Morgunblaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2019
595 1000
Nýr borgaráfangastaður
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
s
Palma
a. st
án
deMallorca
Verð frá kr.
97.995
31. okt. í 4 nætur
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Brátt lýkur framkvæmdum í
Tryggvagötu og umhverfis Hafn-
artorg í Kvosinni í Reykjavík. Þegar
gamla steinbryggjan sem liggur
undir Pósthússtræti kom í ljós við
gatnaframkvæmdir í fyrrasumar
var ákveðið að breyta hönnun göt-
unnar og gera bryggjuna sýnilega.
Þessi breyting seinkaði framgangi
verksins er nú unnið að frágangi við
gömlu bryggjuna. Þessi endurnýjaði
kafli, milli Tryggvagötu og Geirs-
götu, var áður hluti Pósthússtrætis
en mun framvegis heita Stein-
bryggja.
Steinbryggjan var upphaflega
reist af bæjarsjóði Reykjavíkur árið
1884. Hún þótti á sínum tíma dýr en
mikil framför miðað við litlu tré-
bryggjurnar út af fjörukambinum
sem voru í einkaeigu kaupmanna.
Steinbryggjan var fyrsti viðkomu-
staður þeirra sem komu til landsins.
Bryggjan var vel sýnileg fram að
seinni heimsstyrjöld, en fór þá undir
uppfyllingu. Hún hefur í gegnum
tíðina skotið upp kollinum af og til
við gatnaframkvæmdir og lagna-
vinnu.
Við gömlu bryggjuna verður torg
með setbekkjum, hjólabogum, trjám
og sérhannaðri lýsingu, sem starfs-
menn Reykjavíkurborgar hafa
hannað. Gamla steinbryggjan verð-
ur sýnileg og hægt að ganga niður
tröppur að henni á tveimur stöðum.
Timburpallar verða við bryggjuna
fyrir þá sem vilja staldra við og setj-
ast niður. Næst Tollhúsinu kemur
veggmynd sem minnir á bátana sem
áður lögðust þarna að. Fram-
kvæmdum á svæðinu lýkur í sumar.
Gatan var áður hönnuð fyrir bíla-
umferð en það breyttist og þar
verður enginn gegnumakstur í
framtíðinni. Aðkoma í bílakjallarann
undir Hafnartorgi verður frá Geirs-
götu.
Í haust er reiknað með að halda
áfram endurgerð Tryggvagötu þeg-
ar götukaflinn framan við Tollhúsið
verður endurgerður.
Steinbryggja sýnileg í sumar
Timburpallar verða við bryggjuna fyrir þá sem vilja
staldra við og setjast niður Framkvæmdum lýkur í sumar
Steinbryggjan Svona mun svæðið
líta út þegar framkvæmdum lýkur.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Þrír létust á sunnudagskvöld í alvar-
legu flugslysi við flugvöllinn við
Múlakot í Fljótshlíð. Tveir voru
fluttir alvarlega slasaðir á Landspít-
alann, en hinir þrír létust á slysstað.
Allir þeir sem í slysinu lentu eru Ís-
lendingar. Fólkið var um borð í lítilli
tveggja hreyfla einkaflugvél af gerð-
inni PIPER PA-23 Apache, en hún
hrapaði til jarðar um kílómetra frá
flugbrautinni í Múlakoti. Var vélin á
erlendum skráningarnúmerum og
kom upp eldur í vinstri væng vélar-
innar við brotlendinguna. Skömmu
áður en slysið varð hafði flugmaður
flugvélarinnar æft snertilendingar á
vellinum. Eitt vitni varð að slysinu
sjálfu, en þar að auki voru nokkrir
aðrir á svæðinu og ræddi lögregla við
vitnin í gær.
Brunavörnum Rangárvallasýslu
barst tilkynning um slysið um klukk-
an hálfníu. Fjölmennt lið slökkviliðs,
lögreglu- og sjúkraflutningamanna
var sent á staðinn og um fimmtíu við-
bragðsaðilar voru á vettvangi þegar
mest var. Tvær þyrlur Landhelgis-
gæslunnar voru einnig kallaðar á
vettvang. Þá var viðbragðsteymi
Rauða kross Íslands sent á vettvang
til að veita vitnum að atvikinu sál-
rænan stuðning.
Vettvangsrannsókn til morguns
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
lauk vettvangsrannsókn vegna slyss-
ins í gærmorgun, en rannsóknin stóð
yfir alla aðfaranótt mánudags. Að
henni lokinni var flaki vélarinnar
komið fyrir á bíl og flutt í rannsókn-
arskýli til frekari rannsóknar. Tveir
starfsmenn nefndarinnar unnu að
rannsókninni auk fjögurra björgun-
arsveitarmanna. Þá naut nefndin að-
stoðar tæknideildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Þorkell Ágústsson, rannsóknar-
stjóri flugsviðs og rekstrarstjóri
rannsóknarnefndar flugslysa, segir
að nefndin gefi sér u.þ.b. eina til
þrjár vikur til frumrannsóknar á
flugslysinu. Á þessu stigi málsins
megi ekkert segja um efnishlið rann-
sóknarinnar. „Við höfum sett flakið
inn í skýli og munum í framhaldinu
rannsaka það og ræða við þau vitni
sem mögulegt er og skoða ýmsa
þætti sem tengjast þessu,“ segir
hann. Of snemmt sé að segja til um
það hvenær niðurstaða lokarann-
sóknar liggi fyrir um slysið.
Anton Kári Halldórsson, sveitar-
stjóri Rangárþings eystra, segir að
Anton Kári vill koma á framfæri
hrósi til allra þeirra sem komu að því
að bregðast við slysinu. „Það var
virkilega vel að verki staðið og þetta
var faglega gert,“ segir hann og bæt-
ir því við að á Suðurlandi sé til staðar
reynsla af stórslysum frá því undan-
farin ár. „Auðvitað vill maður aldrei
sjá þetta, en það er til staðar dýr-
keypt reynsla,“ segir hann.
Unnu sem einn maður
Leifur Bjarki Björnsson, slökkvi-
liðsstjóri Brunavarna Rangárvalla-
sýslu, segir aðgerðir hafa gengið vel
miðað við að slys sem þessi séu sjald-
gæfir atburðir. „Andrúmsloftið á
vettvangi var mjög yfirvegað og allir
unnu sem einn maður. Mín upplifun
af þessu sem stjórnandi á vettvangi
var sú að þetta hefði ekki getað
gengið betur,“ segir hann. „Við
þurftum að staldra svolítið við og
hugsa á meðan við vorum að vinna
eins hratt og við gátum,“ segir hann,
en aðgengi að fólkinu inni í flugvél-
inni var slæmt. „Við beittum bæði
klippum og sverðsög. Það er ekki
mjög þykkt í skrokkum á svona vél-
um og við söguðum okkur leið til þess
að bæta aðgengi þarna. Það er ósköp
lítið pláss sem þú hefur og engin
hurð í sjálfu sér, bara gluggar. Hurð-
arnar voru allar undir vélinni og ekki
hægt að koma neinum út þar,“ segir
Leifur Bjarki.
Strax eftir slysið héldu slökkviliðs-
mennirnir viðrunarfund þar sem
þeir ræddu slysið og aðgerðirnar.
„Svona vinnst samt ekki á einum
fundi. Þetta tekur á, mismikið; menn
eru með mismikla reynslu á bakinu.
Ég hugsa að við förum ekki of hratt í
þetta og leyfum mönnum að átta sig
á þessu. Það verður líklega tekinn
rýnifundur eftir viku,“ segir Leifur
Bjarki.
Sjö manns í Fljótshlíð nutu sál-
gæslu Rauða krossins. Fjóla Einars-
dóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins
á Suðurlandi, segir aðstæður hafa
verið erfiðar. „Öll svona alvarleg slys
eru mjög erfið. Það var ekkert öðru-
vísi í gær, mikill harmleikur,“ segir
Fjóla, en hópurinn er sérþjálfaður
fyrir verkefni sem þessi. Síðast var
hann kallaður út vegna rútuslyssins
er varð á Hofgarði. „Þessi þjónusta
er annars vegar fyrir vitni að atburð-
um sem þessum og aðstandendur
fólks sem lenda í svona slysum,“ seg-
ir hún. „Við erum harmi slegin yfir
þessu. Þetta er okkar svæði, Suður-
land, og þetta er erfitt fyrir alla, en
þessi hópur er fljótur til þegar á þarf
að halda,“ segir hún.
Harmleikur er þrír létust í flugslysi
Þrír létust í flugslysi við Múlakot í Fljótshlíð á sunnudag Fólk slegið í flugsamfélaginu í Fljótshlíð
Sjö einstaklingar á vettvangi nutu sálgæslu eftir slysið Flak vélarinnar rannsakað á næstu vikum
Múlakot í Fljótshlíð
Markarfl jót
Markarfl jótKo
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Slysið varð um kl. 20:30 á
sunnudagskvöld, um kílómetra
frá austurenda fl ugbrautarinnar,
skammt frá Fljótshlíðarvegi við
bæinn Eyvindarmúla
Flugbraut
Piper PA-23 Apache
Múlakot
x
Eyvindarmúli
Fimm sæta
Tveggja hreyfl a
Vænghaf: 11,28 m
Lengd: 8,26 m
Grasbraut
Lengd: 800 m
F L J Ó T S H L Í Ð
D
ím
on
ar
ve
gu
r
Fljótshlíðarvegur
Fljótshlíðarvegur
Múlakot
Flugslys Þrír létust í slysinu og tveir slösuðust alvarlega. Voru þeir fluttir á Landspítala og er líðan þeirra stöðug.
um flugvöllinn,“ segir hann, en þétt
samfélag er um flugvöllinn við Múla-
kot. „Það eru eflaust margir þarna
sem eiga um sárt að binda og hugur
okkar allra er hjá þeim sem þarna
létust og aðstandendum þeirra.“
sorglegt. Þetta gerðist utan við flug-
völlinn sjálfan, en hann er góður sem
slíkur. Það er margt fólk sem notar
hann þarna í kring. Margir flugmenn
eiga sumarbústað á þessu svæði og
það er félag utan um þetta. Þeir sjá
íbúa og aðstandendur séu slegnir
vegna slyssins. Hann er einnig
slökkviliðsmaður hjá brunavörnum
Rangárvallasýslu og var á vettvangi
slyssins á sunnudagskvöld. „Aðkom-
an var slæm og þetta er virkilega