Morgunblaðið - 10.08.2019, Page 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Önnur eins ósköp af innfluttum
tækjabúnaði og tónleikadóti og
fylgja enska tónlistarmanninum Ed
Sheeran hafa aldrei sést áður hér á
Fróni og vafalaust hefur þeim
svelgst á morgunkaffinu sem lásu
um öll tonnin sem flutt voru til
landsins út af einum Englendingi
með gítar. Sviðið sem hann ætlar
að standa á er 650 fermetrar að
flatarmáli og gámarnir með dótinu
55 talsins.
Sheeran er enda einn vinsælasti
tónlistarmaður heims, ef ekki sá
allra vinsælasti því fyrr í vikunni
bárust fréttir af því að yfirstand-
andi tónleikaferð Sheeran, Divide,
sem tónleikarnir hér á landi eru
liður í, hefði slegið heimsmet hvað
varðar tekjur af einni tónleikaferð.
Sheeran hefur rakað inn yfir 737
milljónum Bandaríkjadala og slegið
þar með met rokksveitarinnar U2
frá árinu 2011. Flestir geta raulað
nokkur lög með U2 en þeir sem
eru yfir miðjum aldri geta líklega
fæstir raulað nokkur lög með
Sheeran. Sá enski hefur engu að
síður mokað út plötum á heldur
stuttum ferli sínum og átt margan
smellinn á vinsældalistum víða um
lönd. En hvað veldur þessum vin-
sældum? Blaðamaður sló á þráðinn
til tveggja tónlistarfróðra álitsgjafa
í leit að svörum.
Fyrir unga jafnt sem aldna
Tónlistarkonan Hildur Kristín
Stefánsdóttir, sem gengur undir
listamannsnafninu Hildur, er ein
þeirra tugþúsunda gesta sem verða
á Laugardalsvelli um helgina.
Spurð að því hvort hún hrífist af
Sheeran sem tónlistarmanni svarar
Hildur að henni þyki hann hafa
gert margt gott í listinni þó hún sé
ekki hrifin af öllu sem hann hafi
gert.
En af hverju er hún þá hrifnust?
„Hann á svo mörg lög og ég hlust-
aði svolítið mikið á fyrstu plötuna
sem hann gaf út á sínum tíma, +.
Mér finnst hann góður lagahöf-
undur, góður að gera grípandi lög
og það er hans aðalsmerki,“ segir
Hildur.
Hún er spurð að því hvort hún
kunni skýringu á ógurlegum vin-
sældum Sheeran. „Hann nær til
svo ofboðslega breiðs hóps af því
hann gerir svo mikið af tónlist sem
er bara popptónlist í víðasta skiln-
ingi. Eldri borg-
arar og börn
geta jafnvel
hlustað á hann
en hann var að
gefa út nýja
plötu og hún er
allt öðruvísi,
passar ekki alveg
inn í Ed
Sheeran-formúl-
una. En ég held
líka að hann hafi viljað prófa eitt-
hvað nýtt,“ segir Hildur. Platan
sem hún nefnir, No.6 Collabora-
tions Project, er fjórða hljóðvers-
skífa Sheeran og á hann á henni í
samstarfi við marga heimskunna
tónlistarmenn, m.a. Justin Bieber
og Bruno Mars.
„Það sem er merkilegt við þessa
nýju plötu er að hann á í samstarfi
við alla vinsældu listamenn samtím-
ans þannig að hann er aðeins að
„flexa“ því hvað hann getur,“ segir
Hildur kímin. „Það vilja allir gera
lag með honum því hann er nátt-
úrlega líka streymiskóngur,“ segir
Hildur og vísar þar til mikilla vin-
sælda Sheeran á Spotify-streym-
isveitunni.
Hildur segir Sheeran sjarmer-
andi og líklega gaman að fá sér
bjór með honum. „Ég held að mjög
margir tengi við svona fólk sem er
jarðbundið. Ég held að það hafi
hjálpað honum mikið, að fólk sér
kannski sjálft sig í honum.“
Sætt og gott en næringarlaust
Steinþór Helgi Arnsteinsson tón-
listariðnaðarmaður segist hafa
komist að því hver Sheeran væri
fyrir örfáum ár-
um. Áður hafi
hann ekki haft
hugmynd um
hver maðurinn
væri. „Fólk sagði
bara „ha, veistu
ekki hver það
er?!“ og spilaði
fyrir mig fullt af
lögum og ég
kannaðist þá við
mörg þeirra. Ég
fer ekki á Spotify til að hlusta á
þau en hef heyrt þau milljón sinn-
um út um allt,“ segir Steinþór.
„Af hverju hann er svona vinsæll
veit ég ekki en hann er bara eins
og bland í poka. Þú ferð á nammi-
barinn á laugardegi og færð þér
bland í poka; smá gúmmí hér, smá
súkkulaði, örlítill lakkrís. Þetta er
sætt og gott og ljúft og öllum
finnst þetta næs en ef þú skoðar
næringarinnihaldið þá er það
kannski ekki mikið.
Svo er líka eitthvað við hann,
hann er svo nettur á því. Það eru
allir til í að halda með honum og ég
held að það spili líka inn í. Hann er
ótrúlega góður í að gera poppslag-
ara en þetta er líka gríðarlega
formúlukennt og mikill sykur. Ég
skil ekki alveg vinsældirnar en er
mjög forvitinn að sjá þetta „show“
og held að þetta verði geggjað
dæmi,“ segir Steinþór að lokum um
smellasmiðinn Sheeran.
Sjarmerandi smellasmiður
Sjarmatröllið Ed Sheeran er komið til landsins og mun leika fyrir yfir 50.000 manns á Laugar-
dalsvelli um helgina Á heimsmet í tekjum af tónleikaferð Hvað veldur þessum vinsældum?
AFP
Ógnarvinsældir Ed Sheeran nýtur fádæma vinsælda og fyllir hvern leikvanginn á fætur öðrum.
Hildur Kristín
Stefánsdóttir
Steinþór Helgi
Arnsteinsson
AFP
Innlifun Sheeran gefur sig allan í flutninginn á tónleikum, eins og sjá má.
Ed Sheeran, fullu nafni Edward
Christopher Sheeran, fæddist 17.
febrúar árið 1991 og er því 28 ára.
Hann hóf ungur að leika á gítar og
semja lög og hélt sem táningur til
London að freista gæfunnar.
Sheeran sendi fyrstu hljóðvers-
skífuna, +, frá sér haustið 2011 eft-
ir að hafa samið við Asylum Rec-
ords. Hún náði toppsætum breskra
og ástralskra vinsældalista og
fimmta sæti á þeim bandaríska.
Hún hefur nú náð áttfaldri platínu-
sölu í Bretlandi. Árið 2012 hlaut
Sheeran Brit-verðlaunin sem besti
nýliðinn og besti tónlistarmaður í
karlaflokki og lag hans „The A
Team“ var tilnefnt til Grammy-
verðlauna ári síðar.
Önnur hljóðversskífan, x, kom út
2014 og náði toppsætum bresku og
bandarísku sölulistanna. Hún var
næstmest selda platan á heimsvísu
árið 2015 og var valin plata ársins á
Brit-hátíðinni sama ár. Sheeran var
einnig sæmdur titlinum lagahöf-
undur ársins af akdademíu breskra
lagahöfunda og tónskálda. Hann
hlaut svo tvenn Grammy-verðlaun
fyrir lagið „Thinking Out Loud“ ár-
ið 2016 af sömu plötu.
Þriðja skífan, ÷ (Sheeran er hrif-
inn af stærðfræðitáknum), kom svo
út 2017, náði toppsæti plötulista í
Bretlandi, Bandaríkjunum og víð-
ar. Hún var söluhæsta plata heims
það ár og Sheeran náði þeim ár-
angri, fyrstur tónlistarmanna, að
eiga tvö lög á lista yfir þau tíu vin-
sælustu í Bandaríkjunum í sömu
viku. Fjórða hljóðversskífan, No.6
Collaborations Project, kom út á
þessu ári og fór í toppsæti bresku
og bandarísku plötusölulistanna.
Yfir 150 milljónir eintaka hafa
verið seldar af plötum Sheeran og
er hann því meðal allra söluhæstu
tónlistarmanna sögunnar. Að auki
er hann annar tveggja sólólista-
manna sem náð hafa þeim áfanga
að eiga tvö lög á Spotify sem
streymt hefur verið í yfir milljarð
skipta. Þess má að lokum geta að
Sheeran hefur reynt fyrir sér sem
leikari, skotið upp kollinum í
Krúnuleikunum og í kvikmynd
Danny Boyle, Yesterday.
Toppsæti, verðlaun
og tugmilljónir platna