Morgunblaðið - 20.08.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður
eignastýringar og staðgengill fram-
kvæmdastjóra Gildis lífeyrissjóðs,
segir í samtali við Morgunblaðið að
ákvörðunin um sölu á 8,49% pró-
senta hlut lífeyrissjóðsins í útgerð-
arfélaginu Brimi
(áður HB
Granda) í gær til
FISK Seafood,
hafi ekki verið
léttvæg, en hún
hafi verið tekin í
kjölfar kaupa
Brims á sölu-
félögum í eigu
Útgerðarfélags
Reykjavíkur fyrir helgi. Útgerðar-
félag Reykjavíkur er í eigu forstjóra
Brims, Guðmundar Kristjánssonar.
Á hluthafafundi 15. ágúst greiddi
Gildi atkvæði á móti kaupum á sölu-
félögunum. Kaupin voru engu að síð-
ur samþykkt með um 90% greiddra
atkvæða á fundinum. „Þetta voru
ekki fyrstu viðskipti Brims við
tengdan aðila, og okkur fannst þetta
vera orðin helst til umfangsmikil við-
skipti við félag í eigu forstjórans og
stærsta hluthafans. Það sem miklu
máli skiptir í þessu tilfelli er hvað
kaupin á sölufélögunum leiða til mik-
illar aukningar á hlut Útgerðar-
félags Reykjavíkur í félaginu, og þar
með til þrenginga á eignarhaldi
Brims, sem olli okkur áhyggjum,“
segir Davíð, en Gildi á áfram 0,2%
hlut í Brimi eftir kaupin.
Fyrri viðskiptin sem Davíð vísar
til hér að ofan voru kaup Brims á út-
gerðarfélaginu Ögurvík af Útgerðar-
félagi Reykjavíkur.
Mögulega mistök
Kom ekki til greina að selja hlut-
inn í Brimi í kjölfar viðskiptanna
með Ögurvík í fyrra?
„Nei, en það mál vakti vissulega
ýmsar spurningar. Við samþykktum
þau kaup að endingu á sínum tíma.
Eftir á að hyggja má hins vegar velta
fyrir sér hvort það hafi verið mistök,
þ.e. upp á fordæmið að gera um við-
skipti milli tengdra aðila.“
Kemur til greina að kaupa aftur
hlut í Brimi miðað við núverandi
stjórnarhætti í félaginu?
„Ég get ekki fullyrt neitt um það
en miðað við óbreytta stöðu mála þá
á ég ekki von á því.“
Aðspurður segir Davíð að verðið
sem fékkst fyrir hlutinn hafi verið
ásættanlegt, og sambærilegt því sem
Gildi bauðst í yfirtökutilboði sem
Brim gerði hluthöfum HB Granda
28. maí árið 2018, upp á 34,3 krónur
fyrir hvern hlut, að teknu tilliti til
arðgreiðslna. Davíð staðfestir að
greiðsla fyrir hlutinn hafi verið í
formi hlutabréfa í Högum.
Kristján Þ. Davíðsson, stjórnar-
formaður Brims hf., segir í tilkynn-
ingu að stjórnin virði ákvörðun
Gildis. „[…]Stjórn Brims virðir að
sjálfsögðu ákvörðun Gildis og hún er
skiljanleg í ljósi forsögunnar. Jafn-
framt fögnum við nýjum hluthafa,
sem er þátttakandi í iðnaðinum og
hefur reynslu og þekkingu á rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja.“
FISK keypti Vinnslustöðina
Í september í fyrra var tilkynnt að
FISK-Seafood hefði keypt allan hlut
Útgerðarfélags Reykjavíkur í
Vinnslustöðinni Vestmannaeyjum.
Með því eignaðist fyrirtækið þriðj-
ung í útgerðarfélaginu og nam kaup-
verðið 9.400 milljónum króna. Með
viðskiptunum lauk áralöngu reiptogi
milli Guðmundar Kristjánssonar og
meirihluta eigenda í Vinnslustöðinni
sem m.a. hafði ratað fyrir dómstóla.
Ekki léttvæg ákvörðun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breyting Gengi Brims hækkaði um 4,14% í gær, og endaði í 35,20 krónum.
Gildi seldi nær allan hlut sinn í Brimi í gær Fékk greitt með bréfum í Högum
Stjórnarformaður Brims fagnar því að fá FISK-Seafood inn í hluthafahópinn
Viðskipti
» Gildi bætti við sig 2,06%
hlut í Högum samhliða sölunni.
» FISK þurfti að selja hlut í
Högum samkvæmt sátt við
Samkeppniseftirlitið.
Davíð Rúdólfsson
lega 4 milljarðar á fyrri helmingi
árs 2018. Virðisbreytingar eru já-
kvæðar sem nemur 1,8 milljörðum
en voru neikvæðar um 461 milljón
yfir sama tímabil í fyrra. Hagnaður
á fyrri árshelmingi nú nemur 1,9
milljörðum en hagnaðurinn á fyrri
árshelmingi í fyrra nam 322 millj-
ónum.
Fjárfestingareignir Reita voru í
lok júní metnar á 147,7 milljarða
króna og höfðu aukist um ríflega 9
milljarða frá áramótum. Eigið fé
hafði aukist og stóð í 47,7 millj-
örðum en var 46,9 milljarðar um
áramót. Heildarskuldir félagsins
námu 107,5 milljörðum nú um mitt
ár en höfðu numið 96,8 milljörðum
um áramót.
Reitir sendu frá sér afkomu-
viðvörun fyrir helgi þar sem spá
um rekstrarhagnað á árinu var
færð niður um 300-450 milljónir
króna. Reitir hækkuðu um ríflega
1% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í
gær.
Hagnaður Reita á öðrum ársfjórð-
ungi nam 929 milljónum en 876
milljóna tap var yfir sama tímabil í
fyrra. Hreinar leigutekjur námu
2,1 milljarði og jukust um ríflega 90
milljónir frá öðrum fjórðungi 2018.
Þá voru matsbreytingar fjárfest-
ingaeigna jákvæðar um tæpan 1,1
milljarð á móti niðurfærslu upp á
1,7 milljarða á sama tímabili í fyrra.
Litið til hálfs árs uppgjörs félags-
ins nema hreinar leigutekjur um
4,2 milljörðum króna en voru rúm-
Hagnaður Reita margfaldast
Miklar virðisbreytingar fjárfestingareigna draga vagninn
Atvinnuhúsnæði Kringlan er með-
al helstu fjárfestingareigna Reita.
20. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.98 124.58 124.28
Sterlingspund 150.77 151.51 151.14
Kanadadalur 93.22 93.76 93.49
Dönsk króna 18.407 18.515 18.461
Norsk króna 13.764 13.846 13.805
Sænsk króna 12.806 12.882 12.844
Svissn. franki 126.45 127.15 126.8
Japanskt jen 1.1651 1.1719 1.1685
SDR 169.99 171.01 170.5
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.5134
Hrávöruverð
Gull 1509.05 ($/únsa)
Ál 1755.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.41 ($/fatið) Brent
Íslensk-sænska upplýsingatækni-
fyrirtækið Advania hefur fest kaup á
norska upplýsingatæknifyrirtækinu
Itello, sem er með skrifstofur í Staf-
angri, Björgvin og Osló. Kaupverð
er ekki gefið upp. Þetta kemur fram
á norska vefmiðlinum digi.no.
Undanfarið hefur Advania verið
að hasla sér völl á norska upplýs-
ingatæknimarkaðnum, meðal ann-
ars með kaupum á upplýsingatækni-
fyrirtækinu Stepper á síðasta ári.
„Itello er önnur yfirtaka okkar á
innan við ári og við munum halda
þessu áfram,“ segir framkvæmda-
stjóri Advania í Noregi, Espen
Hartz, við digi.no.
Haft er jafnframt eftir Hartz að
kaupin á Itello þýði að Advania í
Noregi sé nú betur í stakk búið til að
keppa um fleiri og stærri við-
skiptavini. tobj@mbl.is
Advania
stækkar
Kaupa Itello í
Noregi Ekki hætt
Icelandair Group lækkaði um 7% í
Kauphöll Íslands í viðskiptum í gær
og nemur gengi bréfa félagsins nú
6,98 krónum. Um er að ræða lægsta
dagslokagengi Icelandair á árinu.
Samtals hafa bréf Icelandair fallið
um 26% á þessu ári. Gengi félagsins
fór niður í 7,1 hinn 12. mars, sama
dag og Max-þoturnar voru kyrr-
settar víða um heim, en fór, fyrir
gærdag, síðast niður fyrir það
mark 30. október í fyrra. Þá fór
gengið niður í 6,67 krónur. Hörð
viðbrögð markaðarins má einmitt
rekja til frétta frá því á föstudag
þar sem fram kom að kyrrsetning
Boeing 737 Max þotanna myndi
vara út árið 2019 hið minnsta. Ice-
landair hefur nú þegar tekið við sex
slíkum vélum og hafði áður gert
ráð fyrir að hafa níu slíkar vélar í
flotanum undir lok þessa árs. Sam-
tals hefur félagið pantað sextán
Max-þotur. Icelandair tapaði 11
milljörðum króna á fyrri árshelm-
ingi þessa árs. Í hálfsársuppgjörinu
kom fram að fjárhagsleg áhrif
kyrrsetningarinnar næmu 17,4
milljörðum króna miðað við kyrr-
setningu út október 2019.
Flug Max-vélar standa óhreyfðar.
Enn ein
dýfan hjá
Icelandair
7% lækkun