Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•68
TIL HAMINGJU – ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafi verður dreginn út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
»Kvartett Önnu Sóleyjar kom fram á tónleikum á Kex Hosteli fyrr í vik-
unni. Á efnisskránni voru öll sungnu lögin á plötunni Save Your Love
For Me í bland við aðra djassstandarda í sálrænum búningi.
Kvartett Önnu Sóleyjar hélt tónleika á Kex Hosteli
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kvartett Anna Sóley söngkona, Snorri Skúlason á kontrabassa, Mikael Máni Ásmundsson á gítar, og í hvarfi er
Magnús Trygvason Eliassen á trommur, fluttu hugljúf djasslög á Kex Hosteli við Skúlagötu fyrr í vikunni.
Íbygginn Tónleikagestir hlustuðu einbeittir á tónlistina.
Íhugular Gestir á öllum aldri nutu hugljúfrar tónlistarinnar.
Átta þekktustu byggingar Franks
Lloyd Wright (1867-1959), eins
áhrifamesta og virtasta arkitekts
Bandaríkjanna á 20. öld, voru á dög-
unum valdar inn á heimsminjaskrá
Sameinuðu þjóðanna. Fyrir voru á
listanum nokkrar aðrar einkennis-
byggingar módernísks arkitektúrs,
eftir Le Corbusier og helstu hönnuði
Bauhaus-skólans þýska.
Frank Lloyd Wright hannaði nær
fjögur hundruð byggingar á löngum
ferli en þær átta sem valdar voru á
skrána eru meðal hans allra þekkt-
ustu og áhrifamestu, í senn heimili
og opinberar byggingar. Þær eru
Solomon R. Guggenheim-safnið í
New York, Unity Temple í Oak Park
í Illinois, Fallingwater-húsið í Penn-
sylvaníu sem var teiknað sem orlofs-
hús fyrir þekktan verslunarjöfur,
Hollyhock-húsið í Los Angeles,
Robie-húsið í Chicago, Jacobs-húsið
í Wisconsin, Taliesin í Spring Green,
Wisconsin, og Taliesin West í
Arizona en Wright bjó á báðum stöð-
um og rak þar skóla.
Allar þessar byggingar voru frið-
aðar á einhvern hátt en heims-
minjaskráningin hnykkir á því.
AFP
Dæmigert Frederick Robie-húsið í Hyde Park-hverfinu við Chicago-háskóla þykir að mörgu
leyti dæmigert fyrir hönnun Wright og er ein bygginganna sem fóru á heimsminjaskrána.
Ljósmynd/The Frank Lloyd Wright
Dáð Fallingwater-húsið í Pennsylvaníu sem Wright teiknaði árið 1935 er að mati margra aðdá-
enda arkitektsins fulkomnasta bygging hans og er sótt heim af fjölda gesta ár hvert.
Hús á heims-
minjaskrána
Vernda hús Franks Lloyd Wright
AFP
Einkennisverk Solomon R. Guggenheim-safnið við Fimmta breiðstræti á Manhattan er sú bygging Wright sem
flestir þekkja og heimsækja. Og gestir koma ekki síður til að upplifa húsið sjálft en verkin sem sýnd eru í því.