Fréttablaðið - 04.09.2019, Side 32
Einleikstónleikar eru ekki daglegt brauð hjá Hilm-ari Jenssyni gítarleikara en í tilefni Jazzhátíðar Reyk jav ík u r heldu r hann slíka tónleika í
kvöld. Þeir hefjast klukkan 21.15
á efri hæð Listasafns Reykjavíkur
við Fríkirkjuveg. Tónlistin verður
öll frumsamin. „Ég sem töluvert
mikið, og hef alltaf gert, þannig að
það er af ýmsu að taka,“ segir hann
og hefur fulla trú á að kvöldið verði
skemmtilegt.
Sveiflan verður allsráðandi næstu
daga í borginni. Tónleikar Hilmars
eru einir af sex á dagskrá jazzhátíð-
arinnar í kvöld í Listasafni Íslands,
að lokinni setningu hátíðarinnar
í Ráðhúsi Reykjavíkur sem hefst
klukkan 17.
Hilmar er reyndar ansi upptek-
inn þessa dagana því hann kennir
við þrjá skóla sem allir eru að hefja
Sveiflan allsráðandi næstu daga í borginni
Hilmar hefur spilað með flestum íslenskum einstaklingum í jazzheiminum á Íslandi. Í kvöld er hann einn á ferð.
Hilmar Jensson
gítarleikari flytur
frumsamið efni á
sólótónleikum í
Listasafni Íslands
í kvöld, á upphafs-
degi Jazzhátíðar
Reykjavíkur.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
vetrarstarf ið, Menntaskólinn í
tónlist, Listaháskólinn og Tón-
listarskóli FÍH. „Líf mitt er dálítið
upptekið af að púsla saman eigin
stundatöflu í kennslunni en ég hef
reynt að æfa mig fyrir tónleikana
þess á milli.“
Sex ára kveðst Hilmar fyrst hafa
tekið upp gítarinn og lært fyrstu
gripin hjá föður sínum, Jens Þóris-
syni augnlækni. „Síðan hófst bara
formlegt nám um tólf ára aldurinn
og ég hef ekki hætt síðan. Hef spilað
með ansi mörgum sveitum þegar
allt er talið, það hleypur á ein-
hverjum tugum.“ Hann segir þær
hljómsveitir f lestar starfa erlendis
og með þeim hafi hann farið í tón-
leikaferðir vítt og breitt bæði um
Evrópu og Bandaríkin. „Ég hef ekki
verið í mörgum íslenskum sveitum
en hins vegar spilað með ótal ein-
staklingum, f lestum sem eitthvað
hafa verið í jazzheiminum hér á
landi. Mest þó með Skúla Sverris-
syni, bassaleikara og tónskáldi.“
Hilmar segir alltaf gaman að vera
með sólótónleika en krefjandi líka.
„Slík tækifæri koma ekkert oft en
þau eru bara kærkomin.“
ÉG SEM TÖLUVERT
MIKIÐ, OG HEF ALLTAF
GERT, ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER AF
ÝMSU AÐ TAKA.
Á ljósmyndasýningu Sigríðar Marrow, kennara í Selja-skóla, Kaupmaðurinn á
horninu, birtist sá hlýi og mann-
legi andblær sem hverfisverslunum
fylgir. Hún lét sér ekki nægja að
mynda slíkar búðir á höfuðborgar-
svæðinu, heldur ferðaðist um landið
og fangaði stemningu lítilla mat-
vöruverslana. Sýningin er í Skotinu
á Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 17, 6. hæð.
Myndirnar tók Sigríður árið 2016
í tengslum við meistaraverkefni sitt
í menningarmiðlun. „Upphaf legu
hugmyndina fékk ég þegar ég fór
inn í Kjötborg á Ásvallagötunni og
skynjaði andann þar, hann var svo
gerólíkur stórmörkuðunum að mér
fannst ég vera komin í annan heim.
Ég held að eignir í því hverfi muni
hríðlækka í verði ef kaupmenn-
irnir loka versluninni. Þeir þekkja
alla og veita svo mikla þjónustu,
geyma jafnvel húslykla fyrir for-
eldra ef krakkar skyldu læsast úti,“
lýsir hún.
Sigríður kveðst hafa farið í
þriggja vikna ferð um landið og
myndað 34 búðir, sumar hafa
þegar lagt upp laupana. „Þetta er
bara sýnishorn. Ef ég fæ einhvern
tíma stærra sýningarrými get ég
haft alla með og þetta er enn verk
í vinnslu.“ Búðirnar eru ekki allar
á netinu og Sigríður kveðst hafa
frétt af þeim hjá hinum og þessum
þegar hún var í ferðinni. Hún hafi
að sjálfsögðu alltaf hringt á undan
sér og allir hafi tekið henni vel. „Mér
fannst bara allir yndislegir og hlýir.
Fólk þarf líka að vera mannvinir til
að veita svona þjónustu.“
Þrír kaupmenn lögðu á sig ferð
Hef á tilfinningunni að hverfisverslunum fjölgi
Sigríður kveðst hafa gefið sér góðan tíma til að kynnast bæði búðareig-
endum og viðskiptavinum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
til að mæta á opnun sýningarinnar
hjá Sigríði. „Einar Ólafsson, sem er
82 ára, kom frá Akranesi og spjallaði
heillengi, annar bróðirinn í Kjöt-
höllinni kom og líka konan sem
rekur búðina á Raufarhöfn,“ lýsir
hún og kveðst ala þá von í brjósti
að svona litlum búðum vaxi fiskur
um hrygg.
„Ég hef á tilfinningunni að hverf-
isverslunum fjölgi aftur, kannski
í annarri mynd. Það væri alger
draumur.“
gun@frettabladid.is
MÉR FANNST BARA
ALLIR YNDISLEGIR OG
HLÝIR. FÓLK ÞARF LÍKA AÐ
VERA MANNVINIR TIL AÐ VEITA
SVONA ÞJÓNUSTU.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Ritari
Auglýst er laust til umsóknar starf ritara hjá Reykjavíkur-
prófastsdæmi eystra.
Starfið er metið sem rúmlega 50% af fullu starfi og launakjör
eru skv. kjarasamningum Verslunarmannafélags Reykjavíkur.
Ritari hefur umsjón með skrifstofu prófastsdæmisins.
Starfið er m.a. fólgið í vinnu við bókhald og meðferð
fjármuna, skjalavörslu, skýrslugerð, skipulagningu funda,
umsjón með heimasíðu, bréfaskriftir, símsvörun og ýmis
konar þjónustu við prófast, aðra starfsmenn prófastsdæmis-
ins og söfnuði þess.
Leitað er að einstaklingi með góða bókhalds- og tölvuþekk-
ingu, sem unnið getur sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum áskilin og kunnátta í er-
lendum tungumálum æskileg. Óskað er eftir að umsækjandi
hefji starf, eigi síðar en 1. nóvember.
Umsóknarfrestur er til 15. september n.k. og skulu umsóknir
sendar Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, Breiðholtskirkju,
Þangbakka 5, 109 Reykjavík.
Nánari upplýsingar má fá í síma 567-4810.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-6
5
B
C
2
3
B
4
-6
4
8
0
2
3
B
4
-6
3
4
4
2
3
B
4
-6
2
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K