Skessuhorn - 30.05.2007, Side 20
20
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI2007
Heiðar Bjömsson hefur víða komið við á sjónum
Eins og margir ungir menn sem
búa í nálægð við sjóinn reyna þeir
fyrir sér á báti. Sumir halda áfram
en sjómannslífið á hreint ekki við
alla. Heiðar Bjömsson frá Grundar-
firði er einn þeirra sem byrjaði á sjó
ungur að árum og er enn að. ,Já,
það er erfitt að slíta sig frá sjónum,"
segir Heiðar. „Maður kann ekkert
annað, mér líkar þetta vel og mér
finnst þetta ágætis vinna. Eg held
því að ég sé ekkert að fara að hætta
því í bráð.“
Reyndi fyrir sér í
eigin útgerð
Heiðar segist hafa byrjað á sjón-
um 14 ára gamall á netabátnum
Lunda SH ffá Grundarfirði. „Við
vorum á netum á sumrin. Svo réði
ég mig á Grandfirðing á net og
hörpudisk. Það var fínt á skelinni,
róið þetta fimm daga vikunnar og
tekjumar vora góðar. Þar á eftir fór
ég á togarann Rtrnólf og fleiri báta
eftir það. Eftir að ég hætti á stærri
bátum var mér boðið að taka við
trillu. Svala hét hún og var sjö tonna
opinn trébátur sem ég réri á færi og
línu um veturinn. Það gekk fínt með
þann bát, en svo var hann seldur
undan mér og því varð ég að leita að
vinnu aftur og fékk þá Lárbergið frá
Grundarfirði, þar sem við vorum á
netum og línu.
Það blundaði alltaf í mér að fá
mér eigin bát og lét ég verða af því
árið 1992 þegar ég keyptá mér lítdll
skelbát. Það gekk illa. Alltaf bilana-
vesen og seldi ég hann aftur. Eg átti
þá trillu í tvö ár. Þá réði ég mig á
Tjald SH ffá Rifi og fór á línu. Ég
var þar um borð í sex mánuði. Við
vorum á Grálúðu, en svo fékk ég
nóg af útilegunni. Það var samt gott
að vera á Tjaldinum, góð laun, en
kannski ekki mikil miðað við útileg-
una,“ segir Heiðar.
Grásleppuútgerðin fór
í rokinu
Hann leigði sér svo bát efdr ver-
una á Tjaldinum og var á línu í
dagakerfinu sem var á þeim tíma og
HeiSar ai landa afla á Litla Hamri SHfrá Rifi.
Bjössi SH sem Heiiar átti.
Stormsker, gáskabáturinn sem Heibar átti.
gekk það mjög vel. „En svo keypi ég
mér bát aftur og skírði ég harm
Bjössa, en hann var með fjórtán
tonna kvóta og var ýsan þá utan
kvóta. Eitt árið fékk ég 250 tonn á
Bjössa, þar af 50 tonn af þorski og
restin var steinbítur og ýsa. Síðan
var steinbíturinn og ýsan sett í kvóta
og þá varð reksturinn þyngri, vegna
hás leiguverðs. Ég fór síðan á grá-
sleppu á Bjössanum norður á
Strandir og gekk það alveg supervel.
Gott verð var þá á grásleppunni.
Arið eftir keypti ég mér Gáskabát
sem var mikið stærri og öflugri en
Bjössinn og fór ég þá á línu og skak.
Sumarið eftir að ég keypti bátinn
fjárfesti ég mér í grásleppubúnaði;
netum, baujum og fleiru sem til þarf
og fór ég svo norður að Ströndum
aftur, enda hafði mér gengið vel þar
sumarið áður. En dag einn gerði
norðan storm í níu daga og ekkert
var hægt að vitja um netin. Þegar ég
komst loks á sjóinn eftir veðrið var
allt ónýtt; netin gjörsamleg ónýt,
svo þetta var bara sjálfhætt og hætti
ég við þetta í eigin útgerð. I dag er
ég með hnubátinn Litla Hamar ffá
Rifi og er útgerðin sem á bátirm ffá-
bær. Mér líkar mjög vel þarna og
aflabrögðin í vetur hafa verið mjög
góð þegar gefið hefur en veðrið hef-
Dagsferðir ferðamanna með
strætó á Akranes
Feröamennimir hófu heimsókn stna á Safnasvœöinu á Göröum. Hér er veriö aö skoöa
Steinaríki Islands, eitt margra safna á svceöinu.
Síðastliðinn föstudag kom 40
manna hópur þýskra ferðamanna í
dagsferð með áætlunarbíl frá
Strætó á Akranes. Koma ferða-
manna er sem slík ekki fféttnæm
nema fyrir þær sakir að hópurinn
nýtir sér ódýra áætlunarferð í stað
þess að fara með rútu á vegum
ferðaskrifstofunnar eins og almennt
gerist. „Venjan er sú þegar um
ferðahópa er að ræða að þeir hafi
sína eigin rútu til afnota, en til þess
að undirstrika hagkvæmni þess að
nota almenningssamgöngurnar
koma þeir með Strætó. Reyndar
hafa Skagamenn líka vakið athygli á
því að dagsferð með Strætó ffá
Reykjavík sé afar hagkvæmur kost-
ur; sennilega ódýrasta dagsferðin
sem ferðamönnum stendur til boða
enda kostar slík ferð aðeins fáeinar
evrur,“ sagði Tómas Guðmunds-
son, markaðsfulltrúi Akraneskaup-
staðar í samtali við Skessuhorn.
Hópurinn sem kom á föstudag er
sá fyrsti af nokkrum í sumar sem
ferðaskrifstofan Katla DMI skipu-
leggur í samstarfi við þýsku ferða-
skrifstofuna RV Touristik í
Munchen. Hópurinn heimsótti
Safhasvæðið, skoðaði þar söfiiin og
fékk hádegisverð, hélt síðan á
Langasand og endaði heimsókn
sína í sundi á Jaðarsbökkum áður en
haldið er af stað með Strætó til
baka til Reykjavíkur.
mm
ur vissulega hamlað veiðum mikið.
Var beðinn um að
henda aflanum
Eins og fyrr segir hefur Heiðar
reynt fyrir sér í ýmsu, en alltaf þó
tengdu útgerð og sjómennsku.
„Eitt árið var ég beðinn um að taka
að mér skipstjóm á dragnótarbát
vestan af fjörðum. Tók ég bátinn
og sigldi honum vestur. Þá hafði
fiskverkandinn sem var ffá Hafnar-
firði og tók afla af bátnum samband
við mig og sagði mér að henda öll-
um þorski sem væri undir 70 cm
fyrir borð. Ég tók það ekki í mál og
sagðist ekki hafa áhuga á að henda
laununum mínum fyrir borð. Ég
sagði manninum að ég hefði engan
áhuga á að taka þátt í svona rugli og
hætti samstundis og fékk mér aðra
vinnu. Engan róður fór ég á bátn-
um þeim.“
Engin nýliðun
Um kvóta kerfið segir Heiðar að
það sé orðið vonlaust að komast
inn í það aftur og óttast hann að
það verði engin nýhðun í sjávarút-
veginum. „Verðið er komið í tómt
rugl á aflaheimildum og leiguverð
er alveg fáránlegt. Svo eru þing-
menn að öskra á að það þurfi að
laga kerfið, en ekkert gerist. Það er
orðið of seint að breyta kerfinu
núna. Hvað eiga þeir að gera sem
eru búnir að kaupa allan kvótann
sem þeir eiga? Hvernig er hægt að
láta þá sitja í súpunni,“ spyr Heiðar
að lokum.
af
Hópurinn á myndinni ásamt kennurum sínum þeim Guörúnu Völu og Ingibjörgu Elínu.
S
Utskrift úr Landnema-
skólanum í Borgamesi
Fjórtán nemendur ffá sex þjóð-
löndum útskrifuðust úr Landnema-
skólanum í Borgarnesi þann 22.
maí sl. Landnemaskólinn er 120
kennslustunda nám ætlað útlend-
ingum sem sest hafa að á Islandi og
tala svohtla íslensku. Námsgrein-
arnar eru íslenska, samfélags-
ffæðsla, sjálfsstyrking, tölvufufærni
og færnimöppugerð og er mark-
miðið með þessu námi að nemend-
ur læri á íslenskt' samfélag og at-
vinnulíf auk þess sem íslenska
tungumálið er veigamikill þáttur.
Kennt var tvisvar í viku ffá ára-
mótum og voru kennarar þær Ingi-
björg Elín Jónasdóttir og Guðrún
Vala Elísdóttir sem jafhffamt stýrði
verkefninu.
Landnemaskólinn er vottuð
námsleið með námskrá og styrkt af
Menntamálaráðuneytinu og meta
má námið til 10 eininga á ffam-
haldsskólastigi. Utskriftarathöfhin
var haldin í Alþýðuhúsinu í Borgar-
nesi og var ákaflega hátíðleg. Inga
Dóra Halldórsdóttir, ffamkvæmda-
stjóri Símenntunarmiðstöðvarinn-
ar á Vesturlandi ávarpaði hópinn og
fyrir hönd nemenda hélt Guðrún
Fjeldsted tölu. Sýndur var fil-
ippískur þjóðdans og veitingar voru
alþjóðlegar. Til stendur að halda
Landnemaskóla á Akranesi á haust-
dögum.
mm