Fréttablaðið - 04.09.2019, Qupperneq 14
Morgunfundur
um heilsueflandi
vinnustaði
Dr. Henning Bang
prófessor við Oslóarháskóla:
What characterizes teamwork
that creates great results and
makes team members happy?
Valgerður Hrund Skúladóttir
framkvæmdastjóri Sensa:
Er hægt að kaupa heilann í fólki?
Teymisvinna í þekkingarfyrirtækjum.
FARA
TEYMISVINNA
OG VELLÍÐAN
SAMAN?
Grand Hótel
fimmtudag
12. september
kl. 8.15 -10.00
Ná
nar
i up
plý
sin
gar
og
sk
rán
ing
á v
irk.
is
Fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, forstjóra Sýnar, tapaði samtals 787 milljónum
króna á árinu 2018 borið saman við
hagnað upp á 189 milljónir króna
árið áður. Þar munaði mestu um
neikvæða óinnleysta gengisbreyt
ingu hlutabréfa, en Heiðar á um níu
prósenta hlut í Sýn, að fjárhæð 588
milljónir króna.
Þetta kemur fram í nýbirtum
ársreikningi Ursus ehf. en eigið fé
félagsins nam aðeins 25 milljónum
króna í árslok 2018. Eignir Ursus
námu á sama tíma tæplega 2.150
milljónum króna og var eiginfjár
hlutfallið því rétt yfir eitt prósent.
Heildarskuldir Ursus voru rúm
lega 2.120 milljónir og þar af námu
skammtímaskuldir, meðal annars
gengistryggt lán, samtals 1.500
milljónum króna.
Eignir félagsins samanstanda
einkum af skráðum og óskráðum
hlutabréfum en í árslok 2018 var
bókfært virði þeirra um 1.700
milljónir króna. Þar munaði mestu
um eignarhlut félagsins í Sýn sem
er metinn á um 990 milljónir. Þá
eru hlutabréf í P190, móðurfélagi
Ásbrúar sem selur íbúðir á gamla
varnarliðssvæðinu á Reykjanesi,
bókfærð á 400 milljónir, og bréf í
HSV eignarhaldsfélagi, sem heldur
utan um hlut í HS Veitum, eru
metin á 258 milljónir.
Heiðar, sem tók við starfi for
stjóra Sýnar fyrr á árinu, er á meðal
stærstu hluthafa félagsins en hluta
bréfaverð þess lækkaði um liðlega
38 prósent á árinu 2018. Það sem af
er þessu ári hefur gengi hlutabréfa
Sýnar fallið í verði um þriðjung til
viðbótar en afkomuspá fyrirtækis
ins hefur í fjórgang verið lækkuð á
síðastliðnum níu mánuðum. – hae
Félag Heiðars tapaði 800 milljónum
25
milljónir króna var eigið fé
Ursus í árslok 2018.
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Heiðar
Guðjónsson,
forstjóri Sýnar.
Novator, f járfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur fjárfest í breska
tölvuleikjafyrirtækinu Lockwood
Publishing ásamt Hilmari Veigari
Péturssyni, forstjóra CCP. Fyrir
tækið var stofnað af Íslendingnum
Haraldi Þór Björnssyni árið 2009.
„Við vorum í mörgum verkefnum
sem verktakar fyrir Sony og vorum
meðal annars aðalverktakinn við
gerð Playstation Home. Síðan fórum
við að gefa út okkar eigið efni fyrir
um sex til sjö árum,“ segir Haraldur
Þór, framkvæmdastjóri Lockwood,
sem nam arkitektúr við Oxford
áður en hann tók stefnu á tölvu
leikjaheiminn á tíunda áratugnum.
Lockwoood Publishing gefur út
leikinn Avakin Life á snjallsímum
en yfir milljón manns spila leikinn
á hverjum degi. Um er að ræða eins
konar sýndarheim og sam
félagsnet þar sem notendur
eiga í samskiptum hverjir
við aðra í gegnum karakt
era sem þeir stjórna.
Frá stofnun Lockwood
hefur fyrirtækið vaxið
ört en Haraldur Þór
segir að umsvifin hafi
tvöfaldast á hverju ári
í fjögur ár. Velta síðasta
árs nam 18 milljónum
punda og og alls starfa
115 starfsmenn hjá
f y r i r t æ k i nu .
„ Þet t a er
m j ö g
e r f
iður markaður en hann er risastór
þannig að ef vel tekst til þá getur
þetta orðið mjög spennandi.“
Davíð Helgason, einn af stofnend
um Unity, hefur tekið við stjórnar
formennsku félagsins en hann fjár
festi í því fyrir um ári. Þá hafa
Birgir Már Ragnarsson
og Andri Sveins
son, meðeigendur
í Novator, einnig
tekið sæti í stjórn
inni í kjölfar fjár
fe st i ng a r i n na r.
- þfh
Novator og Hilmar
fjárfesta í bresku
tölvuleikjafyrirtæki
Bankasýsla ríkisins horfir til þess að farin verði sú leið við næsta skref í söluferli bankanna að fjórðungshlutur verði seldur að lágmarki í
Íslandsbanka með hlutafjárútboði
og tvíhliða skráningu á markað eða
allt að hundrað prósenta hlutur
með uppboðsleið þar sem aðrir
bankar og fjárfestingasjóðir myndu
gera tilboð í bankann.
Þetta var á meðal þess sem kom
fram í minnisblaði stofnunarinnar,
sem heldur utan um eignarhluti rík
isins í fjármálafyrirtækjum, og var
lagt fram á fundi ráðherranefndar
um efnahagsmál og endurskipu
lagningu fjármálakerfisins fyrir
um tveimur vikum, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Ekkert
hefur hins vegar enn verið ákveðið
af hálfu stjórnvalda um hvenær
eigi að hefja söluferli á hlut í öðrum
hvorum bankanna – Íslandsbanka
eða Landsbankanum – sem eru í
eigu ríkissjóðs.
Bókfært eigið fé Íslandsbanka og
Landsbankans nam samtals rúm
lega 415 milljörðum króna um mitt
þetta ár. Sé tekið mið af núverandi
gengi bréfa Arion banka, sem var
skráður á hlutabréfamarkað á
Íslandi og í Svíþjóð í fyrra, má hins
vegar áætla að samanlagt virði
hlutafjár hinna bankanna sé um
300 milljarðar króna.
Sú leið sem Bankasýslan leggur til
í minnisblaðinu felur í sér tvíhliða
söluferli á Íslandsbanka. Þannig
yrði boðað til uppboðsleiðar, sem
alþjóðleg fjármálastofnun hefði
umsjón með, þar sem leitað yrði til
boða í allt að hundrað prósenta hlut
frá bönkum og fjárfestingasjóðum,
erlendum sem og innlendum, í opnu
söluferli.
Samhliða því ferli yrði einnig
boðað til almenns hlutafjárútboðs
og skráningar á bankanum með það
að markmiði að selja sem fyrr segir
Fjórðungshlutur verði
seldur í hlutafjárútboði
416
milljarðar er samanlagt bók-
fært eigið fé Íslandsbanka
og Landsbankans
milljónir punda var velta
Lockwood Publishing á
síðasta fjárhagsári.
18
Allt hlutafé Íslandsbanka er í eigu ríkissjóðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Bankasýslan leggur til
að annaðhvort útboðs-
leið eða uppboðsleið
verði farin við sölu á Ís-
landsbanka. Tillögur
stofnunarinnar kynntar
ráðherranefnd um
efnahagsmál í síðasta
mánuði. Varaformaður
Framsóknar segir mikil-
vægt að uppfæra eig-
endastefnu ríkisins fyrir
söluferli á bönkunum.
að lágmarki fjórðungshlut. Áætla
má að slíkur hlutur í Íslandsbanka
sé metinn á liðlega 30 milljarða
króna. Ef þau tilboð sem myndu
berast í gegnum uppboðsleiðina
væru ekki í samræmi við vænting
ar stjórnvalda, meðal annars hvað
verð varðar, væri í framhaldinu
hægt að taka þá ákvörðun að halda
áfram með útboðsleiðina.
Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins og einn ráð
herra í ráðherranefnd um efnahags
mál, segist í samtali við Markaðinn
leggja mikla áherslu á að eigenda
stefna ríkisins fyrir fjármálafyrir
tæki frá 2017 verði uppfærð áður
en sala á bönkunum hefjist og það
liggi eins skýrt fyrir hver eignar
hlutur ríkisins eigi að vera að loknu
söluferlinu. „Mikilvægt er að þetta
verði gert með opnum og gegn
sæjum hætti,“ útskýrir Lilja, „sem
verði þannig til þess fallið að búa til
traust almennings gagnvart ferlinu
og í garð fjármálakerfisins.“
Niðurstöður starfshóps sem
skilaði af sér hvítbók um fjármála
kerfið í lok síðasta árs voru meðal
annars þær að rök væru fyrir því að
dregið yrði úr víðtæku eignarhaldi
íslenska ríkisins í fjármálafyrir
tækjum, sem er margfalt meira en
þekkist í öðrum Evrópuríkjum, til
þess að minnka áhættu, fórnar
kostnað og neikvæð samkeppnis
áhrif.
Ólíklegt er hins vegar talið, eins
og Bankasýslan benti á í umsögn
sinni til starfshópsins, að hægt
verði að selja eignarhluti í Íslands
banka eða Landsbankanum til
erlends banka. Sú skoðun hafi að
mestu verið staðfest í reglulegum
samskiptum Bankasýslunnar við
alþjóðlega fjárfestingabanka og þá
hafi verið lítið um yfirtökur og sam
runa á bönkum milli Evrópulanda
eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna
haustið 2008.
Arion banki var fyrsti íslenski
bankinn til að vera skráður á hluta
bréfamarkað eftir fjármálahrunið
2008 – bæði í kauphöllina á Íslandi
og í Svíþjóð – þegar Kaupþing seldi
samtals um 29 prósent í alþjóðlegu
hlutafjárútboði á gengi sem nam
um 0,67 miðað við þáverandi bók
fært eigið fé hans.
Ári síðar hefur Kaupþing losað
um allan eignarhlut sinn í Arion
banka og er meirihluti eigenda
bankans erlendir bankar og fjár
festingasjóðir auk þess sem íslensk
ir lífeyrissjóðir eiga samanlagt lið
lega tuttugu prósenta hlut.
hordur@frettabladid.is
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-6
F
9
C
2
3
B
4
-6
E
6
0
2
3
B
4
-6
D
2
4
2
3
B
4
-6
B
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K