Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
GRÆNT ALLA LEIÐ
Bókaðu draumaferðina þína á VITA.is
Njóttu þess að hlakka til
Flogið með Icelandair
Fararstjórar verða
Kalli og Svana
með áratuga reynslu
í farteskinu.
Einstök veðursæld
árið um kring
Kanarí í vetur
með VITA
Las Camelias
– eitt vinsælasta
hótelið á Kanarí
í boði á ný
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný rannsókn Hagstofu Íslands á
vinnumarkaðnum bendir til að tölu-
vert fleiri störf hafi verið á vinnu-
markaði í júní síðastliðnum en í
sama mánuði í fyrrasumar.
Á það ber að líta að sveiflur geta
verið í niðurstöðum þessara kann-
ana. Samt veita þær vissa vísbend-
ingu um stöðu efnahagslífsins.
Katrín S. Óladóttir, framkvæmda-
stjóri Hagvangs, segir vísbendingar
um batamerki á vinnumarkaði.
„Sumarið hefur verið frekar ró-
legt. Þess vegna hafði maður
áhyggjur af því hvernig haustið
myndi verða og seinni hluti ársins.
Nú erum við hins vegar að upplifa
breytingu í ágúst. Það lítur út fyrir
að fyrirtækin séu að koma sterk inn
og að það sé talsverð eftirspurn eftir
fólki og verið að ráða í störf sem
hefur verið beðið með að ráða í yfir
sumartímann.
Samkvæmt gamalli reynslu vill
maður þó ekki taka of sterkt til orða.
Þetta er ef til vill uppsöfnuð þörf.
Maður veit ekki um eftirleikinn. Við
erum þó bjartsýn þótt gengið hafi á
ýmsu á fyrri hluta árs, s.s. í
tengslum við kjarasamningagerð og
samdrátt á ýmsum sviðum“.
Fjölbreytt störf í boði
– Hvernig störf eru þetta?
„Þetta eru fjölbreytt störf. Það er
ekki aðeins verið að leita að stjórn-
endum eða fólki í þjónustustörf. Það
eru bæði rótgróin fyrirtæki og ný að
leita að fólki. Að ógleymdu ríki og
sveitarfélögum þar sem fjölmörg
störf eru laus. Framboðið er því
töluvert. Þótt samdráttur hafi mælst
í ferðaþjónustunni þá eru ótal önnur
fyrirtæki, sérstaklega mörg sprota-
fyrirtæki sem eru að eflast og
styrkjast og bæta við sig fólki“.
– Er þetta mögulega vísbending
um að atvinnuleysi muni jafnvel
minnka?
„Miðað við hvernig staðan er núna
bindur maður vonir við að atvinnu-
lífið sé sterkara en á horfðist og því
vísbendingar um að það verði meiri
eftirspurn eftir fólki en ætla mátti.“
Útlitið betra en óttast var
Karl Sigurðsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, segir útlit
fyrir að atvinnuleysi í haust muni
aukast í takt við árstíðasveiflu. Hins
vegar séu ekki vísbendingar um að
það aukist mikið umfram það.
„Við erum þokkalega bjartsýn á
að það verði ekki jafn mikið atvinnu-
leysi í haust og óttast var. Nýjar
tölur úr vinnumarkaðskönnun Hag-
stofunnar, sem birtust á fimmtudag-
inn, benda í sömu átt. Niðurstöð-
urnar benda til að störfum sé að
fjölga þrátt fyrir fall WOW air og
samdrátt í ferðaþjónustu,“ segir
Karl um ganginn á vinnumarkaði.
Hann segir athugun Vinnumála-
stofnunar jafnframt benda til að at-
vinnuástandið fari aftur batnandi á
Suðurnesjum. Samkvæmt júní-
skýrslu stofnunarinnar var 6,3% at-
vinnuleysi á Suðurnesjum í júní. Til
samanburðar var atvinnuleysið 2,7%
í júní í fyrra. Heilt yfir telur Karl að-
spurður að vinnumarkaðurinn sé
sterkur. Horfur séu á 3,5% meðal-
atvinnuleysi í ár og um 4% meðal-
atvinnuleysi á næsta ári.
Hikuðu við að ráða fólk
Halldór Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri Capacent, eins helsta
ráðningarfyrirtækis landsins, segir
vísbendingar um viðspyrnu á ís-
lenskum vinnumarkaði.
„Við fundum það vissulega í upp-
hafi árs að tveir meginþættir höfðu
áhrif á ráðningar. Annars vegar fall
WOW air og hins vegar kjaravið-
ræðurnar. Kjarasamningslotan var
löng og óræð. Þetta hafði augljós-
lega áhrif. Við fundum að margir
umbjóðenda okkar héldu að sér
höndum. Svörin voru að erfitt væri
að taka ákvarðanir við þessar að-
stæður. Nú er að rofa til. Við erum
aftur að sjá kunnuglegt mynstur.
Haustið er sá tími þegar ráðningar
fara af stað. Við sjáum engin merki
um breytingu á því í haust. Tilfinn-
ing okkar er að óvissunni hafi mikið
til verið aflétt. Þeir sem við skiptum
mest við telja sig hafa þá vissu sem
þeir þurfa til að geta tekið ákvarð-
anir um ráðningar. Það er nú að ger-
ast,“ segir Halldór.
Árstíðarsveiflan hefur áhrif
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs SA, segir at-
vinnuleysistölur almennt lækka um
sumarmánuðina. Þróunin í júní sé
þó ánægjuefni.
„Ferðaþjónustan vegur þungt um
þessar mundir í atvinnuleysistölum.
Vissulega er jákvætt að sjá verulega
lækkun milli mánaða en mikilvægt
er að hafa í huga að árstíðarsveiflur
hafa einnig áhrif. Yfir sumarmánuði
koma fleiri ferðamenn til landsins og
umsvifin aukast í vissum greinum og
störfum fjölgar tímabundið. Það
breytir þó ekki því að það mælist
enn samdráttur milli ára í komum
ferðamanna til landsins. Ferðaþjón-
ustan hefur verið að upplifa miklar
breytingar á skömmum tíma og ljóst
er að áfram eru erfiðir mánuðir
fram undan þegar sumarið tekur
enda. Því má gera ráð fyrir að at-
vinnuleysi aukist á ný í haust og vet-
ur. Vonandi höfum við þó náð botn-
inum og að viðspyrna hagkerfisins
sé fram undan.
Það er margt jákvætt að eiga sér
stað á sama tíma, við erum að sjá að
ferðamenn dvelja hér lengur og
meðaleyðsla á hvern ferðamann hef-
ur aukist. Ólíkt öðrum samdráttar-
skeiðum er krónan frekar stöðug,
auk þess sem verðbólga og verð-
bólguvæntingar eru í kringum
markmið. Stýrivextir Seðlabankans
hafa lækkað og vonandi að þeir
lækki áfram á næstu vaxtaákvörð-
unarfundum. Yrðu slíkar vaxtalækk-
anir mikilvægar til að styðja við ís-
lensk heimili og fyrirtæki í breyttu
efnahagsumhverfi. Þótt hagkerfið sé
að sigla í gegnum lægð er ljóst að
það er engin stórkostlega krísa fram
undan, sem betur fer.“
Hrakspár ekki ræst
Ásdís segir því aðspurð ekki
horfur á jafn miklum samdrætti í
haust og óttast var í byrjun árs.
„Það var dregin upp mjög dökk
mynd á fyrstu mánuðum ársins
þegar fyrstu merki komu fram þess
efnis að uppsveiflunni væri lokið og
niðursveifla fram undan samfara
falli WOW air. Sú mynd virðist ekki
vera að raungerast. Ólíkt því sem
við erum að sjá í Evrópu, þar sem
stýrivextir eru neikvæðir og skuldir
hins opinbera hjá mörgum ríkjum
hærri í dag en fyrir síðustu efna-
hagskreppu 2008, þá hefur Seðla-
banki Íslands og íslensk stjórnvöld
talsvert svigrúm til að bregðast við
og styðja við hagkerfið þannig að
niðursveiflan verði mildari en ella.“
Vísbendingar eru um viðspyrnu á
vinnumarkaði eftir rólegt sumar
Ráðningarstofur finna aukinn áhuga á ráðningum Útlit fyrir minnkandi atvinnuleysi suður með sjó
Atvinnuþátttaka og atvinnuleysi
Frá ársbyrjun 2018 til júní 2019
210
200
190
180
170
160
6%
5%
4%
3%
2%
1%
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní
Heimild:
Hagstofa Íslands
2018 2019
193 192
199
193
198
203
206
202 200 199 199 199
202
195
203 204
198
209 Fjöldi starfandi launamanna, þúsundir
Atvinnuleysi, %
3,8%
3,2%3,1%
1,4%
6,1%
Morgunblaðið/Hari
Uppbygging Aukin umsvif í byggingariðnaði hafa skapað fjölda starfa.
Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri hjá Alfreð atvinnuleit, segir auglýsingum
um störf hafa fjölgað um rúmlega 7% frá sama tíma í fyrra. Þá hafi fyrir-
tækjum sem auglýsa störf fjölgað um 14%.
Helgi Pjetur segir aðspurður varhugavert að draga of miklar ályktanir
um vinnumarkaðinn í heild út frá þessum tölum.
„Alfreð er í miklum vexti. Þeim fjölgar stöðugt fyrirtækjunum sem
auglýsa hjá okkur. Þá eru rúmlega 25% fleiri notendur hjá okkur en í
fyrra. Jafnframt hefur umsóknum fjölgað um 102% en ástæðan er fyrst
og fremst að fleiri fyrirtæki eru farin að taka við umsóknum í gegnum Al-
freð ráðningarkerfið,“ segir Helgi Pjetur.
Fleiri störf í boði en 2018
VEFURINN ALFRED.IS