Skessuhorn - 30.05.2007, Blaðsíða 19
- ;:;;éöiií 4k É ' %‘
i - £*
i • > *-
I
Sumarið er komið og með því;
Ferðablaðið
Vesturland 2007
Þetta ómissandi upplýsingablað um
ferðaþjónustu á Vesturlandi er komið
út níunda árið í röð.
Ferðaþjónustuaðilar, upplýsingamiðstöðvar
og aðrir sem hafa áhuga á að hafa blaðið
liggjandi frammi til kynningar panti eintök
hjá Upplýsinga- og kynningarmiðstöð
Vesturlands (UKV) í síma 437-2214 eða sendi
tölvupóst á: tourinfo@vesturland.is
-n fréttaveita Vesturlands
Skessuhorn ehf.
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007
BORGARBYGGÐ
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:
Að Kleppjámsreykjum:
• Smíðakennsla
• Almenn bekkjarkennsla
Á Hvanneyri:
• Þroskaþjálfi eða kennari til að sinna fötluðum einstaklingum
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Óskarsson skólastjóri í síma 861-5971 eða á netfanginu
gudlaugur@gbf.is. Upplýsingar um skólann má finna á vefsíðu hans www.gbf.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• B.Ed. próf er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskiieg
• Kennslureynsla og reynsla af skólastjórnun
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Skipulagshæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Leitað er að kraftmiklum og drífandi stjórnanda sem er tilbúinn til að starfa að öflugri skólaþróun
íjákvæðu starfsumhverfi.
Húsnæði er í boði á staðnum.
Nánari upplýsingarveitirÁsthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri í síma 433-7100 eða á netfanginu
asthildur@borgarbyggd.is. Upplýsingar um skólann má finna á vefsíðu hans www.varmaland.is.
DEILDARSTJÓRI SKÓLASKJÓLS
Kennari, frístundakennari eða annar uppeldismenntaður starfsmaður óskast til starfa við
skólaskjól í Borgarnesi frá og með 1. ágúst. Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í ca 70%
starf við rekstur skólaskjóls fyrir 1.-4. bekk við Grunnskólann í Borgarnesi og 30% starf við
kennslu eða önnur störf.
Starf deildarstjóra skólaskjóls er nýtt starf hjá Borgarbyggð sem felur meðal annars í sér
stefnumótunarvinnu skóladagvistunar eða lengdrar viðveru í sveitarfélaginu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• B.Ed. próf eða önnur uppeldismenntun
• Hæfni og reynsla af stjórnun
• Færni (mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Skipulagshæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Leitað er að kraftmiklum og drífandi starfsmanni sem hefur sérstakan áhuga á starfi með
börnum.
Nánari upplýsingarveitirÁsthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri í síma 433-7100 eða á netfanginu
asthildur@borgarbyggd.is.
Umsóknarfrestur um störfin er til og
með 10. Júní2007.
Umsóknir skulu sendar til
fræðslustjóra, Ráðhúsi
Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,
Borgarnesi.
ÞROSKAÞJÁLFI - SMÍÐAKENNARI - ALMENN KENNSLA
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir þroskaþjálfa og grunnskólakennurum til starfa á Hvanneyri
og á Kleppjárnsreykjum frá og með 1. ágúst.
í skólanum eru um 160 nemendur. Um 120 nemendur eru á Kleppjárnsreykjum f 1.-10. bekk
og um 40 nemendur eru á Hvanneyri í 1.-5. bekk. Áhersla er lögð á íþróttir og hvers kyns
hreyfingu, heilbrigði og umhverfismennt. Grænfánanum erflaggað á Hvanneyri og útikennslu
byggðri á verkefninu "Lesið í skóginn - með skólum" ersinnt á báðum stöðum. Gott mötuneyti
er í skólanum.
Lausar stöður hjá Borgarbyggð
SKÓLASTJÓRI
Skólastjóri óskast til starfa við Varmalandsskóla frá og með 1. ágúst.
Varmalandsskóli er staðsettur í einstöku umhverfi um 90 km. frá Reykjavík, miðja vegu milli
Borgarness og Bifrastar. Starfsemi skólans einkennist af af kraftmiklu og framsæknu skólastarfi,
með einkunnarorð skólans; gleði, heilbrigði og árangur að leiðarljósi. Um 150 nemendur
stunda nám við skólann.
Á næsta skólaári verður lögð áhersla á byrjendalæsi í yngstu bekkjum skólans auk þess sem
skólinn tekur þátt í metnaðarfullu þróunarstarfi í samstarfi við aðra grunnskóla Borgarbyggðar
og Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem unnið verður að innleiðingu nýrrar aðalnámskrár,
breytingu á kennsluháttum og samfellu milli skólastiga.
BORGARBYGGÐ
Borgarbyggð er öflugt ogframsækið
sveitarféiag íjaðri
höfuðborgarsvæðisins. íbúarnir eru
tæplega 4.000 og dreifast nokkuð
jafnt i þéttbýli og dreifbýli. Mikil
áhersla er lögð á fræðslumál i
sveitarfélaginu. Þar eru þrír
grunnskólar, sex leikskólar,
tónlistarskóli, tveir háskólar (á Bifröst
og á Hvanneyri), auk þess sem
Menntaskóli Borgarfjarðar tekur til
starfa næsta haust. Góð
iþróttaaðstaða og öll helsta þjónusta
er til staðar.
Borgarbyggð leitar aðfólki á öllum
aldri, afbáðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu.
í samræmi við jafnréttisstefnu
Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem
konur hvött til að sækja um störfhjá
sveitarfélaginu.
Landsbyggðin lifi boðar til
Byggðaþings á Hvanneyri
í samvinnu við Landbúnaðarháskólann,
laugardaginn 9. júní, 2007, kl. 14-18
Ráðstefnustjóri: Magnús B. Jónsson, prófessor
5 stutt framsöguerindi:
1) Jafnrétti til náms um allt land: Ágúst Sigurðsson, rektor
Landbúnaðarháskóla íslands.
2) Nýting landsins: Jónatan Hermannsson, lektor við
Landbúnaðarháskóla íslands.
3) Nytjar sjávarfangs og vatna, fjölbreytileiki í ferðaþjónustu: Skúli
Skúlason, rektor Hólaskóla.
4) Mikilvægi háhraðanets og upplýsingatækni fyrir allar byggðir: Jón
Baldur Lórenz, forstöðumaður Tölvudeildar Bændasamtaka íslands.
5) Þjóðlendumálið, staða þess og framhald: Guðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri Grenivík.
Reynt verður að gera fundinn að góðum umræðuvettvangi og svara
spurningum um þessi mál og mörg önnur sem brenna á fólki í hinum
dreifðu byggðum landsins, svo sem:
Samgöngumál, hlutverk sparisjóða og ríkis í eflingu byggða, samstaða
milli þéttbýlis og dreifbýlis, hlutverk menningar og lista í eflingu byggðar,
ferðamennska, atvinnulist á landsbyggðinni, mikilvægi alhliða
grasrótarbaráttu og lifandi umræðu um byggðamálin
Rallborð verður f gangi mest allan þingtímann þar sem skiptast á
framsöguerindi og fyrirspurna- og umræðutímar. í pallborðinu munu
sitja framsögumenn ásamt fleirum með sérþekkingu og taka þátt í
lifandi og fræðandi umræðu með öðrum þátttakendum í byggðaþinginu.
I Hátíðarsamkoma að hætti heimamanna um kvöldið, veisla, gamanmál,
x dans og önnur skemmtiatriði.
1 Frekari upplýsingar á heimasíðu Landsbyggðin lifi: www.landlif.is
Sunnudaginn 10. júní, kl. 10-13 verður svo aðalfundur Landsbyggðin
lifi með venjulegum aðalfundarstörfum, stjórnarkosningu, starfsáætlun
og svo framvegis.
www.skessuhorn.is