Fréttablaðið - 04.09.2019, Side 4
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 Sláandi afleiðingar hrekks í Vogaskóla Kolbeinn Lárus tví-
brotnaði á handlegg eftir að búið
var að eiga við hjólið hans.
2 Netheimar loga vegna nýrrar klippingar Harry Styles Aðdá-
endur eru gjörsamlega að missa
sig yfir nýrri klippingu Harry Styles
sem hefur ekki vakið mikla lukku
til þessa.
3 Köfunarslys í Eyjafirði Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út en varðskipið Týr
reyndist skammt frá slysstað og
kom til aðstoðar.
4 Catalina missti allt sitt þegar Geymslur brunnu Miðbaugs-
maddaman Catalina Ncogo krefst
skaðabóta úr hendi Geymslna
eftir stórbrunann í apríl í fyrra.
Hún fer fram á átján milljónir
króna.
5 Sauð upp úr í Eyjum: Brot á siðareglum og samskiptum
slitið Óformlegum samskiptum
meiri- og minnihluta bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja var slitið
á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Miklar öryggisráðstafanir verða við Höfða í dag þar sem varaforseti Bandaríkjanna fundar með íslenskum ráðamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UTANRÍKISMÁL Gríðarlegur við-
búnaður er vegna opinberrar heim-
sóknar Mikes Pence, varaforseta
Bandaríkjanna, til landsins í dag.
Pence lendir á Íslandi um hádegi
en nokkur hundruð bandarískir
starfsmenn ráðherrans auk leyni-
þjónustumanna eru á landinu
vegna heimsóknarinnar. Pence
kemur hingað beint frá Írlandi
þar sem hann átti fundi með þar-
lendum ráðamönnum.
Mun Pence funda með Guðlaugi
Fundað í rammgirtum Höfða
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, hittir forseta Íslands, utanríkisráðherra og borgarstjóra í Höfða í
dag. Viðbúnaður er gríðarlegur vegna fundarins og verður götum í kringum fundarstaðinn lokað í dag.
Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra
í Höfða og munu þeir ræða við-
skiptamál en einnig öryggis- og
varnarmál. Auk fundar með utan-
ríkisráðherra mun Pence einnig
hitta Dag B. Eggertsson borgar-
stjóra í Höfða. Miklar öryggisráð-
stafanir hafa verið gerðar í kring-
um Höfða vegna fundarhaldanna
og verður Borgartúni og mögulega
f leiri götum lokað um tíma.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hittir Pence Guðna Th.
Jóhannesson, forseta Íslands,
klukkan tvö í dag, áður en við-
skiptaþing ráðherranna hefst
klukkan 14.30. Til stóð að Pence
snæddi hádegisverð með forset-
anum á Bessastöðum en samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins vannst
ekki tími til að undirbúa fundinn
nægilega í forsetabústaðnum og
mun fundurinn mun því hafa verið
f luttur og verður annaðhvort í
bandaríska sendiráðinu eða í Höfða
þar sem öryggisgæsla er gríðarleg.
Eins og áður hefur komið fram
mun Pence hitta Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráðherra í húsnæði
Landhelgisgæslunnar á Keflavíkur-
f lugvelli í kvöld. Katrín verður þá
nýkomin af þingi Norrænu verka-
lýðshrey f ingarinnar sem hún
ávarpaði.
Boðað hefur verið til baráttu-
fundar gegn Pence á Austurvelli
klukkan 17.30. í dag og þar hyggj-
ast ýmis samtök koma saman til
að mótmæla stefnu Trump-stjórn-
arinnar. Er yfirskrift fundarins:
„Partý gegn Pence: stöndum með
friði, frelsi og grænni framtíð“.
sighvatur@frettabladid.is
Umdeildur og sagður úr takti við nútímann
36 ár eru liðin síðan varaforseti
Bandaríkjanna sótti Ísland síðast
heim. Sá fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar sem senn stígur fæti á
íslenska grund er þó einn sá allra
umdeildasti sem gegnt hefur
embættinu. Helgast það ekki síst
því að Pence er kristinn íhalds-
maður fram í fingurgóma og er á
öndverðum meiði við þá bylgju
frjálslyndis sem hefur einkennt
vestræn samfélög undanfarna
áratugi. Þannig er hann harður
andstæðingur fóstureyðinga,
trúir ekki á loftslagsbreytingar og
hefur verið sakaður um að hafa
ítrekað lagt stein í götu réttinda-
baráttu samkynhneigðra.
Eftir farsælan útvarpsferil
komst Pence á þing árið 2001
og tólf árum síðar vann hann
nauman sigur í ríkisstjórakosn-
ingum í heimafylki sínu, Indiana.
Ein umdeildasta lagasetningin
sem hann stóð fyrir í því emb-
ætti voru lög um endurreisn
trúfrelsis. Lögin veittu einstakl-
ingum og fyrirtækjum rétt til að
nota trú sína sem vörn í dóms-
málum. Nokkrir veitingamenn
nýttu lögin til að synja samkyn-
hneigðum pörum um þjónustu
á þeim grundvelli að kynhneigð
þeirra stríddi gegn trú veitinga-
mannanna.
Pence virðist afar hreykinn af
skoðunum sínum og í viðtali við
New York Times árið 2016 kvaðst
hann stoltur af því að vera úr
takti við nútímann hverju sinni.
Það benti þó fátt til þess að
Pence myndi feta þá braut í
æsku. Á táningsárum sínum vann
hann sem sjálfboðaliði fyrir
Demókrata og voru John F. Ken-
nedy og Martin Luther King hans
helstu fyrirmyndir.
Á háskólaárunum, um-
turnaðist pólitísk sýn Pence og
hann færði sig yfir á hægri væng
stjórnmálanna. Hefur hann nefnt
Ronald Reagan sem sinn helsta
áhrifavald. Hann kynntist eigin-
konu sinni, hinni fráskildu Karen,
á þessum árum og saman gengu
þau evangelísku kirkjunni á hönd
í óþökk móður Mikes.
Karen stendur eins og klettur
á bak við eiginmann sinn og það
vakti athygli árið 2002 þegar
Pence sagðist aldrei snæða einn
með annarri konu en eiginkonu
sinni. Þá færi
hann ekki á
samkomur
þar sem
áfengi er
haft um
hönd án
konu sinnar.
– bt
LANDBÚNAÐUR Skógræktarfélag
Íslands leggur til að koma á vörslu-
skyldu búfjár og banni við lausa-
göngu sauðfjár í öllum þjóðgörðum.
Félagið hefur lengi barist fyrir því
að sauðfé fari af illa förnu landi á
hálendi landsins.
Á síðasta aðalfundi Skógrækt-
arfélagsins var þessi ályktun sam-
þykkt. Brynjólfur Jónsson fram-
kvæmdastjóri segir mikilvægt að
sauðfé sé haldið innan girðinga á
vel grónu landi.
„Lausaganga búfjár innan þjóð-
garða stingur í stúf við aðrar áætl-
anir ríkisstjórnarinnar um lofts-
lagsmál og ef menn ætla að byrja
einhvers staðar þá væru þjóðgarðar
landsins ágætis byrjun,“ segir Brynj-
ólfur.
Ein ástæðan fyrir ályktuninni er
að skógarbændur þurfa sjálfir að
girða land sitt til að verjast ágangi
búfénaðar sauðf járbænda. „Að
okkar mati er ábyrgðinni varpað
yfir á aðra en eigendur dýranna.
Skógarbændur þurfa að fara í ærinn
kostnað til að verja sig frá sauðfé
annarra. Það þarf svo að viðhalda
þessu og það er mikill kostnaður
sem fylgir þessu,“ bætir Brynjólfur
við. Nánar um málið á frettabla-
did. is. – sa
Skógræktarfélagið vill takmarka lausagöngu búfjár
Lausaganga búfjár
innan þjóðgarða
stingur í stúf við aðrar
áætlanir ríkisstjórnarinnar
um loftslagsmál.
Brynjólfur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Íslands
HEILBRIGÐISMÁL Þrjú tilfelli af mal-
aríu greindust hér á landi á síðasta
ári, samkvæmt farsóttarskýrslu
Landlæknis. Öll tilvikin greindust
hjá einstaklingum af erlendum upp-
runa en árið 2017 greindist einn
Íslendingur og tveir útlendingar.
Í skýrslunni segir að þó malaría
geti ekki breiðst út hér á landi sé
mikilvægt að vita af sjúkdómstil-
fellum vegna sýkinga erlendis svo
hægt sé að fylgjast með áhrifum
malaríuforvarna. Einnig að f lestir
sýkist eftir dvöl sunnan Sahara. - khg
Þrjár greiningar
malaríu í fyrra
Malaría berst með moskítóflugum.
NORDICPHOTOS/GETTY
+PLÚS
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-6
5
B
C
2
3
B
4
-6
4
8
0
2
3
B
4
-6
3
4
4
2
3
B
4
-6
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K