Morgunblaðið - 20.08.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Tómas Jónsson hæstaréttarlögmaður
segir mótsögn felast í því að ætla að
samþykkja þriðja orkupakka
Evrópusambandsins, sem gengur út
á að tryggja sameiginlegan raforku-
markað innan Evrópu, en standa síð-
an í vegi fyrir því að sæstrengur geti
nokkurn tímann verið lagður hingað
til lands. Tómas kom fyrir fund utan-
ríkismálanefndar Alþingis í gær.
Í minnisblaði sem Tómas lagði fyrir
nefndina kemur fram að Evrópudóm-
stóllinn (ECJ) beiti jafnan svokölluð-
um markmiðsskýringum við túlkun á
lögum og reglugerðum sambandsins,
þ.e. horfi til þess hvert markmið með
löggjöfinni er, og bendir hann máli
sínu til stuðnings á dómafordæmi.
Þannig hafi Evrópudómstóllinn á sjö-
unda áratugnum úrskurðað að lög
sambandsins
væru framar lög-
um aðildarríkja
þótt ekkert hafi
verið um það að
finna í Rómarsátt-
málanum, stofn-
sáttmála Evrópu-
sambandsins.
„Dómstóllinn
komst einfaldlega
að þeirri niðurstöðu að Evrópusam-
bandið gengi ekki upp nema reglurn-
ar væru svoleiðis.“
Markmiðið með þriðja orkupakka
ESB sé öðrum þræði að koma á fót
sameiginlegum orkumarkaði innan
sambandsins, en tilkoma hans hafi
meðal annars stuðlað að betri nýtingu
orku sem flæði frjáls milli aðildar-
ríkja. Ljóst sé að eigi Ísland að taka
þátt í þessum markaði, eins og reglu-
gerðin kveður á um, verði það aðeins
gert með sæstreng. Segir Tómas að
reyni stjórnvöld að koma í veg fyrir
lagningu sæstrengs gætu „dómstólar
komist að þeirri niðurstöðu að Ísland
uppfylli ekki skuldbindingar orku-
pakkans“, þótt ekki sé vikið berum
orðum að sæstreng í orkupakkanum.
Tómas kallar eftir því að þessi flöt-
ur orkupakkaumræðunnar verði
kannaður til hlítar, og segir aðspurð-
ur að sá fjöldi lögfræðiálita sem rit-
aður hefur verið um téðan pakka hafi
ekki kannað þennan vinkil nægilega;
meira hafi verið lagt upp úr því hvort
orkupakkinn standist stjórnarskrá,
sem sé önnur umræða. Nánar á
mbl.is. alexander@mbl.is
Ekki aðili að markaði
nema með sæstreng
Lögmaður telur mótsögn í umræðu um sæstreng til Evrópu
Tómas Jónsson
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Til stendur að ræða orkupakka þrjú
í atvinnuveganefnd Alþingis að
sögn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns
Miðflokksins og nefndarmanns.
Ólafur beiddist þess að forsvars-
menn Orkunnar okkar fengju að
koma fyrir nefndina vegna skýrslu
sem samtökin gáfu út í síðustu
viku.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
formaður utanríkismálanefndar,
kveðst ekki trúa öðru en að allir
nefndarmenn gangi sáttir frá borði
eftir tvo opna fundi um málið í gær
og á föstudag sem voru hluti sam-
komulags stjórnarflokkanna og
Miðflokksins um að taka orkupakk-
ann fyrir á sumarþingi, nú í lok
mánaðar.
„Málið er bara enn skýrara ef
eitthvað er. Þetta var auðvitað mik-
ið til endurtekið efni, en það var þá
ágætt að spyrja út í þær vangavelt-
ur sem komið hafa upp í sumar,“
segir Áslaug Arna sem nefnir að
einna áhugaverðast hafi verið að
hlusta á Bjarna Má Magnússon,
prófessor við lagadeild HR og for-
stöðumann Alþjóða- og Evrópu-
réttarstofnunar HR, ræða rétt Ís-
lands í tengslum við landgrunn,
landhelgi og mörk hafréttarsamn-
ingsins SÞ við EES. „Það var gagn-
legt til að bæta við þá umræðu og
rangfærslur sem hafa verið uppi
um það hvað sé í þriðja orkupakk-
anum,“ segir Áslaug Arna, sem tel-
ur málið ekki hafa breyst frá því í
vor. „Þetta var upplýsandi en
breytti ekki stöðu málsins eins og
það liggur fyrir þinginu,“ segir hún.
– Ganga þá allir nefndarmenn
sáttir frá borði?
„Ég trúi ekki öðru þar sem allir
þeir gestir komu sem óskað var eft-
ir eins og í vor. Ég býst ekki við
öðru en að fólk sé sátt og að þetta
mál hafi kannski skýrst enn frekar
fyrir þá sem fannst eitthvað vanta
upp á,“ segir hún.
Hafi staðfest aðaltillögu sína
Ólafur tók sæti í utanríkismála-
nefnd á fundunum tveimur. Hann
segir að heimsókn þeirra Friðriks
Árna Friðrikssonar Hirst og Stef-
áns Más Stefánssonar lögfræðinga
hafi verið markverðust. „Þeir stað-
festu að aðaltillaga þeirra væri að
fara með málið aftur í sameiginlegu
EES-nefndina,“ segir Ólafur. „Hin
leiðin er sú sem bættist við á síðari
stigum eftir viðræður við utanríkis-
ráðuneytið, þ.e.a.s. leiðin þar sem
notast verði við lagalega fyrirvara.
Þeir notuðu orðalagið „næstbesta
leiðin“ um þá leið,“ segir hann.
Ólafur segir að af máli lögfræð-
inganna hafi mátt heyra að þeir
hafi ekki séð málið í endanlegum
búningi. „Það kom fram að þeir
væru með drög að reglugerð iðn-
aðarráðherra sem á að innleiða
þessa umdeildu Evrópureglugerð
nr. […]. Verandi með það í hönd-
unum segir hann að það geti ekki
verið að þetta sé rétt klárað,“ segir
Ólafur. „Það kom fram í máli meiri-
hlutans að þetta væri ekki uppkast,
heldur væri þetta frágengið. Ég
bað um að þeir yrðu fengnir á fund
til þess að ræða málið þegar það
lægi fyrir í endanlegum búningi en
þau greinilega telja að það liggi fyr-
ir í endanlegum búningi. Ég gat
ekki betur heyrt en að þeir yrðu
beðnir að gefa einhvers konar álit,
hugsanlega skriflega, á því hvernig
þetta lítur út,“ segir Ólafur.
Málið rætt í
annarri nefnd
Breyti ekki stöðu málsins í þinginu
Ólafur
Ísleifsson
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Í bígerð er að koma upp styttu af
teiknimyndahetjunni Tinna við höfn-
ina á Akureyri. Þórgnýr Dýrfjörð,
framkvæmdastjóri Akureyrarstofu,
segir hugmyndina ekki nýja af nál-
inni. Áður hafi verið reynt að fá leyfi
frá leyfishöfum Hergé í Belgíu en
það ekki gengið. Nú gangi öll sam-
skipti hraðar og betur fyrir sig. Þór-
gnýr vonast til þess að Tinni fái sinn
stall við höfnina þegar búið verði að
ganga frá því hvernig styttan verði,
umhverfið í kring og kostnaður. Þór-
gnýr segir að áhugi Akureyringa á
Tinna komi til vegna bókarinnar
Dularfulla stjarnan. Í henni komu
Tinni og Kolbeinn kapteinn við á
Akureyri til að taka eldsneyti á för
sinni til Grænlands. Þeir fengu sér
að borða á Akureyri en Kolbeinn
kapteinn var þá í áfengisbindindi.
Talið er að hann hafi fallið í bind-
indinu og ýtir fræg setning hans
„Það svíkur ekki sódavatnið á Akur-
eyri“ undir þá kenningu. Talið er að
glas Kolbeins hafi innihaldið gin að
mestu, ásamt smá sódavatni.
Ævintýri Tinni og Kolbeinn kapteinn gerðu garðinn frægan þegar þeir
heimsóttu Akureyri á leið til Grænlands í bókinni Dularfulla stjarnan.
Stytta af Tinna í
bígerð á Akureyri
Lögreglan á Suðurlandi lokaði í gær af austasta hluta
Reynisfjöru vegna grjóthruns úr berginu yfir fjörunni.
Tveir ferðamenn; karlmaður um tvítugt og barn, höfðu
slasast lítillega þegar þeir fengu grjót yfir sig úr berg-
inu. Fékk lögreglan einnig ábendingar um að svipað at-
vik hefði átt sér stað á sunnudag.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hluta Reynisfjöru lokað vegna grjóthruns