslandsbanka að meðaltali 6,1 pró­ sent í fyrra og 6,8 prósent fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Til samanburðar er bent á að í gögn frá Evrópska bankaeftirlitinu sýni að meðal­ tal arðsemi ríf lega 150 evrópskra banka var 7,1 prósent árið 2018. Sérfræðingar FME segja að það sé ólíklegt að hluthafar íslensku bankanna muni til lengdar sætta sig við svona lága arðsemi. Þeir sem fara með eignarhlut ríkisins í bankakerfinu ættu að taka þessi orð til sín en sem kunnugt er þá eru Íslandsbanki og Landsbanki enn í ríkiseigu. 20 milljarðar í ótekjutengd gjöld og skatta Það sem einkennir rekstrarum­ hverfi íslenskra banka í samanburði við aðra banka á Vesturlöndum er séríslensk álagning opinberra gjalda. Um er að ræða sérstakan bankaskatt en álagning hans er um um 12 prósent af rekstrar­ kostnaði bankanna. Þá er lagður fjársýsluskattur á launagreiðslur fjármálafyrirtækja og sérstakur f jársýsluskattur á hagnað fjár­ málafyrirtækja umfram 1 milljarð. Íslenskir bankar hafa á undan­ förnum árum verið að borga um 40 milljarða í opinber gjöld á ári. Helmingurinn af þessari upphæð, eða um 20 milljarðar, er ótekju­ tengdur. Heildarvaxtatekjur stóru viðskiptabankanna hafa á undan­ förnum árum verið í kringum 100 milljarðar og eru því ótekjutengd gjöld um fimmtungur af þeirri upp­ hæð. Þessi skattlagning er fordæma­ laus í evrópsku samhengi og ljóst er að arðsemi íslensku bankanna myndi batna umtalsvert ef skatta­ umhverfi þeirra væri fært í sam­ bærilegt horf og þekkist á megin­ landinu. Að sama skapi myndi virði eignarhlutar ríkisins í banka­ kerfinu aukast við slíkar breytingar. Allir hagnast á bættu rekstrarumhverfi Þung skattlagning sem ekki á sér hliðstæðu í nágrannalöndunum og er ótengd tekjum eða hagn­ aði dregur úr getu fjármálafyrir­ tækja til að þjóna efnahagslífinu og verður til þess að auka kostnað við fjármálaþjónustu. Það eykur kostnað sem bitnar á þeim vaxta­ kjörum sem fjármálafyrirtæki geta boðið heimilum og fyrirtækjum og skerðir þannig samkeppnishæfni efnahagslífsins. Fjármálafyrirtæki eru mikilvægur hluti samfélagsins og þátttakendur í f lestum af stærstu fjárhagslegu ákvörðunum heimila og fyrirtækja. Því er nauðsynlegt að gagnger endurskoðun fari fram á skattaumhverfi fjármálafyrirtækja með það að markmiði að tryggja að þau geti fjármagnað fjárfestingar einstaklinga og fyrirtækja og ávaxt­ að sparnað með sem skilvirkustum hætti. Katrín Júlíusdóttir framkvæmda­ stjóri Samtaka fjármála­ fyrirtækja Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Ekkert mál hjá Vodafone Það skiptir okkur máli að vera í góðu sambandi 24 tíma sólarhringsins. Ég þarf bara að biðja um það sem þarf og Vodafone sér um restina. 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN 0 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B 4 -8 3 5 C 2 3 B 4 -8 2 2 0 2 3 B 4 -8 0 E 4 2 3 B 4 -7 F A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.