Skessuhorn - 30.05.2007, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007
SgjgSSliiIÍMKI
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og t lausasölu.
Áskriftarverð er 1400 krónur með vsk á mánuði en krónur 1300 sé greitt
með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 1050. Verð í lausasölu er
400 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998
Blaðamenn:
Alfons Finnsson, Snæfellsnesi 893 4239
Birna G Konráðsdóttir 864-5404
Kolbeinn Ó. Proppé 659-0860
Magnús Magnúss. 894 8998
Augl. og dreifing:
Hekla Gunnarsd. 821 5669
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson 437 1677
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg ðlafsdóttir
skessuhorn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
birna@skessuhorn.is
kolbeinn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
hekla@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Leiðarinn
Nú er Snorrabúð
stekkur
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál heyra frá síðustu viku undir
sama ráðherrann. Þar eru elstu atvinnuvegir íslenskrar þjóðar sett-
ir undir hatt Einars K Guðfinnssonar sem tekst nú á við tvöfalt
hlutverk ffá tíð síðustu ríkisstjórnar. Sú var tíðin að þessar tvær at-
virmugreinar voru burðarásar íslensks samfélags. Menn stunduðu
annaðhvort sjó eða búskap, höfðu jú að litlu öðru að hverfa. I ald-
ir voru lidar ffamfarir í þessum greinum, ffemur en í samfélaginu
að öðru leyti. Bændur handmjólkuðu sínar ær og kýr og sjómenn
réru til fiskjar á árabátum óvarðir fyrir veðri og vindum. Alikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan þannig háttaði, sem bemr fer.
Miklar tækniframfarir urðu á síðusm öld og útgerð blómstraði í
flesmm sjávarplássum - það var effirspurn eftir störfum tengdum
veiðtun og vinnslu. Þegar undirritaður flutti sig um set, fór úr
sveitinni og settist að í sjávarplássinu Akranesi fyrir hálfum áramg
síðan mátti nær daglega heyra drunurnar í togurunum og bámnum
sem sigldu inn eða út úr höfninni á Skaganum. Hægt var að fylgj-
ast með út um eldhúsgluggann lífinu sem ríkti í og við höfhina; ið-
andi mannlífi athafnasamra sjómanna og starfsemi tengdri útgerð-
iuni. Nú er Snorrabúð stekkur, í það minnsta á Akranesi. I dag er
viðburður ef stórt skip sést leggjast að bryggju og stærsti atvinnu-
rekandinn hefur verið settur undir fyrirtæki í Reykjavík. Vinnslan
er auk þess komin um borð í skipin og störfum í landi hefur hríð-
fækkað. Utgerðarbærinn Akranes hefúr vissulega breytt um svip og
með sanni má segja að þar hafi átt sér stað eitt hljóðlátasta andlát
nokkurrar atvinnugreinar fyrr og síðar. Fólk hafði jú sem betur fer
að öðrum störfum að hverfa og iðnaður m.a. á Grundartanga átti
sixm þátt í að veita hundruðum störf. Afallið varð ekkert. Ekki á
neinn hátt svipaðar aðstæður og t.d. Onfirðingar búa við vestur á
fjörðum nú um stundir.
I viðtali við Einar K. Guðfinnsson, ráðherra landbúnaðar og
sjávarútvegs, sem birtist í Skessuhorni í dag, segir hann að sjávar-
útvegur eigi að vera leiðandi afl í íslensku samfélagi. Hann sé það
enn eins og um aldir þótt menn vilji tala aðrar atvinnugreinar
fremri. Einar heldur auk þess fram að lífskjarasókn síðustu áratuga
hefði ekki átt sér stað ef sjávarútvegurinn hefði ekki staðið sína
plikt; hann hafi verið dráttarklárinn á gnægtarvagn samfélagsins.
Nú vanti hinsvegar nýliðun í greinina og þannig sé komið að ungt
fólk vilji ekki starfa í henni. Sjómenn sjálfir hafa af þessu áhyggjur
og segja margir að eina breytingin frá ári til árs sé sú að þeir verði
árinu eldri! Fyrrum skipstjóri á Snæfellsnesi sem rætt er við í blað-
inu í dag segir það einnig sorglegt að nú sé leiguverð á kvóta orð-
ið svo hátt að sjómaður sem gera vilji út á leigukvóta fái í sinn hlut
um það bil fimmta hvern fisk sem veiðist. Þetta er dapurleg stað-
reynd og óræk ástæða ein og sér fyrir að ungir menn sækja ekki í
sjómennsku.
Við getum ekki stöðvað ffamrás tímans. Við getum hinsvegar
ferðast með breytingunum og stýrt þeim okkur í hag. Enn um sinn
verða landbúnaður og sjávarútvegur undirstaða búsetu í hinum
dreifðu byggðum landsins. Hlutverk Einars K Guðfinnssonar er
því ærið fyrir okkur sem viljum búa á þessu landssvæði.
mm
Tjaldur SH keyptur til Rifs
KG fiskverkun í Rifi hefur keypt
línubátínn Tjald SH af útgerðarfé-
laginu Brimi ehf. á Akureyri. Tjald-
ur sem er einn af stærstu beitnings-
véla línubátun á Islandi er um 412
tonn að stærð og er smíðaður í
Tomrefjord í Noregi árið 1992.
Upphaflega var skipið einmitt
smíðað fyrir KG fiskverkun svo
segja má að Tjaldur sé kominn
heim á nýjan leik. „Með þessum
kaupum eru við að styrkja rekstur-
inn,“ segir Hjálmar Kristjánsson,
ffamkvæmdastjóri KG í samtali við
Skessuhorn. „Við eigum einnig
Faxaborgina en það er óvíst hvað
við gerum við hana, en áhöfnin af
Faxaborgini fer yfir á Tjald SH og
skipstjóri verður Jónas Jónasson
sem í dag er skipstjóri á Faxaborg-
inni. Við munum svo taka í notkun
Tjaldur SH sem KG hejrir keypt afBrimi.
nýtt húsnæði hér í Rifi þann 13. formleg opnun verður svo þann 16.
ágúst næstkomandi en þá mun ágúst,“ segir Hjálmar.
vinnsla hefjast í nýja húsinu og Af
Nýtt hús KG fiskverkunar í Rifi.
Jónas Jónasson verður skipstjóri á Tjaldi SH.
Hefur nú þegar átt viðræður við nýj-
an heilbrigðisráðherra
Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti
sveitarstjómar Borgarbyggðar hefur
þegar átt viðræður við nýjan heil-
brigðisráðherra um húsnæði Dval-
arheimilis aldraðra í Borgarnesi.
Þörf fyrir stækkun og endurbætur á
húsnæði heimilisins hefur verið
framarlega á forgangslista ráða-
manna í Borgarbyggð sem telja að
nú sé röðin komin að stækkun
heimilisins enda þörfin brýn. Form-
legt erindi var því sent til heilbrigð-
isráðuneytisins um að leyfi fengist
til að leysa málin á þann hátt að
heimamenn, með fulltingi Spari-
sjóðs Mýrasýslu og Borgarbyggðar,
fjármögnuðu til bráðabirgða ffam-
kvæmdir, gegn því að ríldð greiddi
þær niður síðar, eða eftir árið 2012.
Viðbrögð bámst ekki ffá ráðuneyt-
inu áður en gengið var til kosninga
þann 12. maí sl. en sl. fimmtudag
tók nýr heilbrigðisráðherra, Guð-
laugur Þór Þórðarson, við völdum.
Eins og áður segir hefur Björn
Bjarki Þorsteinsson þegar átt við-
ræður við heilbrigðisráðherra um
málefni heimilisins. „Eg á ekki von
á öðru en hann hugsi hlýtt til okkar,
nú sem endranær og að skriður
Bj 'óm Bjarki Þor- Guðlaugur Þór
steinsson, forseti Þórðarson, heil-
sveitarstjómar. hrigíisráíherra.
komist á málið,“ sagði Bjöm Bjarki
í samtali við Skessuhom.
bgk
Gáma einkarekin frá 1. september
Rekstur Gámastöðvarinnar Gámu
á Akranesi var auglýstur til útboðs
um liðna helgi og mun nýr rekstrar-
aðili taka við 1. september. Bæjar-
stjóm hefur samþykkt útboðsgögn
og falið sviðsstjóra tækni- og tun-
hverfissviðs að afla tilboða í reksmr-
inn og verða þau opnuð 27. júní. Jón
Pálmi Pálsson, bæjarritari sagði í
samtali við Skessuhorn að engum
starfsmönnum hefði verið sagt upp
og af því yrði ekki fyrr en afstaða
hefði verið tekin til tilboða. Ef ekk-
ert þeirra næði ffam markmiðum
um hagræðingu yrði þeim hafnað og
engum sagt upp. Samingurinn mun
gilda til 1. júlí 2009, en þá rennur út
gildandi samningur við Gámaþjón-
ustu Vesturlands um söfnun sorps.
Verður þá möguleiki á því að bjóða
saman út hirðingu sorps og rekstur
gámastöðvar. Ekkert hefur þó verið
ákveðið í þeim efiium.
Minnihluti bæjarstjórnar lagði til
að gengið yrði til samninga við
byggðasamlagið Sorpu run rekstur
Gámu. Á meðan viðræður færu ffam
yrði rekstur Gámu með svipuðu
sniði og verið hefur. I greinargerð
með tillögunni kemur ffam að Sorpa
sé í fararbroddi varðandi flokkun og
meðhöndlun úrgangs og með sam-
starfi sé tryggt að málaflokknum
verði sinnt. Meirihlutinn hafnaði til-
lögunni og sem áður segir verður
reksturinn boðinn út og mun nýr
aðili taka við honum í haust.
Líkt og Skessuhom greindi ff á var
mikil óánægja innan Starfsmannafé-
lag Akraness með útboð rekstursins
þegar bæjarráð samþykkti það í
október síðastliðnum. Stjórnin
ályktaði gegn útboðinu og vinnu-
brögðum við það og átaldi að ein-
stakir starfsmenn bæjarins þyrftu að
lesa um uppsagnir sínar í fjölmiðl-
um. Þá sagði í ályktuninni að um
grunnþjónustu sveitarfélaga væri að
ræða og efast var um að reksturinn
yrði skilvirkari í höndum einkaaðila.
Gunnar Sigurðsson, forseti bæjar-
stjórnar sagði á sínum tíma við
Skessuhom að Akranes væri að fara
sömu leið og mörg önnur sveitarfé-
lög með góðum árangri. Þá þyrfti
ekki útboðið ekki að koma á óvart,
því Sjálfstæðisflokkurinn hefði lengi
haft útboð á sinni stefiiuskrá.
kóp
Mun flytja tillögu um afiiám
veggjalda í göngin \
Guðbjarmr Hannesson mun
flytja þingsályktunartillögu á Al-
þingi um afnám gjaldtöku í Hval-
fjarðargöngunum. Guðbjartur
leiddi lista Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi, en flokkur-
inn lagði ríka áherslu á afnám
veggjaldsins í kosningabaráttunni.
Nú hefur Kristján L. Möller verið
skipaður samgönguráðherra og
málefni Hval-
fjarðarganganna
em því á hönd-
um Samfylking-
arinnar. Guð-
bjartur segir að
ekkert sé skráð í
stjórnarsáttmál-
ann um gjald-
tökuna og hann
Guðbjartur Hann-
esson.
hafi ekki rætt við samgönguráð-
herra um málið. Hann segir að
stjórnarflokkarnir hafi haft mis-
munandi áherslur þegar kemur að
gjaldtöku á vegum og afnám
veggjalds í Hvalfjarðargöng sé því
samkomulagsatriði. Hann sé hins-
vegar ákveðirm í að flytja tillögu
um málið á Alþingi.
kóp