Morgunblaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Útsalan heldur áfram
30 ára Marteinn er
fæddur og uppalinn í
Fossvoginum í Reykja-
vík. Hann er menntað-
ur sagnfræðingur með
kínversku sem auka-
grein frá HÍ. Hann er að
læra til meistaraprófs í
kennslufræðum. Marteinn stofnaði árið
2014 ferðaþjónustufyrirtækið City Walk
og hefur rekið það síðan. Hann er þá
með knattspyrnuþjálfarapróf og meira-
próf á rútu.
Maki: Edda Björg Bjarnadóttir, f. 1989 í
Fossvogi. Hún starfar sem flugfreyja.
Barn: Bjarni Valgarð Briem, f. 2017.
Foreldrar: Gunnlaugur Briem, f. 1960.
Hann er sjálfstætt starfandi viðskipta-
fræðingur. Hanna Björg Marteinsdóttir, f.
1962. Hún er sjúkraþjálfari. Þau eru bæði
úr Reykjavík og búa í Fossvogi.
Marteinn
Briem
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt aðrir kunni að hafa réttu
svörin er óvíst hvort þeir hafa rétta af-
stöðu til mála. Makinn reynist þér vel í
deilum innan fjölskyldunnar.
20. apríl - 20. maí
Naut Hafðu augun hjá þér ef þú skrifar
undir einhver skjöl. Forgangsraðaðu
hlutunum og taktu eitt verkefni fyrir í
einu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver sem vill þér allt hið
besta er að verða dálítið þreytandi.
Gæti verið að þú sért ábyrg/ur fyrir
nýjasta kærustuparinu í vinahópnum?
21. júní - 22. júlí
Krabbi Talaðu bæði hátt og skýrt svo
ekkert fari á milli mála hvað það er
sem þú vilt. Hafðu hugfast að ein lítil
mistök geta dregið dilk á eftir sér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hlustaðu ekki á kjaftasögur um
fólk sem þú þekkir engin deili á. Þú
velkist ekki í vafa um mannkosti maka
þíns.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nýtur þeirra augnablika sem
þú getur átt í einrúmi um þessar
mundir. Eitthvað á eftir að koma þér á
óvart en láttu það ekki trufla þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Notaðu tímann í skapandi og list-
ræn viðfangsefni. Ekki láta neinn beita
þig þrýstingi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er eitthvert agaleysi
að hrjá þig svo það er nauðsynlegt að
þú spýtir í lófana og takir þér tak.
Reyndu að ná samkomulagi við sam-
býlisfólk þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú sérð alltaf tækifæri til
að búa til peninga, þar sem aðrir sjá
ekkert. Bíddu og sjáðu hvort þú færð
ekki draumaeignina upp í hendurnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhleypir eiga það til að
leita ástarinnar á röngum stöðum. Ein-
hver gengur í gildruna sem þú bjóst til.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gríptu hvaða tækifæri sem
gefst til þess að auka við menntun
þína Mundu að hóf er best á hverjum
hlut.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki vera of upptekin af því sem
aðrir segja eða gera. Leitaðu og þú
munt finna svar við spurningum þínum.
ríkisskattstjóra og hélt svo utan til
náms við Københavns Universitet
1995-1996, þar sem hún lagði stund á
skattarétt. „Ég byrjaði í skattinum
og út frá því varð ég sýslumaður.
Það var fyrst og fremst stjórn-
sýslulegt en lögreglan var hluti af
því. Þá fannst mér lögreglan svo
hefur trú á,“ segir Sigríður, sem átti
þó síst von á því að starfa fyrir lög-
regluna lungann af sinni starfsævi.
Hún er lögfræðimenntuð frá Há-
skóla Íslands og fékk þaðan gráðu
1993 en varð stúdent í Mennta-
skólanum í Reykjavík fimm árum
áður. Eftir HÍ starfaði Sigríður hjá
S
igríður Björk Guðjóns-
dóttir, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, er
fimmtug í dag. „Þetta fer
fram í kyrrþey,“ segir
hún hýr í bragði við blaðamann. Hún
ætlar að flýja land með bónda sínum
og skreppa til Lundúna í Englandi í
nokkra daga. Hún tekur tímamót-
unum hvorki vel né illa en kveðst í
sannleika sagt vilja sem minnst af
þeim vita. „Ég er auðvitað þakklát
fyrir að fá að eldast en ég fagna ekki
áfanganum í sjálfu sér. Ég er í raun-
inni að reyna að fara undir radarinn
með hann, þó að sérstakt viðtal í
blaðinu sé kannski ekki beinlínis til
þess fallið,“ segir hún og hlær við.
„Það verða barnlausir og kannski
frekar barnabarnalausir nokkrir
dagar,“ segir Sigríður en þeir dagar
hafa kannski ekki verið sérlega
margir undanfarin ár og áratugi,
það eru 20 ár á milli yngsta og elsta
barns hjá þeim Skúla Sigurði Ólafs-
syni, sem er sóknarprestur í Nes-
kirkju og doktor í guðfræði. Afmæl-
isdeginum verja þau í rólegheitum í
Lundúnum í fríi. Restin af sumrinu
gera þau ráð fyrir að muni einkenn-
ast af áframhaldandi barna- og
barnabarnastússi og svo tekur
haustið við með sínum önnum.
Og annirnar eru eins og þær eru
þegar maður er lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu en Sigríður er
enginn nýgræðingur á þessu sviði;
hún hefur verið lögreglustjóri sam-
fleytt í sautján ár. Hún var skipuð
sýslumaður á Ísafirði árið 2002 og
var þar um fimm ára skeið og fól
embættið í sér löggæslu á svæðinu.
Sigríður hreifst af lögreglustarfinu
og var árið 2007 skipuð aðstoðarrík-
islögreglustjóri og gegndi því starfi í
tvö ár. Svo var hún skipuð lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum árið 2009 og
bjó þar í nokkur ár ásamt fjölskyldu
sinni, þar til árið 2014, þegar hún
hlaut skipun í það embætti sem hún
gegnir nú, lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þar unir Sigríður sér vel. „Þetta
er áhugaverð og skemmtileg vinna
og það eru raunverulega forréttindi
að fá að starfa við það sem maður
spennandi vettvangur. Ég hreifst af
hugmyndinni um löggæslu og hvern-
ig hún snertir líf hvers borgara,“
segir hún.
Sigríður hefur skýrar hugmyndir
um hvernig þessu mikilvæga og um-
deilda hlutverki löggæslu skuli sinnt
og hún er metnaðarfullur lögreglu-
stjóri. Verkefni hennar hafa hlotið
viðurkenningu á alþjóðlegum vett-
vangi og hún hefur flutt erindi víða
um þær aðgerðir sem embættið hef-
ur ráðist í í hennar embættistíð í
málefnum mansalsbrota og heimilis-
ofbeldis. „Þar höfum við til dæmis
reynt að gæta þess að mynstrið
haldi ekki áfram kynslóð eftir kyn-
slóð. Við reynum að fókusa meira á
þolandann, sem var ekki alltaf venj-
an hér áður. Það er hægt að nálgast
þessi mál frá víðara sjónarhorni og
lögreglan hefur að undanförnu náð
að grípa fyrr inn í, sem skiptir höf-
uðmáli. Það er vegna þess að lög-
reglan getur aðeins rannsakað svona
mál með góðu móti beint í kjölfar
þess að brotin eru framin. Annars
getur það verið of seint,“ segir Sig-
ríður og lýsir því hvernig breytt við-
horf til þessara mála sem og sam-
bærileg hugarfarsbreyting í
mörgum öðrum málaflokkum eru
liður í þeirri viðleitni lögreglunnar
að í augum borgaranna sé lögreglan
þjónustustofnun en ekki valdastofn-
un.
Til að efla sig og auka hæfni sína
til að sinna störfum sínum á vett-
vangi lögreglunnar hefur Sigríður
leitað fanga víða, hún hefur lokið við-
bótar-stjórnunarmenntun frá Lög-
regluskóla ríkisins, CEPOL, Há-
skóla Íslands og IESE Business
School. Hún hefur setið í fjölda
starfshópa og nefnda sem tengjast
löggæslu, svo sem í Frontex og í
stjórn Landamærastofnunar Evr-
ópu.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er sem segir
að framan Skúli Sigurður Ólafsson,
sem nú er sóknarprestur í Neskirkju
og varði árið 2014 doktorsritgerð í
guðfræði. Hann er fæddur 20. ágúst
1968, sonur þeirra Ólafs Skúlasonar,
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu – 50 ára
Fjölskyldan Sómahjónin Sigríður og Skúli ásamt börnum sínum þremur,
Gunnari maka Ebbu Margrétar og yngsta barnabarninu, sem fæddist í júní.
Lögreglan var spennandi
Fimm kynslóðir kvenna Sigríður ásamt dóttur sinni og dóttur hennar og
móður sinni og móður hennar. Amma Sigríðar lést í fyrra og var henni kær.
70 ára Guðmundur
fæddist í Samtúni 26 í
Reykjavík. Hann út-
skrifaðist kennari
1969 og kenndi ís-
lensku við gagnfræða-
skóla um árabil. Hann
hefur síðan kennt tón-
list og er gamall poppari: var í hljóm-
sveitum eins og Dúmbó, Roof Tops, Alfa
beta og Karma. Hann útskrifaðist leið-
sögumaður frá Endurmenntun HÍ 2011.
Maki: Jóhanna Benediktsdóttir, f. 1956 í
Keflavík. Hún og Guðmundur fagna 45
ára brúðkaupsafmæli 20. júlí.
Börn: Valdís, f. 1978, Hanna, f. 1982, og
Tryggvi, f. 1988.
Foreldrar: Jón Ingi Guðmundsson,
sundkennari í Reykjavík, f. 1909, d. 1989.
Svava Kristjánsdóttir, frá Stöðvarfirði, f.
1922, d. 2016. Þau bjuggu í Samtúni 26.
Guðmundur Haukur
Jónsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is