Fréttablaðið - 04.09.2019, Side 12
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5055.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurgestur Ingvarsson
múrarameistari,
Sævangi 14, Hafnarfirði,
lést að morgni 1. september á
Landspítalanum Fossvogi.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigrún Erlendsdóttir
Þórdís Björk Sigurgestsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Áslaug Sigurgestsdóttir Dagbjartur Jónsson
Frosti Sigurgestsson Sigurlín Hrund Kjartansdóttir
og barnabörn.
Elsku hjartans mamma okkar,
tengdamamma, amma, langamma
og langalangamma,
Jóhanna Friðrika Karlsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
þann 21. ágúst 2019.
Útförin hefur farið fram og þakka
aðstandendur samúð og hlýhug sem gerði daginn
fallegan. Hjartans kveðjur einnig til starfsfólks Eirar deild
2-N fyrir umhyggju og hlýju.
Börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Ástkær sonur, bróðir og frændi,
Þráinn Jökull Elísson
sem lést 21. ágúst sl. á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, verður jarðsunginn
laugardaginn 7. september kl. 13.00
frá Grundarfjarðarkirkju. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið Von Grundarfirði.
Ragnhildur Kristjana Gunnarsdóttir
Fjalar, Ægir, Hanni og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Árni Vilhjálmsson
verkstjóri,
lést á heimili sínu
fimmtudaginn 29. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristjana S. Árnadóttir Kristján G. Guðmundsson
Guðlaug B. Árnadóttir Jón P. Bernódusson
Vilhjálmur Árnason Sigfríður G. Sigurjónsdóttir
Kristján S. Árnason Anna Kristín Grettisdóttir
Pétur G. Þ. Árnason Ingibjörg K. Þórarinsdóttir
Halldór R. Hjálmtýsson Nelia B. Baldelovar
Ágúst Hjálmtýsson Yufan Tang
Ástrós Hjálmtýsdóttir Kristján Bjarnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elsku sambýliskona mín, systir, móðir
okkar, tengdamóðir og amma,
Árný Rósa Aðalsteinsdóttir
sjúkraliði,
lést á Landspítalanum Hringbraut
31. ágúst. Þakkir sendum við starfsfólki
blóðlækningadeildarinnar 11G og
hjartadeildar 13E. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
5. september kl. 15.00.
Jóhannes Sigurhólm Stefánsson Björn Árni Aðalsteinsson
Hanna Gréta Jóhannesdóttir
Guðný Lára Jóhannesdóttir Einar Valur Kristinsson
Anna Stefanía Jóhannesdóttir
og allir yngri afkomendur stórir og smáir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Ingólfur Ármannsson
fyrrv. skóla- og menningarfulltrúi,
lést á Öldrunarheimilinu Hlíð
á Akureyri 1. september.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Hrefna Hjálmarsdóttir
Ásgeir H. Ingólfsson
Auður H. Ingólfsdóttir
Ármann Ingólfsson Erla Colwill Anderson
Vala Pauline Ingolfsson Ari Dalmann Ingolfsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lilja Kristjánsdóttir
lést á Landakoti í faðmi fjölskyldunnar
þann 27. ágúst.
Útförin verður gerð frá Áskirkju
fimmtudaginn 5. september klukkan 13.
Áskell Másson Sigríður Búadóttir
Ársæll Másson Margrét Pálsdóttir
Karólína Margrét Másdóttir Stefán Jóhannsson
Þórdís Másdóttir Aðalsteinn Stefánsson
Ottó Másson
ömmubörn og langömmubörn.
Norræni votlendisdagur-inn er nýliðinn. Þá bár-ust þær fréttir að Þor-finnur Hermannsson og Jófríður Gilsdóttir, landeigendur á Hofi í
Norðfirði, ynnu að því að endurheimta
votlendi á jörðinni með stuðningi Vot-
lendissjóðsins. Með aðgerðinni endur-
heimta þau tæpa 16 hektara (um 16 fót-
boltavelli) og stöðva árlega losun upp
á 318 tonn af koltvísýringi (CO2). Til
samanburðar losar nýr lítill fólksbíll
1-2 tonn á ári. Mikið fuglalíf er á svæðinu
sem mun njóta góðs af framkvæmdinni.
„Frúin er í útlandinu en ég er byrjaður
að fylla skurðina, er búinn með fimm í
hlíðinni fyrir ofan bæinn á jafnmörgum
dögum,“ segir Þorfinnur þegar ég hringi
í hann. Ekki kveðst hann sjá teljandi
breytingar á landinu ennþá. „En smá
sprænur sem áður fóru í skurðina ganga
núna út í túnið og væta í því.“
Þorfinnur segir landið ekki hafa verið
notað í mörg, mörg ár. „Þegar kvóta-
kerfið kom datt hefðbundinn búskapur
niður á fáum árum hér í Norðfjarðar-
sveit nema á einum bæ, Skorrastað, þar
er mjólkurbúskapur. Áður þjónaði þessi
sveit Neskaupstað með landbúnaðar-
afurðir. Þetta var passleg stærð að því
leyti. Foreldrar mínir voru bæði með
kýr og kindur og þetta var svona með
stærri búum í sveitinni. Við Jófríður
vorum hér aldrei með búskap en eigum
helminginn af jörðinni. Fengum á sínum
tíma gefins hús úti í kaupstað og fluttum
það hingað.“
Þar sem Þorfinnur er að vinna voru
ruðningar enn á skurðbökkunum og
hann er að róta þeim ofan í skurðina.
„En svo eru tún hér í botni fjarðarins og
þegar þau voru ræktuð voru ruðning-
arnir sléttaðir út. Það er miklu erfiðara
að fylla þá skurði. Ég næ í einhverjum
tilfellum að stífla þá og við það hækkar
vatnsborðið. Í framhaldinu ætla ég að
grafa tjarnir og efnið sem upp úr þeim
kemur fer líka í skurðina.“
Þorfinnur er bæði með gamla jarðýtu
og nýja gröfu í þjónustu sinni. „Þegar
foreldrar mínir bjuggu hér var megnið
af túnunum notað til heyræktar. Á þeim
tíma sem hér var grafið voru góðir styrk-
ir í gangi frá ríkissjóði og menn grófu og
grófu. Rannsóknum var bara ábótavant
og ekkert talað um votlendi sem verð-
mæti á nokkurn hátt.
Við hjónin vorum búin að tala um
það fyrir mörgum árum að fara í þessar
framkvæmdir en þá var ekkert fjár-
magn til að kaupa gröfu. En þegar Eyþór
Eðvarðsson, aðalgúrúinn í Votlendis-
sjóðnum, kom þá kveikti hann í okkur.
Það er margt fólk sem trúir ekki á þetta
en okkur finnst þetta tilraunarinnar
virði. Við berum öll ábyrgð á jörðinni.“
gun@frettabladid.is
Berum ábyrgð á jörðinni
Jófríður og Þorfinnur standa í stórræðum á jörð sinni Hofi í Norðfirði.
Hér hefur skurður verið fylltur og það
ætti að hækka grunnvatnsstöðuna.
Þorfinnur Hermannsson,
Hofi í Norðfirði, er að fylla
skurði á jörð sinni og Jó-
fríðar Gilsdóttur. Tilgangur
verkefnisins er að endur-
heimta votlendi, andrúms-
lofti og lífríki til blessunar.
Á þeim tíma sem hér var grafið
voru góðir styrkir í gangi frá
ríkissjóði og menn grófu og
grófu. En rannsóknum var bara
ábótavant og ekkert talað um
votlendi sem verðmæti á nokk-
urn hátt.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-5
B
D
C
2
3
B
4
-5
A
A
0
2
3
B
4
-5
9
6
4
2
3
B
4
-5
8
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K