Skessuhorn - 30.05.2007, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007
§iaessiíH©EH
Krístinn þing-
flokksformaður
FRJÁLSLYNDIR: Kristinn H.
Gunnarsson, níundi þingmaður
Norðvesturkjördæmis, hefur
verið skipaður þingflokksfor-
maður Frjálslynda flokksins.
Flokkurinn fundaði sl. mið-
vikudag og skipti á milli sín
embættum, en fjórir sitja á
þingi fyrir flokkinn. Fyrsta verk
nýkjörins þingflokks var að
álykta um vanda sjávarþorpa.
Kristinn hefur áður verið þing-
flokksformaður, en hann var
þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins 1999-2003.
-kóp
Innbrot
í verslanir
SNÆFELLSBÆR: Aðfar-
arnótt fimmtudags í síðustu
viku var brotist inn í tvær versl-
anir í Snæfellsbæ; Virkið í Rifi
og Kassann í Olafsvík. Að sögn
lögreglu var litlu stolið en þó
tókst þjófunum að komast á
brott með tóbak og eitthvað af
skiptimynt. Engar skemmdir
voru unnar. Málið er í rann-
sókn hjá lögreglunni í Olafsvík.
-af
Fjallskilamál
skoðuð
DALIR: Sveitarstjórn Dala-
byggðar hefur samþykkt að
boða formenn fjallskilanefnda
til fundar til að fara yfir fjall-
skilamál í sveitarfélaginu.
Gunnólfur Lárusson sveitar-
stjóri sagði í samtali við
Skessuhorn að það þyrfti að
fara að skoða þessi mál í ljósi
breyttra aðstæðna í sveitum.
„Hér eins og víða annarsstaðar
er erfitt að fá mannskap í
smalamennskur. Fólki hefur
fækkað á bæjunum og jafnvel
eru sumar jarðir í eigu manna
sem eiga lögheimili utan Dala-
byggðar. Að kalla formennina
saman til fundar er byrjunin á
þessari endurskoðun og svo
tökum við framhaldsskrefin út
frá þeim viðræðum,“ sagði
Gunnólfur.
-bgk
HS-verktak með
gangstétta-
viðgerðir
BORGARBYGGÐ: Byggða-
ráð Borgarbyggðar hefur sam-
þykkt að fela forstöðumanni
framkvæmdasviðs að ganga til
viðræðna við HS-verktak um
gangstéttaviðgerðir í Borgar-
nesi. Páll S. Brynjarsson, sveit-
arstjóri sagði í samtali við
Skessuhorn að meirhluti
byggðaráðs teldi að það þjónaði
best hagsmunum sveitarfélags-
ins að semja við HS-verktak.
„Menn telja að á þennan hátt
verði verkið unnið fljótt og vel.
Hluti af þessari vinnu er þegar
inni í samningum sveitarfélags-
ins við HS-verktak þannig að
það þarf einungis að semja um
það sem út af stendur. Mikil
þörf er orðin fyrir þessar lag-
færingar og því leggjum við
áherslu á að verkið verði klárað
í sumar,“ sagði Páll S. Brynjars-
son sveitarstjóri. -bgk
Sturla kveður ráðuneyti sitt eftir átta
ára veru
Síðastliðinn fimmtudag tóku nýir
ráðherrar við lyklavöldum ráðu-
neytanna. Þá afhenti Sturla Böðv-
arsson, samgönguráðherra og 1.
þingmaður NV kjördæmis m.a.
lyklavöld af ráðuneyti sínu til Krist-
jáns Möllers, nýs ráðherra Samfylk-
ingarinnar. Við þetta tækifæri sagði
Sturla Böðvarsson meðal annars að
í samgönguráðuneytinu væri unnið
eftir langtímaáætlunum f öllum
málaflokkum. „Þetta á við sam-
gönguáætlun, fjarskiptaáætlun og
ferðamálaáætlun og jafnframt höf-
um við lagt áherslu á bætta stjórn-
sýslu með miklum skipulagsbreyt-
ingum í ráðuneytinu. A þessum
tímamótum get ég ánægður staðið
upp frá þessum vettvangi og tel að
nýr ráðherra taki við góðu búi.
Þannig er málum háttað með sam-
gönguráðuneytið að það er eins og
stórt tankskip sem tekur langan
tíma að snúa við og ég vona að
Kristjáni Möller gangi vel að sigla
eftir svipaðri stefnu og ég hef gert,“
sagði Sturla Böðvarsson meðal
annars við þetta tækifæri.
mm
Töluverður hagnaður á fyrsta
ársfjórðungi HB Granda
Hagnaður fyrsta ársfjórðungs
HB Granda eftír tekjuskatt nam 2,4
milljörðum króna, en á sama tíma-
bili í fyrra var tap upp á ríflega 1,3
milljarða. Líkt og Skessuhorn hefur
greint frá var fyrirtækið rekið í
fyrra með tæplega tveggja milljarða
króna tapi og er því um mikinn við-
snúning að ræða. Rekstrartekjur á
fyrsta ársfjórðungi 2007 námu
4.670 mkr, samanborið við 3.675
mkr á sama tíma árið áður. Aukning
tekna réðist að hluta til af veikara
gengi krónunnar, en meðalgengis-
vísitala fyrsta ársfjórðtmgs hækkaði
HB GRANDI
á milli ára úr 110 í 122 eða um
11%. Þá jókst afli á loðnuvertíð
verulega á milli ára vegna meiri út-
hlutunar kvóta, auk þess sem verð-
mæti á veidd kíló voru hærri vegna
mikillar hrognaffamleiðslu. Hagn-
aður af sölu togarans Engeyjar var
662 milljónir króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftír
(EBITDA), án söluhagnaðar af
Engey, var 1.478 mkr eða 31,6% af
rekstrartekjum, en var 760 mkr eða
20,7% árið áður. Hærra EBITDA
hlutfall réðist m.a. af veikari krónu
og góðri loðnuvertíð. Við bættist
662 mkr hagnaður af sölu Engeyjar.
Rekstrarhagnaður af eigin starfsemi
var 1.838 mkr, en var 455 mkr á
sama tímabili árið áður.
kóp
Century Alnmimim sældr um
skráningu hjá KauphölÍinni
Century Aluminum Company,
móðurfélag Norðuráls hefur farið
þess á leit við Kauphöll Islands að
hlutir félagsins verði skráðir á First
North Iceland. Century Aluminum
er skráð á bandaríska Nasdaq mark-
aðinn og er fyrsta skráða fyrirtækið
í Bandaríkjunum, sem sækir um
skráningu á Islandi. Félagið verður
því bæði skráð í Bandaríkjunum og
á Islandi. I undirbúningi er að auka
hlutafé fyrirtækisins um fjórðung.
Söluandvirði hlutanna gæti numið
allt að 28 milljörðum króna miðað
við núverandi markaðsverð. Is-
lenskum stofhana- og fagfjárfestum
verður boðið að taka þátt í útboð-
inu, sem fram fer á sama tíma í
Bandaríkjunum og á Islandi.
Umsjón með útboðinu á Islandi
er í höndum Kaupþings banka og
Landsbanka Islands. Fyrir tveimur
árum önnuðust bankarnir 365
milljóna dala fjármögnun vegna
stækkunar og endurfjármögmmar
álvers Norðuráls á Grundartanga.
Aætlað er að nota meginhluta af
afrakstri útboðsins til að fjármagna
fyrirhugaða byggingu álvers í
Helguvík. Reiknað er með að fram-
kvæmdir getí hafist þar í byrjun
næsta árs. Aður en fyrirhugaðar
framkvæmdir hefjast í Helguvík
verður andvirðið notað í áhættulitl-
ar fjárfestingar og til að greiða nið-
ur skuldir.
Ragnar Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar og
fjármálasviðs Norðuráls segir að
skráning Century Aluminum á Is-
landi sé í samræmi við þá stefnu
fyrirtækisins að treysta böndin við
íslenskt samfélag. „Við höfum áður
leitað til íslenskra banka með verk-
efni og svo vel tókst til að eftír því
var tekið. Nú stefnum við að því að
auka enn samstarfið með því að
gera okkur sýnilegri á íslenska fjár-
málamarkaðinum.“
„I ljósi framvindu verkefnisins í
Helguvík, teljum við skynsamlegt
að stíga þetta mikilvæga skref til að
undirbúa fjármögnun á verkefninu"
segir Logan W. Kruger, forstjóri
Century. „Með þessu stefnum við
að því að styrkja enn frekar það far-
sæla samstarf sem við höfum átt við
fjölmarga aðila á Islandi á tmdan-
förnum árum.“
Utboðsferlið hefst formlega á
morgun miðvikudaginn 30. maí
með kynningum fyrir fagfjárfesta.
Það stendur út næstu viku. I fram-
haldi af því verður félagið skráð á
First North Iceland og gefst þá al-
menningi kostur á að eiga viðskipti
með hluti í fyrirtækinu. Umsjónar-
aðilar útboðsins á alþjóðavísu eru
Credit Suisse Securities (USA) og
Morgan Stanley & Co. Incor-
porated, en Kaupþing banki hf. og
Landsbanki Islands hf. sjá um fram-
kvæmdina hér á landi. Kaupþing
Securities Inc. í New York er með-
al söluaðila í Bandaríkjunum.
mm/ Ljósm. Mats.
Réttindalaus á
núrnerslausum M
AKRANES: Lögreglan á Akranesi
afgreiddi 151 mál í vikunni sem
leið og voru umferðarmálin fyrir-
ferðarmest. 67 ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akstur og
þeir sem hraðast óku voru á 131 og
133 km/klst hraða. Þeir munu fá
sína 30.000 kr sektir. 5 ökumenn
voru kærðir fýrir að nota ekld ör-
yggisbelti. Þá var tilkynnt um öku-
mann sem var á bifreið án skrán-
ingamúmera og þegar lögregla æd-
aði að hafa afskipti af honum hljóp
hann í burtu en náðist skömmu síð-
ar. Okumaðurinn var 16 ára gamall
og þar af leiðandi próflaus. -mm
Hannes í stjóm
LANDSBJÖRG: Á landsþingi
Slysavamafélagsins Landsbjargar
sem haldið var fyrir skömmu var
Hannes Frímann Sigurðsson fyrr-
verandi formaður Björgunarfélags
Akraness kosinn í stjóm. Á árum
áður starfaði hann einnig með
björgunarsveitinni Ok í Borgar-
firði. Hannes býr nú í Reykjavík
og starfar sem deOdarstjóri fast-
eigna Orkuveitu Reykjavíkur. Það
mun vafalast verða fengur fyrir
björgunarsveitir á Vesturlandi að
hafa öflugan liðsmann í stjóm
heildarsamtaka björgunar og
slysavama, sem Landsbjörg er.
-mm
Eignast tvinnM
HVALFJ.SVEIT: Á morgun
verður skipulags- og byggingar-
fulltrúa Hvalfjarðarsveitar afhent-
ur umhverfisvænn tvinnbfll frá
sveitarfélaginu. Athöfnin fer fram
við félagsheimilið Miðgarð, þar
sem sem skrifstofur Skúla Lýðs-
sonar, skipulags- og byggingar-
fulltrúa, em til húsa, og hefst
ldukkan 16. Formaður umhverfis-
og náttúruvemdarnefhdar, Am-
heiður Hjörleifsdóttir, afhendir
þá lyklana að nýrri Toyota Prius-
bifreið, en þetta er fýrsta bifreiðin
sem Hvalljarðarsveit festir kaup á
og er ætluð Skúla til afnota í starfi
sínu. Starfi skipulags- og bygging-
arfulltrúa fylgir mikOl akstur um
stórt og víðfeðmt sveitarfélagið og
því vora fest kaup á tvinnbfl, en
þeir eru bæði búnir rafmótor og
bensínhreyfli. -kóp
Nýr leigutaki
Langár
MÝRAR: Frá árinu 2009 verður
fýrirtækið Lax ehf með Langá á
Mýram til leigu. Veiðifélag
Langár samþykkti samhljóða á að-
alfundi fyrr í vor að taka tilboði
fýrirtækisins í leigu á ánni árin
2009-2011. Núverandi leigutaki,
Ingvi Hrafh Jónsson (Langárveið-
ar) smddi þetta tilboð enda hefur
hann þegar átt í samstarfi við nýj-
an leigutaka um árabfl. Viðsldpta-
vinir Langár til margra ára munu
njóta forgangs um sína veiðidaga
hjá söluaðOtun eins og frekast er
kostur og mun Ingvi Hrafh verða
Lax ehf til ráðgjafar, meðal annars
við lagfæringar á ánni og veiði-
staðagerð. I framhaldinu hefur
verið gerður samstarfssamningur
á mifli Stangveiðifélags Reykjavík-
ur, SVFR, og Lax ehf um sölu
veiðOeyfa í Langá. Áin mun því
standa félagsmönnum SVFR til
boða, jafnvel strax á næsta ári. Fyr-
ir era SVFR og Lax ehf með sam-
starf um sölu á fjölmörgum vatna-
svæðum og er Laxá í Kjós gott
dæmi um það. bgk