Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
✝ Sigurjón Sím-onarson fædd-
ist 24. apríl 1953 á
Sólvangi í Hafnar-
firði. Hann lést á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi 12. ágúst
2019.
Hann var sonur
hjónanna Símonar
Sveins Sigurjóns-
sonar og Rögnu
Esterar Guðmundsdóttur.
Yngri bróðir hans er Guð-
mundur.
Þegar Sigurjón var fimm ára
flutti fjölskyldan í
Álfheima í Reykja-
vík en Sigurjón
naut hefðbund-
innar skólagöngu,
hann var í Lang-
holtsskóla.
Sigurjón fór að
loknu grunnskóla-
prófi í Stýrimanna-
skólann en hann út-
skrifaðist þaðan
með skipstjórnar-
og stýrimannsréttindi árið 1975.
Hann verður jarðsunginn frá
Garðakirkju á Álftanesi í dag,
20. ágúst 2019, klukkan 13.
Þakklæti er mér fyrst og efst
í huga, þakklæti fyrir að hafa
fengið að kynnast Sigurjóni
Símonarsyni.
Sagt er að maður komist
hálfa leið á jákvæðninni einni
saman.
Kemur þá upp í huga mér
hversu mikla baráttu Sigurjón
hefur lagt að baki vegna slyss
sem hann varð fyrir 1984 til
þess eins að hafa og eiga það líf
sem hann óskaði sér og hversu
faglega hann gerði það og í
hljóði. Trúin á allt það góða var
alltaf í fyrsta sæti hjá honum.
Hann var hreinlyndur og
trygglyndur maður, mjög vel
lesinn, trúaður með mikið og
glaðlynt skap, hann elskaði líka
góðan mat.
Hann Sigurjón lét hverjum
degi nægja sína þjáningu og
byrjaði ávallt þann næsta með
jákvæðni, góðviljann, dugnaðinn
og hjálpsemina í farteskinu. Sig-
urjón var ákaflega félagslyndur
maður og átti auðvelt með að
tengjast fólki, hann var m.a. í
sambandi við gamla samstarfs-
félaga hjá Eimskip, sem var
ómæld gleði fyrir hann, átti
einnig stóran og góðan vinahóp,
svokallaða sundkalla, sem hitt-
ust á hverjum degi í Breiðholts-
lauginni, já og á sama tíma.
Svo voru það og ekki síst
bekkjarfélagarnir hans úr
Langholtsskóla sem halda hóp-
inn enn í dag og naut Sigurjón
þess að vera með í þeim hópi.
Sigurjón átti líka pennavini víða
um heim og hélt góðu sambandi
við þá.
Er mér minnisstætt að Sig-
urjón hafði yndi af og var mjög
góður í skjala- og gagna-
geymslu, hefur oft verið gjald-
keri/formaður húsfélaga þar
sem hann hefur búið, hann átti
auðvelt með það. Sigurjón naut
þess líka að hafa og eiga gamla
og fagra hluti sem tengdust fjöl-
skyldunni hans í sínu nánasta
umhverfi.
Bar virðingu fyrir öllu slíku,
sem viðkom fortíðinni og fjöl-
skyldu hans. Sigurjón var mikill
bókaunnandi og las sér til
ánægju, hann átti mikið af góð-
um bókum.
Sigurjón var frímúrari og tók
það starf bæði alvarlega og af
alúð. Sigurjón bar mikla virð-
ingu fyrir öllu því góða starfi
sem þar er unnið á degi hverj-
um.
Sigurjón elskaði að ferðast,
enda var hann farmaður í húð
og hár, hann hafði búið erlendis,
umgengist alls konar fólk og
skildi líka alls konar fólk. Við
ferðuðumst saman og skemmt-
um okkur alltaf vel.
Sigurjón var í eðli sínu mikill
fjölskyldumaður og matmaður
mikill, fagurkeri og natinn við
að hafa heimili sitt búið fal-
legum munum en um leið þægi-
legum.
Hann var mjög elskur að
börnum, og nutu barnabörnin
mín þess meðal annars.
Þar má m.a. nefna afmælis-
partíin, bíóferðirnar, sund-
laugarferðirnar, berjamósferð-
irnar svo ég tali nú ekki um
fjöru- og hundaferðirnar og síla-
veiðiferðirnar að Reynisvatni.
Sigurjón var góður í tölvum og
hafði mjög gaman af tækninni
og naut þess að vera tengdur.
Sigurjón minn, ég vona að þú
fyrirgefir mér þessi fátæklegu
orð yfir góðar minningar.
Elskulegi vinur, ég þakka þér
enn og aftur allt sem þú hefur
hjálpað mér með og ekki síður
kennt mér.
Þín verður sárt saknað. Frið-
ur megi umlykja þig um alla
eilífð.
Þín ekta vinkona,
Halla Björk.
Við skulum sól
sömu báðir
hinsta sinni
við haf líta.
Létt man þá leið
þeim ljósi móti
vini studdur
af veröld flýr.
(Jónas Hallgrímsson)
Í dag endar næstum því 60
ára samfylgd okkar margra með
Sigurjóni Símonarsyni, skóla-
bróður úr ES-bekknum í Lang-
holtsskóla, þegar við fylgjum
honum til grafar. Sól hans hnig-
in í hafið.
Sigurjón var drengur góður,
glaðsinna í margmenni, íhugull í
einveru, vék góðu einu að sam-
ferðafólki, reyndi af fremsta
megni að rata þröngan veg góð-
vildarinnar. Leitaðist við að
ganga í ljósinu. Stóri glaðlyndi
strákurinn í gráu blokkinni inni
í Álfheimum í barnmörgu en
hráu umhverfi eftirstríðsáranna.
Í því dýrmæta samfélagi sem
við eigum gömlu skólasystkinin
úr Langholtsskóla var Sigurjón
máttarstólpi. Á sínum tíma var
það gamli kennarinn okkar Ei-
ríkur Stefánsson sem safnaði
okkur fullorðnum og hélt með
okkur litlu jólin í anda bernsk-
unnar.
Í gömlu skólastofunni. Epli á
hverju borði. Upp úr því
spannst einstakt samfélag
bekkjarsystkina sem enn varir –
þökk sé Sigurjóni og fleirum
sem voru óþreytandi að rækta
vináttuna og næra tengslin á
milli okkar.
Þá þróaðist sérstök taug milli
hans og Eiríks kennara þegar
hann eltist og var Sigurjón vak-
inn og sofinn yfir velferð gamla
mannsins, allt til hans síðustu
stundar.
Sigurjón fékk sinn skerf af
mótbyr – eins og við öll – en
sótti styrk í vináttuna og and-
legt líf.
Kannski sannaðist á lífi hans
að „trúin þarf að vera liðsmaður
í baráttunni við raunveruleik-
ann“ eins og vitur maður sagði
eitt sinn.
Við þökkum Sigurjóni ára-
tuga vináttu og kveðjum hann
með orðum Jónasar Hallgríms-
sonar – honum sem mjög var
haldið að okkur í barnaskólan-
um – þegar hann „ljósi móti af
vini studdur veröld flýr“.
Fyrir hönd ES-bekkjarins,
Halldór Reynisson.
Sigurjón
Símonarson
✝ GuðmundurGíslason
fæddist 12. júlí
1932 á Patreks-
firði. Hann lést 7.
júli 2019 á Hjúkr-
unarheimilinu
Droplaugar-
stöðum.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Gísli Guðmunds-
son og Þóra
Sigurbjörg Jónsdóttir.
Guðmundur átti eina systur,
Halldóru, sem lést rúmlega
tveggja mánaða gömul, og
sammæðra bróður, Óla Barð-
dal, f. 1917, d. í ársbyrjun
1982.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
mundar er Ingibjörg Friðriks-
dóttir, f. 22. desember 1929 í
Þýskalandi, þau giftust 7. des-
ember 1956. Synir þeirra eru:
1) Andri Matthías, f. 5. júní
1956, og á hann einn son, Yng-
var. Sambýliskona hans er Kia
Watnebryn og saman eiga þau
einn son og fyrir átti hún dótt-
ur. Eiginkona Andra er Bibbi
Brannäs og á hún tvo syni,
Tobias og Andreas, og einn
sonarson. 2) Jóhannes, f. 28.
október 1958, eiginkona: Ásta
Katrín Ólafsdóttir. Börn þeirra
eru: Rósa Konný, gift Einari
Páli og eiga þau tvær dætur
saman og fyrir á Einar einn
son, og Daníel Örn, sem á tvær
dætur og einn son, sambýlis-
kona hans er Rakel Dögg og á
hún eina dóttur og tvo syni.
Guðmundur átti
einnig dóttur með
Esther Svanlaugu
Þorsteinsdóttur;
Maríu, f. 8. nóvem-
ber 1956, eigin-
maður hennar er
David Heckadon og
saman eiga þau
tvær dætur, Önnu
Esther og Söru
Margréti.
Guðmundur ólst
upp á Patreksfirði til 1939 en
var þá sendur um haustið til
Reykjavíkur á Landspítalann
vegna berkla í fæti og baki.
Þar tóku við erfið löng ár í
gifsi upp í nára og bakgifsi.
Guðmundur varð stúdent frá
Verzlunarskólanum 1953 og
hóf síðan nám í læknisfræði
árið 1955 en hætti í henni
vegna fjárhagserfiðleika. Guð-
mundur og Inge kynntust á
Vífilsstöðum en þangað kom
hann reglulega í heimsóknir
eftir vistina þar, Inge starfaði
sem hjúkrunarfræðingur á
Vífilsstöðum. Leið þeirra lá til
Keflavíkur og vann Guðmund-
ur á Keflavíkurflugvelli, þar
bjuggu þau fyrstu búskaparár-
in sín eða þar til í byrjun árs
1959 þegar þau fluttust til
Reykjavíkur. Lengst af starf-
aði hann hjá Bræðrunum
Ormsson sem skrifstofustjóri
en seinustu fimm starfsárin
var hann í innkaupum fyrir
ÁTVR.
Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Nú hefur Guðmundur vinur
minn lokið jarðvist sinni. Leiðir
okkar Guðmundar lágu fyrst
saman í Verzló.
Ég var þá í þriðja bekk en
hann í þeim sjötta og var hann
við afgreiðslu ásamt fleirum í
sjoppunni, verslun sem bekkur
hans rak það árið og seldi bæði
sælgæti og gos.
Ég var einn af bestu við-
skipavinum þeirrar verzlunar
og náðum við Guðmundur fljótt
saman, sem þróaðist í góða vin-
áttu sem haldist hefur alla tíð.
Seinna meir varð Guðmundur
sjúklingur á Vífilsstöðum og
eftir að hann náði heilsu var
hann læknanemi við störf þar.
Um þetta leyti, haustið 1954,
höfðu ráðið sig til vinnu á Víf-
ilsstöðum tvær þýskar hjúkr-
unarkonur. Þar sem Guðmund-
ur talaði þýsku varð fljótt gott
samband á milli þeirra. Guð-
mundi hefur þótt sjálfsagt að
kynna mig, vin sinn, fyrir döm-
unum, þótt þýskukunnátta mín
væri þá ekki upp á marga fiska.
Ekki grunaði okkur þá að þær
ættu eftir að verða eiginkonur
okkar.
Grunntónninn í samveru
okkar Guðmundar var gleðin og
glaðværðin, sem hélst alla tíð.
Ég óska Inge, eftirlifandi
konu hans, og börnum bless-
unar og styrks á þessum erfiða
tíma.
Eyþór Heiðberg.
Guðmundur
Gíslason
Elskulegur bróðir okkar,
HELGI SIGURÐSSON,
Kleppsvegi 2,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans
7. ágúst. Útför hans hefur farið fram
í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Grétar Sigurðsson
Hjördís Bára Sigurðardóttir
Edda Íris Eggertsdóttir
NÍELS HEIÐAR KRISTINSSON
netagerðarmaður
frá Dalvík,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
10. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Anton Páll Níelsson Inga María S. Jónínudóttir
Birgitta Níelsdóttir Gunnar Gunnarsson
Þorleifur Kristinn Níelsson Eva Laufey Stefánsdóttir
og aðrir aðstandendur
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógum 4 Opin smíðastofa. kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9-
12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Brids kl. 12. Bónusbíllinn, fer frá Ár-
skógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Opið fyrir innipútt
og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Þátttökulistarnir tilbúnir
og eru í holinu. Hádegismaqtur kl. 11.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort.
Gullsmári Myndlistahópur kl. 9-11.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15.
Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, gönguferð
um hverfið kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir.
Korpúlfar Botsía kl. 10 í Borgum, helgistund kl. 10.30 í Borgum
hádegisverður kl. 11.30, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30, allir hjartanlega
velkomnir. Minnum á kynningarhátíðina í Borgum miðvikudaginn 4.
september kl. 13 þar sem félagsstarfið og starfsskráin í vetur verður
kynnt. Allir velkomnir; fræðsla, skemmtun og tónlistaratriði.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, kaffihúsaferð kl. 14, Uppl. í s. 411 2760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl.
13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30-15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola
1000 kg jafnarðarþunga af snjó.
Vel einangruð og koma með 10 cm
svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum.
Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess
að auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um að annast
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Til sölu byggingarkrani
Byggingarkrani, Liebherr 112 EC-H
árg. 1992, með skoðun og í notkun.
Áhugasamir hafi samband í síma
533-5577.
Vélar & tæki
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á