Morgunblaðið - 10.08.2019, Side 24

Morgunblaðið - 10.08.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ísland hefurfundið fyriráhrifunum af minna framboði flugferða til lands- ins, þó að áhrifin hafi sem betur fer ekki orðið eins og svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir og að sumu leyti virðist þróun já- kvæð. Það er til dæmis ástæða til að ætla að þeir ferðamenn sem hingað koma eyði að með- altali hærri fjárhæðum en áð- ur, sem er mjög eftirsókn- arvert. En það er ekki aðeins landið í heild sem fundið hefur fyrir áhrifum af fækkun flugferða. Akureyri, og þar með Norður- land, hefur fundið sérstaklega fyrir þessu, annars vegar þeg- ar breskt flugfélag hætti beinu flugi og hins vegar þegar Air Iceland Connect, sem lengi vel hét Flugfélag Íslands, hætti við flug frá Keflavík til Ak- ureyrar. Þegar fregnir bárust af breska flugfélaginu var rætt við bæjarstjóra Akureyrar, Ásthildi Sturludóttur, sem sagði málið alvarlegt fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu, ekki síst vetrarferðaþjón- ustuna. „Hins vegar þýðir auð- vitað ekkert annað en spýta í lófana,“ sagði hún, sem er vita- skuld rétta viðhorfið. Og hún bætti við: „Tækifærin hverfa ekki. Akureyri er auðvitað frá- bær staður til þess að heim- sækja sem ferða- maður og enn betri staður til þess að eiga heima á.“ Allt er þetta rétt og miklu skiptir að mótlæti sé mætt á svo jákvæðan máta. En það skiptir líka máli að hratt sé brugðist við. Í samtali við samgönguráðherra í gær lýsti hann áhyggjum af stöð- unni eftir ákvörðun íslenska flugfélagsins og sagði að inn- leiðing niðurgreiðslukerfis í innanlandsflugi að skoskri fyr- irmynd geti bætt stöðuna. Út- færsla þess verði þó ekki tilbú- in fyrr en einhvern tíma á næsta ári, en að unnið hefði verið að því „á undanförnum mánuðum og misserum“ að undirbúa breytingar. Íslendingar vilja hafa öfluga byggð víða um land og stór lið- ur í að tryggja það er að sam- göngur séu fullnægjandi. Ef talið er að lausnin á erf- iðleikum innanlandsflugs sé að fara þá leið sem samgöngu- ráðherra hefur í huga er ekki gagnlegt að taka mörg misseri í að undirbúa það og bíða svo þar til einhvern tíma á næsta ári með framkvæmdina. Óvíst er að fyrirtækin út um landið sem treysta á samgöngurnar standi þessa bið af sér. Nær er að gera eins og bæjarstjórinn sagði, að spýta í lófana og ráð- ast í aðgerðirnar á þeim hraða sem aðstæður krefjast. Bregðast þarf við áður en í óefni er komið, ekki eftir að skaðinn er skeður} Mánuðir og misseri Greint var fráþví í gær aðNicos Anas- tasiades, forseti Kýpur-Grikkja, og Mustafa Akinci, leiðtogi Kýpur-Tyrkja, hefðu ekkert þokast nær því að hefja á ný viðræður á vegum Samein- uðu þjóðanna um að sameina eyjuna á ný í eitt ríki. Viðræð- urnar sigldu í strand fyrir tveimur árum. Samþykktu þeir þó að funda aftur í næsta mán- uði með Antonio Guterres, framkvæmdastjóra SÞ, til að leggja línur um næstu skref. Tilkynningin kemur svo sem ekki á óvart, þar sem fátt hefur gerst á undanförnum tveimur árum sem fært hefur aðila nær því að ná saman. Raunar hefur þróunin frekar verið á hinn veginn, þar sem Kýpur-Grikkir og Tyrkir, sem halda vernd- arhendi yfir kýpverskum bræðrum sínum, hafa á und- anförnum misserum deilt hart um olíuleitarréttindi í efna- hagslögsögu eyjarinnar. Tyrkir telja að þær auðlindir sem fundist hafa tilheyri land- grunni sínum og hafa því stuggað við öðrum sem reynt hafa olíuleit við Kýpur. Það hef- ur aftur leitt af sér árekstur við Evrópusam- bandið, sem gríski hluti eyj- arinnar tilheyrir, og hefur sambandið sett viðskipta- þvinganir á Tyrki vegna máls- ins. Fyrir sitt leyti segja Kýpur- Tyrkir að þeir hafi áhyggjur af því að þær auðlindir sem þarna kunni að leynast verði ekki nýttar til hagsbóta fyrir alla Kýpverja ef til sameiningar kæmi, en ekkert var minnst á olíuleitarmálin í sameiginlegri tilkynningu leiðtoganna. Þess í stað sögðust þeir ætla að leita áfram leiða til að „bæta daglegt líf allra Kýpverja“ með stuðn- ingi Sameinuðu þjóðanna. Ljóst er að þarna er hnútur sem verður að leysa áður en hægt verður að þoka viðræðum um sameiningu eða nokkurs konar sambandsríki á Kýpur lengra. Fátt bendir þó til þess að það muni takast á næstunni. Deilur Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja halda áfram} Ekkert þokast í Kýpurdeilu Á undanförnum áratugum hafa ævi- líkur landsmanna aukist veru- lega og þjóðin verið að eldast. Hefur það í för með sér áskoranir vegna ýmissa lífsstílstengdra og langvinnra sjúkdóma með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfið. Til að bregðast við þeirri þróun er nauðsynlegt að leggja aukna áherslu á forvarnir og endurhæfingu fyrir alla aldurs- hópa svo draga megi úr tíðni og alvarleika lífs- stílssjúkdóma og bæta lífsgæði. Við eigum það öll sameiginlegt að góð heilsa er okkur dýr- mæt og er það sameiginlegt verkefni okkar allra og heilbrigðiskerfisins að stuðla að og viðhalda góðri heilsu. Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar er endurhæfing fjöl- þætt inngrip sem fólk þarfnast þegar það býr við eða er líklegt til að verða fyrir takmörkunum á færni í daglegu lífi vegna öldrunar eða heilsubrests, þ.m.t. vegna langvinnra sjúkdóma eða annars vanda, áverka eða slysa. Fyrir liggur að endurhæfing hefur ekki verið opinberlega skilgreind hér á landi og heildarsamhæfingu þjónustunnar skortir. Ýmsir aðilar sinna endurhæfingu sem er að stærstum hluta greidd af almannafé en eign- arhald, rekstrarform, skipulag, stjórnun og greiðslufyr- irkomulag þjónustunnar er mismunandi. Með það að markmiði að efla endurhæfingu hér á landi hef ég falið heilbrigðisráðuneytinu að móta stefnu á sviði endurhæfingar. Fyrsta skrefið í þeirri vinnu er að greina styrkleika og veikleika í skipulagi endurhæfingarþjónustu hér á landi í þeim tilgangi að finna leiðir til að bæta nýt- ingu þeirra endurhæfingarúrræða sem til eru og bæta samfellu þjónustunnar gagnvart notendum. Þá þarf að bera skipulag end- urhæfingarþjónustu á Íslandi saman við sambærilega þjónustu í þeim löndum sem við berum okkur saman við og áætla framtíð- arþörf fyrir endurhæfingu hér á landi og hvernig hagkvæmast sé að mæta henni. Gert er ráð fyrir að drög að endurhæfingarstefnu liggi fyrir í byrjun febrúar á næsta ári. Þá er mikilvægt að við vinnuna verði haft samráð við þá aðila sem málið varðar helst, s.s. not- endur og veitendur þjónustunnar, stjórn- endur heilbrigðisstofnana, fagfélög og fleiri eftir atvikum. Endurhæfing hefur mikla þýðingu fyrir fólk sem býr við skerta færni vegna ýmissa langvinnra sjúkdóma eða hrörnunar sem fylgir hækkandi aldri svo eitthvað sé nefnt og skiptir í mörgum tilvikum sköpum um það hvernig fólki reiðir af í kjölfar slysa, veikinda eða ann- arra áfalla. Það er því mikilvægt að til staðar sé skýr stefna stjórnvalda í málaflokknum til að stuðla að bættri heilsu þjóðarinnar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Aukin áhersla á endurhæfingu Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Greint var frá niðurstöðum rann- sókna breskra vísindamanna á Borg- arhrauni við Þeistareyki í vísindarit- inu Nature Geoscience nýlega og tímaritið National Geographic og fleiri tóku málið upp. National Geo- graphic segir að Ísland komi yfirleitt ekki fyrst upp í hugann þegar rætt er um að slá hraðamet. Þar hafi þó basaltkvikan sem myndaði Borg- arhraun sett hraðamet. Euan Mutch, bergfræðingur við Cambridge- háskóla, leiddi hóp vísindamanna sem skoðuðu bergið og samsetningu þess. Af því mátti ráða að hve miklu dýpi hraunbráðin var komin og hve hratt hún hafði stigið upp til yf- irborðsins. Ótrúlega hröð framrás Dr. Sæmundur Ari Halldórsson, jarðefnafræðingur og fræðimaður við Háskóla Íslands, þekkir Borg- arhraun og einnig þekkir hann vel til rannsókna breskra vísindamann- anna sem hafa rannsakað hraunið síðustu áratugi. Sumir þeirra eru nánir samstarfsmenn hans. Hann sagði að Borgarhraun væri tiltölulega frumstæð bráð sem þýddi að hún hefði yfirgefið möttul jarðar tiltölulega skömmu áður en hún kom upp á yfirborðið. Bráðir sem mynduðu Borgarhraun söfn- uðust fyrir á mörkum möttuls og neðri hluta jarðskorpunnar. Þar kraumuðu bráðirnar saman. „Þarna fáum við góða innsýn í ferlin sem mynduðu t.d. lítil frum- stæð hraun á Reykjanesi og Þeista- reykjum fjærst miðju landsins. Menn hafa getið sér til að þar sé skorpan ívið þynnri en annars staðar og mælingar styðja það. Þessir staðir eru því kjörnir fyrir frumstæðar bráðir að gjósa. Bráðin reis mjög hratt frá neðri skorpumörkum, upp í gegnum alla mið- og efriskorpuna á fáeinum dögum. Það er ótrúlega hratt,“ sagði Sæmundur. Hann sagði að hraðferð bráðarinnar ylli því að efnaskipti hennar við efri lög jarð- skorpunnar væru væntanlega tak- mörkuð og hún mengist því lítið. Samsetning hraunbráðar er mjög breytileg á Íslandi hvort sem er basalt eða þróaðri bráðir eins og súrt berg. Þróunin á hraunbráðum gerist fyrst og fremst í kaldri jarð- skorpunni, að sögn Sæmundar. „Það sem gerir Borgarhraun einstakt er að þar er tiltölulega frumstætt basalt, líklega nýkomið úr möttlinum, sem hefur stöðvast neðst í skorpunni og svo risið hratt upp. Okkur hefur grunað að þetta hafi verið tilfellið en þarna fáum við tíma- skala og tölur,“ sagði Sæmundur. Hann sagði að við rannsóknina hefði verið beitt nýjum aðferðum á sviði kristalsveimlíkana. Þá er efnaflökt í kristöllum hraunsins skoðað. Mikil og ör þróun hefur verið á þessu sviði undanfarinn áratug. Samsetning kristalla getur breyst með svonefndu efnaflökti þar sem kristallarnir aðlagast og ná að lokum jafnvægi við samsetningu um- liggjandi bráða. Sveim eða flökt efna er háð tíma, hitastigi og fleiri breyt- um. Sæmundur sagði að þarna fengj- ust ákveðnar skorður á þann tíma sem þessi þróun gæti tekið og það væri mjög heillandi. Frumstæðustu hraunin eru köll- uð pikrít sem er tegund basalts. Það inniheldur lítið af kísilsýru og er ríkt af glansandi græn- leitum ólivíndílum. Kristall- arnir geta verið glerkenndir. Svona myndanir eru áberandi á Þeistareykjasvæðinu og á Reykjanesi, til dæmis Háleyjarbunga og Lágafell. Einnig finnst pikrít við suðvest- urhluta Miðfells austan við Þingvallavatn svo dæmi séu nefnd. Borgarhraunskvikan setti hraðamet Hraunbráðin sem myndaði Borgarhraun á Þeistareykja- svæðinu braust hratt mjög djúpt úr iðrum jarðar fyrir 7.000 til 10.500 árum, það er snemma á nútíma eftir síðustu ísöld. Hraunið er talið hafa komið upp á yfirborðið af um 24 km dýpi, á mörkum jarð- skorpunnar og möttulsins, á aðeins tíu sólarhringum. Borgarhraun geymir vel varðveitta kristalla sem segja mikla sögu um uppruna hraunsins og ferðalag þess til yfirborðsins. Grænleitir ólivín- kristallar mynduðu t.d. lög utan um kjarna þeirra sem hafa mis- munandi efnafræði- lega samsetningu. Hún gefur upplýs- ingar um hve lengi kristallarnir voru í hraunbráðinni áður en hún storknaði. Djúpt úr iðrum jarðar BORGARHRAUN VIÐ ÞEISTAREYKI Sæmundur Ari Halldórsson Borgarhraun við Þeistareyki G ru nn ko rt /L of tm yn di r e hf . Borgarhraun Bæjarfjall Gjástykki Þeistareykir Lambafjöll R E Y K J A - H V E R F I H Ó L A - S A N D U R Kvíahólafjöll Gæsafjöll Krafl a Mývatn L A X Á R D A L U R 1 1 Grímsstaðir Ak ur ey ri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.