Morgunblaðið - 20.08.2019, Page 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
FIGGJO LEIRTAU FYRIR
MÖTUNEYTI OG SKÓLA
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ GEKKST Í SVEFNI ENN EINA FERÐINA
Í NÓTT.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara með pabba á
hjólabretti.
ÉG ER
MEÐ’ETTA
EN ÉG ER SAMT EKKI
ALVEG VISS MEÐ HVAÐ
HRÓLFUR! FLUGUMAÐURINN
OKKAR Í LIÐI ATLA
HÚNAKONUNGS VAR AÐ SENDA
SKILABOÐ!
LEYMMÉR AÐ SJÁ!
ÞETTA ERU
MJÖG SLÆMAR
FRÉTTIR!
SKILABOÐIN ERU SKRIFUÐ
MEÐ BLÓÐI!!
HVERNIG
VEISTU ÞAÐ?
ÞÚ KANNT
EKKI AÐ
LESA!
„BÍDDU HVERS VEGNA HÆKKAÐI
HEIMILISTRYGGINGIN AFTUR? VIÐ
BÚUM EKKI LENGUR Á FLÓÐASVÆÐINU.”
Erla Hofland Traustadóttir, og Haf-
dís Hofland Traustadóttir; 3) María
Ragna Einarsdóttir, f. 12.2. 1971,
verslunarmaður í Keflavík, sambýlis-
maður hennar er Daníel Fjeldsted
Eðvardsson og synir þeirra eru
Daníel Már Daníelsson og Aron Ingi
Daníelsson, þau misstu dóttur sem
var nefnd María Rós, en hún náði
ekki að lifa nema í u.þ.b. klukku-
stund; 4) Ólöf Hafdís Einarsdóttir, f.
26.12. 1975, skrifstofu- og verslunar-
maður í Arendal. Eiginmaður henn-
ar er Rafn Vilhjálmsson. Synir
þeirra eru Davíð Már Rafnsson, Vil-
hjálmur Gísli Rafnsson og Stefán
Örn Rafnsson, en fyrir átti Ólöf
soninn Einar Júlíus Sigurbjörnsson,
faðir hans er Sigurbjörn Jónsson.
Systkini Einars: Jóna Klara
Júlíusdóttir Tysol, f. 22.2. 1934, 27.4.
2004, húsmóðir í Denver í Colorado í
Bandaríkjunum; Guðmundur Árni
Júlíusson, f. 11.7. 1936, fyrrverandi
yfirsímaverkstjóri í Keflavík, og
Guðríður Elsa Júlíusdóttir, f. 30.6.
1940, fyrrverandi kaupmaður í
Keflavík,
Foreldrar Einars voru hjónin Júl-
íus Jónsson, f. 19.7. 1907, d. 28.1.
1986, bifreiðarstjóri og Vilborg
Árnadóttir, f. 16.7. 1916, d. 24.3.
1968, verslunarmaður og húsfreyja,
þau voru búsett í Keflavík.
Einar
Júlíusson
Ingveldur Jónsdóttir
húsfreyja á Lambhaga
og Straumi
Þorkell Árnason
bóndi á Lambhaga og Straumi í Straumsvík
Ingveldur Þorkelsdóttir
húsfreyja á Teigi
Vilborg Árnadóttir
verslunarmaður og húsfreyja í Kefl avík
Árni Guðmundsson
útvegsbóndi á Teigi í Grindavík
Margrét Árnadóttir
húsfreyja í Klöpp
Guðmundur Jónsson
sjómaður í Klöpp í Grindavík
Guðríður Nikulásdóttir húsfreyja í Kefl avík
Bergrós Jónsdóttir rak þvottahúsið Grýtu
Valgerður
Guðmunds dóttir
húsfreyja á Velli
og í Ásgarði í
Grindavík
Einar
Dagbjartsson
skipstjóri og
útgerðar-
maður í
Grindavík
Dagbjartur
Einarsson skipstjóri
og framkvæmda-
stjóri í Grindavík
Eiríkur Óli
Dagbjartsson
útgerðarstjóri hjá
Þorbirni
Erla Wigelund
fv. kaupmaður
í Verðlistanum
Vilborg Júlía
Dagbjarts-
dóttir Wigelund
húsfreyja í
Kefl avík og Rvík
Pétur Kristjánsson
söngvari
Laufey Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Helena Eyjólfsdóttir
söngkona
Ragnhildur Einarsdóttir
vinnukona í Mýrdal
Ólafur Ólafsson
vinnumaður í Mýrdal
Hugborg Helga Ólafsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Nikulásson
ættaður sjómaður í Rvík, lést í Spönsku veikinni
Vilborg Jóhannsdóttir
húsfreyja á Hamri
Nikulás Halldórsson
bóndi á Hamri í Flóa
Úr frændgarði Einars Júlíussonar
Júlíus Jónsson
bifreiðarstjóri í Kefl avík
Á laugardag heilsaði Páll Ims-land leirliði á sætum degi:
Konan hans Gísla í Gröf
gat af sér börnin án töf.
Þau hentust þar 12
um hillur og gólf.
Hún þáði’ auk þess 13 að gjöf.
Pétur Stefánsson orti um „hin-
segin helgi“ á laugardag:
Ég gleðinnar blæs nú í belgi,
brosi í kampinn og hlæ.
Því núna er hinsegin helgi
með hátíð um allan bæ.
Ég segi við konur og kalla,
komið, og hræðist það ei.
– Með virðing skal umgangast alla
þó ýmsir menn séu hér gay.
Davíð Hjálmar í Davíðshaga
sagði: „Enn rignir!“:
Þreytandi er þræsingsregn.
Þrái ég að batni;
beinin orðin blaut í gegn
og blaðran fyllist vatni.
Á föstudaginn varð Pétri Stef-
ánssyni hugsað til helgarinnar:
Þó víndrykkja sé bölvað böl
sem brjálar skapið þekka,
keypti ég mér áðan öl
sem ætla ég að drekka.
Fía á Sandi svaraði að bragði:
Nokkrar vísur ég hef ort
er ég smakka vínið.
Ef ég líð af öli skort
er það ljóta grínið.
Helgi Zimsen sagði: „Bæjar-
hrafninn minn settist áðan á öxl
mína og krunkaði í eyra mér“:
Hvunndagsamstrið yfir dríf,
ærist skáldamerin.
Ofar lyngi ölur svíf,
– enda gerjuð berin.
Helgi bætti síðan við: „Og verði
honum vel af því.“
Fyrir viku rúmri orti Pétur Stef-
ánsson um „kveðskap“ á Leir:
Stuðla margir stefin hér,
stígur gleðialdan.
Pólitísk ljóðin leiðast mér,
les ég þau afar sjaldan.
Sumir yrkja um víf og vín,
það vekur ýmsum gleði.
Aðrir helst um eymd og pín
og ögn af lífsins streði.
Um náttúru kveða nokkrir hér
naskir annað slagið.
En vinsælast þó alltaf er
að yrkja um veðurlagið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hinsegin helgi og
kveðskap