Morgunblaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019
henni upphækkuð beð í garðinum og þau seg-
ist hún hafa notað mjög mikið síðan.
„Svo fylgdi lítið gróðurhús með húsinu okk-
ar en það var ein ástæðan fyrir að ég var alveg
æst í að kaupa það. Gróðurhúsið nota ég sem
millilendingarstað fyrir plönturnar þegar það
er byrjað að hlýna. Ræktunin hefst í glugga-
kistunum og svo þegar þetta fer í meiri mold
þá fer það út í gróðurhús. Að lokum endar allt í
matjurtagarðinum eða kerjum úti á palli.“
Andleg endurnæring að stússast í garðinum
Það er ekki bara notagildið við garðyrkjuna
sem gleður Sóleyju heldur segir hún þetta
einnig gefa sér mikla andlega næringu.
„Þegar maður er að stússast í garðinum þá
róast hugurinn og maður nær að vera í núinu
og njóta lífsins. Þetta er svo ótrúlega endur-
nærandi og slakandi. Svo er uppskeran auðvit-
að mjög góð því það jafnast ekkert á við að
skottast bara út í garð og sækja sér brakandi
ferskt salat sem maður hefur ræktað sjálfur.“
Spurð að því hvort henni hafi þótt erfitt að
koma grænmetisræktinni í gang og hvort sum-
ar tegundir séu erfiðari en aðrar í ræktun, seg-
ist hún hafa prófað ýmislegt og það fari mikið
eftir veðrinu og hitastiginu hvernig árangur-
inn verður.
„Síðasta sumar var, eins og allir muna, fer-
lega lélegt svo vinnan sem fór í garðinn var al-
veg rosaleg. Ég reyndi t.d. að koma upp blóm-
og spergilkáli en þetta endaði bara á stærð við
skopparabolta. Ég einbeitti mér því bara að
salati og kryddjurtum sem er mjög dýrt að
kaupa ferskt úti í búð og bragðast auðvitað
mun betur úr garðinum.“
Hænurnar eru öflugur liðsauki
Að koma upp góðri matjurtarækt og fal-
legum garði snýst ekki bara um að sá og vökva
af og til og það er ansi margt sem þarf að huga
að. Í garðinum til dæmis leynast ýmsir óvinir
sem geta verið erfiðir viðureignar og til að allt
spretti vel þarf að sjálfsögðu að nota góðan
áburð og fylgjast svo vel með sprettunni. Sóley
gerir moltu úr bæði matarafgöngum og garða-
úrgangi og notar eingöngu lífrænan áburð í
beðin sín. Að auki fær hún öflugan liðsauka frá
vinkonum sínum landnámshænunum sem hún
hefur haldið í nokkur ár.
„Hænurnar mínar eru svakalega duglegar
við að háma í sig snigla og alls konar pöddur
sem þær finna. Svo er úrgangurinn úr þeim al-
veg geggjaður áburður. Á sama tíma valda
þær líka smá vandræðum því þær elska mat-
jurtagarðinn og reyna að róta öllu upp sem ég
er búin að planta. Ég þarf því að girða fyrir
hann til að ná betri árangri og passa að þær
hámi ekki allt salatið mitt í sig. Sjálf hef ég
verið að berjast svolítið við skriðsóley en sú
barátta er auðveldari ef maður byrjar að rífa
þær upp með rótum snemma á vorin.“
Óskar þess að dæturnar væru meiri garðálfar
Í um fimmtíu ár eða svo hafa skólagarðar
verið reknir á vegum Kópavogsbæjar en garð-
arnir eru ætlaðir börnum á aldrinum sex til
þrettán ára. Þar fá þau kartöfluútsæði, plöntur
og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu
matjurta. Að lokum fá þau svo að eiga upp-
skeruna.
Sóley og fjölskylda búa reyndar ekki í Kópa-
vogi en spurð að því hvort dætur hennar séu
jafn miklir garðálfar og mamman, segist Sóley
óska þess að svo væri.
„Trampólínið hefur meira aðdráttarafl en
stelpurnar hafa nú samt tekið til hendinni með
mér og komið með plöntur heim úr skólanum
sem ég sé svo aðallega um að passa,“ segir hún
og hlær.
Kryddjurtir koma sterkar inn við kokteilagerð
Eins og segir í inngangi sinnir Sóley ýmsum
hlutverkum í lífinu en hennar aðalstarf sem
vörumerkjastýra hjá Ölgerðinni gengur út á
að markaðssetja ákveðnar tegundir af guða-
veigum. Meðal annars vodka og viskí sem hún
notar mikið við að útbúa allskonar ljúffenga
kokteila og þar koma kryddjurtirnar úr
gluggakistunni sterkar inn.
„Basil og myntu er geggjað að nota ilmandi
ferskt í kokteila. Til dæmis er basil algjört æði
í Tanqueray Gimlet og myntan er punkturinn
yfir og undir i-ið í Bulleit Mint Julep. Inter-
netið lumar svo á endalausum girnilegum upp-
skriftum sem hægt er að prófa,“ segir garð-
álfurinn Sóley og skýtur því inn að lokum að
algjör óþarfi sé að reyna að koma kryddjurtum
upp með fræjum því það geti verið bæði tíma-
frekt og erfitt verkefni.
„Það er ótrúlega einfalt að viðhalda ferskum
kryddjurtum en það gerir maður með því að
klippa bara afleggjara, eins og af öðrum
plöntum, setja í vatn og láta róta sig. Þegar
ræturnar eru sprottnar þá skellir maður plönt-
unni í pott og úr verður ný spretta af basil,
óreganó, myntu, fáfnisgrasi og mörgum fleiri
ljúffengum jurtum.“
Sópun og þvottur á gangstéttum, götum, bílastæðum og bílageymslum
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is
Pantaðu sópun og þvott á
igf.is eða í síma 577 5757
Er planið skítugt?
„Hænurnar mínar eru
svakalega duglegar við að
háma í sig snigla og all skon-
ar pöddur sem þær finna.
Svo er úrgangurinn úr þeim
alveg geggjaður áburður.“
Hænurnar lífga upp
á fjölskyldulífið.
Sóley ræktar grænmeti
í garðhúsinu sínu.