Skessuhorn - 30.05.2007, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI2007
Afinælistónleikar Einars Skúla
Fyrir nokkru voru haldnir stórtónleikar í Bíóhöllinni á
Akranesi af æmu tilefni; fimmtugsafmæli Einars Skúlasonar,
æskulýðsfulltrúa. Til að gera sér glaðan dag hóaði hann í all-
ar þær hljómsveitdr sem hann hefur leikið með og fékk þær til
að stíga á svið, auk nokkurra leynigesta. Dagskráin hófst á því
að Hallbera Jóhannesdóttir las kvæði sem Ingi Steinar Gimn-
laugsson orti í tdlefni dagsins. Þá steig Herradeild P.O. á svið
og lék nokkur lög, en hún var stofnuð árið 2002. Nokkur stór-
tíðindi urðu við leik næsm sveitar, en þar var á ferð Vonin sem
stofnuð var í tólf ára bekk Barnaskóla Akraness árið 1969.
Þetta vora aðrir tónleikar sveitarinnar, en áður hafði hún leik-
ið í ellefu ára afmæli systur trommarans. Eftir þennan stórvið-
burð lék Orri Harðar tvö lög, en hann var eitt sinn í gítamámi
hjá Einari. Þá steig Melasveitin einnig á svið og lék nokkur
lög.
Ymsar óvæntar uppákomur urðu á tónleikunum og bar
flutning þeirra Andreu Gylfadóttur og Eðvarðs Lárussonar á
tveimur blúslögum hæst. Þá fluttu þær Lóa Laufey, Arna og
Hrefna Berg lag, en þær eru dætur systra Einars og allar í
námi hjá Ragnari bróður hans. Að lokum komu allir á svið og
fluttu Honky Tonk Woman.
Tónleikarnir tókust í alla staði stórkostlega og vill Einar
þakka öllum þeim sem að þeim komu og sérstaklega Isólfi
Haraldssyni í Bíóhöllinni og hans starfsfólki. Guðni Hannes-
son, í Myndsmiðjunni, tók myndirnar sem birtast hér á síð-
unni.
kóp