Fréttablaðið - 04.09.2019, Síða 24
Þessi skattlagning
er fordæmalaus í
evrópsku samhengi og ljóst
er að arðsemi íslensku
bankanna myndi batna
umtalsvert ef skattaum-
hverfi þeirra væri fært í
sambærilegt horf og þekkist
á meginlandinu.
Eitt af meginmarkmiðum lífskjarasamninganna var að leita leiða til þess að lækka vaxtastig í landinu. Fjölmörg tækifæri er að finna í
rekstrarumhverfi fjármálafyrir
tækja til að ná fram því markmiði
og mikilvægt að allir leggist á eitt í
því verkefni.
Í þessu samhengi má benda á að
Bankasýsla ríkisins hefur bent á
skilvirkar leiðir til þess að ná fram
minni vaxtamun. Í minnisblaði
Bankasýslunnar sem fylgdi hvítbók
stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir
fjármálakerfið er bent á að hófleg
Áhrif skatta
á vaxtakjör
Í minnisblaði Bankasýslu ríkisins sem fylgdi hvítbók stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið var bent á skilvirkar leiðir til að minnka vaxtamun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
lækkun á eftirlitsgjaldi fjármála
fyrirtækja ásamt helmingslækkun
á fjársýsluskatti á laun annars vegar
og hagnað umfram milljarð hins
vegar geta minnkað vaxtamun
vaxtaberandi eigna og skulda úr
2,6 prósent niður í 2,3 prósent. Þessi
útreikningur miðast við að stjórn
völd standi við áform ríkisfjármála
áætlunar um að lækka gjaldhlutfall
bankaskattsins úr 0,376 prósent í
0,145 prósent í jöfnum skrefum á
árunum 2020 til 2023. Því miður
ákváðu stjórnvöld að fresta þeirri
lækkun fyrr á þessu ári. Til við
bótar telur Bankasýslan að lækkun
eiginfjárkrafna og hagræðing sem
skilar sér í lægri rekstrarkostnaði í
tengslum við samstarf um rekstur
sameiginlegra fjármálainnviða gæti
leitt til þess að vaxtamunurinn færi
niður í 2,1 prósent.
Ná þarf tökum á kostnaði
Í nýjustu útgáfu Fjármála, tíma
rits Fjármálaeftirlitsins, fjalla þeir
Finn ur Svein björns son, fram
kvæmda stjóri banka sviðs, Elm
ar Ásbjörns son, for stöðumaður
áhættu grein ing ar á banka sviði,
og Skúli Magnús son, sér fræðing
ur í fjár hags legu eft ir liti, um þær
áskoranir sem íslenska bankakerfið
stendur frammi fyrir um þessar
mundir.
Sérfræðingar FME draga fram
sterka stöðu íslensku bankanna en
benda á sama tíma á að þeir standi
frammi fyrir krefjandi aðstæðum.
Styrkurinn felst meðal annars
í háum eiginf járhlutföllum og
sterkum efnahagsreikningi. Helstu
áskoranirnar í rekstri bankanna
snúa hins vegar að því að auka arð
semi og ná tökum á rekstrarkostn
aði og annars vegar að gera þá betur
í stakk búna til þess að takast á við
breyttar aðstæður í efnahagslífinu.
Í greininni er bent á að arðsemi
íslensku bankanna sé ekki full
nægjandi. Þannig var arðsemi
Arion banka, Landsbankans og
Íslandsbanka að meðaltali 6,1 pró
sent í fyrra og 6,8 prósent fyrstu þrjá
mánuði þessa árs. Til samanburðar
er bent á að í gögn frá Evrópska
bankaeftirlitinu sýni að meðal
tal arðsemi ríf lega 150 evrópskra
banka var 7,1 prósent árið 2018.
Sérfræðingar FME segja að það
sé ólíklegt að hluthafar íslensku
bankanna muni til lengdar sætta
sig við svona lága arðsemi. Þeir
sem fara með eignarhlut ríkisins
í bankakerfinu ættu að taka þessi
orð til sín en sem kunnugt er þá eru
Íslandsbanki og Landsbanki enn í
ríkiseigu.
20 milljarðar í ótekjutengd
gjöld og skatta
Það sem einkennir rekstrarum
hverfi íslenskra banka í samanburði
við aðra banka á Vesturlöndum
er séríslensk álagning opinberra
gjalda. Um er að ræða sérstakan
bankaskatt en álagning hans er
um um 12 prósent af rekstrar
kostnaði bankanna. Þá er lagður
fjársýsluskattur á launagreiðslur
fjármálafyrirtækja og sérstakur
f jársýsluskattur á hagnað fjár
málafyrirtækja umfram 1 milljarð.
Íslenskir bankar hafa á undan
förnum árum verið að borga um
40 milljarða í opinber gjöld á ári.
Helmingurinn af þessari upphæð,
eða um 20 milljarðar, er ótekju
tengdur. Heildarvaxtatekjur stóru
viðskiptabankanna hafa á undan
förnum árum verið í kringum 100
milljarðar og eru því ótekjutengd
gjöld um fimmtungur af þeirri upp
hæð.
Þessi skattlagning er fordæma
laus í evrópsku samhengi og ljóst
er að arðsemi íslensku bankanna
myndi batna umtalsvert ef skatta
umhverfi þeirra væri fært í sam
bærilegt horf og þekkist á megin
landinu. Að sama skapi myndi
virði eignarhlutar ríkisins í banka
kerfinu aukast við slíkar breytingar.
Allir hagnast á bættu
rekstrarumhverfi
Þung skattlagning sem ekki á sér
hliðstæðu í nágrannalöndunum
og er ótengd tekjum eða hagn
aði dregur úr getu fjármálafyrir
tækja til að þjóna efnahagslífinu
og verður til þess að auka kostnað
við fjármálaþjónustu. Það eykur
kostnað sem bitnar á þeim vaxta
kjörum sem fjármálafyrirtæki geta
boðið heimilum og fyrirtækjum og
skerðir þannig samkeppnishæfni
efnahagslífsins. Fjármálafyrirtæki
eru mikilvægur hluti samfélagsins
og þátttakendur í f lestum af stærstu
fjárhagslegu ákvörðunum heimila
og fyrirtækja. Því er nauðsynlegt
að gagnger endurskoðun fari fram á
skattaumhverfi fjármálafyrirtækja
með það að markmiði að tryggja að
þau geti fjármagnað fjárfestingar
einstaklinga og fyrirtækja og ávaxt
að sparnað með sem skilvirkustum
hætti.
Katrín
Júlíusdóttir
framkvæmda
stjóri Samtaka
fjármála
fyrirtækja
Sterkt og gott
samband
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Ekkert mál hjá
Vodafone
Það skiptir okkur máli að vera í góðu
sambandi 24 tíma sólarhringsins.
Ég þarf bara að biðja um það sem
þarf og Vodafone sér um restina.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-8
3
5
C
2
3
B
4
-8
2
2
0
2
3
B
4
-8
0
E
4
2
3
B
4
-7
F
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K