Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
✝ Valey Jónas-dóttir fæddist
á Siglufirði 21.
nóvember 1931.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Siglufjarðar
28. júlí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jónas Jón-
asson, f. 3. mars
1892, d. 6. jan.
1962, og Jóhanna
Jónsdóttir, f. 4. júlí
1889, d. 10. feb. 1942.
Systkini Valeyjar voru Kári,
Gísli, Ingibjörg (Abba) og Val-
týr.
Valey giftist 1957 Gunnari
Jóhannssyni sjómanni, f. 6.
febrúar 1927, d. 23.4. 2015, og
byrjuðu þau búskap sinn á
Lindargötunni, fluttu síðar á
Laugarveg 12. Síðar keyptu
þau hjónin Knattborðsstofu á
vann eitt sumar í Vestmanna-
eyjum.
Valey fór í Kennaraháskól-
ann og lauk því námi 1955 og
stofnaði hún smábarnaskóla
fyrir sex ára börn sem hún rak
í nokkur ár og hóf síðar
kennslu við barnaskóla Siglu-
fjarðar þar sem hún hætti
vegna aldurs.
Valey fékk lömunarveikina
níu mánaða gömul og lamaðist
hún öll hægra megin. Hún fékk
mátt aftur að hluta til eftir fjög-
urra ára aldur en hún var ávallt
lömuð í hægri hendi.
Valey starfaði mikið í Sjálfs-
bjargarfélagi Siglufjarðar sem
var stofnað 9. júní 1958 og var
Valey fyrsti formaður Sjálfs-
bjargar á Íslandi.
Valey hafði mikinn áhuga á
gönguskíðum og fylgdist vel
með öllum skíðamótum. Útför
Valeyjar fer fram í dag, 10.
ágúst 2019, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Meira: mbl.is/minningar
Lækjargötu 8 og
svo bjuggu þau að
Hafnartúni 4. Síð-
ustu árin dvaldi Va-
ley í Skálarhlíð og
síðan á Sjúkrahúsi
Siglufjarðar.
Börn Valeyjar og
Gunnars eru Óðinn,
maki Una Agnars-
dóttir, Jóhanna,
maki Arnbjörn Ey-
þórsson, Jökull,
maki Ásta Sigfúsdóttir, og Ingi-
björg, maki Björn Tryggvason.
Fyrir átti Valey son, Arnþór
Þórsson, sambýliskona Brynja
Baldursdóttir.
Valey ólst upp á Siglufirði en
kornung fór hún í sveit á sumr-
in í Tungu, á Barði í Fljótum og
síðan að Höfða á Höfðaströnd.
Um 16 ára fékk hún vinnu við
konfektgerð, síðan fór hún og
Mamma.
Ég var erlendis þegar ég
fékk fréttina um að mamma
væri dáin. Það kom mér mikið á
óvart, allavega í byrjun. Ég var
búin að tala við hana tveimur
dögum áður og þá datt mér ekki
í hug að það væri í síðasta
skiptið. Hún hafði líka farið í
sumarbústað með bróður mín-
um nokkrum dögum áður og
var það mikil ánægjustund fyrir
hana.
Það sem mig langar að segja
um mömmu er það að hún var
mikil kjarnorkukona eins og
þeir vita sem þekktu hana. Ég
kunni þó að meta kosti hennar
meira eftir því sem ég varð sjálf
eldri. Áður fyrr voru ráðin
hennar sem hún gaf mér eitt-
hvað sem ég hlustaði ekki endi-
lega á, en eftir því sem árin liðu
skynjaði ég hversu rétt hún
hafði oft fyrir sér og hvað hún
bar hag minn fyrir brjósti með
þessum ráðum.
Ævi hennar var ekki alltaf
auðveld. Hún fékk lömunarveik-
ina níu mánaða og lamaðist öll
hægra megin.
Hún fékk síðan mátt í hægri
fótinn en ekki höndina en hún
lét það ekki hafa áhrif á það
sem að hún hafði fyrir stafni.
Hún menntaði sig og átti börn,
vann mikið fyrir Sjálfsbjörg
sem var hennar hjartans mál.
Mamma vildi að við systkinin
menntuðum okkur og lagði hún
mikla áherslu á það við okkur
öll, sendi okkur suður og hún og
pabbi studdu við okkur fjár-
hagslega svo að þetta gengi allt
upp.
Það hefur samt verið ótrú-
lega sárt oft á tíðum að eiga
mömmu og pabba sem búa á
öðrum stað.
Ég fór ófús að heiman 16 ára
og ég flutti í raun aldrei heim
aftur, bara heimsókn á sumrin
og um jól.
Mamma var samt ótrúlega
dugleg við að fylgjast með öllu
sem gerðist hjá mér og kom í
allar veislur ef hún mögulega
komst, enda hafði hún mjög
gaman af að ferðast og að vera í
fjölmenni.
Síðustu árin hafa samt verið
erfið þar sem ég hitti hana ekki
eins oft og ég hefði viljað. Ég
fór auðvitað í heimsókn og tal-
aði við hana oft í viku en það er
sárt að hafa ekki getað umgeng-
ist hana meira þegar hún var
orðin svona fullorðin. En svona
er lífið og tilveran og ég ætla
ekki að dvelja við slíkar hugs-
anir heldur minnast hennar
mömmu sem ég er svo stolt af.
Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Í dag er ég að kveðja frænku
mína Valeyju Jónasdóttur.
Ég heimsótti Valeyju á
Sjúkrahús Siglufjarðar fyrir
nokkrum vikum þar sem við
rifjuðum upp góðar minningar
frá því í gamla daga, ég að saga
út jólasveina og Valey að mála,
síðan seldum við þetta á jóla-
markaðnum. Í þessari síðustu
heimsókn minni til hennar sá ég
að frænka mín var farin að gefa
eftir í lífsbaráttunni en okkur
þótti vænt um að geta spjallað.
Valey var yngst af sínum
systkinum sem í dag eru öll fall-
in frá. Hún missti móður sína
mjög ung og fékk sjálf löm-
unarveikina og var alla tíð með
annan handlegginn lamaðan.
Valeyju tókst mjög vel að aðlag-
ast þessu og gerði meira með
annarri hendinni en margir í
dag gera með báðum höndum.
Mér varð hugsað til Valeyjar
þegar þriggja ára afabarnið
mitt svaraði mér þegar ég bað
hana að sækja sokkana mína
„afi, hefur þú ekki tvær hend-
ur?“ sagði hún.
Fjórtán ára gamall fór ég
mína fyrstu ferð til Reykjavík-
ur. Fékk að fara með togar-
anum Elliða og var að fara í
sumarvinnu. Þá leigði Valey
pínulítið herbergi á Frakkastíg.
Ég kom til Valeyjar um miðja
nótt, enginn dyrasími og lítið
um aðra síma. Þá sá ég opinn
glugga á efri hæð og kallaði
stanslaust „Valey, Valey“. Allt í
einu kom hún út í gluggann og
var smá tíma að átta sig en svo
færðist þetta frábæra bros yfir
hana og hún kallaði „ert þetta
þú, Jónas minn“.
Þetta var Valey, endalaust
með bros á vör og opinn faðm-
inn. Á þessum tíma var hún við
nám í Kennaraskólanum.
Hún var engin venjuleg kona
hún Valey, hörkudugleg og
bráðskörp. Hún var einn að
stofnendum Siglufjarðardeildar
Sjálfsbjargar 1958 og fyrsti for-
maður félagsins. Hún starfaði í
áraraðir sem kennari við Barna-
skóla Siglufjarðar og því sam-
hliða með heimakennslu. Þá
ráku hjónin Biljardstofuna á
Siglufirði.
Okkur hjónunum þótti alltaf
frábært að heimsækja Valeyju
og Gunnar á Hafnargötuna. Þar
gátum við Gunnar rætt enda-
laust um allt er viðkom sjó-
mennsku og töfraði Valey fram
þvílíka veislu úr eldhúsinu.
Mér er ómögulegt að skilja
hversu miklu hún áorkaði, sjó-
mannsfrúin, útivinnandi með
stórt heimili og fimm börn.
Samt hafði hún alltaf tíma fyrir
svo margt, svo sem föndur, list-
málun, postulín og ýmsa handa-
vinnu.
Valey fylgdist vel með allri
sinni stórfjölskyldu og var virk
á samfélagsmiðlum fram á síð-
asta dag.
En allt endar þetta, hvort
sem það er gleði eða sorg. Ég á
Valeyju frænku minni mikið að
þakka.
Við hjónin sendum öllum að-
standendum Valeyjar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Jónas og Ólöf.
Nú er hún farin elsku Valey
okkar. Valey var yngst systkina
sinna, systir pabba og bjó á
Siglufirði eins og við. Í okkar
minningu var hún rausnarleg og
var alltaf tilbúin til þess að deila
eða gefa frá sér. Það var gott að
koma til þeirra Gunnars og allt-
af var fundið eitthvað skemmti-
legt að gera og mikið leikið við
unga gesti.
Sum okkar fóru í sex ára
bekk hjá Valey áður en sá bekk-
ur fór í grunnskólann og þar
var blandað saman námi og
skapandi leik.
Valey var mjög listræn og
hæfileikarík á því sviði og liggur
víða eftir hana handverk, hvort
sem það voru myndir, málað á
postulín eða tré svo eitthvað sé
talið. Þegar við vorum börn
fengum við yfirleitt heimagerð-
ar jólagjafir sem fjölskyldan
útbjó og Gunnar lét ekki sitt
eftir liggja, hvort sem það var
Fúsi flakkari, bangsi til þess að
kríta á eða myndarammar fyrir
myndirnar hennar.
Hún hafði mjög gaman að því
að fara til berja og kenndi okk-
ur sjálfbærni berjatínslunnar
þar sem hún boðaði að það ætti
eingöngu að tína stóru berin og
koma síðan á sömu þúfuna aftur
eftir nokkra daga og tína meira,
alltaf að kenna.
Heima hjá okkur var hún á
haustin stundum kölluð berja-
Rósa, meðal annars vegna þess
að hún fann yfirleitt ber fyrst á
haustin og kom alltaf á afmælis-
daginn hennar mömmu 28. júlí
með ber til að færa henni.
Almennt hafa krakkar ekki
gaman af heimsóknum til full-
orðinna ættingja, en það var
enginn hissa þegar krakkarnir
okkar sóttu í að heimsækja Va-
leyju og Gunnar þar sem alltaf
var tekið vel á móti þeim, spjall-
að við þau eins og þau væru
fullorðið fólk og þeim yngri
fundið eitthvað skapandi að
gera.
Sendum Adda, Óðni, Jó-
hönnu, Jökli, Ingu og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Jónas, Guðrún og
Baldvin Valtýsbörn.
Valey Jónasdóttir kemur
mjög við sögu skólastarfs á
Siglufirði um nærri hálfrar ald-
ar skeið. Ung sótti hún sér
menntun í Kennaraskóla Ís-
lands og lauk kennaraprófi árið
1955. Eftir heimkomu til Siglu-
fjarðar stofnaði hún einkaskóla
sinn, smábarnaskóla, sem hún
starfrækti á heimili foreldra
sinna við Lindargötu í 10 ár.
Þar kenndi hún 5-6 ára börnum
undirstöðuatriði lesturs og
skriftar og einfalt föndur. Eiga
margir Siglfirðingar góðar
minningar úr betristofunni á
Nefsstöðum frá þessum árum.
Valey réðst til Barnaskóla
Siglufjarðar 1956 þar sem hún
starfaði og síðar í Grunnskóla
Siglufjarðar allt til ársins 1997.
Valey var í augum nemenda
sinna og samstarfsfólks svip-
mikill og duglegur kennari. Hún
var mjög opin fyrir nýjungum í
kennsluháttum og þróun skóla-
starfsins. Yngri kennurum og
óreyndari var hún afar hjálpfús
og traust og síviljug að miðla af
þekkingu sinni og reynslu. Va-
ley fékkst alla tíð við bekkjar-
kennslu þar sem hún fylgdi eftir
árgöngum frá fyrstu skólaárum
til 13 ára aldurs. Það var mjög
skýrt í starfi hennar hve ríkan
skilning hún hafði á því að vera
skapandi í kennslu og öllu námi
og þjálfa bæði huga og hönd
nemenda sinna – eins og nýj-
ustu námskenningar kveða á
um.
Um leið og Valey var jákvæð
gagnvart nýjungum var hún
fastheldin á góðar hefðir sem
skiptu máli fyrir samfélagið.
Fyrir hennar áhrif var gamli
sólarsöngurinn „Kom blessaða
sól með birtu og yl til barnanna
á landinu kalda...“ endurvakinn
í skólastarfinu og fluttur 28.
janúar ár hvert í kirkjutröpp-
unum af nemendum á yngri
stigum grunnskólans. Ljóðið
samdi Hannes Jónasson árið
1917.
Við minnumst Valeyjar líka
sem mikillar félagshyggjukonu
sem alltaf var tilbúin að leggja
lið hinni eilífu baráttu um betri
heim.
Við fyrrverandi samkennarar
þökkum löng og góð kynni.
Guðný og Örlygur.
Merkiskonan Valey Jónas-
dóttir er fallin frá.
Valey var tæplega ársgömul
þegar hún fékk lömunarveiki og
lamaðist á öðrum fæti og hand-
legg. Móðir hennar sá til þess
að barnið færi suður í endur-
hæfingu. Var hún einn vetur í
þjálfun sem reyndist vel. Samt
bar Valey merki fötlunar alla
tíð. Það aftraði henni þó ekki í
að taka fullan þátt í lífinu.
Hún ól allan sinn aldur á
Siglufirði fyrir utan fjögur ár í
kennaranámi. Það var ekki al-
gengt í þá daga að fatlaðir
legðu fyrir sig langskólanám.
Eftir að Valey kom aftur heim
varð hún stundakennari við
Barnaskóla Siglufjarðar þar
sem hún kenndi í nær hálfa öld.
Valey hélt við þeirri hefð að
börnin syngju ljóð ár hvert.
Ljóð heitir Til sólarinnar og var
samið af Hannesi Jónssyni og
sungið undir þýsku lagi. Eftir
að Valey hætti kennslu féll
þessi hefð niður um árabil. En
rétt fyrir aldamótin var söng-
urinn endurvakinn með aðstoð
Valeyjar. Síðan hefur öllum
nemendum við Barnaskólann
verið kenndur söngurinn og er
hann nú fluttur 28. janúar ár
hvert.
Árið 1958, 9. júní, var fyrsta
Sjálfsbjargarfélagið á landinu
stofnað og var það að tilstuðlan
Sigursveins D. Kristinssonar.
Aðeins viku fyrir stofnfund fé-
lagsins hafði Valey gengið í
hjónaband með Gunnari Jó-
hannssyni sjómanni og eignuð-
ust þau fimm börn.
Sigursveinn bað hana um að
gerast formaður félagsins þar
sem hún hafði sýnt stofnun þess
mikinn áhuga. Hún tók vel í til-
lögu hans og varð formaður.
Hún vann mikið fyrir Sjálfs-
björg, reyndar varð hún að
draga úr starfinu eftir að börnin
voru orðin fjögur. Samt sem áð-
ur hélt hún áfram að vinna að
málefnum Sjálfsbjargarfélaga.
Valey lagði mikla áherslu á að
réttindi karla og kvenna væru
söm og jöfn hvað varðaði fjár-
hagslegan stuðning frá því op-
inbera. Á stofnfundi Sjálfs-
bjargar á Siglufirði bar hún upp
þá tillögu að örorkulífeyrir væri
greiddur án tillits til tekna
maka. Þessi tillaga varð ekki að
veruleika fyrr en rúmum 50 ár-
um seinna.
Á fyrstu árum Sjálfsbjargar
var mikið lagt upp úr fjáröflun
og félagsstafi og lagði Valey þar
mikið til af tíma sínum meðal
annars voru fundir og fé-
lagsstarf haldið á heimili þeirra
hjóna eða allt til þess að fjöl-
skyldan var orðin það stór að
finna þurfti annan stað fyrir
starfsemina. Félagið naut vel-
vildar íbúa og sveitarstjórnar,
öll félög verða jú að afla tekna
og gekk það vonum framar þar
sem félagsmenn lögðu á sig
mikla sjálfboðavinnu. Það voru
seld merki og blöð, happdrætti
og handavinna sem síðan var
seld á basar. Ekki má gleyma
hinum landsfræga pönnuköku-
bakstri þegar sólin gægist aftur
upp fyrir fjöllin.
Málefni Sjálfsbjargar voru
ekki einu málefnin sem hún lét
sig varða því hún hafði mikinn
áhuga á skíðaíþróttinni og vann
lengi í sjálfboðavinnu við ýmis
störf til eflingar íþróttinni. Sjálf
eignaðist hún ekki skíði fyrr en
á fullorðinsárum, var alltaf á
lánsskíðum. Það þótti ekki rétt
að leggja í fjárútlát til kaupa á
skíðum þar sem hún gæti ekki
æft til að keppa. Á barnsárum
lét sér hún nægja að renna sér
á tunnustöfum.
Far þú í friði, kæra Valey.
Ég sendi fólkinu þínu öllu inni-
legar samúðarkveðjur.
Guðríður Ólafs
Ólafíudóttir,
fyrrv. formaður
Sjálfsbjargar lsh.
Árið er 1955. Valey er komin
heim til Siglufjarðar að loknu
kennaraprófi og sýnir þá áræðni
að stofna smábarnaskóla/einka-
skóla í húsi Jónasar föður síns á
Nefstöðum við Lindargötu.
Fyrstu nemendur hennar
vorum við í árgangi 1949. Lest-
ur, skrift, föndur, leikir, söngur.
Minningarnar tengjast að mestu
leyti vorinu 1956 sem helgast
líklega af því að við skólalok
voru teknar hópmyndir af nem-
endum sem tala sínu skýra
máli. Við stöndum þar prúðbúin,
stolt og glöð og höldum á af-
rakstri náms og vinnu, stórum
möppum skreyttum með lím-
miðum í ýmsum litum, stærðum
og gerðum og innihaldið verk-
efni af ýmsum toga.
Sumir eiga þessar möppur
enn eftir rúmlega sex áratugi
en hjá öðrum eru þær komnar í
glatkistuna. Lengst göngum við
með æskuminningunum og við
eigum góðar minningar um
þessa skólasetu og höfum fengið
ótal tækifæri til að rifja þær
upp.
Mér sem þetta skrifar er eft-
irminnilegt að oft þennan fyrsta
skólavetur taldi Valey mig mas-
gefna. Ekki andmæli ég því.
Það kom þó ekki í veg fyrir að
hún réði mig sem barnapíu á
unglingsárum mínum. Þar
gegndi ég ýmsum ábyrgðar-
störfum, auk barnapössunar.
Æfði mig þar í léttum heim-
ilisverkum svo sem að elda og
skúra.
Valey var sístarfandi hús-
móðir. Ótrúlega myndarleg við
handavinnu, og lömun annarrar
handar var henni ekki til traf-
ala. Hún átti prjónavél og not-
aði hana mikið. Oft heyrðist líka
í saumavélinni og ógleymanlegt
er þegar hún eignaðist nýjasta
módelið sem hægt var að bró-
dera á.
Ég geymi ennþá tvo sumar-
kjóla sem hún saumaði á mig,
annar þeirra er vel skreyttur
með vélarbróderíinu og hinn
puntaður með bryddingum.
Mjög fallegir báðir.
Árgangur 1949 hittist nú í
júlí á Siglufirði til að fagna 70
ára afmælum.
Við minntumst uppvaxtar-
áranna og sungum meðal ann-
ars sönginn sem við lærðum hjá
Valeyju: Nú gaman, gaman er í
góðu veðri að leika sér. Sólin
skein og fuglarnir sungu með
okkur. Bjart var yfir öllu og öll-
um.
Við þrjár vinkonur úr barna-
og gagnfræðaskóla leigðum
þessa daga, ásamt eiginmönn-
um, íbúð á efri hæð á Laug-
arvegi 12 þar sem Valey og
Gunnar bjuggu á barnapössun-
artíma mínum.
Þar gengum við upp og niður
sama stigann og ég hafði hlaup-
ið ótal sinnum fyrir rúmlega
hálfri öld. Stundum fer lífið í
hringi.
Ég minnist Valeyjar með
þökkum og flyt einnig hinstu
kveðju og þakkir frá siglfirskum
árgangi 1949.
Jóna Möller.
Valey Jónasdóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát