Skessuhorn - 30.05.2007, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007
gglSSUH©BRI
Impra útskrifar Brautargengiskonur
á Akranesi
Á miðvikudag í liðinni viku voru
útskrifaðar á Akranesi sjö konur af
Brautargengisnámskeiði sem Impra
nýsköpunarmiðstöð hefur haldið
tmdanfarin ár við vaxandi vinsældir.
Auk Impru stóðu að námskeiðinu á
Akranesi, Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi, SSV og Akraneskaup-
staður. Kristín Björg Árnadóttir
starfsmaður SSV var umsjónar-
maður verkefnisins sem staðið hef-
ur síðastliðnar 15 vikur og lauk
með útskrift, eins og áður segir.
Markmið námskeiðsins er að
kenna þátttakendum að vinna og
þróa hugmynd sem getur orðið að
nothæfri viðskiptahugmynd eða til
að komast að því að einhver hug-
mynd er alls ekki framkvæmanleg.
Impra hefur nú þegar útskrifað af
þessum námskeiðum nærri
sjöhundruð konur þar af um 165 af
landsbyggðinni. Kom frarn í máli
Kristínar að engin skýring væri á
því af hverju þessi mikli mtmur
stafaði en þarna væru sóknarfæri.
Konurnar sem sóttu námskeiðið
komu af Vesturlandi en það var
Þorbjörg Magnúsdóttir frá Akra-
nesi sem hlaut viðurkenningu íyrir
sína viðskiptaáætlun sem hún kall-
aði Þitt val og er um hreingerning-
arfyrirtæki að ræða.
Viðstödd útskriftina voru einnig
kennarar námskeiðsins auk Gísla S.
Einarssonar bæjarstjóra á Akranesi
og Hrefnu B. Jónsdóttur fram-
kvæmdastjóra SSV
bgk
Hópurinn sem útskrifaðist af Brautargengisnámskeiðinu á Akranesi síðasta fimmtudag.
N1 byggir í Ólafsvík
Unnið að framkvœmdum lóðarinnar við Ólafsbraut þar sem hin nýja N1 verslun mun
rísa.
Þessa daganna eru verktakar á
vegum Snæfellsbæjar að gera lóð
við Olafsbraut byggingarhæfa, en
þar mun N1 byggja nýja verslun
auk þess sem bensínsjálfsala verður
komið þar fyrir. Að sögn Guðjóns
Auðunssonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækjasviðs N1 verður nýja
verslunin líklega um 200-300 fm að
stærð en ekki er byrjað að teikna
húsið.
„Við erum með verslun núna í
Ólafsvík. Það húsnæði er orðið of
lítið og gamalt. En með þessari
verslun komum við til með að bæta
töluvert við vöruúrvalið hjá okkur.
Meiningin er að vera með úrval af
bílahlutum auk annarra vöruflokka
sem bætt verður við. Á þessu svæði
erum við með góðan hóp viðskipta-
vina og munum á þennan hátt geta
þjónustað þá aðila betur,“ sagði
Guðjón og bætti við að þeir hjá N1
munu vinna eins hratt og þeir gætu
við byggingu nýju verslunarinnar
og vonandi yrði hún kominn upp
fyir áramót.
af
Frá úrslitakvöldinu.
Vesdensku stúlkumar náðu
ekki á verðlaunapall
Fegurðardrottning íslands var
valin í beinni útsendingu á Skjáein-
um á Broadway sl. föstudag. Feg-
urðardrottning Islands 2007 var
kosin Jóhanna Vala Jónsdóttir, 20
ára úr Reykjavík en í öðru og þriðja
sæti urðu einnig Reykjavíkurstúlk-
ur, þær Katrín Dögg Sigurðardótt-
ir og Fanney Lára Guðmundsdótt-
ir.
Vestlensku stúlkurnar þrjár þóttu
standa sig með prýði. Þær Agla
Harðardóttir, Helena Rúnarsdóttir
og Fríða Ásgeirsdóttir komust þó
ekki á verðlaunapall, en Agla, Feg-
urðardrottning Vesturlands 2007,
var valin ljósmyndafyrirsæta
Canon.
mm
Glímt á vordögum
í Dölum
Vormót Glímufélags Dalamanna
fór fram fimmtudaginn 17. maí sl. í
Dalabúð. Alls kepptu 23 krakkar á
aldrinum 6-15 ára og fór mótið
mjög vel fram. Dómarar voru
Rögnvaldur Ólafsson og honum til
aðstoðar var Jóhann Pálmason.
Sólveig Jóhannsdóttir Islands-
meistari í opnum flokki kvenna var
glímustjóri, Helga Guðmundsdótt-
ir var tímavörður og Ásta Emils-
dóttir var ritari.
Sveitaglíma GLI fór fram 14.
apríl. Þar keppti sameiginleg sveit
GFD og KR á móti HSK og varð
HSK sveitaglímumeistari kvenna.
Um kvöldið var lokahóf GLÍ hald-
ið. Margir glímumenn og konur
lögðu leið sína á Sportcafé í Graf-
arholti og fögnuðu lokum tímabils-
Hópurinn sem tók þátt í varmótinu.
Ljóm. Helga Agústsdóttir
ins. Þar voru ýmis verðlaun veitt.
Meðal annars var Svana Hrönn Jó-
hannsdóttir kosin Glímukona
tímabilsins, en sú kosning fer ffam
á milli aðstandenda glímunnar.
Einnig voru henni veitt Fegurðar-
verðlaun fyrir Islandsglímuna.
Fyrir h 'ónd GFD,
Jóhann Pálmason
Kári við góða heilsu þó
kominn sé undir sextugt
Ljósmyndari.is á leið
umlandið
Ein affjölm 'órgum Ijósmyndum Pálma Guðmundssonar, Ijósmyndara sem nú œtlar að
uppfrœða landsmenn um hvemig nýta má stafrcenu Ijósmyndatœknina til að ná betri
Hann Kári er nokkuð kominn til
ára sinna, fæddur um 1949-50 í
Danmörku, en afskaplega vel em.
Saga Kára er athyglisverð, hann á
sér sögu þó dúkka sé. Þannig var að
eigandi hans, Erla Þórðardóttir var
mikið lasin þegar hún var bam og
dvaldi m.a. um fjögurra ára skeið á
Landakotsspítala, þegar hún var á
aldrinum 16 mánaða til 4-5 ára
gömul. Nunnurnar á Landakoti
vildu allt gera til að létta líf barns-
ins sem hjá þeim dvaldi og meðal
annars gáfu þær Erlu dúkkuna, sem
hún nefhdi strax Kára. Fyrst í stað
var Kári talsvert stærri en eigand-
inn en ffá fyrstu tíð gegndi hann
stóru hlutverki í lífi eigandans, m.a.
til að flýta bata. „Eg gerði allt fyrir
hann Kára minn sem ég gat og
snerist mikið í kringum hann og
þannig hélt hann mér á hreifingu,
ég hafði alltaf eitthvað að gera við
að stússast með hann. Hann var svo
mikið notaður blessaður að hún
móðir mín þurfti á tímapunkti að
sauma nýjan búk á hann, enda hinn
gamli orðinn gatslitinn," sagði Erla
í samtali við Skessuhorn.
Dúkkan Kári er enn í miklu upp-
áhaldi hjá eigandanum. Erla hélt
nýlega sýningu á gömlum hlutum
frá æsku hennar og var sýningin á
heimili hennar á Akranesi. Meðal
annars kom einn sjö ára bekkur
Grundaskóla í heimsókn og vakti
Kári strax mesta athygli gestanna,
enda stór, vel haldinn og ern þótt
kominn sé hátt á sextugsaldurinn.
mm
í júnímánuði mun Pálmi Guð-
mundsson námskeiðshaldari, sem
rekur vefinn ljosmyndari.is vera
með ljósmyndanámskeið á lands-
byggðinni. Pálmi hefur haldið fjöl-
mörg námskeið er tengjast ljós-
myndun og hefur leiðbeint mörg-
um áhugaljósmyndaranum að ná
betri myndum. Ljósmyndanám-
skeið þessi eru fyrir þá fjölmörgu
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
ljósmynduninni og einnig þá sem
vilja öðlast meiri þekkingu. Á þess-
um 8 klst. námskeiðum er farið í
helstu stillingaratriðin á staffænni
myndavél svo sem: ljósop, hraða,
ISO, White Balance, flass, pixla
jpg/raw ofl.
Almenn myndataka er útskýrð og
gefin ýmis góð ráð til að ná betri
myndum, m.a. af fólki, landslagi,
nærmyndum, norðurljósum ofl.
Auk þess er farið í myndbyggingu.
Mismunandi linsur eru kynntar og
notkun á filterum. Tölvumálin eru
tekin fyrir og m.a. sýnt hvernig
hægt er að koma skipulagi á
myndasafnið á einfaldan hátt,
geyma myndir með öruggum hætti
ofl. Ymis forrit verða kynnt sem
myndum.
koma að góðum notum. Hvert
námskeið tekur 2 daga, alls 8 klst.
Hér á Vesturlandi mun Pálmi
halda námskeiðin á eftirtöldum
stöðum:
BORGARNES 23.-24. júní 13 -
17 Safnaðarheimilið Borgarnes-
kirkju
STYKKISHÓLMUR 25. - 26.
júní 18-22 Giunnskólanum Stykk-
ishólmi. .
Skráning og nánari upplýsingar
er að finna á vefsíðunni
www.ljosmyndari.is
mm