Fréttablaðið - 04.09.2019, Síða 16
Starfsmenn FME eru
sem stendur 115 talsins en í
Seðlabankanum voru þeir
181 í árslok 2018.
Ljóst er að hyggist
Hagar opna lyfja-
verslanir utan starfssvæðis
Reykjavíkur kunni framan-
greind eignatengsl að skapa
samkeppnisleg vandamál
Samkeppniseftirlitið
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Meginstarfsemi Fjármála-eftirlitsins verður áfram í Turninum á Höfðatorgi
eftir að samruninn við Seðlabank-
ann er genginn í gegn og þangað
til annað kemur í ljós. Þetta stað-
festir Fjármálaeftirlitið í svari til
Markaðarins en starfsmönnum
þess var á dögunum greint frá þess-
ari tilhögun.
„Ekkert hefur verið endanlega
ákveðið í þessum efnum, en líklegt
er að meginstarfsemi Fjármálaeftir-
lits verði í Katrínartúninu fyrst um
sinn,“ segir í svari FME við fyrir-
spurn Markaðarins.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur áður sagt að ekki sé
stefnt að fækkun starfsmanna hjá
sameinaðri stofnun FME og Seðla-
bankans. Starfsmenn FME eru sem
stendur 115 talsins en í Seðlabank-
anum voru þeir 181 í árslok 2018.
Samk væmt nýsamþyk k t u m
lögum mun sameiningin ganga í
gegn um áramótin. Þrír varaseðla-
bankastjórar verða undir Ásgeiri
Jónssyni, nýráðnum seðlabanka-
stjóra, og tekur Unnur Gunnars-
dóttir, forstjóri FME, við stöðu vara-
seðlabankastjóra sem leiðir málefni
fjármálaeftirlits.
Í nýlegu viðtali við Viðskipta-
blaðið sagðist Unnur ekki hafa
upplifað sérstaka þörf á því að sam-
eina stofnanirnar og ekki sjá fram
á grundvallarbreytingu á starfsemi
FME við sameiningu við Seðla-
bankann.
„Það er verið að teikna þetta svo-
lítið þannig upp að við viðhöldum
okkar innviðum, bæði á dýptina
og breiddina,“ sagði Unnur. Þá yrði
starfsemi eftirlitsins að einhverju
leyti aðskilin annarri starfsemi
bankans til þess að „verja Seðla-
bankann þegar eftirlitið tekur
ákvarðanir sem styr stendur um“.
– þfh
Starfsmenn FME verða
áfram á sínum stað
Ólafur Guðmundur Adolfs-son heldur eftir 10 prósenta eignarhlut í Reykjavíkur
Apóteki á móti Högum og verður
framkvæmdastjóri lyfjaverslunar-
innar. Eignarhlutur hans í öðru
apóteki getur þó skapað sam-
keppnisvandamál ætli Hagar að
opna f leiri lyfjaverslanir.
Þetta kemur fram í ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins um að sam-
þykkja samruna Haga og Reykja-
víkur Apóteks sem var í eigu Guð-
mundar Reykjalín, Margrétar
Birgisdóttur, Hjördísar Ásberg og
Ólafs G. Adolfssonar. Ólafur er sá
eini sem heldur eftir hlut en hann
fer úr 25 prósentum niður í 10 pró-
sent.
Ólafur á einnig þriðjungshlut
í Apóteki Vesturlands og verður
engin breyting á því í kjölfar sam-
runans. Í ákvörðun Samkeppniseft-
irlitsins kemur fram að slík eigna-
tengsl á milli fyrirtækja geti valdið
vandamálum út frá sjónarmiðum í
samkeppnisrétti. Reykjavíkur Apó-
tek og Apótek Vesturlands séu hins
vegar ekki starfrækt á sama land-
fræðilega markaðnum og sökum
takmarkaðrar hlutdeildar Reykja-
víkur Apóteks á markaðnum séu
áhrif þessara eignatengsla á sam-
keppni hverfandi. Samkeppnis-
eftirlitið sá því ekki ástæðu til að
grípa til íhlutunar vegna þessara
eignatengsla sem myndast vegna
samruna Haga og Apóteks Vestur-
lands.
„Þó er ljóst að hyggist Hagar
opna lyfjaverslanir utan starfs-
svæðis Reykjavíkur Apóteks kunni
framangreind eignatengsl að skapa
samkeppnisleg vandamál,“ segir í
ákvörðuninni.
Reykjavíkur Apótek rekur versl-
un að Seljavegi 2 í Reykjavík og
nam velta félagsins á síðasta ári 280
milljónum króna. Sem kunnugt er
tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun
sumarið 2017 um að ógilda sam-
runann sem áformaður var með
kaupum Haga á öllu hlutafé í Lyfju.
– þfh
Eignatengsl geta valdið Högum vanda
Finnur Árnason, forstjóri Haga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Síminn kann að hafa brotið gegn samkeppnislögum og sátt við Samkeppniseftir-litið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og sjónvarpsefni. Þetta er
niðurstaða frummats Samkeppnis-
eftirlitsins en forstjóri Símans segir
matið háð miklum fyrirvörum
og niðurstöðuna byggja á skorti á
gögnum.
Í árshlutauppgjöri sínu greindi
Síminn frá því að Sýn hefði lagt
fram kvörtun til Samkeppnis-
eftirlitsins vegna fyrirkomulags
við sölu á útsendingum frá ensku
úrvalsdeildinni og gert kröfu um
heildsöluaðgang að SíminnSport.
Samkeppniseftirlitið birti frum-
mat sitt í júlí og í kjölfarið náðust
samningar milli Símans og Sýn um
heildsöluaðgang.
Niðurstaða frummatsins var sú
að Heimilispakkinn sem Síminn
býður upp á, ásamt Sjónvarpi Sím-
ans Premium og því að bæta enska
boltanum við Heimilispakkann,
kynni að fara í bága við ákvæði
sáttar við Samkeppniseftirlitsins í
tengslum við samruna Símans og
Skjásins árið 2015.
Samkvæmt heimildum Markað-
arins kom einnig fram að pakkatil-
boð Símans kynnu að fara í bága við
ákvæði sáttar um tengsl Símans og
dótturfélagsins Mílu frá árinu 2013.
Brot á þeim fyrirmælum sem koma
fram í sátt geta varðað viðurlög á
borð við stjórnvaldssekt. Þá telur
Samkeppniseftirlitið vísbendingar
um að pakkatilboðin fari í bága við
samkeppnislög.
Orri Hauksson, forstjóri Símans,
segir í svari til Markaðarins að
Síminn kann að hafa brotið gegn sátt
Síminn vinnur að því að skila gögnum og svörum við því sem kemur fram í frummatinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Deilt um dreifingu
á sjónvarpsefni
Síminn og Vodafone hafa átt
í ágreiningi í tengslum við
dreifingu á sjónvarpsefni um
nokkurra ára skeið. Póst- og fjar-
skiptastofnun komst að þeirri
niðurstöðu árið 2018 að Síminn
hefði farið gegn fjölmiðlalögum
og lagði stofnunin á sekt að
fjárhæð 9 milljónir króna.
Í kjölfarið sendi Sýn kröfu til
Símans um greiðslu skaðabóta
að fjárhæð 1,9 milljarðar króna
sem Síminn hafnaði. Vísaði
Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu
Sýnar frá dómi vegna vanreif-
unar en Sýn lagði fram beiðni um
dómkvaðningu matsmanna.
Þá hefur Gagnaveita Reykja-
víkur sent Símanum kröfu um
greiðslu að fjárhæð 1,3 milljarða
króna. Hefur þeirri kröfu einnig
verið hafnað af hálfu Símans
sem telur hana tilhæfulausa.
Í kjölfarið lagði Sýn fram
kvörtun til Samkeppniseftir-
litsins vegna fyrirkomulags við
sölu á útsendingum frá ensku úr-
valsdeildinni og gerði kröfu um
heildsöluaðgang að SíminnSport.
Samkvæmt frummati
Samkeppniseftirlitsins
kann Síminn að hafa
farið í bága við sam-
keppnislög og brotið
gegn sátt. Forstjóri
Símans segir matið háð
miklum fyrirvörum.
Síminn hafi ekki brotið gegn sátt-
inni sem var gerð árið 2013 við
Samkeppniseftirlitið. Félagið hafi
kostað miklu til í þeim tilgangi að
tryggja að sáttinni yrði fylgt í hví-
vetna. „Síminn er sannfærður um
að félagið hafi starfað í hvívetna í
samræmi við markmið og tilgang
sáttarinnar. Auk þess fjallar sú sátt
fyrst og fremst um innviði Mílu og
jafnan aðgang þar að, en ekki sjón-
varpsmál. Aðgangur að innviðum
Mílu er jafn öllum fjarskiptafélög-
um á Íslandi,“ segir Orri.
Samkeppniseftirlitið lagði fram
skilgreiningar á markaðsráðandi
stöðu Símans en Orri segir að frum-
matið sé háð miklum fyrirvörum af
hálfu Samkeppniseftirlitsins sem
hafi tekið fram að tilgangurinn væri
að afla sjónarmiða og gagna til að
meta málið frekar.
„Það eru sannarlega margir
þættir sem eru órannsakaðir og
sumar ályktanir eðlilega byggðar
á getgátum, vegna skorts á gögnum
og sumpartinn vegna þess að Sam-
keppniseftirlitið hefur að mati Sím-
ans fengið villandi upplýsingar frá
þeim sem kvörtuðu,“ segir Orri og
tekur fram að nýjar skilgreiningar
Samkeppniseftirlitsins á mörk-
uðum standist ekki að mati Símans.
Verð hækki með milliliðum
Síminn vinnur nú að því að skila
gögnum og svörum við því sem
kemur fram í frummatinu. Orri
segir að hið rétta sé að framboð
Símans leiði til þess að viðskipta-
vinir hafi f leiri valkosti en áður
og fái þeir aukið frelsi um kaup á
afþreyingarefni á lægra verði en oft
áður.
„Það leikur enginn vafi á því að
viðskiptavinir, óháð því á hvaða
kerfi þeir eru, fagna því að geta
keypt löglegan aðgang að ensku
úrvalsdeildinni á 4.500 krónur í
stað 15.000 króna sem það var lengi
vel. Þá eru margar forsendur sem
stofnunin leggur upp með í and-
stöðu við það sem hefur áður komið
fram að mati Símans.“
Þá segir Orri að matið byggi á
áhyggjum af þróun sem ekki sé að
eiga sér stað og muni ekki eiga sér
stað. „Síminn býður SíminnSport í
heildsölu eins og er áhugamál Sam-
keppniseftirlitsins. Þannig verður
tíminn að leiða í ljóst hvort slíkir
samningar muni skila f leiri greið-
andi áhorfendum. Lykilatriði er að
aðilar nái hagkvæmum viðskipta-
legum samningum sem leiða til
þess að fleiri noti þá þjónustu sem
um ræðir. Ef heildsölusamningar
skila færri áhorfendum eða draga
úr sölu er hætt við að verð til neyt-
enda muni hækka vegna fleiri milli-
liða á jafn stórum eða minnkuðum
markaði.“
Samkeppniseftirlitið mun taka
ákvörðun í málinu eftir að hafa
tekið andmæli og gögn Símans til
greina.
Það eru sannarlega
margir þættir sem
eru órannsakaðir og sumar
ályktanir
eðlilega
byggðar á
getgátum
vegna skorts á
gögnum.
Orri Hauksson, forstjóri Símans
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-8
3
5
C
2
3
B
4
-8
2
2
0
2
3
B
4
-8
0
E
4
2
3
B
4
-7
F
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K