Fréttablaðið - 04.09.2019, Page 20
Rakel Magnúsdóttir starfar sem klínískur þerapisti hjá Lausninni, fjölskyldu- og
áfallamiðstöð, í Kópavogi. Hennar
sérsvið er að hjálpa einstaklingum
og pörum að takast á við streitu,
kvíða og vanlíðan sem getur
fylgt hinu daglega lífi. Hægt er að
takast á við það meðal annars með
aðferðum jákvæðrar sálfræði og
áfallafræða TRM (Trauma Resili-
ency Model).
Núvitund vekur innri auðlind
Rakel kynntist núvitund og styrk-
leikum fyrst þegar hún var í námi
í jákvæðri sálfræði og hefur þróað
sig áfram í þeim fræðum. Undan-
farið hefur Rakel kennt núvitund
á námskeiðum hjá Lausninni en í
næstu viku er að fara af stað nýtt
námskeið þar sem sérstök áhersla
er lögð á styrkleika okkar með
hjálp núvitundar.
„Með styrkleikum er átt við
okkar innri auðlind sem við búum
öll yfir og birtist þegar hugsun,
hegðun og tilfinningar fylla okkur
orku og lífsgleði,“ segir Rakel.
„Þeir hjálpa okkur að takast á
við lífið og sigrast á neikvæðum
hugsanaskekkjum. Þetta er því ný
leið til þess að byggja okkur upp á
jákvæðan hátt án þess að einblína
um of á það sem er að í fari okkar,
því ekkert okkar er fullkomið.“
Hugrækt mikilvæg heilsunni
Núvitundar- og styrkleika
námskeiðið Mindfulness Based
Strength Practice (MBSP) á rætur
sínar að rekja til kennara Rakelar,
dr. Ryan M. Niemiec, sem er sál-
fræðingur og fræðslustjóri hjá VIA
Institute on Character í Banda-
ríkjunum.
„Námskeiðið tengir saman
styrkleika okkar og núvitundar-
þjálfun á skemmtilegan hátt,
sem styður okkur í að springa út
og blómstra, bæði í einkalífinu
og starfi. Það er aldrei of seint að
byrja að rækta sjálfan sig,“ segir
Rakel og brosir. „Það er nefnilega
svo frábært að heilinn okkar er
sveigjanlegur og við getum haft
áhrif á hann og breytt hugsana-
mynstri okkar og þar með hegðun
okkar í kjölfarið. Hugrækt er
mikilvæg heilsu okkar og nýjustu
rannsóknir innan jákvæðrar sál-
fræði sýna það endurtekið.
Í núvitund erum við meðal ann-
ars að þjálfa okkur í að taka eftir,“
segir Rakel. „Það er færni sem við
þurfum að læra og er ekki sjálf-
gefin. Þegar við þjálfum athyglina
erum við einnig að æfa þolinmæði
og að hægja á okkur. Það er hægt
að gera á marga vegu, en lykillinn
er að finna þá aðferð sem hentar
hverjum og einum.“
Hún segir mikinn lærdóm felast
í því að taka eftir breytingum
sem eiga sér stað í líkamanum og
huganum.
„Í daglegu lífi, þegar allt er á
fullu, tökum við ekki eftir því sem
líkaminn er að segja okkur,“ segir
Rakel. „Við erum svo oft á sjálf-
stýringunni, sem kemur sér oft
vel, en ef við förum í gegnum lífið
eingöngu á henni og tökum ekki
eftir mikilvægum skilaboðum
sem hugur, tilfinningar og líkami
senda okkur, þá endum við ekki á
góðum stað.“
Þurfum að stilla innri græjur
„Þegar við förum að vinna með
eigin styrkleika á meðvitaðan
hátt með aðstoð núvitundar þá
verður þetta „geggjuð“ blanda og
við náum betri tengingu við okkur
sjálf,“ segir Rakel.
„Við búum öll yfir styrkleikum
en það er svo magnað að við gerum
okkur sjálf ekki alltaf grein fyrir
aðalstyrkleikum okkar því þeir
eru svo samofnir því hver við
erum. Þegar við kynnumst þeim
gerast einhverjir töfrar. Við förum
að sjá hvort við erum að vannýta
þá eða ef til vill ofnota þá. Þetta
snýst um að finna rétta jafnvægið,“
segir Rakel.
„Við getum tekið dæmi um
einstakling sem hefur til dæmis
húmor sem einn af sínum topp
styrkleikum. Þessi einstaklingur
á mjög auðvelt með að sjá það
fyndna í lífinu og notar húmor
óspart og kemur öllum til að hlæja.
Ef hann ofnotar þann styrkleika
þá getur hann farið yfir strikið
og tekur jafnvel ekki eftir því.
Þetta snýst allt um að læra inn á
sjálfan sig og stilla „græjurnar“
innra með okkur. Hvenær við
snúum „volume-takkanum“
fyrir húmorinn upp eða niður og
hvenær við notum aðra styrkleika
sem við höfum til að hjálpa okkur
í þeim aðstæðum sem við erum í
hverju sinni.“
Námskeiðið Núvitund og styrk-
leikar (MBSP) fer af stað mánu-
daginn 9. september.
„Við förum í grunnþætti núvit-
undar og styrkleika, gerum ýmsar
æfingar og hugleiðslur ásamt því
að spjalla saman um efnið,“ segir
Rakel.
„Það er ótrúlega dýrmætt þegar
við deilum reynslu okkar af æfing-
unum með hópnum og fáum að
heyra hvernig aðrir þátttakendur
upplifa sömu æfingar. Sumir eru
að upplifa það sama og þú og aðrir
eitthvað allt annað. Það getur verið
mjög lærdómsríkt og þroskandi.“
Rakel hefur haldið ýmis námskeið
og fyrirlestra er tengjast vellíðan,
núvitund og styrkleikum fyrir
einstaklinga, hópa og fyrirtæki.
Nánari upplýsingar er að finna á
Lausnin.is eða með því að senda
tölvupóst á rakel@lausnin.is.
Rakel segir að þegar fólk kynnist styrkleikum sínum átti það sig betur á því hvernig sé best hægt að nýta þá. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í næstu viku fer af stað nýtt námskeið með áherslu á styrkleika mannsins. Styrkleikarnir sem hafa verið skrifaðir á
þessa steina eru einungis hluti af þeim fjölmörgu sem mannfólkið býr yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Námskeiðið tengir
saman styrkleika
okkar og núvitundar-
þjálfun á skemmtilegan
hátt, sem styður okkur í
að því að springa út og
blómstra, bæði í einka-
lífi og í starfi. Það er
aldrei of seint að byrja
að rækta sjálfan sig.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
4
-6
A
A
C
2
3
B
4
-6
9
7
0
2
3
B
4
-6
8
3
4
2
3
B
4
-6
6
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K