Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 22
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
50 ára Garðar er
fæddur í Reykjavík en
fluttist ungur í Hafnar-
fjörð og býr í suður-
bænum þar. Hann er
kerfisstjóri að mennt
og sér um vefi Hafnar-
fjarðarbæjar.
Maki: Guðmunda Björk Matthíasdóttir, f.
1974, viðskiptafræðingur hjá Íslenskum
endurskoðendum.
Börn: Þóra Dís Garðarsdóttir, f. 2003, og
Eyjólfur Rafn Garðarsson, f. 2010.
Foreldrar: Eyjólfur Rafn Halldórsson, f.
1943, d. 2001, rafvélavirki, og Bjarnveig
Borg Pétursdóttir, f. 1946, d. 2007,
húsmóðir.
Garðar Rafn Eyjólfsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert svo hugmyndaríkur að þú
gefur þér vart tíma til þess að framkvæma
eina áður en sú næsta tekur yfir.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er alltaf skemmtileg tilbreyting
að skella sér í leikhús eða njóta annarra
listviðburða. Njóttu þess að vera með ást-
vinum þínum og lífs þíns eins og það er nú.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þig langar kannski ekki að hlusta
á það sem ástvinur vill segja þér en þú ert
rausnarlegur og góðhjartaður. Þínir nán-
ustu vilja þekkja þinn innri mann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gáðu að því hvernig þér líður ná-
lægt vinum og kollegum. Sá eini sem tapar
á lausmælgi ert þú sjálfur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hugsanir hafa vald og þú verður að
ná stjórn á þeim áður en þær ná stjórn á
þér. Varastu að dæma hlutina af fyrstu
kynnum því oft ber yfirborðið ekki með sér
hvað undir býr.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að takast á við ábyrgð og
skyldur þessa dagana. Hristu upp í hlut-
unum og leyfðu hugmyndafluginu að njóta
sín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur alltaf verið gefinn fyrir það
óvenjulega og þess vegna ætti dagurinn í
dag að verða þér til ánægju. Reyndu að
forgangsraða verkefnum og draga djúpt
andann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gleðst yfir því að öldurnar
hefur lægt og allir eru á eitt sáttir. Dragðu
djúpt andann og leystu flókna stöðu með
brjóstvitinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gamlir vinir kunna að láta á
sér kræla. Þú velur þér yfirleitt vini sem þú
getur litið upp til.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þú sért vanalega upp á þitt
besta þegar það er nóg að gera hjá þér, þá
geturðu verið afar góð/ur í að gera ekkert.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er allt í lagi að hampa sjálf-
um sér svona af og til ef það er ekki á ann-
arra kostnað. Einbeittu þér að því að tala
hreint út um hlutina frekar en byrgja þá
inni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til þess að
láta hugfallast þótt allt virðist ekki ganga
upp.
störf í Fríhöfninni þegar hann flutti
heim. „Ég slasaðist við störf þar og
hef síðan gengið við göngugrind. Ég
er aðallega í tölvunni núna, hún veitir
mér mikla ánægju og svo horfi ég á
sjónvarpið.“
way í tæpt ár og söng þá dinner-
tónlist meðan fólk sat að snæðingi.
Hann var síðan starfsmaður Fríhafn-
arinnar á Keflavíkurflugvelli þar til
hann flutti til Bandaríkjanna 1999.
Þar bjó hann til 2003 en hóf þá aftur
E
inar Viðar Júlíusson er
fæddur 20. ágúst 1944 í
Keflavík og ólst þar
upp. Hann hóf ungur
að syngja og þegar
hann var í Barnaskólanum í Keflavík
var hann fenginn til að syngja ein-
söng á stúkuskemmtunum og á
árshátíðum hjá barnaskólanum.
„María Markan heyrði mig syngja
og sagði að ég væri bjartur baritón
og vildi fá mig í söngtíma, en ég var
þá byrjaður í rokkinu og vildi syngja
það frekar.“
Einar byrjaði að syngja með
hljómsveitum í Keflavík á dans-
leikjum 1959 fyrst með H.J. kvintett
og svo með hljómsveit Guðmundar
Ingólfs gítarleikara 1960-63 en þá
stofnaði hann ásamt fleirum hljóm-
sveitina Hljóma og var fyrsti söngv-
ari hennar. „Við spiluðum þá Cliff
Richards og The Shadows-lög og
gamla rokkara og lög með Presley.
Þegar Bítlarnir komu fram og ég átti
að syngja Twist and Shout þá vildi ég
ekki öskra og söng lagið eins og Cliff
Richards. Strákarnir voru ekki sáttir
við það og fengu annan söngvara í
Hljóma.“ Einar var þá ráðinn í
hljómsveitina Pónik, sem tók upp
nafnið Pónik og Einar. Hann var
kosinn vinsælasti dægurlaga-
söngvari landsins árið 1965.
Einar söng með hljómsveitinni
með hléum í meira en 30 ár, en hann
þurfti að taka sér hlé öðru hverju út
af raddböndunum. Pónik og Einar
gaf út tvær smáskífur, Einar söng
inn á eina LP plötu með Ellý Vil-
hjálms þar sem þau sungu lög Jenna
Jóns og kom sú plata út 1978. Einar
hefur ennfremur sungið lög á ýmsum
plötum, m.a. lagið Útlaginn á
Íslandslög 3. „Ég held að það hafi
verið besta útkoman á söng mínum á
plötu, það var virkilega vel
heppnað.“
Einar er gagnfræðingur frá Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur. Hann var
starfsmaður í verslun Varnarliðsins í
ellefu ár, verslunar- og skrifstofu-
stjóri í versluninni Víkurbæ í Kefla-
vík í sjö ár, skrifstofumaður hjá
Varnarliðinu í sex ár, verslunarstjóri
í versluninni Hljómvali í Keflavík í
fjögur ár, skemmtanastjóri í Broad-
Einar var í stjórn Verslunar-
mannafélags Suðurnesja í áratug og
var bæði gjaldkeri félagsins og for-
maður sjúkrasjóðs og orlofsnefndar.
Fjölskylda
Einar kvæntist 26.11. 1966 Ólöfu
Hafdísi Ragnarsdóttur, f. 19.3. 1946,
d. 18.6. 1995, verslunarmanni. For-
eldrar hennar voru hjónin Ragnar
Gíslason, f. 28.10. 1918, d. 11.5. 1998,
sjómaður og útgerðarmaður á Siglu-
firði, og María Guðmundsdóttir, f.
19.10. 1923, d. 22.1. 2007, húsmóðir.
Seinni eiginkona Einars var Luella
Cardos frá Bandaríkjunum, en af
sýrlenskum ættum. Þau skildu.
Dætur Einars og Ólafar eru 1) Vil-
borg Einarsdóttir, f. 23.10. 1967,
verslunarmaður í Keflavík, sambýlis-
maður hennar er Þórólfur Beck.
Börn þeirra eru Ólöf Oddný Beck
Þórólfsdóttir og Eiríkur Beck Þór-
ólfsson; 2) Halldóra Einarsdóttir, f.
10.6. 1969, búsett í Arendal í Noregi.
Börn hennar með fyrrverandi sam-
býlismanni, Trausta Ívarssyni, eru
Einar Júlíusson, tónlistarmaður og fyrrverandi verslunarmaður – 75 ára
Pónik og Einar F.v.: Úlfar Sigmarsson, Einar, Sævar Hjálmarsson, Erlendur Svavarsson og Magnús Eiríksson.
Valdi rokkið frekar en klassíkina
Einar í Rokksafninu Plakat af Einari 16 ára og hann sjálfur 49 árum síðar.
40 ára Herdís er
Garðbæingur, fædd
þar og uppalin, og býr
í Ásunum. Hún er
stúdent frá Fjöl-
brautaskóla Garða-
bæjar og er að læra
lögfræði við HR.
Maki: Ingólfur Freyr Elmers, f. 1979,
lagnamaður hjá jarðvinnslufyrirtækinu
Gröfu og grjóti.
Börn: Tómar Hreiðar Thor Elmers, f.
2009, og Ingólfur Týr, f. 2011.
Foreldrar: Tómas Agnar Tómasson, f.
1939, fyrrverandi eigandi Ölgerðarinnar,
búsettur í Garðabæ, og Þórunn Árna-
dóttir, f. 1941, d. 2011, ljósmóðir.
Herdís Rún Tómasdóttir
Til hamingju með daginn