Morgunblaðið - 10.08.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
verslunin.companys
companyskringlan
Kringlan
Ný haustsending frá
Borgarfulltrúar meirihlutans íReykjavík svara ekki einum
rómi þegar þeir eru spurðir út í við-
brögð við því ástandi sem upp er
komið vegna íbúða í fjölbýlishúsum
í Árskógum sem byggð voru á veg-
um Félags eldri borgara.
Sigurborg Ósk Har-aldsdóttir, for-
maður skipulagsráðs
og pírati, segir málið
ekki hafa komið inn á
borð borgarinnar.
„Við skiptum okkur
ekki af því,“ segir
hún, og telur að ekki
sé ástæða til að borg-
in tryggi betur hvern-
ig að málum sé staðið
í ljósi þess að um und-
antekningartilvik sé
að ræða.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borg-arfulltrúi Samfylkingar, segir
á hinn bóginn að borgarstjórn muni
líklega taka málið fyrir þó að þetta
sé „ekki beint“ mál borgarinnar.
Hún segir kjörin á lóðinni hafa verið
góð þar sem það sé „ekki hagn-
aðardrifið félag sem stendur í fram-
kvæmdunum“.
Misræmið í svörum fulltrúameirihlutans undirstrikar
hvílíkt vandræðamál þetta er. En
þegar borgin velur sérstaklega til-
tekna aðila sem taldir eru „óhagn-
aðardrifnir“ og afhendir þeim lóðir
á sérkjörum, þá er eðlilegt að borg-
in geri kröfur um framkvæmdina.
En þetta mál setur líka spurn-ingu við þá áherslu borg-
arinnar að úthluta frekar til
„óhagnaðardrifinna“ félaga og láta
þau njóta sérkjara. Getur ekki verið
að einhver ætli þrátt fyrir allt að
hagnast á verkefninu? Og getur
ekki verið að þessi áhersla auki
hættuna á mistökum af ýmsum
toga?
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Óhagnaðardrifið?
STAKSTEINAR
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samtökin ’78 munu bregðast með
einhverjum hætti við því ef Mike
Pence, varaforseti Bandaríkjanna,
kemur til landsins og munu jafnvel
boða til mótmæla. Þetta segir Þor-
björg Þorvaldsdóttir, formaður sam-
takanna, í samtali við Morgunblaðið.
Greint var frá því í vikunni að
Mike Pence væri á leið til landsins á
næstu vikum til að funda með Guð-
laugi Þór Þórðarsyni utanríkisráð-
herra um viðskiptasamráð Íslands
og Bandaríkjanna. Pence er kunnur
fyrir íhaldssamar skoðanir og þá sér
í lagi varðandi réttindi hinsegin
fólks. Þá er hann andvígur fóstur-
eyðingum.
„Hann hefur mjög hættulegar
skoðanir og hefur stutt mjög hættu-
lega stefnu þannig að ég geri fylli-
lega ráð fyrir að við munum bregðast
við með einhverjum hætti. Hvernig
það verður er ekki ákveðið. Við erum
svolítið að bíða eftir því að vita hve-
nær hann muni koma,“ segir Þor-
björg.
Hún segir að þegar sé komin heit
umræða um komu Pence á Face-
book-hópi hinsegin fólks og segir að
þar sé fólk mjög óánægt með fregn-
irnar.
„Það vita allir hvaða skoðanir
þessi maður hefur. Hann hefur unnið
gegn réttindum hinsegin fólks allan
sinn stjórnmálaferil. Honum er boð-
ið hingað í nafni einhverra viðskipta-
hagsmuna og tengsla við Bandaríkin
en ég lít svo á að koma hans sé móðg-
un við hinsegin fólk á Íslandi. Við
munum mótmæla skoðunum hans og
stefnu harðlega.“ rosa@mbl.is
Mótmæla komu Pence til Íslands
Mike Pence
varaforseti
Þorbjörg
Þorvaldsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
,,Það er nú þannig sem betur fer að
alvarleg flugslys hafa verið fátíð upp
á síðkastið og síðustu ár hafa verið
einstaklega far-
sæl. Flug-
samfélagið er
verulega slegið
vegna slysanna
sem orðið hafa í
sumar. Samfélag
okkar er ekki
stórt, það þekkj-
ast allir innbyrðis
og taka fráfall fé-
laga sinna inn á
sig,“ segir Matt-
hías Sveinbjörnsson, forseti Flug-
málafélagsins.
Að hans sögn er Flugmálafélagið
regnhlífasamtök sem starfað hafa
frá 1936. Innan þess séu öll flug-
mannafélögin og félög áhugamanna
í flugi. Félagið fjalli um allt sem
tengist flugi á Íslandi, sinni hags-
munagæslu og sjái um að upplýsa
almenning og félagsmenn um stöðu
flugs á landinu. Flugmálafélagið hafi
það markmið að auka öryggi í flugi,
viðurkenna mistök og læra af þeim.
,,Við förum yfir öll mistök og
óhöpp sem verða í flugi, bæði at-
vinnu- og einkaflugi. Á fundum
standa flugmenn upp og segja
hreinskilnislega frá upplifunum af
mistökum og óhöppum. Þetta gerum
við í þeim tilgangi að gera það sem
við getum til þess að stuðla að bættu
flugöryggi,“ segir Matthías og bætir
við að það sé ómetanlegt að vera
kominn í gott samstarf við Sam-
göngustofu, rannsóknarnefnd flug-
slysa og Isavia.
Matthías segir að flugmenn séu
að reyna að átta sig á því hvort ein-
hverjar breytingar hafi átt sér stað í
umhverfinu eða starfsháttum en of
snemmt sé að segja til um orsök
flugslysanna í sumar. Ekkert sé fal-
ið þegar farið sé yfir slys og óhöpp
og minnstu atvik rannsökuð.
Matthías segir að enginn fái að
fljúga nýrri tegund af flugvél nema
fljúga með leiðsögn flugmanns með
reynslu af slíkri vél.
,,Flugöryggi er langflug og fáar
skyndilausnir eru til í þeim mála-
flokki,“ segir Matthías sem bætir
við að engan bilbug sé að finna á
flugmönnum sem haldi ótrauðir
áfram flugi á stórum sem litlum vél-
um.
Viðurkenna mistök
og læra af þeim
Flugmálafélagið, starfandi frá 1936
Matthías
Sveinbjörnsson