Fréttablaðið - 04.09.2019, Síða 10
Þú þarft að setja net
á milli lappanna á
þér svo þetta gerist ekki
oftar.
Pakkaði Gazza saman
Ísland lék vináttulandsleik gegn
Englandi í maí 1989. Með Englandi
lék sjálfur Paul Gascoigne og Atli
tók þessa fyrrverandi þjóðhetju í
bakaríið. Í viðtali við Tómas Þór
Þórðarson árið 2008 sagði hann frá
þessum viðskiptum. „Ég var með
boltann við hliðarlínuna og hann
kom æðandi að mér en ég set bolt-
ann í gegnum klofið á honum. Síðan
sendi ég boltann á næsta mann, leit
á Gascoigne og sagði: „Þetta hlýtur
að hafa verið sárt.“
Aðeins tveimur mínútum síðar
klobbaði ég hann aftur illa og sagði
þá: „Þú þarft að setja net á milli
lappanna á þér svo þetta gerist ekki
oftar.“
Atli fékk treyjuna hans Gazza
eftir leikinn og sagði frá því þegar
þeir hittust í göngunum. „Eftir
leikinn vildum við svo allir fá
treyjur frá Englendingunum en
þeir neituðu allir. Einn liðstjórinn
hjá þeim kallaði samt á mig og rétti
mér eina treyju sem hangir uppi á
vegg hjá mér í dag. Gascoigne labb-
aði fram hjá og þessi maður leit á
hann, benti á mig og spurði hvort
hann kannaðist eitthvað við mig. Þá
kom Gascoigne askvaðandi að mér
og hótaði mér öllu illu en brá svo á
leik og þóttist gráta á öxlinni á mér.“
Mörkin fimm
Í lokaleik þýsku Bundesligunnar
1983 spilaði Fortuna Dusseldorf við
Eintracht Frankfurt. Leikurinn fór
5-1 og skoraði Atli öll mörk Dussel-
dorf. Þrettán leikmenn hafa skorað
fimm mörk í leik í Þýskalandi, Atli
og Pólverjinn Robert Lewandowski,
allir hinir ellefu eru Þjóðverjar.
Eini leikurinn sem senter
Atli spilaði yfirleitt aftarlega með
íslenska landsliðinu. En daginn eftir
lokaleikinn í Þýskalandi flaug hann
með Arnarf lugi heim til Íslands
til að spila landsleik við Möltu.
Leikurinn í Þýskalandi var
klukkan 16 á laugar-
degi, landsleikur-
inn var klukkan
14 á sunnudegi.
Atli spilaði sinn
eina landsleik
sem framherji
og skoraði
sigurmark-
ið.
Átta afrek Atla
Atli Eðvaldsson markaði djúp spor í þýska bolt-
anum sem og þeim íslenska. Fyrir utan að vera
stórkostlegur fótboltamaður átti hann tvo Íslands-
meistaratitla í blaki. Á hliðarlínunni sýndi hann
einnig snilli sína. Fréttablaðið tók saman átta afrek
af ferli Atla sem hefðu þó getað verið mun fleiri.
Leikmannaferill
Valur 1974–1980
Dortmund 1980–1981
Fortuna Düsseldorf 1981–1985
KFC Uerdingen 05 1985–1988
uRU Düsseldorf 1988–1989
Gençlerbirliği 1989–1990
KR Reykjavík 1990–1993
HK 1994
Landsleikir
70, 31 sem fyrirliði 1976–1991
Þjálfari
ÍBV 1995–1996
Fylkir 1997
KR Reykjavík 1998–1999
Ísland 1999–2003
Þróttur Reykjavík 2005–2006
Valur 2009
Reynir Sandgerði 2013
Afturelding 2014
✿ Atli Eðvaldsson
1957-2019
Stimplaði sig alls
staðar snemma inn
Atli var duglegur að skora í fyrsta
leik allan sinn feril. Árið 1974 spil-
aði hann sinn fyrsta leik í meistara-
flokki gegn KR og skoraði nánast á
sömu mínútu og hann kom inn
á. Í Þýskalandi tók það Atla
18 mínútur að stimpla sig
inn. Það var einnig fyrsta
mark deildarinnar og
var Atli á forsíðum
blaða í kjölfarið. Í
Tyrklandi skoraði
hann svo í fyrstu sex
leikjunum sínum.
Fyrstu sex
At li samdi v ið
ty rkneska liðið
G e n ç l e r b i r l i g i
og lauk atvinnu-
ma n na ferl i nu m
með félaginu. Þar
byrjaði hann með
því að skora í fyrstu
sex lei k ju nu m en
þrátt fyrir markaflóðið
tapaði liðið f lestum
leikjum. Var í fallsæti eftir
fyrri umferðina. Atli var
færður í vörnina til að
koma smá skipulagi á og tapaði
liðið aðeins einum leik og endaði í
sjötta sæti.
Næstmarkahæstur
í Bundeslígunni
Tímabilið 1982-83 var Atli í essinu
sínu og skoraði nánast að vild fyrir
Dusseldorf. Aðeins markamaskínan
Rudi Völler skoraði meira en Atli og
Karl Allgöwer þetta tímabil. Fyrir
aftan þá voru kunnir kappar eins
og Karl-Heinz Rummenigge, Horst
Hrubers, Dieter Hoeness, og Pierre
Littbarski. Atli skoraði 21 mark
eins og Allgöwer, öll úr opnum leik
en Völler skoraði 23 – þar af sex úr
vítaspyrnum. Lið Atla lenti í níunda
sæti í deildinni en Völler var í topp-
baráttu með liði sínu Werder Bre-
men.
Titillinn í Vesturbæinn
Eftir 31 árs bið kom Atli með sjálfan
Íslandsmeistarabikarinn í Vest-
urbæinn en liðið vann deildina með
sjö stiga mun. Félagið var 100 ára og
Atli þótti sýna af burðakænsku oft
á tíðum á hliðarlínunni. Fór með
félagið upp í hæstu hæðir og tók við
landsliðinu í kjölfarið.
Íslandsmeistari í blaki
Gott dæmi um íþróttamennsku
Atla er að þegar hann var í Íþrótta-
kennaraskólanum á Laugarvatni
fór hann að spila blak og varð
Íslandsmeistari með Laugdælum
1979 og 1980. Það ár varð liðið
einnig bikarmeistari. Í viðtali við
RÚV í fyrra sagði Atli að þegar
hann fór að æfa með Dortmund
hefði hann ekki verið í neinu fót-
boltaformi. Udo Lattek, þjálfari
liðsins, goðsögn í þýskum fótbolta,
setti upp æfingu þar sem fyrirgjafir
komu meðal annars við sögu. Atli
nýtti blaktæknina og skallaði allt
á markið.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-6
0
C
C
2
3
B
4
-5
F
9
0
2
3
B
4
-5
E
5
4
2
3
B
4
-5
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K