Fréttablaðið - 04.09.2019, Síða 36
Heilluðust af langri
sögu 66°Norður
Rakel Sólrós Jóhannsdóttir, fata-
hönnuður hjá 66°Norður, segir
samstarfið hafa gengið frábærlega.
Samstarf fyrirtækjanna fyrir veturinn
2019 samanstendur af dúnúlpu, dún-
vesti, kjól, trefli og tösku.
Hönnunarteymi 66°Norður og Ganni
unnu saman að línunni og var innblástur
sóttur í vetrarlínu og sjófataarfleifð Sjó-
klæðagerðarinnar með skemmtilegum
og ferskum blæ frá danska fatamerkinu.
Allar vörurnar í samstarfinu eru úr
tæknilegum efnum og framleiddar af
66°Norður í takmörkuðu upplagi og
aðeins í versluninni á Laugavegi.
Vetrarlínan
í samstarfi
66°Norður og
danska kven-
fatamerkisins
Ganni kemur
í verslanir í
dag en Rakel
Sólrós Jó-
hannsdóttir,
fatahönnuður
hjá 66°Norður,
segir eigendur
Ganni hafa
heillast af
sögu 66°Norð-
ur og sóst eftir
samstarfi.
66°Norðu r og Ga nni kynntu framhald á sam-starfi fyrirtækjanna á tískuvikunni í Kaup-mannahöfn í febrúar. Áður höfðu fyrirtækin
gert samstarfslínu sem kom í versl-
anir í mars. Aðspurð út í það hvernig
samstarfið við þetta ört vaxandi
danska merki kom til, svarar Rakel
Sólrós Jóhannsdóttir, fatahönnuður
hjá 66°Norður: „Eigendur Ganni,
Ditte og Nikolaj, eru aðdáendur
merkisins og höfðu notað fatnaðinn
í útivist og skíðaferðir, þannig að það
má segja að þetta hafi fyrst byrjað
þar. Þau hittu svo forstjóra okkar á
einum tímapunkti og viðræður og
hugmyndir að samstarfi byrjuðu að
fæðast.
Það sem Ganni fannst spennandi
er þessi mikla saga sem 66°Norður
á og sérþekkingin sem við höfum á
hönnun og framleiðslu á tæknileg-
um fatnaði sem finnst ekki annars í
tískuheiminum.“
Andstæður merkjanna heilluðu
„Ganni er mjög þekkt danskt tísku-
merki sem einblínir á kvenlegar
línur og kemur því úr annarri átt en
við þannig að andstæða merkjanna
heillaði okkur,“ segir Rakel. „Mér
finnst merkin ótrúlega ólík þar sem
kúnnar Ganni eru ungar konur sem
eru í kjólum með alls konar áberandi
prenti en 66°Norður hannar tækni-
legan fatnað fyrir alla aldurshópa.
En það sem þau eiga sameiginlegt
er ákveðinn Scandi-stíll enda eru
bæði merkin staðsett á Norðurlönd-
unum.“
Fóru út fyrir boxið
með ævintýralega flík
Hvernig fer svo hönnunarferlið fram
þegar tvö ólík merki hvort í sínu land-
inu leiða saman hesta sína?
„Ferlið á þessari línu byrjaði fyrir
ári síðan þegar Shila, sem er aðstoðar
listrænn stjórnandi hjá Ganni, heim-
sótti höfuðstöðvar 66°Norður hér í
Garðabænum og við vörðum tveim-
ur dögum í hugmyndavinnu. Við
byggðum nánast alla stílana á okkar
sniðum, sem við uppfærðum nema
einn skyrtukjól, sem er byggður á
kjól frá Ganni. Hann er einangraður
með Powerfill fyllingu og opinn í
bakið. Þannig var gaman að nýta
tækifærið og fara aðeins út fyrir
okkar box og tvinna saman merkin
tvö í aðeins ævintýralegri flík þó að
hún sé ekki eins praktísk og aðrar.“
Póstar, símtöl, Skype, Facetime
Rakel segir það ekki hafa staðið þeim
fyrir þrifum í ferlinu að vera staðsett
hvort í sínu landinu. „Við erum vön
framleiðslu landa á milli þar sem
okkar eigin verksmiðja er staðsett í
Lettlandi þannig að samstarfið gekk
vel og byggist á póstum, símtölum,
Skype og Facetime.
Við gerðum tvær til þrjár prótó-
týpur fyrir hverja flík til að passa að
bæði snið og framleiðsla mæti okkar
gæðastöðlum. Það var þó ekki laust
við smá stress þegar það rétt náðist
að senda lokaprufurnar til Dan-
merkur fyrir tískusýningu Ganni,
aðeins nokkrum dögum fyrir sýn-
inguna sem var í lok janúar.“
Alltaf að fylgjast með
Fyrsta samstarf merkjanna tveggja
var kynnt síðasta vor og fékk mikla
athygli í tískupressunni erlendis.
„Það fyllir mig miklu stolti að vinna
hjá fyrirtæki sem stendur fyrir gæði
og ævintýramennsku og er ekki
hrætt við að fara ótroðnar slóðir.“
Aðspurð hvort framhald verði á
samstarfinu segir Rakel það ekki
í farvatninu á næstu misserum en
mikil ánægja sé með þessar tvær
línur sem hannaðar voru í samein-
ingu.
„Við erum alltaf að fylgjast með í
kringum okkur, hvort sem það eru
ungir íslenskir hönnuðir sem eru
að byrja eða reyndari fatamerki
erlendis. Það eru alls konar spenn-
andi viðræður í gangi en ekkert sem
má segja frá,“ segir Rakel að lokum
en það verður spennandi að fylgjast
með næstu skrefum.
bjork@frettabladid.is
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-7
4
8
C
2
3
B
4
-7
3
5
0
2
3
B
4
-7
2
1
4
2
3
B
4
-7
0
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K