Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta miðanum. Þannig að þetta setur punktinn yfir i-ið,“ segir Heiður. Aðspurð segir hún að lítið hafi komið á óvart við opnun baðstað- arins vegna þess hve vel allt var undirbúið en hún hefur sjálf unnið að verkefninu í tvö og hálft ár. „Markmiðið hjá mér var alltaf að ná að skapa þannig upplifun hérna að fólk myndi upplifa það sem maður kallar „wow factor“. Þannig að það kemur mér ekki á óvart að við höfum náð því. Þessi endurgjöf, að fólk sé virkilega að njóta staðarins og sé svona ánægt eins og raun ber vitni, gleður mig hins vegar virki- lega mikið. Ég get ekki sagt að það komi mér á óvart en það er alltaf ánægjulegt þegar markmiði manns er náð,“ segir Heiður. Heiður Vigfúsdóttir Hreint Hugmyndin um Vök Baths tengist vökum sem mynduðust á Urriðavatni vegna jarðhitavatns sem er á botni þess. Heita vatnið er svo hreint að það hefur verið vottað drykkjarhæft en boðið er upp á te úr vatninu í laugunum. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Þetta hefur bara gengið ótrú-lega vel. Í raun bara lygi-lega vel,“ segir Heiður Vig-fúsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths, nátt- úrubaðstaðar við Urriðavatn nálægt Egilsstöðum sem opnaður var 27. júlí sl. Segir hún að fyrstu þrjá daga eftir opnun hafi um 1.300 manns sótt laug- arnar og að gestagangur hafi verið jafn og þéttur eftir opnun. „Við höfum fengið rosalega góð- ar viðtökur. Mjög margir eru búnir að fara hér í gegn og allir eru himin- lifandi með staðinn sem náttúrulega skiptir öllu máli,“ segir Heiður. Framkvæmdir munu brátt halda áfram á eimbaði og sérstökum úðagöngum þar sem gestir geta fengið á sig fíngerðan kaldan úða en Heiður vonast til að þjónustan verði tilbúin ekki seinna en mán- aðamótin sept- ember-október. Hún segir fólk vera gífurlega ánægt með Te- barinn svokallaða þar sem gestir geta blandað sér te úr ómeðhöndluðu 75 gráða heitu vatni beint úr borholunni á botni Urriðavatns og jurtum af svæðinu. „Fólki finnst þetta ótrúlega skemmtilegt og það kannski undir- strikar hvað „conceptið“ gengur út á: Þetta hreina, tæra, vottaða heita vatn til drykkjar sem er innifalið í Náttúrulaugar hafa gengið „lygilega vel“ Framkvæmdastjóri Vök Baths segir gesti himin- lifandi með fljótandi laugarnar við Urriða- vatn sem opnuðu 27. júlí en um 1.300 gestir sóttu laugarnar fyrstu þrjá dagana. Ljósmynd/Vök Baths Fljótandi laugar Vök Baths eru fyrstu og einu fljótandi laugarnar á Ís- landi. Margir hafa nýtt sér laugarnar frá opnun þeirra og unað sér vel. Heiður Vigfúsdóttir Nýstárlegar útgáfur á því hvernig vinna má klæði úr íslensku garni eru áberandi á handverkshátíðinni á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit sem er haldin nú um helgina. „Sýningin er mjög fjölbreytt að þessu sinni. Hér má sjá útskurð, leikfangasmíði, hnýttar veiðiflugur, skarpgripi, ker- amik, myndlist og prjónavörur,“ segir Heiðdís Halla Bjarnadóttir fram- kvæmdastjóri sýningarinnar sem nú er haldin í 27. sinn. Hún hófst á fimmtudag og stendur út morg- undaginn. Þátttakendur á sýningunni sem eru liðlega 100 talsins koma víða frá – og hver hefur sína sérstöðu í störf- um og áherslum. Það sem skapar Hrafnagilshátíðinni sérstöðu að öðru leyti er almenn og góð þátttaka fólks í Eyjafjarðarsveit í viðburðinum. Margir leggja þar sitt af mörkum, það er fólk úr ungmennafélagi, slysa- varnasveit, kvenfélögum, hesta- mannafélagi og svo mætti áfram telja. Heiðursgestur handverkshátíð- arinnar í ár er Hreinn Halldórsson al- þýðulistamaður á Akureyri, sem er þekktur fyrir tréskúlptúra sína og styttur. Stytturnar heita hver sínu nafni og sumar skírskota til íslenskra ævintýra. sbs@mbl.is Veiðiflugur og skartgripir Handverkshátíðin á Hrafnagili er um helgina Ljósm/Þorgeir Baldursson Spekúlerað Handverksmenning úti á landi stendur víða föstum fótum. Kynning Hulda Ólafsdóttir hjá Hjartalagi sýnir og segir frá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.