Skessuhorn - 30.05.2007, Blaðsíða 31
ssessiíssosíri
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI2007
31
Tvö 2-2 jafntefli og fyrstu stigin
IA og Fram skildu jöfn á Akra-
nesvelli á fimmtudaginn, 2-2 og
náði IA sér þar í sitt fyrsta stig í
deildinni. Arni Thor Guðmunds-
son kom IA yfir eftir hornspyrnu á
39. mínúm. Hornið kom eftir ffá-
bært skot Kára Steins Reynissonar
sem varið var út af. Andri Júlíusson
átti góða tilraun eftir gott samspil
við Ellert Jón Björnsson inni á teig
Fram um miðjan hálfleik, en skaut
yfir úr þröngu færi. Nokkru fyrr
hafði Helgi Pétur Magnússon, sem
ber fyrirliðabandið í dag, átt gott
skot af löngu færi en yfir. Staðan í
hálfleik var því 1-0 fyrir IA. Fram-
arar komu mun ákveðnari til leiks í
síðari hálfeik og pressuðu stíft, þó
IA ætti góða spretti. Fram jafhaði
eftir varnarmimstök á 63. mínúm
þegar engin hætta virtist vera á
ferðum. Á 76. mínútu kom Gísli
Freyr Brynjólfsson Skaganum aftur
yfir, en hann hafði ekki verið inn á í
mínútu. Tveimur mínúmm síðar
jafhaði Fram metin á ný eftir að
varnarmenn IA náðu ekki að
hreinsa almennilega frá. Það var
vandamál Skavarnarinnar og hvað
eftir annað spörkuðu þeir boltanum
á leikmenn Fram.
Sömu úrslit í Arbænum
Skagamenn voru með eitt stig á
botni deildarinnar ásamt KR þegar
þeir mætm í Árbæirm á mánudag-
inn. Þeir nældu sér þar í annað stig
með 2-2 jafntefli. Tveir nýir leik-
menn vora í hópi IA, þeir Dario
Cingel miðvörður og Vjekoslav
Svadumovic ffamherji. Fylkir átti
40 ára afmæli og blés til stórhátíðar
af því tilefhi. Það blés þó ekki byr-
lega fyrir liðinu ffaman af leiks og
það missti mann út af á 20. mínútu
leiksins. Jón Vilhelm Ákason kom
IA yfir með góðu skoti eftir glæsi-
legan samleik við Svadumovic. Átta
mínúmm síðar tókst Fylki að jafha
og stóðu leikar 1-1 í hálfleik.
Svadumovic kórónaði góðan leik
sinn með marki á 70. mínútu.
Bjarni Guðjónsson tók aukaspyrnu
og Svadumovic komst inn í send-
ingu og negldi boltanum í slána og
inn. Frábær byrjun hjá leikmannin-
um! Tíu mínúmm síðar jafnaði
Fylkir á ný og þeir vora nærri því
að skora þegar þeir fengu víta-
spyrnu rétt fyrir leikslok. Páll Gísli
varði hins vegar í markinu og bjarg-
aði stiginu fyrir Skagamenn.
-----------y----------------------------
Víkingur O. gerði jafntefli á heimavelli
Jón Steinar í dauðafæri en markvörður Njarðvíkur náði að verja.
Víkingur Ólafsvík lék fyrsta
heimaleik sinn á leiktíðinni á þessu
keppnistímabili á föstudagskvöld
og náði sér þar í sitt fyrsta stig í
deildinni.. Fjölmargir áhorfendur
mætm á völlinn þótt veður væri
með versta móti; austan strekking-
ur og kalt í veðri, en áhorfendur
lém það ekki á sig fá og hvötm sína
menn áfram. Andstæðingarnir vora
Njarðvík og niðurstaðan marka-
laust jafntefli. Völlurinn var í fi'nu
standi og aðstæður því ágætar til
knattspyrnuiðkunar í Ólafsvík.
Suad Begic var í leikbanni og mun-
ar um minna, en að öðra leyti gat
Víkingur teflt fram sínu sterkasta
liði. Vörnin stóð sína plikt þrátt
fyrir fjarvera Bega, en liðinu tókst
ekki að koma boltanum í net and-
stæðinganna. Víkingur hefur ekki
enn unnið leik í sumar, en liðið hef-
ur tapað tveimur og gert eitt jafti-
tefli og situr í þriðja neðsta sæti
deildarinnar.
Skallagrímur gerði 1-1 jafhtefli
við Hvöt á Blönduósi sama kvöld
og Kári tapaði 1-2 á Akranesvelli
fyrir Víði. Þá tapaði Snæfell 5-1
fyrir KV á KR-velli.
kóp/ Ijósm. af.
Kári tapaði naumt en Snæfell stórt
Kári tapaði fyrir GG á mánudag
í liðinni viku leik sem fram fór í
Grindavík. Lokatölur urðu 3-2 fyr-
ir GG. Heimamenn komust
snemma yfir en Þorsteinn Gíslason
jafnaði úr víti á 11. mínúm. I upp-
hafi síðari hálfleiks komst GG í 2-1
en Kári jafhaði metin á ný þegar
Hilmir Hjaltason skoraði. GG
skoraði síðan sigurmarkið skömmu
fyrir leikslok.
Sunnudaginn 20. maí tók Snæfell
á móti Víði í Stykkishólmi.
Skemmst er frá því að segja að
heimamenn steinlágu og lokatölur
urðu 0-9 fyrir Víði, en staðan í hálf-
leik var 0-4.
kóp
Meistaramót í skotfimi
Fyrsta meistaramót Akraness í
skotfimi með loftrifflum og loft-
skammbyssum fór fram í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi sl.
miðvikudag. Skotfélag Akraness
stóð fyrir mótinu sem var opið öll-
um og viðurkennt til meta og flokka
af Skotíþróttasambandinu. Skotfé-
lagsmenn lyftu grettistaki við undir-
búning mótsins en í lauslegri sam-
antekt kemur fram að um 80 vinnu-
stundir hafi farið í að setja upp völl
og ganga frá að móti loknu. Hér
sannaðist enn og aftur að margar
hendur vinna létt verk og var full-
búinn, löglegur völlur settur upp á
þriðjudagkvöldinu og tekinn niður
aftur þegar móti lauk á tíunda tím-
anum á miðvikudagskvöldið.
20 keppendur skráðu sig til
keppni og vora þar á ferðinni m.a.
allir landsliðsmenn í báðum grein-
um. Árangur keppenda á mótinu
var með besta mótd og setti Guð-
björg Perla Jónsdóttdr, Skotfélagi
Akraness, Islandsmet í loftskamm-
byssu stúlkna, 286 stig og bætti þar
með eigið met um 39 stdg. Ásgeir
Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykja-
víkur var aðeins einu stigi frá því að
jafna 14 ára gamalt Islandsmet
Ólafs Jakobssonar. Keppnin var tví-
þætt, þ.e. heildarmótið sem allir
tóku þátt í og svo börðust heima-
menn innbyrðis um titilinn Akra-
nesmeistari í loftskammbyssu.
mm
Efstu á mótinu urðu:
Loftskammbyssa karla:
1. sæti Ásgeir Sigurgeirsson SR
2. sætd Þorsteinn Guðjónsson IFL
3. sæti Hannes Tómasson SR
Loftskammbyssa
kvenna:
1. sætd Kristína Sigurðardóttir
ÍFL
2. sæti Jórann Harðardóttir SR
3. sæti Jóhanna Heiður Gestsdótt-
irSKA
Loftriffill:
1. sætd Guðmundur Helgi
Christensen SR
2. sæti Amfinnur Jónsson SK
3. sæti Hörður Lárusson SR
Akranesmeistarar:
Loftskammbyssa karla:
Jón S. Ólason
Loftskammbyssa kvenna:
Jóhanna Heiður Gestsdóttir
Loftskammbyssa drengja:
Pétur Ingi Jónsson
Loftskammbyssa stúlkna:
Guðbjörg Perla Jónsdóttir
Guómundur Guðjónsson í baráttu við Framara. Kári Steinn
ÍA spilaði vel
gegn Fylki og bjó
sér til fi'n færi. Lið-
inu tókst hins vegar
ekki að nýta sér
liðsmuninn og
missti leikinn því í
jafhtefli. Ljóst er að
nýju leikmennirnir
styrkja hópinn til
muna og gera hann
breiðari. Gaman
verður að sjá til W*™eð.
liðsins þegar Þórð-
ur Guðjónsson og Dean Martin
verða leikfærir á ný. Margt gott býr
í liðinu og nú er það verkefni
manna að ná því fram á vellinum.
Liðið nær að skora mörk og það
veit á gott. Það er þó ekki nóg á
meðan andstæðingurinn skorar
jafhmörg mörk eða fleiri.
kóp
Óskum eftir að ráða sjálfstæða og skipulagða
bílstjóra í sumarstörf. Umsækjendur þurfa að hafa
"trailer" réttindi. Nánari upplýsingar veitir Pétur G.
Jónsson í síma 444 3052.
Hægt er að sækja um á www.skeljungur.is
eða senda ferilskrá á starf@skeljungur.is.
í tilefni að 90 ára afmæli
Gróu Guðmundsdóttur,
Álftártungu verður haldið
samsæti henni til heiðurs,
mánudaginn 4.júní frá
kl.19.00 til 22.00 íLyng-
brekku.Eru allir velkomnir.
Benda skal á að allar gjafir
henni til handa eru af-
þakkaðar, en fólki bent á
hjólastólabílssjóð D.A.B.
Söfnunarbaukur á
staðnum.
Bílstjórar
Sjómenn
KIRKJUBRAUT4-6
' AKRANESI-SlMI 431 2244
Vantar föt fyrir
sjómannadaginn?
Þið fóið þau f Nfnu
Opið til kl. 16. laugardaga