Morgunblaðið - 10.08.2019, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Þeir sem reka golfklúbba landsins
svífa margir hverjir um á bleiku skýi
þessa dagana. Sérstaklega þeir sem
reiða sig að stórum hluta til á vall-
argjaldatekjur til að halda rekstrin-
um í lagi. Sumarið hefur leikið við
kylfinga en Golfklúbbur Borgarness
slær líklega öll met. Tekjurnar hjá
klúbbnum í apríl í ár voru meiri en
fyrir allan maí í fyrra. Klúbburinn
var opnaður 24. apríl í ár, mánuði
fyrr en í fyrra. Tekjuaukning á milli
ára fyrir apríl og maí nemur um
2.600%, fyrir júní nemur aukningin á
milli ára 430% og júlí 96%. Það sem
af er sumri hafa 10.443 golfhringir
verið leiknir í Borgarnesi í ár, sem er
um 105% aukning miðað við árið í
fyrra þegar 5.095 hringir höfðu verið
spilaðir. Fjölgun klúbbfélaga er 20%
á milli ára.
Áhyggjulaus inn í veturinn
„Ég hef verið í þessu í 13 ár í
Borgarnesi og fer líklega í fyrsta
skipti áhyggjulaus inn í veturinn
vegna lausafjárstöðu,“ segir Jóhann-
es Ármannsson framkvæmdastjóri.
Auðvitað spilar veðrið stóran þátt en
klúbburinn er einnig í samstarfi við
Hótel Hamar sem er notað sem
klúbbhús. „Við sköffum hótelinu
mikið af viðskiptavinum á dauðum
tíma. Ferðamaðurinn er farinn
snemma á morgnana og kemur seint.
Það eru kokkar og þjónar hér í vinnu
og aðstaðan nýtist því yfir daginn
fyrir kylfinga,“ segir Jóhannes og
nefnir að um 7-8 herbergi á dag hafi
verið pöntuð fyrir íslenska kylfinga.
Á Akranesi nam fjöldi leikinna
hringja fram í júlí 13 þúsundum mið-
að við 7 þúsund á sama tíma í fyrra.
Tekjurnar hafa að sama skapi vaxið
um 70-80%. „Þetta er fyrst og fremst
veðrið. En svo tókum við í notkun
nýja frístundamiðstöð og hún hefur
verið mikil lyftistöng fyrir starf
klúbbsins. Þetta tvennt hefur gjör-
breytt öllu hjá okkur,“ segir Guð-
mundur Sigvaldason, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbsins Leynis. Í fyrra
skilaði klúbburinn 9 milljóna tapi en
útlit er fyrir hagnað í ár.
„Aldrei gerst áður“
Á Selfossi nemur aukningin í
leiknum hringjum 60%, félagar í
klúbbnum eru 520 og hafa aldrei ver-
ið fleiri, og aukning tekna á milli ára
nemur 40%. „Þetta hefur aldrei verið
svona áður. Það er búið að vera
brjálað að gera,“ segir Hlynur Geir
Hjartarson, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Selfoss.
Golfklúbbur Reykjavíkur býr við
nokkurra sérstöðu ásamt stærri
klúbbum á höfuðborgarsvæðinu þar
sem hann reiðir sig að afar litlum
hluta á vallargjöld að sögn Björns
Víglundssonar, formanns GR. Þar
eru leiknir hringir 35% upp miðað
við í fyrra en tekjurnar svipaðar.
Á Ísafirði var hægt að opna
Tungudalsvöll 27. apríl. „Slíkt hefur
aldrei gerst áður,“ segir Finnur
Magnússon, starfsmaður klúbbsins.
Yfirleitt hafa Vestfirðingar verið að
berjast við að opna um mánaðamótin
maí-júní. „Við verðum réttum megin
við núllið. Það er enginn vafi á því.“
Sumarblíðan litar bókhald
golfklúbba landsins grænt
Ljósmynd/GBgolf.is
Veðurblíða Það hefur verið nóg að gera á Hamarsvelli í Borgarnesi í sumar. 105% aukning er á spiluðum hringjum.
Golfklúbbar
» Veðrið leikur við kylfinga
» 430% aukning tekna í júní á
milli ára í Borgarnesi.
» 70-80% aukning tekna á
milli ára á Akranesi
» Aldrei opnað fyrr á Ísafirði
Mikill munur á rekstrarumhverfi milli ára Leiknum hringjum fjölgar gríðarlega
Bjórböðin á Árskógssandi, sem rekin
eru af Bruggsmiðjunni Kalda, skiluðu
1,2 milljóna króna hagnaði í fyrra
miðað við 4 milljóna króna tap árið
2017. Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í ársreikningi Bjórbaðanna
ehf. Rekstrartekjur félagsins námu
122,3 milljónum króna og ruku þær
upp um 120% á milli ára en þær námu
55,7 milljónum króna árið 2017. Eign-
ir félagsins námu í árslok 2018 183
milljónum króna. Skuldirnar námu
119 milljónum króna við árslok 2018.
Eigið fé nam um 64 milljónum króna
og eiginfjárhlutfall félagsins nam því
35%.
Stærstan hlut í félaginu á Brugg-
smiðjan Kaldi ehf. eða 21,5%. Birgir
Ingi Guðmundsson á 19,8% og Konný
ehf., í jafnri eigu Agnesar Önnu Sig-
urðardóttur og Ólafs Þ. Ólafssonar,
sem reka Bruggsmiðjuna og Bjórböð-
in, á 18,9%. Aðrir eigendur eru m.a.
Sir Drinkalot ehf. sem fer með 15%
hlut, Sigurður Bragi Ólafsson sem fer
með 12,6% hlut og AG17 ehf., félag í
eigu landsliðsfyrirliða Íslands í knatt-
spyrnu, Arons Einars Gunnarssonar,
sem á 8,5% hlut.
Morgunblaðið/Hari
Afþreying Bjórböðin á Árskógs-
sandi nutu aukinna vinsælda í fyrra.
120% tekju-
aukning
Bjórbaða
Hagnaðurinn 2
milljónir í fyrra
Í frétt á forsíðu Morgunblaðsins í
gær var rætt við dr. Gylfa Magn-
ússon. Þar var eftirfarandi setning
höfð eftir honum í tengslum við
lækkandi vexti á sjóðfélagalánum líf-
eyrissjóða: „Það er mjög jákvætt
fyrir lántakendur, en það eru
kannski ekki eins góð tíðindi fyrir þá
sem nú eru við það að hefja töku líf-
eyris.“
Setningin var misrituð og birtist hér
leiðrétt: „Það er mjög jákvætt fyrir
lántakendur nú, en getur auðvitað
komið niður á þeim síðar, þegar þeir
hefja töku lífeyris.“
Þá féll út orðið „raunávöxtun“ í um-
fjöllun um ávöxtun lífeyrissjóða af
skuldabréfum án áhættu en þess í
stað stóð orðið „ávöxtun“.
LEIÐRÉTTING
SjóðfélagalánNÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
10. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.23 122.81 122.52
Sterlingspund 148.69 149.41 149.05
Kanadadalur 91.87 92.41 92.14
Dönsk króna 18.345 18.453 18.399
Norsk króna 13.659 13.739 13.699
Sænsk króna 12.722 12.796 12.759
Svissn. franki 125.2 125.9 125.55
Japanskt jen 1.1514 1.1582 1.1548
SDR 168.22 169.22 168.72
Evra 136.92 137.68 137.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3988
Hrávöruverð
Gull 1497.4 ($/únsa)
Ál 1727.5 ($/tonn) LME
Hráolía 57.48 ($/fatið) Brent
STUTT