Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 229.900 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Glæsileg og spennandi aðventuferð til Vínar í Austurríki
þar sem ljósadýrðin birtir upp skammdegið og ilmurinn
af jólaglöggi og ristuðum möndlum skapar einstaka
jólastemningu. Ferðinni lýkur í þýsku borginni München
þar sem allir ættu að komast í jólaskap á hinum töfrandi
jólamarkaði á Marienplatz torginu.
Aðventuveisla í Vínarborg
30. nóvember - 7. desember
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Allir landsmenn hljóta að fagna því
þegar eignir lífeyrissjóða fara vax-
andi, enda styrkir slíkt stöðu lífeyr-
issjóða til að standa undir greiðslu
lífeyris Íslendinga í framtíðinni,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, í samtali við Morgun-
blaðið.
Greint var frá því hér í blaðinu í
gær að eignir íslenskra lífeyrissjóða
hefðu aukist gríðarlega á fyrstu sex
mánuðum þessa árs. Þannig hafa
eignir sjóðanna það sem af er þessu
ári aukist um 570 milljarða króna.
Halldór Benja-
mín bendir aftur
á móti á að nauð-
synlegt sé að
skoða stöðuna yf-
ir lengra tímabil.
„Það er mikil-
vægt að fagna
ekki of snemma
og hafa um leið í
huga að ávöxtun
á markaði og
heildareignir eru býsna sveiflu-
kenndar. Það ber því að skoða þetta
yfir lengra tímabil,“ segir hann.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, segir ljóst að lífeyr-
issjóðakerfið sé í miklum vexti.
„Þetta er sparnaður þjóðarinnar og
kerfið er enn í uppbyggingu. Það er
því mikilvægt að farið sé vel með
þessa peninga og um leið að þeir
ávaxti sig,“ segir hún.
Neikvæð áhrif á fólk
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir lífeyrissjóðakerfið hugs-
anlega vera farið að hafa neikvæð
áhrif á lífskjör almennings frá degi
til dags. „Er þetta miðað við stærð
kerfisins innan íslenska hagkerfis-
ins og hversu há iðgjöldin eru inn í
kerfið,“ segir hann og bætir við að
færa megi rök fyrir því að lífeyris-
sjóðakerfið sé offjármagnað og hafi
neikvæð áhrif á lífskjör.
„Sem dæmi hækkaði Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna breytilega vexti
á verðtryggðum lánum og hafa þeir
orðið uppvísir að því að keyra upp
vaxtastig í umhverfi þar sem mark-
aðsvextir eru að lækka,“ segir
Ragnar Þór og bætir við að þörf sé
á því að fara í heildarendurskoðun á
kerfinu.
Mikill vöxtur sagður fagnaðarefni
Ávöxtun á markaði og heildareignir eru býsna sveiflukenndar, segir framkvæmdastjóri SA
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Ragnar Þór
Ingólfsson
Drífa
Snædal
Fiskidagurinn mikli á Dalvík er nú haldinn í 19.
sinn en súpukvöldið var fimmtán ára í gærkvöldi.
Hátíðin stendur yfir alla helgina. Húsráðendur á
Mímisvegi 11, Herborg Harðardóttir og Már Krist-
insson, hafa boðið gestum sínum súpu allan tímann.
Herborg er til hægri við súpupottinn og Eyrún Kr.
Júlíusdóttir t.v. sá um veitingaþjónustuna með
henni.
Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson
Fiskidagurinn mikli á Dalvík
Buðu upp á súpu við góðar undirtektir
Fáir virðast ætla
að nýta sér heim-
ild til lundaveiða í
Vestmannaeyjum
í ár en heimilt er
að veiða lunda frá
8. til 15. ágúst.
Þetta segir
Georg Eiður Arn-
arson, einn
reyndasti lunda-
veiðimaður Vestmannaeyja. Hann
segir að þó að ábúð lunda hafi verið
góð síðustu fjögur ár sjái hann hana
ekki skila sér í fugli. Hann hvetur
lundaveiðimenn til að sleppa því að
nýta heimildina en sjálfur fór hann
með nokkrum félagsmönnum á veið-
ar í Grímsey á Norðurlandi í ár.
Haraldur Geir Hlöðversson, einn
félagsmanna í Bjargveiðimanna-
félagi Vestmannaeyja, tekur undir
með Georg en hann segir þegjandi
samkomulag ríkja meðal félags-
manna um að nýta ekki heimildina.
Segir hann líklegt að einhverjir fari
með börn sín út í Eyjar til að halda í
hefðina en telur ólíklegt að þar verði
mikið veitt.
Sjálfur ætlar Haraldur ekki á
lundaveiðar í ár en hann segist hafa
veitt nóg af lunda yfir ævina. „Þó að
mér þyki lundi góður hef ég leyft
honum að njóta vafans hvað þetta
varðar,“ segir hann. rosa@mbl.is
Leyfa lundanum
að njóta vafans
Veiði Fáir ætla að
nýta heimildina.
„Skipulagsreglur kveða skýrt á um
það að berist skrifleg ósk um það frá
5.000 flokksmönnum beri miðstjórn
skylda til að láta kosningu fara fram
um málefnið meðal flokksmanna.“
Þetta segir Þórður Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, í svari við fyrirspurn frá
mbl.is vegna undirskriftasöfnunar
sem Jón Kári Jónsson, formaður Fé-
lags sjálfstæðismanna í Holta- og
Hlíðahverfi, ýtti úr vör í vikunni þar
sem ætlunin er að virkja áðurnefnt
ákvæði í skipulagsreglum flokksins
svo fram fari atkvæðagreiðsla á
meðal flokksmanna um þriðja orku-
pakka ESB. Þórður var spurður
með hvaða hætti mætti búast við að
brugðist yrði við því, tækist að safna
tilskildum fjölda undirskrifta og enn
fremur hvort rafræn undir-
skriftasöfnun flokkaðist undir skrif-
lega ósk að mati Sjálfstæðisflokks-
ins. Svaraði Þórður því til að ef slíkt
erindi bærist til miðstjórnar flokks-
ins tæki hún það til umfjöllunar.
Kosið ef
nægilegur
fjöldi vill
Þarf áskorun
5.000 flokksmanna
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Markaðsstofa Norðurlands stendur
nú í viðræðum við nokkra breska aðila
um að taka yfir farþega ferðaskrif-
stofunnar Super Break sem hætti
rekstri í byrjun mánaðarins. Hún hef-
ur boðið upp á beinar flugferðir milli
Bretlands og Akureyrar. Þetta stað-
festir Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðsstofunnar, í
samtali við Morgunblaðið. Málið var
tekið fyrir á fundi markaðsstofunnar
og þingmanna kjördæmisins um
stöðu flugmála á Akureyrarflugvelli
sl. fimmtudag.
„Við vitum að það er áhugi hjá ein-
um og eigum eftir að komast að því
hvort það er áhugi hjá fleirum. Við er-
um þó enn þá í þeirri stöðu að við vit-
um ekki hvort þeir fái leyfi til að taka
yfir þessa farþega. Hins vegar getur
verið að þeir þurfi að bjóða í farþeg-
ana og borga sérstaklega fyrir það og
þá er spurning hversu kostnaðarsamt
það verður að taka þá yfir. Þannig að
það er algjörlega óljóst hvort af þessu
verður,“ segir Arnheiður.
Hún segir að á fundinum hafi einn-
ig verið rætt um drög að flugstefnu
stjórnvalda í málefnum flugrekstrar
og flugtengdrar starfsemi á Íslandi
sem birt voru á samráðsgátt stjórn-
valda 27. júlí sl. en umsagnarferlinu
líkur 16. ágúst. Segir hún mikla
óánægju ríkja með drögin sem fjalli
um að byggja eingöngu upp milli-
landaflug um Keflavíkurflugvöll.
„Það er ekki hægt að lesa neitt ann-
að út úr þessum drögum en að menn
vilji ekki byggja upp millilandaflug á
Akureyrarflugvelli og við sættum
okkur auðvitað ekki við þá niður-
stöðu,“ segir Arnheiður og bætir við
að í drögin vanti algjörlega skoðun á
hagfræðilegum og efnahagslegum
áhrifum millilandaflugs um Akureyr-
arflugvöll.
„Þetta lítur hreinlega þannig út að
það eigi að lauma þessu í gegn vegna
þess að þetta er birt rétt fyrir stærstu
ferðahelgi sumarsins þegar allir eru í
fríi. Umsagnarferlinu lýkur líka á
meðan fólk er enn í fríi,“ segir Arn-
heiður og bætir við að stefnan sé unn-
in algjörlega án samráðs við lands-
hlutana. Segir hún að unnið sé nú að
umsögn um drögin.
Á fundinum var einnig rætt um
stöðu tengiflugs á Akureyri og lýsir
Arnheiður yfir vonbrigðum með að
tengiflugi milli Akureyrar og Kefla-
víkur hafi verið hætt. Segir um-
ræðuna á fundinum hafa snúist um
það hvernig styðja megi umhverfi
tengiflugsins til að auðvelda rekstur
þess.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstóri
á Akureyri, sat fundinn og segir að vel
hafi tekist að fara yfir stöðu flugsins
og flugmanna í bænum.
„Við munum halda áfram að sækja
fram á þessum markaði og finna aðila
til að koma inn í þetta flug og að sjálf-
sögðu berjast fyrir bættri aðstöðu á
flugvellinum,“ segir hún í samtali við
Morgunblaðið.
Ásthildur leggur áherslu á að
gjaldþrot móðurfélags Super Break
tengist ekki flugi til Akureyrar heldur
hafi það verið vegna utanaðkomandi
þátta. „Við stefnum ótrauð áfram.
Það eru engin glötuð tækifæri hér.
Þau eru bara áfram til staðar.“
Leita aðila til að taka við
farþegum Super Break
Einn aðili
þegar sýnt áhuga
Arnheiður
Jóhannsdóttir
Ásthildur
Sturludóttir