Fréttablaðið - 04.09.2019, Qupperneq 18
Þegar áætlanir
breytast getur það
haft tímabundnar afleið-
ingar en við erum ekki að
glíma við vanda.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Þorvaldur Gissurarson hefur byggt upp verk-takafyrirtækið ÞG Verk sem er með um 200 starfsmenn, fasteigna-þróunarfélagið Arcus
sem reisti meðal annars bygging-
arnar á Hafnartorgi og fasteigna-
félagið Reykjastræti sem vinnur
meðal annars að því að standsetja
eina af stærri skrifstofubyggingum
landsins við Urðarholt 8 eftir kaup
af fjármálastofnun.
Þú varst þrítugur þegar þú stofn
aðir ÞG Verk árið 1998. Hvernig var
upphafið?
„Á þeim tíma hafði ég þegar með
höndum nokkuð umsvifamikinn
rekstur á eigin kennitölu. Það er
eflaust þess vegna sem fyrirtækið
óx hratt. Áður en ég útskrifaðist sem
húsasmíðameistari var ég kominn
með fólk í vinnu. Upphaflega rak ég
fyrirtæki með félaga mínum en svo
skildi leiðir og ég hélt áfram að reka
byggingarfyrirtæki. Á þeim tíma
var ég að reyna að átta mig hvert
ég vildi stefna með líf mitt, ég f lutti
tímabundið utan og fór í viðskipta-
nám. Það varð úr að ég byggði upp
þetta fyrirtæki.
Við stofnun ÞG Verks steig ég
fyrstu skrefin í að byggja fjölbýlis-
hús fyrir eigin reikning. Áður hafði
ég verið í minni verkefnum eins og
að reisa rað-, par- og einbýlishús á
eigin vegum ásamt minni tilboðs-
og útboðsverkum.“
Það kom skemmtilega á óvart að
þremur árum eftir stofnun ÞG Verks
var þér treyst fyrir að reisa nýjar
höfuðstöðvar Orkuveitu Reykja
víkur.
„Ég einbeitti mér að útboðum
fyrir opinbera aðila. Ég hafði áður
unnið nokkur verkefni fyrir Orku-
veituna og forvera hennar Hitaveitu
Reykjavíkur. Sömuleiðis hafði ég
unnið fyrir Reykjavíkurborg. Við
reistum til að mynda fjórða áfanga
Nesjavallavirkjunar árið 2000.“
Dregið úr eigin verkefnum
Hvort er ÞG Verk að byggja meira
fyrir þig eða aðra?
„Frá stofnun hefur skiptingin
verið nokkuð jöfn, yfirleitt er um
helmingur útboðsverk og helming-
ur byggingar fyrir eigin reikning.
En það er breytilegt eftir tíma-
bilum. Eftir að við komumst vel af
stað eftir hrunið, eða frá árinu 2014,
hefur vægi eigin verkefna verið mun
meira, nálægt 80 prósent af veltu,
þar til núna. Hlutfallið er að færast
aftur á svipaðar slóðir og áður, og
er nálægt því að vera um helmings
skipting. Við höfum dregið úr eigin
verkefnum og bætt við okkur reikn-
ingsverkum.“
Var það meðvituð ákvörðun?
„Já, það var meðvituð ákvörðun.
Við mátum stöðuna þannig fyrir
einu og hálfi ári síðan að það væri
hyggilegt að draga úr íbúðafram-
leiðslu. Til að fylla í skarðið, en
ÞG Verk státar af töluverðri fram-
leiðslugetu, var ákveðið að leggja
aukna áherslu á reikningsverkefni.
Það hefur gengið ágætlega.“
Hvað var það í landslaginu sem
fékk þig til að draga úr verkefnum?
„Það var óvissa í efnahagslífinu
og fjöldi íbúðabygginga í pípunum.
Það var því fyrirsjáanlegt að fram-
boðið myndi aukast. Á sama tíma
hafði dregið úr aðgengi íbúðakaup-
enda að lánsfjármagni því bank-
arnir gerðu stífari körfur í greiðslu-
mati. Við skynjuðum sömuleiðis að
bankarnir væru farnir að halda að
sér höndum varðandi útlán til bygg-
ingarframkvæmda.“
Er stærðarhagkvæmni í verktaka
rekstri?
„Já, hún skiptir heilmiklu máli.“
Telur þú að verktakar muni sam
einast til að geta tekið þátt í stærri
verkefnum í fyrirsjáanlegri framtíð?
„Það kæmi mér á óvart. Það hefur
ekki verið mikið um sameiningar í
gegnum tíðina og mér þykir ekki
líklegt að það verði raunin.“
Erlendir vanmeta markaðinn
Nú er stórt ítalskt verktakafyrirtæki,
Rizzani de Eccher, að hefja innreið á
markaðinn og á meðal annars í sam
starfi við Kaldalón.
„Já, vonandi gengur þeim vel.
Fjöldi erlendra verktaka hefur reynt
fyrir sér hér á landi og næstum því
allir eiga það sameiginlegt að hafa
horfið af markaðnum nokkuð fljótt
í kjölfar mikils taprekstrar. Ég óska
þeim alls hins besta. Aukin sam-
keppni er af hinu góða.“
Af hverju heldurðu að það sé?
Hvað klikkar hjá þeim?
„Að mínu mati vanmeta þau
markaðinn. Fyrirtækin átta sig ekki
á rekstrarumhverfinu. Hér þarf til
að mynda að haga aðföngum með
öðrum hætti en á meginlandinu
Dró úr byggingu eigin íbúða fyrir einu og hálfu ári
Þorvaldur segir að sá tími muni renna upp að byggja þurfi nýtt atvinnuhúsnæði í nokkrum mæli. Sú vinna kostar meira en sem nemur markaðsvirði í dag. Það muni hækka verðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG Verks, segir
að erlendir verktakar
vanmeti oft markaðinn
og því hafi starfsemi
þeirra hér yfirleitt verið
rekin með tapi. Efna-
hagsþróun setti strik í
reikninginn varðandi
sölu á Hafnartorginu.
Önnur verkefni á hans
vegum seljist vel.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-7
E
6
C
2
3
B
4
-7
D
3
0
2
3
B
4
-7
B
F
4
2
3
B
4
-7
A
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K