Skessuhorn - 30.05.2007, Page 30
30
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007
^^Ssunu^
Menning framundan
Rekstur Reykholts á fyrri tíð
Þriðjudagskvöldið 5. júní
nk. klukkan 20:30 mun
Benedikt Eyþórsson, sagn-
fræðingur flytja fyrirlestur
í bókhlöðu Snorrastofu
sem ber titilinn Cuðsorð
og gegningar - Af búskap-
arháttum og annarri um-
sýslu staðarhaldara í Reykholti á fyrri
tíð. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestra-
röðinni Fyrirlestrar í héraði, sem
styrkt er af Menningarsjóði Borgar-
byggðar.
Benedikt lauk BA-prófi í sagnfræði
frá Háskóla fslands árið 2002 og MA-
námi í sömu grein við sama skóla í
febrúar 2007. Fyrirlestur
sinn mun Benedikt byggja á
rannsóknum sínum á staðn-
um Reykholti, enda fjölluðu
báðar lokaritgerðir hans um
Reykholt og sögu staðarins.
Þær voru hluti af hinu viða-
mikla Reykholtsverkefni og
unnar undir leiðsögn Helga Þorláks-
sonar, prófessors við Háskólann.
Fyrirlesturinn hefst sem fyrr segir
klukkan 20:30 þriðjudaginn 5. júní í
bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti.
Aðgangseyrir er 500 kr, en boðið
verður upp á kaffi í hléi.
(fréttatilkynning)
Byggðaþing
Samtökin Landsbyggðin lifir munu
standa fyrir byggðaþingi á Hvann-
eyri á laugardaginn kemur. Þingið er
haldið í samvinnu við Landbúnaðar-
háskóla íslands og stendur frá klukk-
an 14 til 18. Magnús B. Jónsson,
prófessor við Lbhí verður ráðstefnu-
stjóri. Haldin verða fimm stutt fram-
söguerindi; Ágúst Sigurðsson, rektor
Lbhí fjallar um jafnrétti til náms um
allt land, Jónatan Hermannsson,
lektor við Lbhí, fjallar um nýtingu
landsins, Skúli Skúlason rektor Hóla-
skóla fjallar um nytjar sjávarfangs og
vatna og fjölbreytileika í ferðaþjón-
ustu, Jón Baldur Lórenz, forstöðu-
maður tölvudeildar Bændasamtaka
íslands fjallar um mikilvægi háhraða-
nets og upplýsingatækni fyrir allar
byggðir og Cuðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri fjallar um þjóðlendumál-
ið, stöðu þess og framhald. Að auki
verður haldið pallborð með þátttöku
framsögumanna og fleiri.
Þetta er í þriðja sinn sem Lands-
byggðin lifir stendur fyrir byggða-
ráðstefnu af þessu tagi. Ragnar Stef-
ánsson, formaður samtakanna, sagði
í samtali við Skessuhorn að fram-
sögumálin væru allt mál sem mikil-
væg væru landsbyggðinni, en fleiri
mál yrðu rædd. „Það sem ekki er
tekið fyrir í framsögum verður rætt í
pallborðinu, s.s. samgöngumál, en
við ætlum að reyna að fá nýjan sam-
gönguráðherra til að taka þátt í því.
Þá munum við ræða atvinnulist á
á Hvanneyri
Ragnar Stefánsson formaður samtak-
anna Landsbyggðin lifir.
landsbyggðinni og væntum góðrar
þátttöku heimamanna í þeim um-
ræðum, sem og umræðum um skól-
ana á svæðinu."
Ragnar segir svona ráðstefnu skila
miklum fróðleik og fólk geri sér mun
betri grein fyrir stöðunni eftir um-
ræður. „Starf samtakanna fer fyrst
og fremst fram í ýmsum félögum og
samtökum víða um land, framfarafé-
lögum og fleiri félögum. Þess vegna
eru svona ráðstefnur svo mikilvægar
til þess að skiptast á skoðunum. Við
gefum út rit í tengslum við byggða-
þingin og nú er að koma út rit eftir
ráðstefnuna í fyrra sem haldin var á
Hallormsstað, „Lífið eftir virkjun."
Byggðaþing senda ekki frá sér álykt-
anir nema í undantekningartilfellum,
enda eru Landsbyggðin lifir þverpóli-
tísk samtök. Þetta eru upplýsinga-
og umræðuþing þar sem við mótum
skoðanir okkar á helstu málefnum
landsbyggðarinnar."
kóp
Afsakið seinkun
- leiksýning í Logalandi
í vetur hafa nemendur í 9. bekk
Grunnskóla Borgarfjarðar á Klepp-
járnsreykjum verið í leiklistartímum
hjá Arnoddi Magnúsi Danks. Ákveðið
var fljótlega að semja leikrit og æfa
til sýningar í vor. Nú er komið að því
að sýna afraksturinn sem er sýning
upp á rúman klukkutíma með
áhættuatriðum, söng og ýmsum
dramatískum uppákomum. Miða-
verð er kr. 1500 fyrir fullorðna og
1000 fyrir börn, innifalið er kaffi og
með því í hléi. Sýnt er í Logalandi
miðvikudaginn 30. maí og fimmtu-
daginn 31. maí, kl 20.00 Miðapant-
anir eru í símum 435-1530, 848-
8668 og 844-8134. Ágóði af sýning-
unum rennur í ferðasjóð bekkjarins.
(fréttatilkynning)
Reykholtskórinn á góðri stundu í Reykholtskirkju:
Ljósmynd: Ásdís H Bjarnadóttir.
Reykholtskórinn í Vinaminni
Reykholtskórinn heldur tónleika í
Vinaminni á Akranesi á sunnudaginn
klukkan 20:30. Kórinn mun flytja ís-
lensk Ijóð og lög, en tilefni tónleik-
anna er ferð til vesturstrandar Banda-
ríkjanna og Kanada 10. júní. Tónleik-
arnir eru liður í undirbúningi kórsins
fyrir ferðina, sem hefur verið skipu-
lögð í samvinnu við Þjóðræknisfélag
íslendinga. Fararstjóri verður Jónas
Þór sagnfræðingur. Heimsóttar verða
íslendingabyggðir í Seattle, Blaine,
Victoria og Vancouver. Á þessum
slóðum býr margt fólk af íslensku
bergi brotið og sumt hvert af borg-
firskum ættum. Stjórnandi kórsins er
Bjarni Guðráðsson og meðleikari Við-
ar Guðmundsson. Einsöng og fram-
sögn annast þau Dagný Sigurðar-
dóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir, Snorri
Hjálmarsson, Þorvaldur Jónsson og
Þórunn Reykdal. í kómum eru 42
syngjandi sálir en þátttakendur í
ferðinni eru alls um 70.
kóp
ÍA - N1 mótið í sundi
Um næstu helgi fer hið árlega ÍA
- N1 mót fram í Jaðarsbakkalaug
á Akranesi. Mótið, sem fram til
þessa hefur heitað ÍA-Essó mótið,
er nú haldið í 19. skipti. Að sögn
talsmanna Sundfélags Akraness,
sem ber hita og þunga af móts-
haldinu, er gert ráð fyrir að um
350 ungmenni taki þátt. Þannig
er mótið með þeim fjölmennari
sem haldin eru á landinu. Yngstu
keppendurnir verða um átta ára
gamlir og þeir elstu eitthvað á
þrítugsaldrinum. Mótið hefst á
föstudaginn klukkan 16 og lýkur
því á sunnudag. Af þessum sök-
um verður margt um manninn á
Akranesi enda fylgir slíkum fjölda
keppenda foreldrar, þjálfarar,
liðsstjórar og ýmsir fleiri.
mm
A myndinni eru hressir krakkar með
stjörnublik í augum.
Stóri-
Bjöm og
félagar
„Spennandi, gaman, frábært,
ringlað, váá...“ sögðu krakkar í
Grunnskóla Snæfellsbæjar þegar
reildstjörnur virtust koma á fljúg-
andi ferð, nálgast þau og gleypa.
Það var Snævarr Guðmundsson
sem ffæddi krakkana um undur al-
heimsins, stjörnur og sólkerfi í
stjörnuveri sínu í síðustu viku.
Fullorðnum var einnig boðið að
auka við þekJdnguna og fá innsýn í
óravíddir himinhvolfsins. Þjóð-
garðurinn Snæfellsjökull og
Grunnskólinn stóðu fyrir stjömu-
ffæðslunni og fengu til þess styrk
frá Menningarsjóði Sparisjóðs
Olafsvíkur.
af
Sveinn í Hvammi
biður Skessuhom
að birta eftirfar-
andi orðsendingu
til Samfylkingar:
Hér er þjóð á feigðarflani
flestu valdadrukknir jánka.
Leika sér á lágu plani
landeyður með spillta þanka.
Utlendfor er baðvatn búa
buslar þar í allur fjöldinn.
Enginn vill nú orðið trúa
Islandi með hreina skjóldinn.
Hollan bagga heimafenginn
hyggja margir lygi tóma.
Bráttfer svo að aktar enginn
íslenskt mál né landsins sóma.
Alþýðan með eigin rökum
öllum sínum kröftum beiti.
Ftjálshyggjunnar fantatökum
fólkið einum rómi neiti.
Borgfirðingahátíð eftir rúma viku
Borgfiröingahátíð hefst 8. júní næst-
komandi með upptakti þann sjö-
unda í Lyngbrekku þar sem Stebbi
og Eyfi halda tónleika í boði
Loftorku. Þetta er í áttunda sinn sem
hátíðin er haldin og er það Ung-
mennasamband Borgarfjarðar sem
sér um undirbúninginn en Borgar-
byggð og Skorradalshreppur standa
sameiginlega að hátíðinni.
Dagskrá hátíðarinnar, sem formlega
stendur 8. til 10. júní, er vegleg að
vanda og í þetta sinn verða tvær há-
tíðir haldnar á sama tíma og í sam-
vinnu, þ.e Borgfirðingahátíð og Is-
Nord hátíðin.
Á föstudagskvöldið 8. júní verður
meðal annars hið vinsæla Baðstofu-
kvöld á Indriðastöðum í Skorradal
þar sem flutt verða verk eftir Kjartan
Ragnarsson sem sjálfur verður bað-
stofustjóri. Laugardaginn 9. júní er
mikið um að vera. Þétt dagskrá verð-
ur á íþróttasvæðinu í Borgarnesi,
söngur í Borgarneskirkju, kvikmynda-
sýning í Óðali og útitónleikar í boði
Sparisjóðs Mýrasýslu. Síðasta dag-
inn, þ.e. 10. júní verður Sparisjóðs-
hlaupið, uppákomur á planinu hjá
Hvanneyrarkirkju, Útilegumenn í
Grábrók og margt fleira. Sjá nánar í
auglýsingu í Skessuhorni í dag.
bgk
Kvennakórinn Ymur og
Kvennakór Kópavogs
Framangreindir kvennakórar slá sam-
an og halda kaffihúsatónleika í sal
Tónlistarskóla Akraness að Þjóðbraut
13, fimmtudagskvöldið 31. maí
næstkomandi. Á efnisskránni verða
lög úr ýmsum áttum en áhersla
verður lögð á að tónleikagestir eigi
notalega kvöldstund. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20:30 og er að-
gangseyrir 1500 kr. Innifalið í að-
gangseyri er ilmandi kaffi og heima-
bakað bakkelsi.
(fréttatilkynning)
Vangaveltur um fjallskil
I horninu 2 3.
Sre’nt 11 1 þvl
A að ágreiningi
um fjallskila-
gjöld vegna
jarðarinnar Vilmundarstaða í Reyk-
holtsdal verði skotið til dómstóla.
Að hluta virðist málið snúast um
eðli fjallskilagjalda en eftir niður-
stöðu úr því álitamáli getur það
snúist um heimild til að leggja um-
rædd gjöld á landverð jarða.
Borgarbyggð er stórt sveitarfélag
og virðist skv. heimasíðu skiptast í
átta fjallskilaumdæmi. Ætla má af
mjög lauslegum lestri fundargerða
að ekki séu lögð fjallskil á landverð
jarða á eftirtöldum afféttarsvæðum:
Kolbeinsstaðahrepps, Álftanes-
hrepps, Hraunhrepps, Norðurár-
dals norðan Norðurár og líklega
upprekstrarsvæði Þverárréttar.
Lagt er 1,4% á fasteignamat jarða á
svæði Oddstaðaréttar og 3 % á
svæði Borgarhrepps. Oljóst um
álagningu á svæði Rauðsgilsréttar.
I frétt Skessuhornsins er vitnað í
álitsgerð Más Péturssonar og það
sögð lokaniðurstaða Más að ef upp-
rekstrarrréttur fylgi jörð, þá séu
fjallskil afleidd skylda þessarar rétt-
inda. I þessu felst að saman fari
réttindi og skyldur og þykir mér
það afar skynsamleg niðurstaða.
Þeirri spurningu er hins vegar
ósvarað hvort eigandi jarðar getur
einhliða afsalað sér upprekstrar-
réttindum og í eðlilegu firamhaldi af
því orðið undanþeginn fjallskila-
gjöldum. I ljósi gjörbreyttra jarða-
laga ffá 2004, og aukinnar áherslu á
stjórnarskrárbundið atvinnuffelsi,
verður að telja líklegt að þetta sé
hægt.
Löggjöf um fjallskil er að stofni
til ein elsta löggjöf sem byggt er á í
íslensku atvinnulífi. Það þarf því
engum að koma á óvart þótt gjör-
breyttar aðstæður veki spurningar
og kalli á breytingar. Það er líka
mjög eðlilegt að slíkt gerist hér í
Borgarbyggð þar sem mikil gerjtm
og gróska er í samfélaginu og notk-
un landsins er að breytast.
Það verður forvitnilegt að fylgj-
ast með ffamvindu þessa máls.
Þórólfur Sveinsson, Ferjubakka II