Fréttablaðið - 04.09.2019, Page 6
VIÐSKIPTI Kínversk stjórnvöld hafa
lagt fram kvörtun hjá Alþjóðavið-
skiptamálastofnuninni (WTO)
vegna framferðis Bandaríkja-
manna. Þetta staðfestu fulltrúar
kínverska viðskiptaráðuneytisins
í gær.
Bandaríkjamenn hófu síðastlið-
inn sunnudag að leggja 15 prósenta
toll á fjölda kínverskra vara. Kín-
verjar brugðust við því með nýjum
álögum á innflutning á bandarískri
hráolíu.
Samkvæmt heimildum Reuters-
fréttastofunnar hafa tollar Banda-
ríkjamanna áhrif á innflutning sem
nemur um 300 milljörðum dollara.
Ekki fengust frekari upplýsingar um
kæruna til WTO en Kínverjar telja
aðgerðir Bandaríkjamanna í and-
stöðu við samkomulag sem þjóð-
irnar náðu í Osaka.
Bandar ísk stjór nvöld seg ja
aðgerðirnar hins vegar viðbrögð við
þjófnaði Kínverja á hugverkum sem
samningar WTO nái ekki yfir. – sar
Kínverjar kæra
Bandaríkin til
WTO vegna tolla
Xi Jinping, aðalritari og leiðtogi
Kína. NORDICPHOTOS/GETTY
FR AK K L AND Listaverki huldu-
mannsins Banksy var stolið aðfara-
nótt mánudags í París. Verkið var
aftan á stóru umferðarskilti nærri
Pompidou-torgi í miðborginni.
Sýndi það vígalega rottu með klút
fyrir kjaftinum halda á hníf. Lög-
regla borgarinnar rannsakar nú
þjófnaðinn.
Þar sem Banksy fer huldu höfði
er oft óljóst hvaða verk tilheyra
honum. Parísarrottan er hins vegar
óumdeild þar sem hann hefur sjálf-
ur auglýst hana á samfélagsmiðlum.
Er hún vísun í stúdentaóeirðirnar í
borginni árið 1968.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
verkum Banksy er stolið í París. Í
janúar skáru óprúttnir aðilar með
slípirokk verk til minningar um
Bataclan-árásirnar af eldvarnar-
hurð tónleikahallarinnar. – khg
Parísarrottu
Banksy stolið
Parísarrottan við Pompidou-torg.
NORDICPHOTOS/GETTY.
SAMFÉLAG Einelti í grunnskólum
hefur aukist á síðustu árum eftir
að hafa farið minnkandi á hrunár-
unum. Þetta er meðal niðurstaðna
eineltisrannsókna í grunnskólum
á Íslandi sem fylgja Olweusar-
áætluninni.
„Svo virðist við fyrstu sýn að
þegar uppsveifan í efnahagslífinu
kom aftur þá fari einelti upp á við,“
segir Þorlákur Helgi Helgason,
framkvæmdastjóri Olweusar áætl-
unarinnar á Íslandi. Hann segir
erfitt að meta þróunina nákvæm-
lega nema byggja niðurstöður á
sama hópi skóla yfir lengra tímabil.
Skólarnir fylgist hver um sig með
og bregst við í samræmi við mat
nemenda á stöðu sinni. Í sumum
skólum mælist ávallt lítið einelti.
„Það er vitað hvað þarf að vera til
staðar í skólunum eigi að ná tökum
á ástandinu. Starfsfólk þarf að vera
stöðugt á vaktinni,“ segir Þorlákur.
Einelti í 5. til 10. bekk mælist
nú 6,2 prósent að meðaltali í
grunnskólum á Íslandi sem fylgja
Olweusar-áætluninni. Þessi tala
var farin niður í 4,8 prósent árið
2012, sem var 7,6 prósent haustið
2007. Einelti í skólum í Reykjavík
mælist nú 5,5% prósent, talan var
komin niður í 4,6 prósent árið 2012
en var 6,9 prósent árið 2007.
Alls hafa 103 grunnskólar tekið
með einhverjum hætti þátt í
Olweusaráætluninni frá upphafi,
haustið 2002. Síðastliðið skólaár
var víðtæk eineltiskönnun lögð
fyrir 6.400 nemendur. Nemendur í
4. til 10. bekk taka eineltiskönnun
árlega, um er að ræða ítarlegan
spurningalista þar sem meðal ann-
ars er spurt hvort þeir leggi aðra í
einelti, hafi orðið vitni að slíku eða
hafi orðið fyrir því. „Það væri rétt-
ar að tala um rannsókn fremur en
könnun, þar sem við speglum mjög
áhrifamikla þætti sem varpa ljósi
á stöðu nemenda. Niðurstöðurnar
hverju sinni kalla síðan á viðbrögð
skólans og skólasamfélagsins alls,“
segir Þorlákur. Frá 2002 hefur ein-
eltiskönnunin verið lögð fyrir
meira en 160 þúsund nemendur.
„Einelti í grunnskólum mældist
almennt meira fyrir hrun. Það fór
síðan minnkandi, en fer nú aftur
heldur vaxandi. Þetta er samt ekki
bein lína upp,“ segir Þorlákur.
Fleira spilar þó inn í en einfaldlega
staðan í efnahagsmálum. „Þegar
þjóðin sigldi inn í kreppu þá voru
skólarnir mjög meðvitaðir um að
einelti gæti aukist. Starfsfólk var
sérstaklega á varðbergi,“ segir Þor-
lákur.
Sigríður Lára Haraldsdóttir, for-
maður fagráðs eineltismála hjá
Menntamálastofnun, segir erfitt
að segja til um hvort einelti sé
almennt að aukast. Fagráðið sér
aðeins um erfiðustu málin, sem
ekki hefur tekist að leysa þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir innan skóla eða
á vettvangi sveitarfélaga. Tilvísanir
til fagráðsins eru tiltölulega fáar
árlega, en Sigríður Lára vill ekki
útiloka að málum sem rata ekki inn
á borð til fagráðsins hafi fjölgað.
„Við merkjum alltaf aukningu
í fyrirspurnum í byrjun og enda
skólaárs, en við erum ekki að
finna neina aukningu í tilvísunum
til okkar á milli ára,“ segir Sigríður
Lára. „Það er því miður of mikið af
eineltismálum, eitt mál er einu of
mikið.“ arib@frettabladid.is
Einelti í skólum að aukast á ný
Einelti í grunnskólum hefur aukist á síðustu árum eftir að hafa minnkað á árunum eftir hrun. Fram-
kvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar segir að fylgni virðist mælast við efnahagsástandið í landinu.
Einelti í grunnskólum fór minnkandi eftir hrun, en fer nú aftur vaxandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Einelti í grunn-
skólum mældist
almennt meira fyrir hrun,
það fór síðan minnkandi, en
fer nú aftur vaxandi. Þetta
er samt ekki bein lína upp.
Þorlákur Helgason,
framkvæmdastjóri
Olweusarverk-
efnisins
STJÓRNSÝSLA Engar greiðslur fóru
á milli Landspítalans og Orku nátt-
úrunnar (ON) við uppsetningu á
hleðslustöðvum fyrir raf bíla við
Landspítalann á Hringbraut, Foss-
vogi, við Landakot og Klepp.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá í
gær hefur Ísorka kært ON til Sam-
keppniseftirlitsins. Er ON gefið að
sök að nota markaðsráðandi stöðu
sína á raforkumarkaði til að koma
sér í einokunarstöðu á miðlun raf-
magns til raf bíla. Þessu hafna for-
svarsmenn ON.
Árið 2017 hafnaði Landspítalinn
tilboðum samkeppnisaðila ON um
uppsetningu hleðslustöðva við
starfsstöðvar vegna kostnaðar. Í
kjölfarið hafði ON samband við
spítalann um fimm ára tilrauna-
verkefni þar sem ON myndi greiða
allan kostnað við uppsetningu
stöðvanna. Það eina sem Land-
spítalinn þurfti að tryggja voru rör
fyrir leiðslur frá rafmagnskassa að
hleðslustöðvunum.
Í áætlun var gert ráð fyrir að
framkvæmdirnar myndu kosta
ON 4,9 milljónir króna með virðis-
aukaskatti. Alls er um að ræða 12
stæði og bíleigendur þurfa að vera
með lykil eða app frá ON.
Hvorki Landspítalinn né ON
vildu opinbera samninginn, sem
var undirritaður í apríl í fyrra, en í
niðurstöðu úrskurðarnefndar um
upplýsingamál frá því í desember
segir að um sé að ræða tvo opin-
bera aðila þar sem verið sé að ráð-
stafa opinberum fjármunum, því
þurfi að opinbera hann.
Orka náttúrunnar neitar að
opinbera hversu mikið hleðslu-
stöðvarnar hafa kostað f yrir-
tækið en í svari fyrirtækisins við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
rekstur hleðslustöðvanna sé bund-
inn trúnaði. – ab
Landspítalinn þurfti ekki að borga fyrir hleðslustöðvarnar
Hleðslustöð ON. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRETLAND Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Bretlands, missti meiri-
hluta sinn á þinginu í gær. Ekki
mátti mikið út af bera þar sem
stjórn Íhaldsf lokksins og Lýðræð-
islega sambandsf lokksins hafði
eins manns meirihluta. Hann féll
þegar þingmaðurinn Phillip Lee
gekk, í bókstaf legri merkingu, yfir
þinggólfið til stjórnarandstöðunn-
ar á meðan Johnson hélt ræðu. Tók
hann sér sæti við hlið Jo Swinson,
leiðtoga Frjálslyndra demókrata.
„Flokkurinn sem ég gekk í árið
1992 er ekki f lokkurinn sem ég
yfirgef nú,“ sagði Lee. Sagði hann
f lokkinn smitaðan af popúlisma
og þjóðernishyggju.
Í kjölfarið veitti John Bercrow
þingforseti leyfi fyrir snörpum
umræðum um löggjöf til að koma
í veg fyrir að Bretland yfirgefi
Evrópusambandið án samnings.
Var samþykkt klukkan 22 að
stjórnarandstaðan fengi dagskrár-
vald í þinginu. Verður þá Johnson
skikkaður til þess að sækja um
frekari útgöngufrest til Brussel.
Fresturinn er 31. október en yrði
þá 31. janúar.
Johnson hefur áður sagt að Bret-
land muni yfirgefa Evrópusam-
bandið þann 31. október, sama
hvað, og að það sé tilgangslaust að
betla um frekari frest í Brussel. Það
myndi hann aldrei gera og hefur
hótað að boða til kosninga, verði
vilja hans ekki fylgt. Þær kosn-
ingar yrðu þá haldnar 14. október.
Jeremy Corbyn, formaður Verka-
mannaf lokksins, segist ekki óttast
kosningar. – khg
Meirihlutinn fallinn í Bretlandi
Neyðarfundur var haldinn í breska þinginu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-7
9
7
C
2
3
B
4
-7
8
4
0
2
3
B
4
-7
7
0
4
2
3
B
4
-7
5
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K