Morgunblaðið - 20.08.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Pepsi Max-deild karla
KR – Víkingur R....................................... 1:0
Breiðablik – Valur .................................... 3:3
Staðan:
KR 17 12 3 2 36:20 39
Breiðablik 17 9 3 5 34:22 30
FH 17 8 4 5 24:24 28
Stjarnan 17 7 6 4 29:25 27
HK 17 7 4 6 24:19 25
Valur 17 7 3 7 31:27 24
ÍA 17 6 4 7 22:22 22
Fylkir 17 6 4 7 26:29 22
KA 17 6 2 9 24:29 20
Víkingur R. 17 4 7 6 25:27 19
Grindavík 17 3 9 5 14:19 18
ÍBV 17 1 3 13 13:39 6
Inkasso-deild kvenna
Grindavík – Fjölnir.................................. 1:1
Birgitta Hallgrímsdóttir 17. – Sara Mon-
toro 61.
Þróttur R. – Afturelding......................... 2:0
Linda Líf Boama 26., Álfhildur Rósa Kjart-
ansdóttir 41.
ÍR – FH...................................................... 0:1
Birta Stefánsdóttir 51.
Haukar – ÍA.............................................. 4:1
Sæunn Björnsdóttir 21., Vienna Behnke
23., 49., Kristín Fjóla Sigþórsdóttir 42. –
Andrea Magnúsdóttir 11.
Staðan:
Þróttur R. 14 12 0 2 58:10 36
FH 14 11 2 1 42:15 35
Tindastóll 14 8 1 5 35:32 25
Haukar 14 8 0 6 23:16 24
Afturelding 14 6 2 6 25:19 20
ÍA 14 4 4 6 16:20 16
Grindavík 14 3 6 5 19:25 15
Augnablik 14 4 2 8 11:23 14
Fjölnir 14 3 4 7 17:31 13
ÍR 14 0 1 13 3:58 1
England
Wolves – Manchester United.................. 1:1
Staða efstu liða:
Liverpool 2 2 0 0 6:2 6
Arsenal 2 2 0 0 3:1 6
Manch.City 2 1 1 0 7:2 4
Manch.Utd 2 1 1 0 5:1 4
Brighton 2 1 1 0 4:1 4
Tottenham 2 1 1 0 5:3 4
Bournemouth 2 1 1 0 3:2 4
Sheffield Utd 2 1 1 0 2:1 4
Everton 2 1 1 0 1:0 4
Burnley 2 1 0 1 4:2 3
Norwich 2 1 0 1 4:5 3
Þýskaland
B-deild:
Osnabrück – Darmstadt ......................... 4:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Holland
B-deild:
Jong AZ Alkmaar – Excelsior................ 1:2
Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með Jong AZ og skoraði mark liðsins úr
vítaspyrnu.
Elías Már Ómarsson kom af bekknum
hjá Excelsior á 77. mínútu.
KNATTSPYRNA
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kristófer Acox, leikmaður KR og
landsliðsmaður Íslands í körfuknatt-
leik, er í kapphlaupi við tímann um að
vera klár í slaginn þegar tímabilið í
úrvalsdeild karla hefst í byrjun októ-
ber. Á miðvikudaginn í síðustu viku
komst hann að því að gömul ökkla-
meiðsli hefðu dregið dilk á eftir sér.
Kristófer ökklabrotnaði árið 2014
þegar hann lék með Furman-
skólanum í bandaríska háskólabolt-
anum og voru settar tvær skrúfur í
beinið til þess að hjálpa því að gróa
aftur. Skrúfurnar eru ekki lengur í
beininu heldur fastar í lið í ökklanum
og þarf Kristófer nú að gangast undir
aðgerð til þess að fjarlægja skrúf-
urnar.
„Ég er í raun bara að bíða eftir því
að fá tíma hjá lækninum. Ég fékk að
vita það á miðvikudaginn í síðustu
viku að ökklinn á mér væri ekki í
góðu standi og núna er bara verið að
vinna í því að reyna að koma mér að
sem allra fyrst og ég er í raun bara að
bíða eftir símtali eins og staðan er í
dag. Skrúfurnar gera ekki neitt gagn
og gera í raun bara illt verra eins og
staðan er í dag. Það er engin ástæða
til þess að vera með þær lengur og
planið er að fjarlægja þær og sjá
hvort bólgurnar í ökklanum lagast
ekki í kjölfarið. Ef það gengur upp
þyrfti ég að fara í einhverja end-
urhæfingu auðvitað en að sama skapi
myndi ég sleppa við gifs og hækjur.
Vonandi dugar að fjarlægja skrúf-
urnar og ég verð þá að öllum lík-
indum klár í upphafi tímabilsins en ef
það dugar ekki þarf ég að fara í
stærri og meiri aðgerð. Ef ég þarf að
fara í stóra aðgerð eru litlar sem eng-
ar líkur á að ég verði byrjaður að
spila fyrir áramót. Það mun taka mig
allavega þrjá til fjóra mánuði að jafna
mig ef ég fer í aðgerð og vel gæti
farið svo að ég yrði ekki klár fyrr en
úrslitakeppnin hefst, sérstaklega ef
ég læt fjarlægja skrúfurnar en kemst
svo að því eftir einn til tvo mánuði að
ég þurfi að fara í aðgerð.“
Spenntur fyrir heilu tímabili
Kristófer var valinn besti leik-
maður úrvalsdeildarinnar á síðustu
leiktíð, annað árið í röð, þegar KR
vann sinn sjötta Íslandsmeistaratitil í
röð. Leikmaðurinn viðurkennir að
hann hafi verið orðinn spenntur fyrir
komandi tímabili með KR sem hefur
styrkt sig vel í sumar.
„Þetta er fyrst og fremst leiðinlegt
því ég var orðinn mjög spenntur fyrir
komandi tímabili. Ég sé mest eftir
því að hafa ekki bara farið strax til
læknis þegar ég fór að finna fyrir
þessu í ökklanum. Ég hélt að ég gæti
í raun bara spilað í gegnum sársauk-
ann undir lok síðustu leiktíðar, hvílt
vel í sumar og mætt svo ferskur til
leiks í haust. Eftir að hafa komist að
því að það væri allt í rugli í ökklanum
á mér sé ég auðvitað mikið eftir því
að hafa ekki látið athuga þetta fyrr.
Að sama skapi finn ég ekki mikið fyr-
ir þessu og ég get bæði gengið og
hlaupið þannig að ég er bara eins já-
kvæður og hægt er að vera. Vonandi
lagast þetta við það eitt að fjarlæga
skrúfurnar og ég held í vonina um að
það muni gerast.“
Þeir Brynjar Þór Björnsson, Jak-
ob Örn Siguðarson og Matthías Orri
Sigurðarson sömdu allir við KR fyrr í
sumar og var Kristófer orðinn
spenntur að spila með þeim og sér í
lagi Matthíasi, en þeir eru æskuvinir
og spiluðu saman upp yngri flokkana
með KR.
„Við snúum aftur til æfinga á
næstu dögum og ég mun ekki geta
tekið þátt í þeim æfingum. Ég verð
eitthvað í húsi að sniglast í kringum
strákana þótt það sé ekki eins. Við er-
um búnir að styrkja okkur og það er
leiðinlegt að gera ekki byrjað að æfa
af fullum krafti með til dæmis Matta,
sem ég var orðinn mjög spenntur að
spila með á nýjan leik. Það er frábært
að fá Brynjar og Jakob aftur og ég tel
okkur vera með mjög spennandi lið í
ár. Sjálfur var ég orðinn spenntur að
ná loksins heilu tímabili en nú gæti
það allt eins farið svo að ég missti af
öllu tímabilinu, það kemur í ljós.“
Aðrir þurfa að stíga upp
Pavel Ermolinskij, liðsfélagi Krist-
ófers til fjölda ára í KR, söðlaði um í
síðustu viku og skrifaði undir tveggja
ára samning við Val. Þá voru Jón
Arnór Stefánsson og Helgi Már
Magnússon báðir orðaðir við Vals-
menn eftir að Pavel skrifaði undir en
Kristófer segist aldrei hafa haft
mikla trú á því að Jón Arnór og Helgi
myndu skrifa undir hjá öðru liði en
KR.
„Það er auðvitað allt slæmt að
missa leikmann eins og Pavel, bæði
fyrir mig og liðið. Við náðum alltaf
mjög vel saman inni á vellinum en að
sama skapi vonast maður til þess að
leikmenn eins og Matti og Jakob stígi
upp núna. Við erum með fáránlega
hæfileikaríkan hóp og þótt það hafi
verið mjög slæmt að missa Pavel tel
ég okkur eiga að ráða við þetta brott-
hvarf. Ég held að fjölmiðlar hafi
kannski gert meira úr þessu en til
stóð með Helga og Jón. Ég skal alveg
viðurkenna það að ég varð smá
smeykur þegar ég sá að Pavel var
kominn í Val en eftir því sem ég best
veit kom það aldrei til greina að Jón
Arnór eða Helgi færu þangað líka,“
sagði Kristófer Acox í samtali við
Morgunblaðið.
Mesta eftirsjáin að hafa
ekki leitað fyrr til læknis
Gæti misst af stórum hluta tímabilsins Gömul meiðsli draga dilk á eftir sér
Morgunblaðið/Hari
Öflugur Kristófer Acox var besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð en veit ekki hvernig veturinn verður í ár.
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik ferðaðist í gær
frá Íslandi til Sviss þar sem liðið leikur sinn síðasta leik í
forkeppninni fyrir EM 2021.
Leikur Sviss og Íslands fer fram í bænum Montreux á
morgun og hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma.
Íslenska liðið er í góðri stöðu fyrir leikinn en sigur
gulltryggir efsta sæti riðilsins og sæti í undankeppni EM
sem hefst í febrúar 2020. Aðeins efsta liðið í riðlinum í
forkeppninni fer áfram í undankeppnina. Vinni Sviss
verða liðin þrjú í riðlinum öll með jafnmörg stig eða tvo
sigra og tvö töp hvert. Ísland stendur hins vegar lang-
best að vígi hvað stigamun varðar eftir risasigurinn á
Portúgal síðasta laugardag.
Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans, Finnur Freyr Stefánsson og
Baldur Þór Ragnarsson, ákváðu að gera eina breytingu á liðinu frá fyrstu
þremur leikjunum, en Ragnar Ágúst Nathanaelsson kemur inn í liðið í stað
Hjálmars Stefánssonar. Er þar miðherji settur inn í stað framherja.
sport@mbl.is
Ragnar inn í stað Hjálmars
Ragnar
Nathanaelsson