Fréttablaðið - 04.09.2019, Qupperneq 28
Þegar við tökum afstöðu til
vandmeðfarinna mála
gerum við það á grundvelli upp-
lýsinga en ekki upphrópana.
Á grundvelli staðreynda
en ekki stóryrða.
Birgir Ármannsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins
Stjórnar-
maðurinn
02.09.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 4. september 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
2019
Er bókhaldið
ekki þín
sterkasta hlið?
BÓKHALD | LAUN | SKATTUR | RÁÐGJÖF
Orkupakkamálið svokallaða var
afgreitt af Alþingi í vikunni. Eftir
allt sem á undan var gengið hlýtur
niðurstaðan að vera andstæðing-
um frumvarpsins mikil vonbrigði.
Einungis einn stjórnarþingmaður
gekk úr skaftinu, allar tilraunir til
undirskriftasöfnunar mistókust
hrapallega og boðuð fjöldamót-
mæli voru heldur máttlítil þegar á
hólminn var komið.
Auðvitað hlýtur niðurstaðan að
koma illa við þá sem hæst létu.
Sigmundur Davíð og félagar geta
þó huggað sig við að umræðan
kringum Orkupakkamálið hefur
komið þeim aftur á kortið að
ákveðnu leyti. Klaustursmálið
kálaði þeim ekki og Orkupakkinn
hefur styrkt stöðu þeirra meðal
sína kjarnafylgis.
Stærstu sigurvegararnir eru þó
vafalaust Bjarni Benediktsson og
yngra og frjálslyndara forystu-
fólk í Sjálfstæðisf lokknum. Þrátt
fyrir stanslausan hárblásara úr
Hádegismóum frá fyrrverandi
formanni f lokksins – og and-
legum leiðtoga Miðf lokksmanna í
Sjálfstæðisf lokknum – hefur þeim
tekist að leiða málið til lykta.
Fyrir gamla forystumanninn og
hans tryggustu skósveina hlýtur
niðurstaðan að svíða. Úrslitin í
forsetakosningunum 2016 virðast
gefa ágætismynd af þeim kjör-
þokka sem kappinn ber yfir meðal
yngri kjósenda. Og útbreiðsla
Morgunblaðsins kannski sömu-
leiðis.
En svo aftur sé vikið að núver-
andi forystu f lokksins þá er
þetta mögulega leiðarvísir um
hvert skuli róa í framhaldinu.
Ef Sjálfstæðisf lokkurinn á að
vera fjöldahreyfing getur hann
ekki látið fortíðardrauga koma
sér í ógöngur. Sennilega er mun
farsælla að tala fyrir klassískum
en um leið nútímalegum hægri
áherslum. Frelsi í viðskiptum,
áhersla á alþjóðasamskipti og
agi í ríkisrekstri eru stefnumál
sem til lengri tíma munu reynast
f lokknum mun betur en eltingar-
leikurinn við popúlíska fagurgala
allra f lokka.
Forystan ætti að láta Miðf lokkinn
í Sjálfstæðisf lokknum lönd og leið.
Sagan af Orkupakkamálinu er
nefnilega um leið saga af umræðu
þar sem skynsemisraddirnar
sigruðu að lokum. Óskandi er að
þetta séu fyrirheit um það sem
koma skal og að okkur takist að
forðast okkar eigin Trump, eða
Brexit.
Rýr eftirtekja
Hagnaður LOGOS, stærstu lög-mannsstofu landsins, nam 469 milljónum króna á árinu 2018
og minnkaði um rúmlega 20 milljónir
frá fyrra ári. Tekjur stofunnar jukust
hins vegar lítillega á milli ára og voru um
2.070 milljónir á meðan rekstrargjöldin
hækkuðu um 100 milljónir og námu 1.356
milljónum.
Á árinu störfuðu að meðaltali 75
starfsmenn í 66 heilsársstöðugildum hjá
LOGOS og hélst sá fjöldi óbreyttur á milli
ára. Hluthafar félagsins eru 17 talsins og
miðað við það nam hagnaður á hvern eig-
enda lögmannsstofunnar að meðaltali um
28 milljónum króna.
Í hópi eigenda Logos eru meðal annars
hæstaréttarlögmennirnir Óttar Pálsson,
Þórólfur Jónsson, sem er jafnframt fram-
kvæmdastjóri, og Guðmundur Oddsson,
sem stýrir starfsemi félagsins í London.
– hae
LOGOS hagnaðist um 469 milljónir
Þórólfur
Jónsson,
framkvæmda-
stjóri LOGOS
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-6
A
A
C
2
3
B
4
-6
9
7
0
2
3
B
4
-6
8
3
4
2
3
B
4
-6
6
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K