Skessuhorn - 30.05.2007, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007
Söfiiuní
orgelsjóð
gengur vel
Vel hefur gengið að safna í org-
elsjóð Stykkishólmskirkju síðan
kraftur var settur í söfhunina fyrir
um þremur vikum síðan. A þeim
tíma hefur tekist að safna um 15
milljónum króna, en áætlað er að
nýtt orgel komi til með að kosta í
kringum 35 milljónir. Þetta kemur
fram í Stykkishólmspóstinum. Nú
síðast barst sjóðnum gjöf frá félög-
um í Liverpoolklúbbnum í Stykk-
ishólmi sem létu fé af hendi rakna
í sjóðinn og tók Sesselja Pálsdóttir,
formaður sjóðsins við gjöfmni sem
sögð er duga fyrir heilli pípu í nýja
orgelið.
mm
Ttl mtnnis
Við minnum á sjómannadag-
inn sem er á sunnudaginn.
Dagskrá verður í flestum bæj-
arfélögum og tilvalið er að taka
þátt í henni með fjölskyldunni.
Veihvrhorfw
Það verður hlýtt næstu daga
og léttskýjað. Á fimmtudag
verður hann að austan og
norðaustan en snýst í suðaust-
an og austan á föstudag og
um helgina. Hiti verður 9-16
stig. Búast má við úrkomu á
sunnudag og kannski vætu við
sunnanverðan Faxaflóa á föstu-
dag. Það verður hæglætisveð-
ur fimm til átta metrar á sek-
úndu.
Spnrnincj viKnnnar
í síðustu viku spurðum við að
því hvort lesendur Skessuhorns
ætluðu sér að sækja einhverja
bæjarhátíð í sumar. Rétt tæp
50% eru ákveðin í því( en um
20% ætla sér ekki að gera það.
Þá eru um 30% ekki búin að
taka ákvörðun þar um og Ijóst
að nokkurt sóknarfæri er í hópi
óákveðinna fyrir markaðsfólk
þeirra fjölmörgu bæjar- og
héraðshátíða sem verða á Vest-
urlandi í sumar.
Næst spyrjum við: „Hefurðu
migið í saltan sjó?"
Vestlencfin^^T
viknnnar
Vestlendingar vikunnar eru að
þessu sinni sjómennirnir, hinar
saltbörðu hetjur hafsins sem
draga björg í þjóðarbú. Vel-
ferðarríki nútímans á sjómönn-
um og verðmætasköpun þeirra
mikið að þakka og því við hæfi
að þeir séu heiðraðir á sjó-
mannadaginn sem er á sunnu-
dag.
Bruni í húsnæði Vignis G á Akranesi
Nokkrar skemmdir urðu í hús-
næði hrognavinnslu Vignis G Jó-
hannssonar á Akranesi að kvöldi sl.
fimmtudags þegar kviknaði í út frá
eldavél, að því að talið var. Um 20
tonn af hrognum voru í húsinu og
gætu þau verið óvinnsluhæf, að
hluta til eða öllu leyti. Slökkviliðinu
á Akranesi barst tilkynning um eld-
inn uppúr klukkan 22 og var allt til-
tækt lið kallað á staðinn. Að sögn
Þráins Olafssonar, slökkviliðsstjóra
gekk slökkvistarf vel og var búið að
ráða niðurlögum eldsins um er ekki talið að um íkveikju hafi
fimmtán mínútum eftir að á staðinn verið að ræða.
var komið. Málið er í rannsókn og nmi
Kvarthektara íjós byggt á Kvemgrjóti
Axel Oddsson bóndi á Kvern-
grjóti í Dalasýslu hyggst reisa fjós
sem er kvarthektari að stærð eða
2.675 frn. I stuttu spjalli við Skessu-
hom sagði Axel að meiningin væri
að hagræða í vinnu með vélvæð-
ingu. Því þyrfti fjósið að vera svona
stórt. Breiður fóðurgangur verður
þvert í gegnum fjósið sem verður
véltækur og sagðist Axel hafa hugs-
að þessa byggingu alfarið út ffá
hagræðingu við verkin. Aðspurður
hvort svona bygging væri ekki af-
skaplega dýr svaraði Axel því til að
margt væri hægt að virma sér í hag-
inn ef hlutirnir væru skoðaðir
gaumgæfilega. „Eg flyt húsið inn
sjálfúr, beint frá Ameríku. Það kost-
ar minna. Þetta er stálgrindarhús
sem kemur hingað í einingum með
klæðningu og einangrun. Eining-
arnar verða síðan boltaðar saman
effir ákveðnu kerfi. Meiningin er að
búið verði að reisa í haust svo hægt
verði að fara í innivinnuna í vetur,“
sagði Axel Oddsson bóndi.
bgk
Viðvöriiiiarkerfi fældi
skemmdarvarga á brott
Um miðjan dag á sunnudag var
enn einu sinni reynt að brjótast inn
í háhýsið á Miðbæjarreitnum á
Akranesi, eða svokallað Húsbygg-
blokk við Stillholt. Eins og greint
hefur verið frá í fréttum Skessu-
horns var a.m.k. í tvígang farið inn
í blokkina fyrir skömmu og unnin
veruleg skemmdarverk, m.a. á
lyftuhúsi. Nú hefur verið komið
fyrir öryggiskerfi í blokkinni og
fældi það nýjustu óboðnu gestina á
brott. „Oryggisvörður fór strax og
kerfið sendi út viðvörun og var
kominn á staðinn þremur mínútum
síðar. Skemmdarvargarnir höfðu þá
haft sig á brott en náð að steyta
skapi sínu á öryggiskerfinu sjálfu og
eyðilögðu hreyfiskynjara í því. Or-
yggiskerfið hefur því nú
þegar sannað gildi sitt en
mjög grannt verður áfram
fylgst með blokkinni,"
sagði Guðni Haraldsson
hjá Oryggismiðstöð Vest-
urlands í samtali við
Skessuhorn.
I síðustu viku ákvað
Húsbygg, verktakinn við
ffamkvæmdirnar að heita
100 þúsund króna laun-
um fyrir upplýsingar sem
leitt gætu til þess að fyrri
skemmdarverk í blokk-
inni upplýsist, en
skemmdirnar eru metnar
á milljónir króna.
mm
Jarðvélar fa ekki gatnagerð í Borgamesi
Ekkert verður af því að sveitar-
stjórn Borgarbyggðar taki tilboði
Jarðvéla um nýlagningu vega í
Borgarnesi, en það varð nýlega
lægst í útboði, þar sem fyrirtækið
hefur ekki staðið í skilum með op-
inber gjöld. Að sögn Björns Bjarka
Þorsteinssonar, forseta sveitar-
stjórnar er alltaf athugað hvort við-
komandi verkbjóðandi sé í skilum
með opinber gjöld eða ekki. Svo
reyndist ekki vera í þessu tilfelli og
verður því gengið til samninga við
Borgarverk ehf. sem á sínum tíma
átti næst lægsta tilboðið. Tilboð
Jarðvéla hljóðaði upp á 99,9 millj-
ónir króna en tilboð Borgarverks
var 116,9 milljónir. Kostnaðaráætl-
un Borgarbyggðar hljóðaði hins
vegar upp á 141,9 m. krónur. Um
er að ræða nýlagningu vega í Borg-
arnesi í Bjargslandi II, Selás, Kára-
staðaveg og göngustíg.
bgk
Tíu skeimntiferðaskip til
Grundarfjarðar í sumar
Þessa dagana er verið að vinna
við ffágang á plani smábátahafnar-
innar í Grundarfirði. Auk þess er
unnið við aðstöðu fyrir bensínstöð
Orkunnar sem er á svæðinu. Með
þessum framkvæmdum er m.a.
verið að undirbúa komu skemmti-
ferðaskipa sem koma til Grundar-
fjarðar í sumar og munu léttabát-
ar skemmtiferðaskipanna leggjast
að smábátahöfninni. Þá er gert ráð
fyrir því að rútur sem munu fara
með farþega í skoðunarferðir noti
svæðið sem biðstöð. I sumar koma
10 skemmtiferðaskip til Grundar-
ijarðar, það stærsta um 30 þúsund
tonn að stærð. Fyrsta skipið kemur
í byrjun júní.
Bílvelta á
Staflioltsvegi
BORGARFJÖRÐUR: Fólks-
bíll valt ofan í skurð á svokölluð-
um Kotavegi í Borgarfirði, þ.e. á
veginum að Stafholti á þriðja
tímanum á föstudag. Lítil eða
engin meiðsl urðu en ökumað-
urinn, ung stúlka var ein í bíln-
um. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi missti ökumaðurinn
stjórn á biffeið sinni í lausamöl.
Klippubíll Slökkviliðsins í Borg-
arnesi var kallaður út en ekki
kom til að beita þyrfti klippun-
um. Okumaðurinn var fluttur í
sjúkrabíl til skoðunar á Heilsu-
gæslustöðina í Borgamesi og er
ekki talinn mikið slasaður. -bgk
Yfirlýsing firá
starfsmannafélagi
GRUNDARTANGI: Stjórn
Starfsmannafélags Norðuráls
sendi á föstudag ffá sér yfirlýs-
ingu vegna máls fyrrurn gjald-
kera félagsins, sem Skessuhorn
greindi frá á forsíðu síðasta tölu-
blaðs, og snýst um meintan fjár-
drátt gjaldkerans úr sjóðum fé-
lagins. Tilkynning stjórnar
STNA er svohljóðandi: „í kjöl-
far aðalfundar Starfsmannafé-
lags Norðuráls hefur orðið upp-
víst að gjaldkeri starfsmannafé-
lagsins hefúr dregið sér fé úr
sjóðum félagsins. Upphæðin
nemur á aðra milljón króna.
Viðkomandi, sem hefur látið af
störfum hjá Norðuráli, hefur
gengist við brotinu og málið
hefur verið afhent lögfræðing-
um til effirfylgni. Fjárhagsstaða
félagsins er eftir sem áður
traust." -mm
Skólastjóri hættir
BORGARBYGGÐ: Þórunn
María Oðinsdóttir, skólastjóri
Varmalandsskóla hefur sagt upp
störfúm. Þórann tók við stöð-
unni á síðasta ári og segir núna
upp af persónulegum ástæðum.
Að sögn Björns Bjarka Þor-
steinssonar, forseta sveitar-
stjórnar Borgarbyggðar hafa
stjórnendur sveitarfélagsins ver-
ið afar ánægðir með störf Þór-
unnar Maríu og átt við hana gott
samstarf. „Þórunn María er að
hætta af persónulegum ástæðum
þannig að staðan verður auglýst
einhvern næstu daga og nýr
skólastjóri mun að líkindum
taka við stjórnartaumum á
Varmalandi næsta haust,“ sagði
Björn Bjarki. -bgk
Skortur á
vinnuafli
DALIR: Sveitarfélagið Dala-
byggð er með ýmsar fram-
kvæmdir á döfinni sem að sögn
Gunnólfs Lárussonar sveitar-
stjóra hefur dregist að ffam-
kvæma, mest vegna skorts á
vinnuafli. „Við erum að vinna að
nýju húsi fyrir leikskólann og
ganga frá Leifssafni í gamla
kaupfélagshúsinu svo eitthvað sé
neftit og það er sama hvar drep-
ið er niður í þessum efnum, það
fæst enginn til að vinna þau verk
sem til þarf. Það virðist varla
skipta máh á hvaða sviði það er,
allir eru með verkefni upp fyrir
haus,“ sagði Gunnólfur Lárus-
son sveitarstjóri í samtali við
Skessuhorn. -bgk
af
Framkvœmdir við smábátaböfnina í Grundarfirði