Fréttablaðið - 04.09.2019, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Sími: 558 1100
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
Ævintýralegt
haust í Höllinni
PASSO
Borðstofuborð frá Danform. Svört grind og grábrún,
sterk keramikplata. Stærð: 100 x 200/300 x 75 cm
159.993 kr. 199.990 kr.
Stækkanlegt í 300 cm
með 2 stækkunum
sem fylgja.
AKS Borðstofu stóll.
Mótaður krossviður í setu
og baki með svörtu áklæði
og fótum úr eik.
25.493 kr. 29.990 kr.
HUNTINGTON
Borðstofustóll. Svartir
stálfætur og ljósgrátt
áklæði.
12.792 kr. 15.990 kr.
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Það kemur í raun ok kur sjálfum á óvart að vera nú að halda þessa tón-leikaröð í þriðja skiptið. Hugmynd-
in kviknaði sem algjört grín,
að halda rapptónleika en hafa
jólaplakat. Síðan þegar leið á
grínið fórum við að taka þessu
alltaf meira og meira alvar-
lega,“ segir Gauti Þeyr Másson,
sem flestir þekkja sem Emmsjé
Gauta.
Hann segir þá Frey Árnason,
sem stendur að tónleikunum
með honum, hafa smitast af
einhverjum jólaanda.
„Þannig að það helltist yfir
okkur einhver heilagur jóla-
andi. Það sama má segja um
þau sem hafa tekið þátt í þessu
með okkur, þau hafa öll smitast af
einhverri jólagleði.“
Síbreytilegur jólasöngleikur
Tónleikarnir sprengdu af sé hús-
næðið strax fyrsta árið, en þá voru
þeir haldnir í Gamla bíói.
„Þá ætluðum við fyrst að halda
bara eina sýningu en enduðum
með sjö pakkaðar sýningar. Þannig
að við áttuðum okkur fljótt á því að
við þyrftum að færa og stækka við
okkur. Á síðasta ári voru tónleik-
arnir því haldnir í Háskólabíói þar
sem þeir verða aftur í ár.“
Gauti ítrekar að þetta sé ekki
einungis hans sýning, heldur allra
þeirra sem koma fram með honum
og taka þátt.
„Við Freyr sjáum vissulega um
þetta, en það er fyrst og fremst
samspil þeirra listamanna sem
koma fram sem gerir sýninguna frá-
bæra. Á köflum er þetta meira eins
og leiksýning eiginlega, mjög súr
jólasöngleikur, þar sem handritið
breytist jafnvel meðan sýningin er
í gangi,“ segir Gauti.
Þótt hann segi sýninguna vera
síbreytilega mælir Gauti ekki með
því að fólk kaupi sér miða á alla tón-
leikana.
„Ef ég tek bara sem dæmi þá voru
fyrstu tónleikarnir fyrir þremur
árum allt öðruvísi en þeir sjöundu.
Ég mæli samt gegn því að fólk kaupi
miða á allar sýningarnar, það væri
fjárhagslega mjög léleg ákvörðun og
gæti sett heimilisbókhaldið gjör-
samlega á hvolf. Ef þú kaupir miða
aftur og aftur þá áttu við eitthvert
vandamál að stríða,“ segir Gauti
hlæjandi.
Leynigesturinn sprengir skalann
Hann mælir þó klárlega með því að
fólk mæti allavega einu sinni, enda
eru engir aukvisar sem koma
fram á tónleikunum í ár.
„Aron Can og Salka Sól eru
aftur með mér í ár, þau hafa
verið með í öllum sýningum
til þessa. En fyrir utan þau tvö
reynum við að stokka þetta
aðeins upp og gera eitthvað nýtt
og öðruvísi. Ásamt þeim koma
svo fram Ragga Gísla, Bríet, Páll
Óskar og Friðrik Dór.“
Gauti segir að leynigesturinn
eigi svo eftir að sprengja skal-
ann, en honum sé stranglega
bannað að gefa upp hver það sé
í bili.
„Sýningin breytist mikið frá
ári til árs, þú ert ekki að fara
að borga þig inn á sömu tón-
leika og í fyrra. Sviðsetningin
er önnur og við gefum ekki upp
strax hvað gerist í ár, en í fyrra
fæddist Jesúbarnið til dæmis og
var að lokum krossfest. Eru ekki
krossfestingar á öllum betri jóla-
sýningum?“
Aldrei farið á jólatónleika
Hann segir þó líklegt að hinn heil-
agi andi láti sjá sig líkt og á síðasta
ári.
„Þó ég segi sjálfur frá þá eru þetta
skemmtilegustu jólatónleikar sem
ég hef farið á. Ég hef reyndar aldr-
ei farið á jólatónleika, þannig að
ég er ekki með neitt sérstaklega
gott viðmið. En við erum mikið að
vinna með hugtakið „What would
Bó do?“. Ef Bó er með hatt, þá er ég
með hatt,“ segir Gauti.
Hann segir það mikilvægt að eiga
fyrirmyndir í þessu sem og annars
staðar, og þar sé Björgvin Halldórs-
son fremstur á meðal jafningja.
Hann hafi fundið upp hjólið undir
jólatónleikaleikunum.
„Og til hvers að finna upp hjólið
aftur, þegar þú getur bara sett svart-
ar felgur á það?“ segir Gauti .
Miðar á sýningarnar seldust hratt
upp í fyrra, en hægt er að nálgast
miða á tónleikana í ár á tix.is frá og
með morgundeginum.
steingerdur@frettabladid.is
Krossfesting á öllum
betri jólasýningum
Emmsjé Gauti heldur jólatónleika sína, Jülevenner, þriðja árið í röð.
Í ár kemur fram einvala lið tónlistarfólks ásamt rapparanum sí
vinsæla, en hann lofar leynigesti og heimsókn frá heilögum anda.
Í ár koma fram ásamt Gauta þau
Aron Can, Salka Sól, Ragga Gísla,
Páll Óskar, Bríet og Friðrik Dór.
Rapparinn Emmsjé Gauti var krossfestur í gervi Jesú fyrir ári og engin leið er að vita upp á hverju hann tekur í ár.
EN VIÐ ERUM MIKIÐ
AÐ VINNA MEÐ
HUGTAKIÐ „WHAT WOULD
BÓ DO?“. EF BÓ ER MEÐ HATT,
ÞÁ ER ÉG MEÐ HATT.
4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
4
-6
0
C
C
2
3
B
4
-5
F
9
0
2
3
B
4
-5
E
5
4
2
3
B
4
-5
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K