Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
OPIÐ
ALLA H
ELGINA
Ljúffen
gur Em
messís
í
boði al
la helg
ina og
pylsuv
eisla í
dag
laugard
ag
Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Freysteinn Jóhannsson,
fyrrverandi fréttastjóri á
Morgunblaðinu, lést
hinn 24. júlí síðastliðinn á
Hrafnistu í Hafnarfirði,
73 ára að aldri, eftir erfið
veikindi hin síðari ár. Út-
för Freysteins var gerð
frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði í gær, í kyrrþey
að hans ósk.
Freysteinn var fædd-
ur í Siglufirði 25. júní
1946. Foreldrar hans
voru Friðþóra Stef-
ánsdóttir kennari og Jóhann Þor-
valdsson skólastjóri. Þau eru bæði
látin. Systkin hans eru Sigríður (lát-
in), Þorvaldur, Stefanía og Indriði.
Freysteinn lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Laugarvatni 1966
og prófi frá Norska blaðamannaskól-
anum í Ósló 1970. Freysteinn var
blaðamaður við Morgun-
blaðið 1967-1973 og 1977-
2009. Hann var ritstjóri
Alþýðublaðsins 1973-1975
og ritstjórnarfulltrúi Tím-
ans 1975-1977. Hann var
fréttastjóri á Morgun-
blaðinu 1981-2001.
Freysteinn var blaða-
fulltrúi heimsmeist-
araeinvígisins í skák 1972.
Þá var hann höfundur bók-
arinnar Fischer gegn
Spassky – saga heims-
meistaraeinvígisins 1972,
ásamt Friðriki Ólafssyni. Framan af
starfsævinni fékkst Freysteinn fyrst
og fremst við fréttaskrif og frétta-
stjórn. Seinni starfsárin sneri hann
sér í meira mæli að því að taka viðtöl
við fólk og er mörg eftirminnileg við-
töl Freysteins að finna á síðum Morg-
unblaðsins. „Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á fólki og sennilega er það ein
meginástæðan fyrir því að ég fór út í
blaðamennsku,“ sagði Freysteinn
m.a. í bókinni Í hörðum slag, íslenskir
blaðamenn II, sem út kom 2016.
Freysteinn var þríkvæntur. Fyrsta
kona hans var Viktoría Kolfinna Ket-
ilsdóttir, f. 1946. Þau skildu. Önnur
kona hans var Sigríður Sólborg Eyj-
ólfsdóttir, f. 1945, d. 1993. Sonur
þeirra er Elmar, f. 1975, og stjúpdótt-
ir Lára Jóhannsdóttir, f. 1964. Eftir-
lifandi eiginkona Freysteins er Jóna
Ágústa Ragnheiðardóttir hómópati, f.
1957. Börn hennar og stjúpbörn
Freysteins eru Sjöfn Elísa, f. 1974, og
Atli Þór, f. 1979, Albertsbörn.
Við leiðarlok þakkar Morgunblaðið
Freysteini heilladrjúgt og gjöfult
samstarf um áratuga skeið og sendir
fjölskyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur. Minningargreinar um Frey-
stein eru á bls. 34-35 í blaðinu í dag.
Andlát
Freysteinn Jóhannsson
Lengur í sóttkvínni en áætlað var
Mjaldrarnir hafa dvalið í sóttkví í Eyjum í 50 daga en áttu að vera í 45 daga Fara brátt í Klettsvík
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Mjaldrarnir Litla-Hvít og Litla-
Grá eru ekki enn fyllilega tilbúnir
að hefja nýtt líf í sjókvínni í Klett-
svík, en áfram búa þeir sig undir
dvölina þar. Þeir hafa nú dvalið í
umönnunarlauginni í Þekkingar-
setri Vestmannaeyja í 50 daga en
upphaflega var talið að þeir myndu
hljóta þar þjálfun fyrir sjókvína í
45 daga.
„Þegar umönnunarteymið telur
mjaldrana tilbúna fyrir dvölina
verður tilkynnt hvenær Litlu-Hvít
og Litlu-Grá verður sleppt í Kletts-
vík,“ sagði James Burleigh, mark-
aðsstjóri Sea Life Trust.
Umönnunarteymi mjaldranna
annast þá enn reglulega og það
heldur áfram að venja þá breyttum
aðstæðum. Burleigh sagði að
mjaldrarnir hafi komið sér vel fyrir
í lauginni og að velferð þeirra sé
enn í algjörum forgangi í ferlinu.
„Mjöldrunum hefur farið mikið
fram á hverjum degi. Við höfum
hjálpað þeim að styrkja sig og auka
þol sitt fyrir nýja heimilið. Í því
felst meðal annars að sjá hvernig
mjaldrarnir bregðast við framandi
fyrirbærum sem kunna að verða á
vegi þeirra í náttúrunni á nýja
heimilinu. Einnig skiptir máli að
þjálfa þá í að kafa og halda niðri í
sér andanum lengur til þess að
styrkja í þeim lungun, svo þeir geti
synt á meira dýpi,“ sagði hann.
Fagaðilar frá Sea Life Trust munu
gefa mjöldrunum fæðu þegar þeim
hefur verið sleppt í Klettsvík. „Sér-
fræðingar okkar hafa mikla reynslu
í að vinna með sjó- og dýravelferð í
gervöllum heiminum og munu
áfram hafa eftirlit með heilsu Litlu-
Gráar og Litlu-Hvítar þegar þeim
er sleppt í Klettsvík,“ sagði hann.
Ljósmynd/Sea Life Trust
Sæl Litla-Hvít stillir sér upp fyrir þjálfara í umönnunarlauginni. Hún kemst
vonandi til Klettsvíkur á næstunni ásamt vinkonu sinni, Litlu-Grá.
„Við vorum að
veiðum út af
Reyðarfjarð-
ardjúpi en þaðan
er um átta tíma
sigling til Vopna-
fjarðar. Það var
dálítið erfitt að
forðast síld sem
aukaafla en það
gerist á hverju
ári að síld kemur
með makrílnum. Þá færir maður sig
bara í von um að fá hreinan makríl,“
segir Albert Sveinsson, skipstjóri á
Víkingi AK. Skipið er nú á Vopna-
firði og kom þangað í gærkvöldi með
um 770 tonna afla að því er fram
kemur á vef HB Granda.
Að sögn Alberts hafa aflabrögð yf-
irleitt verið góð síðustu vikur en það
hefur valdið vissum erfiðleikum að á
sumum stöðum hefur síld blandast
makrílnum. Síldina vilja sjómenn
helst ekki veiða fyrr en eftir makríl-
vertíðina. Mikil ferð hefur verið á
makrílnum í norðausturátt.
„Það var mjög góð veiði um versl-
unarmannahelgina en þá var aðal-
veiðisvæðið í Litladjúpi og Hval-
bakshallinu. Núna er makríllinn
kominn mun norðar. Þetta er allt
rígvænn fiskur, 500 grömm og
þyngri, og enn sem komið er virðist
ekki vera neitt lát á göngum upp að
landinu,“ segir Albert.
Makríll á
hraðleið
norðaustur
Makríll Veiðar
ganga vel.
Aflabrögð verið
góð að undanförnu
Fjölmenni safnaðist saman við Reykjavíkurtjörn
í gærkvöldi á kertafleytingu Samtaka hernaðar-
andstæðinga þar sem þess var minnst að 74 ár
eru í vikunni liðin frá kjarnorkuárásum Banda-
ríkjahers á japönsku borgirnar Hiroshima og
Nagasaki. Um 100.000 manns létust í árásunum
tveimur og talið að álíka fjöldi hafi síðar látist
vegna geislunar. Séra Davíð Þór Jónsson ávarp-
aði samkomuna. Hann gerði að umtalsefni sínu
kröfu friðarsinna um að gereyðingarvopnum
yrði aldrei aftur beitt, en sagði þar ekki gengið
nógu langt. Berjast yrði gegn hvers kyns
ofbeldisverkum og hernaði, og mættu stjórnvöld
ekki líta á hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna
hér á landi sem viðskiptatækifæri.
Kertum fleytt á Reykjavíkurtjörn í þágu friðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon