Skessuhorn - 30.05.2007, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007
su'rtssnMgsiaia
Frábær árangur á
stúdensprófi
Nanna Einarsdóttir úr Borgar-
nesi varð dúx á stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík síð-
astliðinn föstudag. Hún hlaut 10 í
meðaleinkunn fyrir alla áfanga á
fjórða ári og samtals 9,58 í meðal-
einkunn á stúdentsprófinu. Hún
útskrifaðist af náttúruff æðibraut en
samtals voru 144 stúdentar braut-
skráðir. Foreldrar hennar eru Guð-
rún Jónsdóttir og Einar Guðbjartur
Pálsson.
Nanna sagði í samtali við Skessu-
horn að skipulag og ánægja með
viðfangsefnið væri lykilinn að þess-
ari góðu útkomu. „Það er nefnilega
þannig að á síðasta árinu voru ein-
ungis eftir þau fög sem mér finnast
skemmtilegust, eins og stærðfræði,
efna- og eðilsfræði og auðvitað er
betra að ná góðum árangri ef áhug-
inn á viðfangsefninu er mikill. Ég
stefni síðan á bygginga- og um-
hverfisverkfræði eins og staðan er
núna þótt fleiri greinar verkfræð-
innar komi til greina. En ég þarf að
fara að ákveða mig þar sem um-
sóknarfrestur fer að renna út.“
Aðspurð af hverju hún hefði sóst
efidr því að fara í Kvennaskólann
sagði Nanna ástæðuna vera þá
helsta að skólinn væri ffernur lítill
og þægilegur, þar væri bekkjarkerfi
og stærðin væri í samræmi við
grunnskólann í Borgarnesi, þar
sem hún stundaði nám áður fyrr.
Nanna vinnur í sumar sem gjald-
keri hjá Kaupþingi í Borgarnesi en
starfaði undanfarin sumur á Hótel
Hamri við Borgarnes.
Við brautskráninguna í Hall-
grímskirkju hlaut Nanna meðal
annars verðlaun Stærðffæðifélags
Islands fyrir framúrskarandi árang-
ur í stærðffæði og verðlaun fyrir
100% skólasókn.
Bgk/ljósnt.
Hildur Sigurgrímsdóttir.
Nanna Einarsdóttir med jjölskyldunni og kærastanum. En þau erujrá vinstri Guðrún
Jónsdóttir, Einar Guðbjartur Pálsson, Nanna og kærastinn Guðfinnur Gústavsson.
Útskriftarhópur FVA árið 2007. Ljósmynd: Myndsmiðjan.
Fjörutíu útskrifast úr FVA
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi brautskráði á laugardag-
inn 40 nemendur við hátíðlega at-
höfn. Alls útskrifuðust 28 með
stúdentspróf, 10 með burtfarar-
próf af iðnbraut, einn bæði með
stúdentspróf og burfararpróf af
iðnbraut og einn úr öðru námi sem
skiptinemi. Kristín Mist Sigur-
björnsdóttir fékk verðlaun fyrir
bestan árangur á stúdentsprófi og
Ingólfur Pétursson fyrir bestan ár-
angur af iðn- og starfsmennta-
brautum.
Við athöfnina veittu þeir Gísli
Einarsson, bæjarstjóri Akraness og
Böðvar Bjarki Þorsteinsson, forseti
sveitarstjórnar Borgarbyggðar
námsstyrk sveitarfélaganna tveggja.
Hann skiptist jafnt milli þeirra
Doffa Jónassonar sem lauk burtfar-
arprófi af námsbraut í rafvirkjun og
Stefáns Jóhanns Sigurðssonar sem
lauk stúdentsprófi af félagsffæða-
braut. Báðir útskrifuðust þeir í des-
ember 2006.
Hörður O. Helgason, skóla-
meistari FVA ávarpaði samkomu-
gesti og útskriftarefni við athöfn-
ina. Hvatti hann unga fólkið ein-
arðlega til að taka þátt í félagsstarfi
í ffamtíðinni, hvort sem það væri
innan stjórnmálaflokka eða hags-
munasamtaka. Bræðurnir Björn
Þorri og Viktor Viktorssynir, komu
fram sem fulltrúar 10 og 20 ára
stúdenta og afhentu skólanum gjöf
ffá afmælisárgöngunum. Var þar
um að ræða málverkið Þorpið eftir
Bjarna Skúla Ketilsson, eða Baska.
kóp
Forstöðumaður
Safiiamiðstöðvar
Keyptu rútu til að flytja
knattspymufólk
Knattspyrnudeild Víkings hef-
ur keypt 16 manna rútu til að aka
fótboltakrökkum í Snæfellsbæ á
leiki sem þau taka þátt í um land-
ið og á samæfingar á Snæfells-
nesi. „Ljóst er að starf knatt-
spyrnunnar í Snæfellsbæ er alltaf
að aukast og krakkarnir þurfa að
ferðast meira vegna þátttöku í
fleiri leikjum. Hefur knatt-
spyrnudeildin fengið nokkar
styrktaraðila með sér í lið til þess
sjá um rekstur rútunnar," segir
Jónas Gestur Jónasson, formaður
meistaraflokks knattspyrnudeild-
ar Víkings. Bætir hann því við að
Forsvarsmenn knattspymudeilar Vt'kings ásamt ungum knattspymumönnum úr Víkingi
í Olafsvík.
vel yrði þegið að fá fleiri styrktar- efni með Víkingi.
aðila til að taka þátt í þessu verk- af
Guðrún Jónsdóttir menningar-
fulltrúi Borgarbyggðar hefur verið
skipuð forstöðumaður Safhamið-
stöðvar Borgarbyggðar til 1. sept-
ember. Eins og greint var ffá í
fréttum Skessuhorns sagði Ása
Harðardóttir forstöðumaður
Safnahúss Borgarfjarðar upp starfi
sínu og tók uppsögnin gildi 1. mars
síðastliðinn. Hinsvegar lagði
vinnuhópur sem skipaður var til að
gera tillögur um framtíð Safnahúss
Borgarfjarðar til að ekki yrði ráðið
í starf fráfarandi forstöðumanns
heldur sæi menningarnefnd sveit-
arfélagsins um málefhi safinanna og
menningarfulltrúi yrði því yfir-
maður þess. Þessi ráðstöfun er því í
samræmi við þær tillögur. Sami
hópur lagði einnig til að heiti
Safhahúss Borgarfjarðar yrði breytt
í Safnamiðstöð Borgarfjarðar sem
sinni einnig þjónustu og ráðgjöf til
annarra safha og sýninga í hérað-
inu.
Jafhffamt voru tillögur um að
rekstri Safnamiðstöðvar Borgar-
fjarðar verði skipt upp í þrjár að-
skildar en þó tengdar einingar:
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar,
Héraðsbókasafii Borgarfjarðar og
Munasafn Borgarfjarðar. Skipting-
in verði gerð á grundvelli þess að
um mismunandi starfsemi og
áherslur er að ræða. Nú hefur
sveitarfélagið ákveðið að heimila
forstöðumanni að ráða minjavörð í
hálft starf. Að sögn Björns Bjarka
Þorsteinssonar, forseta sveitar-
stjórnar Borgarbyggðar var ákveðið
að prófa þetta til að byrja með og
sjá til hverju ffam vindur, en líklega
muni þetta starf vaxa með árunum.
bgk
Pistill Gísla
Ég man ekki hvort ég hef ein-
hverntíman nefrit það áður á þess-
um vettvangi, sem flestir mér
kunnugir vita náttúrulega, að ég er
nánast óttalaus. Eg veit að þetta er
nokkuð stór fullyrðing enda hvarfl-
aði ekki að mér að slá henni ffam
nema geta staðið við hana. Hvað
sem hver segir þá hræðist ég varla
neitt, hvort eð er í lofti, láði eða
legi. Fyrir utan konuna mína þá er
það aðeins eitt sem mér stendur
stuggur af í návígi en það eru vöru-
bifreiðar með viðhengi.
Þannig vill til að ég brúka þjóð-
vegi landsins meira en margir aðr-
ir og tel mig því hafa þokkalega yf-
irsýn yfir það sem þar á sér stað.
Það er því ekki út í bláinn að ég
fullyrði að vörubílar með aftaní-
vagna séu að verða algengasti
ferðamáti Islendinga. Miðað við
hversu mörgum trukkum með
tengivagna ég mæti á vegum lands-
ins dag hvern þá lætur nærri að tíu
hjóla trukkar með jafn margra
hjóla vögnum aftaní séu til á hverju
heimili.
Auðvitað veit ég að það eru stór-
kostlegar ýkjur en þeir eru samt
býsna margir og vel rúmlega það á
íslenskum vegum og vegleysum.
Astæða þess að ég er eilítið
smeykur, eða öllu heldur þónokk-
Asjó
uð smeykur við vörubílalestir er
ekki að ég telji bílstjóra þeirra hafa
illt í huga gagnvart mér eða mín-
um. Eg efast ekki um það eitt and-
artak að vörubifreiðastjórar lands-
ins eru upp til hópa mestu geð-
prýðismenn sem ekkert aumt mega
sjá. Það vill hinsvegar þannig til að
þessir bílar passa ekki fyrir íslenska
vegi ffekar en fílar eru hannaðir til
að ferðast um á hlaupahjólum. Eg
geri mér reyndar ekki grein fyrir
hvort það eru vörubílarnir sem eru
of stórir eða vegirnir sem eru of
litlir. Hvernig sem það snýr þá
passar þetta tvennt allavega ekki
saman.
Þegar maður mætir þessum
ferlíkjum þá er maður undantekn-
ingarlaust með lífið í lúkunum og
það er ekki svo sjaldan því maður
gerir ekki mikið annað ef maður er
á vegum úti á annað borð, slíkur er
fjöldinn eins og áður hefur verið
vikið að. Eg á heldur ekki von á
því, með fullri virðingu, að full-
lestaðar og jafnvel oflestaðar vöru-
bifreiðarnar bæti vegakerfið.
Það skemmtilega við þetta leið-
inlega vandamál er að lausnin er
einföld. Með því að færa þunga-
flutningana á haf út þar sem þeir
eiga best heima er hægt að slá tvær
flugur í einu höggi. Annarsvegar
að hlífa vegakerfinu við óþarfa á-
níðslu og hinsvegar að hlífa tauga-
kerfi mínu við þeirri áníðslu sem
ég minntist á hér í upphafi. Það er
því verðugt verkefni fyrir nýjan
samgönguráðherra að finna leiðir
til að endurvekja strandsiglingar
hér við land. Eg get ekki látið mér
detta í hug betri byrjun nema ef
vera skyldi örmur Héðinsfjarðar-
göng, þ.e. í hina áttina. Eg bíð
spenntur.
Gísli Einarsson, samgöngumála-
ráðgjafi