Morgunblaðið - 10.08.2019, Page 29
MESSUR 29á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
ÁRBÆJARKIRKJA | Æskulýðsguðsþjónusta
kl. 11. Ungmenni í Æskulýðsfélagi Árbæjarkirkju
og ungmenni Kaþólska safnaðarins í Tübingen í
Þýskalandi leiða stundina með ritningarlestrum
og bænum. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari
ásamt Ingunni Björk Jónsdóttir djákna. Organisti
Kristín Jóhannesdóttir. Félagar úr kirkjukórnum
leiða söng.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sameiginleg sum-
armessa Garða- og Hafnarfjarðarprestakalla kl.
11. Ástvaldur organisti og sr. Hans Guðberg
leiða stundina.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Félagar úr
kór Bústaðakirkju leiða söng undir stjórn Jón-
asar Þóris. Messuþjónar og sr. Pálmi annast
þjónustu. Hressing eftir messuna.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka
daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 er
vigilmessa á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Elínborg
Sturludóttir, Kári Þormar dómorganisti og félagar
úr Dómkórnum.
EIÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Kirkjukór Eiða-
kirkju leiðir almennan söng og organisti er Jón
Ólafur Sigurðsson. Sungnir verða kvöld- og
sumarsálmar. Vangaveltur um lífið og gild-
ismatið út frá dæmisögunni um mennina tvo
sem byggðu á bjargi og sandi. Prestur er Sigríður
Rún Tryggvadóttir. Kaffi í aðstöðuhúsi eftir
messu.
FELLA- og Hólakirkja | Helgistund kl. 20. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson þjónar. Meðhjálpari
Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffisopi eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur
leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Söng-
hópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsamessa kl.
11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Kristján
Hrannar Pálsson er organisti og Sara Gríms-
dóttir leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
Ágústsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjón-
um. Ásta Haraldsdóttir organisti og félagar úr
kirkjukór Grensáskirkju leiða tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi
presta, kl. 14 í hátíðasal Grundar. Prestur er
Halldór Gunnarsson. Grundarkórinn leiðir söng
undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Helgistund
kl. 20. Prestur Karl V. Matthíasson, kaffi í boði
eftir messuna. Kirkjuvörður Lovísa Guðmunds-
dóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Regnbogamessa kl. 11.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Eva Björg
Valdimarsdóttir þjóna fyrir altari. Hópur messu-
þjóna aðstoðar. Grétar Einarsson prédikar. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Kjartan Jósefsson. Alþjóðlegt
orgelsumar: Tónleikar laugard. kl. 12 og sunnu-
dag kl. 17. Susannah Carlson konsertorganisti
frá Svíþjóð leikur. Fyrirbænaguðsþjónusta
þriðjud. kl. 10.30. Messa miðvikud. kl. 8 og tón-
leikar Schola cantorum kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Organisti er Sólveig Anna Aradóttir. Samskot
dagsins renna til Blindrafélagsins.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 20
með lofgjörð og fyrirbænum. Ólafur H. Knútsson
predikar. Kaffi og samvera eftir stundina.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta klukkan
11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Lenka Mátéová kantor annast tónlist.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Léttur há-
degisverður eftir messu. Sr. Guðbjörg og Magn-
ús organisti þjóna auk Aðalsteins kirkjuvarðar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta í kapellu kl. 20. Óskar
Einarsson og Áslaug Helga Hálfdánardóttir sjá
um tónlist og leiða safnaðarsöng. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11 og opnun sýning-
arinnar „Regnbogabraut: Falin saga í 1200 ár“ í
safnaðarheimilinu. Félagar úr kór Neskirkju leiða
söng við undirleik Rósu Kristínar Baldursdóttur.
Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir. Blöð og litir
fyrir yngsta fólkið. Á sýningunni verða ný verk eft-
ir listafólkið Hrafnkel Sigurðsson, Logn Drauml-
and og Viktoríu Guðnadóttur og kallast hún á við
sýninguna „Þjóð verður til“ í Þjóðminjasafninu.
Létt hressing á sýningunni eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson
þjónar og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn
Stefáns H. Kristinssonar organista. Meðhjálpari
er Pétur Rúðrik Guðmundsson
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. 3.
hæð. Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson predikar, félagar úr Kór
Seljakirkju leiða söng. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
STRANDARKIRKJA | Hin árlega Maríumessa
og jafnframt lokatónleikar tónlistarhátíðarinnar
Englar og menn kl. 14. Kristján Björnsson vígslu-
biskup þjónar. Tónlistarflutning annast Björg Þór-
hallsdóttir sópran, Oddur Arnþór Jónsson bari-
tón, Elísabet Waage harpa, Gunnar Kvaran selló
og Hilmar Örn Agnarsson harmóníum.
TUNGUFELLSKIRKJA | Messa kl. 14. For-
söngvari leiðir almennan safnaðarsöng.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonHáteigskirkja.
Orð dagsins: Um
falsspámenn.
(Matt. 7)
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Ég hef verið að
velta skrifum Davíðs
Oddssonar fyrir mér,
hvað fyrir honum
vaki. Engum dylst að
honum er mikið niðri
fyrir og á erfitt með
að hemja skap sitt
þegar svo ber undir.
Þá er eins og hann fái
útrás með því að
hreyta fúkyrðum í
þjóðir Evrópusambandsins en
mærir Trump, forseta Bandaríkj-
anna. Og þá rifjast upp undir eins
að stærsti stjórnmálasigur Davíðs
Oddssonar og Jóns Baldvins
Hannibalssonar var samningurinn
um hið Evrópska efnahagssvæði
og gekk ekki hnífurinn á milli
þeirra. Það verður þess vegna
fróðlegt að sjá hvernig Davíð
Oddsson bregst við þeirri fullyrð-
ingu Arnars Þórs Jónssonar hér-
aðsdómara á miðopnu Morg-
unblaðsins laugardaginn 27. júlí að
með þeim samningi og fram-
kvæmd hans sé komin upp staða
sem er „ekki í neinu samræmi við
þann lagalega grunn sem lagður
var að stofnun Alþingis árið 930
og mótað hefur lagahefð Íslend-
inga alla tíð, þrátt fyrir löng tíma-
bil niðurlægingar, undirokunar og
kúgunar.“
Nú liggur það auðvitað fyrir að
Davíð Oddsson, sem var forsætis-
ráðherra til 2004 og síðan utanrík-
isráðherra til 2005, mótaði starfs-
hætti okkar innan Evrópska efna-
hagssvæðisins öðrum fremur og
hvernig við beittum áhrifum okkar
þar. Enginn einn maður hefur haft
meiri áhrif í þeim efnum en hann.
Orð héraðsdómarans er rétt að
meta í því ljósi.
Ávinningurinn af Evrópska
efnahagssvæðinu er ótvíræður fyr-
ir íslensku þjóðina. Mesta hag-
ræðið er vafalaust fólgið í því að
hvorki tollar né gjöld eru lögð á
útflutningsvörur okkar til Evrópu-
sambandsins sem er okkar stærsti
og mikilvægasti markaður. Öll
samskipti milli þjóðanna eru frjáls,
vinnumarkaðurinn er okkur opinn
og sömuleiðis háskólar í löndum
Evrópusambandsins. Ég dreg ekki
úr því að til mikils sé að vinna
með bættri framkvæmd EES-
samningsins, sem geti falist í öfl-
ugri hagsmunagæslu og að innleið-
ing EES-regluverks sé ekki meira
íþyngjandi en nauðsyn krefur.
Ég varð mjög undrandi á að því
skyldi slegið upp á forsíðu
Morgunblaðsins sem fyrstu frétt
18. júlí sl. að héraðsdómarinn Arn-
ar Þór Jónsson fullyrti í grein í
blaðinu að þriðji orkupakkinn
þýddi takmörkun á fullveldi þjóð-
arinnar. Þetta er að sjálfsögðu
rangt eins og Hilmar Gunn-
laugsson, hæstaréttarlögmaður og
LLM í orkurétti, ásamt ýmsum
öðrum hefur sýnt fram á. Og
Hilmar segir á öðrum stað: „Við
lögfestum reglur innri markaðar-
ins í orkumálum árið 2003. Þriðji
orkupakkinn er ekki að breyta
neinu þar um. Þriðji orkupakkinn
mun ekki breyta orkuverði á Ís-
landi. Þriðji orkupakkinn mun
ekki leiða til lagningar sæstrengs,
það væri auðveldlega hægt í dag,
væri vilji til þess. Þriðji orkupakk-
inn felur ekki í sér meira valda-
framsal en leiddi af samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið.“
Þessi orð Hilmars Gunnlaugs-
sonar eru kjarni málsins, hann er
sérfræðingur í þessum efnum en
héraðsdómarinn ekki. Þriðji orku-
pakkinn er eðlilegt framhald
markaðsvæðingar á framleiðslu og
sölu á raforku, sem innleidd var
hér á landi með fyrsta og öðrum
orkupakkanum í gegnum raf-
orkulög árin 2003 og 2008. Vegna
þeirra breytinga ríkir nú frjáls
samkeppni í fram-
leiðslu og sölu á raf-
magni og neytendur
geta valið af hverjum
þeir kaupa rafmagn.
Ég þekki dæmi þess
að á þetta hafi reynt
og lækkað rafmagns-
reikninginn umtals-
vert. Á hinn bóginn
hefur það setið eftir
að jafna flutnings-
kostnað raforku sem
hefur bitnað á lands-
byggðarfólki og verður að taka á
með jöfnunargjöldum. Það er
heimilt og kemur orkupökkunum
ekki við.
Þá felur þriðji orkupakkinn eins
og hinir fyrri í sér ákvæði um rétt
neytenda og neytendavernd, að-
gang að flutnings- og dreifikerfum
rafmagns, gagnsæi á markaði, að-
skilnað samkeppnisrekstrar (fram-
leiðslu og sölu) frá sérleyfisrekstri
(flutningi og dreifingu) og fleira í
þá veru.
Þegar ég var blaðamaður á
Morgunblaðinu var það borg-
aralegt blað, þar sem skýr mörk
voru sett milli almennra frétta og
pólitískra frétta. Reykjavíkurbréf
voru þannig skrifuð að farið var
rétt með efnisatriði máls, þannig
að lesandi þeirra vissi um hvað
var að ræða og gætilega talað um
einstakar persónur. Mér er mjög í
minni ádrepa sem ég ungur blaða-
maður fékk frá Matthíasi Johann-
essen og hef ekki gleymt þótt átt-
ræður sé. Nú hefur breyting orðið
á. Morgunblaðið talar eingöngu
um það í þriðja orkupakkanum
sem ekki er í honum, nefnilega
sæstreng til Íslands. Á hinn bóg-
inn lætur Morgunblaðið sig engu
skipta frjálsræði í viðskiptum með
rafmagn, rétt neytenda og neyt-
endavernd. Morgunblaðið er ekki
svipur hjá sjón. Það er ekki það
sama og það var. En það er ekki
öll von úti. Við höfðum gaman af
að gantast hér fyrr meir meðan
Eykon var ritstjóri og segja:
„Hver veit nema Eyjólfur hress-
ist!“
Orðastaður við
Davíð Oddsson
Eftir Halldór
Blöndal
» Ávinningurinn af
Evrópska efnahags-
svæðinu er ótvíræður
fyrir íslensku þjóðina.
Halldór Blöndal
Höfundur var blaðamaður
á Morgunblaðinu.