Skessuhorn - 30.05.2007, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007
^svhuk.
Hlauparamir allir saman komnir við Klif í Ólafsvík en þaðan blapu þau síðustu metrana að íþróttavellinum.
Áheitahlaup ungmeima af
öllu Snæfellsnesi
íþróttafélög á Snæfellsnesi sem
standa að íþróttastarfi fyrir ung-
menni í 3. til 7. flokki stúlkna og
drengja í knattspyrnu fóru sl. föstu-
dag í áheitahlaup ífá knattspyrnu-
vellinum í Stykkishólmi til knatt-
spyrnuvallarins í Olafsvík. Tilefni
þessa hlaups var að safna áheitum
til að greiða niður mótagjöld og
ferðakostnað krakkanna í sumar
ásamt því að greiða annan kostnað
vegna samstarfs þessara félaga. Fé-
lögin sem um ræðir eru ffá öllum
þéttbýlisstöðunum á norðanverðu
Snæfellsnesi.
Krakkarnir hlupu alls 65 kíló-
metra. Hlaupið hófst í Stykkis-
hólmi klukkan 13 og því lauk í
Ólafsvík klukkan 19. Gríðarlega
góð stemning var á meðal
hlauparanna og skemmtu bömin
sér hið besta þótt veður væri ekki
hið ákjósanlegasta, eða norðan
strekkingur og ffemur kalt.
Frá grillveislunni.
I lok hlaupsins hlupu börnin öll
saman síðustu metrana að knatt-
spyrnuvellinum í Ólafsvík þar sem
boðið var upp á pylsur og ávaxta-
drykki sem foreldrar sáu um að
matreiða en hráefhi til veitinganna
var í boði Söluskála ÓK og Brauð-
gerðar Ólafsvíkur. Runnu pylsurnar
ljúflega niður, enda börnin þreytt
og svöng effir hlaupið. Góður dag-
ur var innsiglaður með því að
Knattspyrnudeild Víkings bauð
hlaupurunum á fyrsta heimaleik
liðsins á móti Njarðvík. Leikurinn
endaði með markalausu jafhtefli.
af
eMax sameinast Hive
í aprílmánuði urðu breytingar
hjá fjarskiptafyrirtækinu eMax sem
m.a. hefur boðið upp á þráðlaust
netsamband á nokkrum svæðum í
dreifbýli á Vesturlandi. Fyrirtækið
sameinaðist fyrirtækinu Hive ásamt
Atlassíma. „Þessi þrjú fyrirtæki
munu starfa undir vörumerki Hive
og er það markmið fyrirtækisins að
halda áffam að brjóta múra og efla
enn frekar þjónustuna við við-
skiptavini sína,“ segir í fféttatil-
kynningu ffá fyrirtækinu Hive.
Þá segir að unnið hafi verið að
ýmsum endurbótum á sendakerfi
eMax á Vesturlandi í vor. I Reyk-
holtsdal var sendir á Kópareykjum
endurbættur. Settur var upp ör-
bylgjulinkur ffá Skáneyjarbungu að
Kópareykjum og bætt var við sendi.
Með þessum breytingum eykst af-
kastageta sendisins á Kópareykjum.
Vegna vandræða með endurvarpa
á Ytri Tindstöðum var settur þar
upp nýr endurvarpi. Endurvarpinn
sinnir hluta af Hvalfirði.
Til að sinna viðskiptavinum í
Svínadal voru settir upp sendar á
Hóli og í Eyrarskógi. Þar með get-
ur Hive sinnt þeim bæjum í Svína-
dal sem ekki hafa átt kost á netsam-
bandi hingað tdl, ásamt því að þjóna
vaxandi sumarhúsabyggð á svæð-
inu.
mm
Laxveiðitímabilið hefst í næstu viku
í næstu viku, nánar tiltekið 5.
júní kl. 7 að morgni, hefst laxveiði-
tímabilið með opnun Norðurár í
Borgarfirði. Það er fimm dögum
síðar en vant er, en eins og margir
vita hefur Norðurá verið opnuð 1.
júní í mörg herrans ár. Það er
tveggja ára lax sem gengur fyrst í
árnar á vorin og vegna þess að þeir
laxar verða æ sjaldgjæfari með
hverju árinu eru fyrstu laxagöngur
á Vesturlandi síðar á ferðinni. Það
er meðal annars ástæðan fyrir
seinkun á opnun Norðurár. Þar
verður nú í fyrsta sinn skylduslepp-
ing á stórlaxi. Er veiðimönnum nú
ekki heimilt að drepa lax sem náð
hefúr 70 cm. að lengd og einmitt
vegna þess hefúr einnig alfarið ver-
ið tekið fyrir maðkveiði í ánni tdl
þess að stemma stigu við of miklu
veiðiálagi á þennan hluta laxa-
stofnsins.
Fjölmargar laxveiðiár eru á Vest-
urlandi sem opna hver á fætur
annarri. Næstu ár tdl að opna fyrir
veiði eru Langá, Grímsá-Tunguá
og Þverá-Kjarrá þann 15. júní. Hít-
ará opnar 18. júní, Andakílsá og
Gljúfurá opna 20. júní, Fáskrúð í
Dölum opnar 24. júní og Krossá í
Dölum opnar 1. júlí.
bgk
Fjölskyldudagur
á Bifröst
Skólafélag Háskólans á Bifröst
stóð fyrir fjölskyldudegi sl.
fimmtudag. Mikið var um dýrðir,
meðal annars hoppkastalar, deilda-
keppni í Galaxy, grill, töffamaður,
hestar, lömb, andlitsmálun og fleira
skemmtilegt. Leikkona kom og
stjórnaði leikjum með börnum og
fullorðnum. Um kvöldið kepptu
ræðulið lagadeildar og félagsvís-
indadeildar um Doddabikarinn í
ræðulist. Umræðuefnið snérist um
hvort Reykjavík þurfi á ofurmenni
að halda? Þá bauð Menningarfélag-
ið upp á sigurvegarana í
Söngvakeppni framhaldskólanna
sem spiluðu nokkur lög í hléinu á
ræðukeppninni og hélt síðan áfram
á kaffihúsinu eftir að úrslit lágu fyr-
ir. Loks þeytti Páll Óskar
Hjálmtýsson skífúm á Kaffi Bifröst
í boði útskriftarfélagsins.
Mm/ljósm. Eva Summ
Grænfáninn í
Brekkubæj arskóla
Ákveðið hefúr verið að Brekku-
bæjarskóli á Akranesi fái Grænfána
Landvemdar afhentan næsta haust.
Sú viðurkenning fæst endurnýjuð
ef skólinn heldur áfram góðu starfi
á sviði umhverfismála en fáninn er
umhverfismerki sem nýtur virðing-
ar víða í Evrópu sem tákn um ár-
angursríka fræðslu og umhverfis-
stefnu í skólum. Nokkrir skólar á
Vesturlandi em nú handhafar þess-
arar viðurkenningar og nokkrir
hafa fengið endurnýjað leyfi
nokkmm sinnum. Skrefin sjö sem
skólar þurfa að uppfylla em ákveð-
in verkefni sem eiga að efla vitund
nemenda, kennara og annarra
starfsmanna um umhverfismál.
Þann 10. maí sl. kom matsnefnd
Landverndar og gerði úttekt í
Brekkubæjarskóla, hitti nemendur
og starfsfólk og skoðaði hvemig
unnið hefði verið að umhverfismál-
um síðastliðin tvö ár. Skólinn upp-
fyllti öll sjö skilyrðin til þess að fá
leyfi til að flagga Grænfánanum
næstu tvö ár. I bréfi Landverndar
til skólans var sérstaklega minnst á
hversu mikilvæg þátttaka bekkjar-
fulltrúa var í þessu verkefni.
mm
m UMF M
VíKiNGUR
Styrktaraðilar samankomnir ásamtjónasi Gesti Jónassyni, formanni knattspymudeildar
Vikings. Við hlið styrktaraðilanna eru leikmenn Víkings í nýja búningnum.
Vfldngsmenn skrýðast
nýjum búningnm
Meistaraflokkur Víkings í Ólafs-
vík sem spilar í fyrstu deild tók fyr-
ir sinn fyrsta heimaleik í notkun
nýjan búning fyrir sumarið. Nýi
búningurinn var kynntur fyrir
styrktaraðilum í síðustu viku og við
það tilefni skrifúðu styrktaraðilar
imdir samnig við knattspymudeild-
ina.
af