Fréttablaðið - 04.09.2019, Síða 9
Ef ráða ætti landsliðs-
þjálfara í fótbolta með því
að gera útboð og ráða hag-
kvæmasta kostinn. Hvaða
þjálfari væri þá valinn? Með
því að taka lægsta boði í
sjúkraþjálfun er í raun verið
að fórna gæðum fyrir hag-
kvæmni.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðumwww.mitsubishi.is
RÝMINGARSALA
Við rýmum fyrir 2020 árgerðinni af Mitsubishi og bjóðum
alla 2019 bílana okkar á einstöku verði. Kíktu í heimsókn.
Outlander 4x4 4x4 S-Edition
Fullt verð 6.190.000
Rýmingarverð 5.790.000
L200 Double Cab 4x4 Instyle
Fullt verð 6.690.000
Rýmingarverð 6.390.000
Outlander 4x4 Invite+
Fullt verð 4.890.000
Rýmingarverð 4.590.000
Eclipse Cross 4x4 Intense
Fullt verð 4.990.000
Rýmingarverð 4.390.000
Skoðaðu úrvalið á: www.hekla.is/mitsubishisalur
Dæmi um rýmingarverð
Fyrir tveimur árum tók Svan-dís Svavarsdóttir við embætti heilbrigðisráðherra. Ég, eins
og margir aðrir, var spenntur að fá
nýjan heilbrigðisráðherra til starfa
sem sagðist ætla að taka til hendinni,
setja fram nýja heilbrigðisstefnu og
eiga samtal við fólkið í landinu.
Árið 2017 voru gerðar breyt-
ingar á greiðsluþátttöku sjúklinga
í heilbrigðiskerfinu. Sett var þak
á greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir
læknisþjónustu og sjúkraþjálfun á
hverju ári þannig að einstaklingar
myndu ekki greiða meira en 73.950
krónur, eldri borgarar og öryrkjar
greiddu aldrei meira en 49.300 krón-
ur og börn yngri en 18 ára greiddu
ekkert fyrir sjúkraþjálfun.
Á fundi sem boðaður var til kynn-
ingar á þessari nýju greiðslutilhögun
varaði undirritaður við þessum
breytingum og spurði hvernig ætti
að fjármagna þær. Forsvarsmenn
Sjúkratrygginga sögðu að útgjalda-
aukning vegna þessara breytinga
væri tryggð. Nú tveimur árum síðar
virðist eins og útgjaldaaukningin
hafi komið Sjúkratryggingum og
heilbrigðisráðuneyti í opna skjöldu.
Meðalfjöldi meðferða hefur aukist
lítið en fjöldi þeirra sem nýta sér
þjónustuna hefur aukist og útgjalda-
aukning ríkisins er því nokkur.
Þeir sem hagnast hafa mest á
þessum breytingum eru sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaganna, tryggingafélög
og þeir sem keypt hafa þjónustuna,
það er sjúklingarnir. Niðurstaðan
er að fleiri einstaklingar sem áður
höfðu ekki efni á því að leita til
sjúkraþjálfara koma í auknum
mæli í meðferð og þjálfun, og bæta
þannig afköst sín og vinnugetu. Þeir
sem orðið hafa fyrir slysum og sjúk-
dómum geta nú nýtt sér þjónustu
sjúkraþjálfara án þess að borga háar
upphæðir.
Að auki hefur heilbrigðisráðu-
neytið á sama tímabili fjölgað lið-
skiptaaðgerðum verulega og þeir
einstaklingar þurfa sína þjálfun að
lokinni aðgerð. Eins og allir ættu að
vita fjölgar öldruðum hratt og bið-
listar eftir dvalarrýmum lengjast;
sjúkraþjálfarar sinna þessum hópi
sem aldrei fyrr.
Lausn Sjúkratrygginga Íslands er
nú fundin en það er útboð í rekstur
sjúkraþjálfara.
Markmiðið með útboðinu er að
innleiða virka samkeppni í inn-
kaupum hins opinbera í heilbrigð-
isþjónustu og að einstaklingum
sé veitt sjúkraþjálfun sem hluti af
heildstæðri heilbrigðisþjónustu á
sem hagkvæmastan hátt. Það þýðir
á mannamáli að þjónustan eigi að
vera ódýr. Sjúklingar eru gerðir að
söluvöru sem eiga að ganga kaupum
og sölu. Litið er á að sjúklingar séu að
fara á veitingastað og þeim sé boðið
að kaupa skyndibita af því að hann
er ódýrastur.
Ef ráða ætti landsliðsþjálfara í
fótbolta með því að gera útboð og
ráða hagkvæmasta kostinn. Hvaða
þjálfari væri þá valinn? Með því að
taka lægsta boði í sjúkraþjálfun er í
raun verið að fórna gæðum fyrir hag-
kvæmni.
Eftir að hafa rekið sjúkraþjálf-
unarstöð í rúm 30 ár veit ég að eina
leiðin til að skera niður kostnað er
að grípa til eftirfarandi aðgerða:
Lækka laun sjúkraþjálfara, fækka í
afgreiðslu, minnka þrif, takmarka
endurnýjun og viðhald tækjabúnað-
ar auk þess að hætta endurmenntun
starfsmanna.
Það gefur augaleið að með þessu
verður þjónustan lakari.
Húsaleiga er stærsti einstaki
kostnaðarliður sjúkraþjálfunar-
stöðva og því standa stöðvar í
úthverfum vel að vígi þegar kemur
að útboðsferli. Viljum við auka
umferð á höfuðborgarsvæðinu enn
meira með því að senda þau, sem
þurfa á þjónustu sjúkraþjálfara að
halda, í önnur hverfi þar sem þjón-
ustan er ódýrari?
María Heimisdóttir, forstjóri SÍ,
sagði í viðtali í vikunni að mikil-
vægt væri fyrir alla þá sem stunda
viðskipti að þekkja viðskiptaum-
hverfi sitt. Ég tel mig þekkja ágætlega
það viðskiptaumhverfi sem sjúkra-
þjálfarastöðvar hafa verið í mörg
undanfarin ár.
Umhverfið er þetta: Engin sjúkra-
þjálfunarstöð á Íslandi er með starf-
andi framkvæmdastjóra. Eigendur
stöðvanna sjá kauplaust um megnið
af viðhaldi bæði tækja og húsnæðis.
Ef fjárfesta þarf í nýjum tækjum
þarf að veðsetja eigið húsnæði til að
halda rekstrinum gangandi. Í tekju-
blöðum sem birt voru í síðustu viku
var hvergi að finna sjúkraþjálfara. Af
hverju? Jú, vegna þess að laun sjúkra-
þjálfara eru ekki merkileg. Er stefna
heilbrigðisráðherra að lækka þessi
laun enn frekar? Sjúkraþjálfarar eru
kvennastétt og það er kannski fínt að
láta þær finna aðeins fyrir því þegar
taka á til hendinni.
Eru sjúklingar orðnir söluvara sem hægt er að
bjóða þeim sem lægst býður?
Gauti
Grétarsson
sjúkraþjálfari
Hvernig gerum við það? Jú, að sjálfsögðu með mennt-un. Vandamálið sem við
stöndum hins vegar frammi fyrir og
þurfum að bregðast við nú þegar er
að það ríkir ekki jafnrétti til náms
fyrir ungmenni á landsbyggðinni.
Fyrir það fyrsta þá kostar það
foreldra á landsbyggðinni margar
milljónir að styðja börnin sín í
gegnum framhaldsskóla. Líklegast
er það þó hvað dýrast fyrir foreldra
af okkar svæði í Vestur-Skaftafells-
sýslu þar sem ekki er einu sinni í
boði heimavist við FSu. Við þurfum
annaðhvort að reiða okkur á ætt-
ingja á höfuðborgarsvæðinu eða
vera svo heppin að finna einhvern
sem er að leigja herbergi eða bílskúr.
Í öðru lagi eru þær kröfur sem
gerðar eru til barna sem f lytja að
heiman 15-16 ára gömul algjörlega
fráleitar. Það er úr takt við tímann
að ætlast til þess að 15-18 ára ung-
menni sjái um sig sjálf. Það þarf ekki
bara góðar heimavistir heldur þarf
almennilega þjónustu á heimavist
og í skóla. Það þarf utanumhald og
eftirlit með vellíðan ungmenna,
aðstoð við heimilishald o.s.frv. Eins
og við gerum orðið stífar kröfur
víða í okkar samfélagi þá höfum
við spennt bogann allt of lágt þegar
kemur að þeim ungmennum sem
sækja nám fjarri lögheimili.
Það er gjarnan sagt að þau ung-
menni sem búa við þennan veru-
leika fullorðnist hraðar en önnur.
Það kann svosem að vera. En fyrir
utan það hvað það er fráleitt mark-
mið í sjálfu sér þá mætti frekar að
segja að þeir sem þola það þroskist
við það en þeir sem þola það ekki
f losni úr námi og líði fyrir það. Sem
er kannski að hluta til skýringin á
meira brottfalli úr skóla og aukinni
hættu á geðrænum vandamálum
hjá ungmennum á landsbyggðinni.
Þessi veruleiki sem við búum
við er stór áhrifaþáttur í því að
fólk ákveður að setjast ekki að úti
á landi eða ákveður að f lytja á suð-
vesturhornið þegar styttist í fram-
haldsskólagöngu barna sinna.
Þessu þarf að breyta.
Til að leiðrétta kúrsinn má byrja
á því að:
n Skilgreina og veita stoðþjónustu
samhliða námi fyrir nemendur
sem sækja nám fjarri lögheim-
ili.
n Tryggja búsetuúrræði fyrir
nemendur í framhaldsskóla
á öllu landinu. Fyrsta skrefið
verður að vera að koma á fót
heimavist við FSu.
n Bjóða ungmennum sem dvelja á
heimavist gjaldfrjálst í almenn-
ingssamgöngur til að komast
heim um helgar og tryggja að
leiðakerfi þjónusti þennan hóp.
n Veita foreldrum á landsbyggð-
inni skattaafslætti eða endur-
greiða þeim allt að 2 milljónir
króna vegna kostnaðar við að
senda barn í framhaldsskóla.
n Flytja ríkisstofnanir og störf
markvisst á landsbyggðina í því
augnamiði að hækka mennt-
unarstig og veita fyrirtækjum á
landsbyggðinni skattaafslætti
til að ýta undir fjölbreyttari
atvinnutækifæri.
Það má vel ræða sameiningar
sveitarfélaga. Þær einar og sér
eru hins vegar engin lausn á þeim
vandamálum sem við stöndum
frammi fyrir og ég hef áhyggjur
af því að þær dreifi athyglinni frá
því sem við þyrftum raunverulega
að ræða. Við þurfum að ræða um
hærra menntunarstig, fjölbreytt-
ara atvinnulíf og öf lugra menn-
ingarstarf. Ef ekki þá verðum við
hægt og bítandi hagrædd í drep af
Excel-erunum.
Gerum landsbyggðina
máttuga aftur!
Einar Freyr
Elínarson
oddviti
Mýrdalshrepps
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-6
5
B
C
2
3
B
4
-6
4
8
0
2
3
B
4
-6
3
4
4
2
3
B
4
-6
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K